Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 33
MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
Heimsmóti æskunnar lokið:
33
Ástandið fer versnandi á hungursvæðum í Afríku þrítt fyrir gífurlega aðstoð
alþjóðlegra líknarfélaga á þessum sléðum.
Afríka:
„Berjumst
MoNkvu, 6. igúsL AP.
HUNDRAÐ þúsund manns
söfnuðust saman á Lenin-leik-
vanginum í Moskvu á laugar-
dagskvöldið til aA vera viA lok
12. heimsmóts æskunnar. Þar
var mikiA um dýrAir, skrautsýn-
ingar, hljóAfæraleikur, fimleika-
sýningar og síAan var glæsileg
flugeldasýning. Sjö fulltrúar úr
stjórnmálaráAinu voru viAstadd-
ir en Mikhail Gorbasjev, flokks-
leiAtogi, sem setti leikana, var
þar ekki.
Tuttugu þúsund erlendir
þátttakendur sóttu heimsmót
æskunnar að þessu sinni. Áður
en lokaathöfnin hófst sendi
skipulagsnefnd hátiðarinnar
frá sér orðsendingu til æsku-
lýðsins um víða veröld þar sem
hvatt er til meiri kynna þjóða
í millum, enda geti slíkt orðið
að ómetanlegu gagni til að
auka á skilning og vináttu. „Þó
svo að skoðanamunur sé
fyrir friði og frelsi...“
óhjákvæmilegur um nokkur
atriði þegar svo margir komi
saman ... hafi hann ekki leitt
til þess sem mikilvægast var
— þ.e. að berjast fyrir friði og
þeim rétti hvers manns að lifa
við frelsi og frið, sagði í yfir-
lýsingunni.
Mikið lestarslys í Frakklandi:
Stöðvarstjóri
sóttur til saka
Cahors, Frakklandi, 6. ágúst AP.
SAKSÓKN ARINN í Cahors i
Frakklandi hefur krafist þess að
stöðvarstjóri á járnbrautarstöð verði
ákærður fyrir manndráp af vangá og
þar með gerður ábyrgur fyrir lest-
arslysi er varð þar um helgina. 35
manns fórust í slysinu og 163 slösuð-
ust.
árekstri, þar sem þær voru á sama
sporinu.
í gær afhenti talsmaður hinna
rikisreknu járnbrauta i landinu
samöngumálaráðherranum, Paul
Quiles, skýrslu um slysið. Sagði
samgöngumálaráðherrann að
skýrslan yrði gerð opinber.
Slysið gerðist sennilega með
þeim hætti að stöðvarstjórinn lét
lestarstjóra hafa rangar upplýs-
ingar um áætlun með þeim afleið-
ingum að tvær lestir lentu í
Stöðvarstjórinn var í yfir-
heyrslu um helgina, en var látinn
laus í gær. Er hann nú í umsjá
vina, og þjáist að sögn af miklu
þunglyndi.
Astandíð versnar
á hungursvæðunum
Nairobi, Kenya, 6. ágúst. AP.
ASTTANDIÐ á hungursvæðum í
fimm Afríkulöndum fer versnandi
vegna þess að dreifingu matvæla
er stórlega ábótavant að því er seg-
ir í tilkynningu frá Alþjóða-
matvælastofnuninni í dag. Segir í
tilkynningunni að búast megi við
að enn fleiri þjáist og deyi úr
hungri á næstunni. Ástandið er
verst í Eþíópíu, Súdan, Tjad, Níger
og Mali.
I yfirlýsingu Alþjóða-
matvælastofnunarinnar segir að
aðvaranir þessa efnis hafi fyrst
verið sendar út fyrir mörgum
mánuðum, en misjafnlega lítið
eða mikið um þær skeytt. Tekið
er fram að vegna þess að farið sé
að rigna víða líti út fyrir sæmi-
lega uppskeru víða, en það dugi
ekki til þar sem mikið magn af
matvælum hafi hlaðist upp án
þess að dreifingu væri síðan
sinnt til þeirra staða þar sem
fólk hafi þjáðst hvað mest.
Ennfremur segir að alþjóðlegar
Hjálparstofnanir gætu hraðað
dreifingu með því að nota flug-
vélar meira til að koma matvæl-
um á afskekkta staði og einnig
með því að senda fleiri flutn-
ingatæki á vettvang. Tekið er
fram að sæmilega góð kornupp-
skera virðist ætla að verða í átta
löndum, þar sem ástand var
slæmt, þ.e. Burundi, Kenya, Les-
otho, Marokkó, Rwanda, Tanz-
aníu, Sambíu og Zimbabwe. Á
„neyðarlista" FAO eru auk land-
anna sem nefnd eru í upphafi
Angola, Botswana, Grænhöfða-
eyjar, Mauritanía, Mósambik,
Senegal og Sómalía. Áréttaðar
eru fyrri yfirlýsingar um að
ástandið sé afar misjafnt frá
landi til lands og innan hvers
um sig einnig.
Tillaga bandarísks eðlisfræðings:
Skiptinemar tryggi friðinn
('hicago, 1. ágú.st. AP.
Eðlisfræóingurinn dr. Grey Dia-
mond hefur lagt fram umdeildar
tillögur í bandarísku læknatímariti
þess efnis að Bandaríkjamenn og
Sovétmenn geri með sér samning
um 250 þúsund skiptinema á há-
skólastigi frá hvoru landi sem yrðu
eins konar gíslar til þess að koma í
veg fyrir kjarnorkustríð.
Diamond segir að stefna
Bandaríkjamanna í kjarnorku-
vopnamálum einkennist af hug-
myndaleysi og bætir við að ósér-
plægnar tillögur um skipti á
sviði vfsinda gætu haft meiri
áhrif á sovésk stjórnvöld en
linnulaus kjarnorkuvopnafram-
leiðsla.
Samkvæmt tillögum Dia-
monds, sem birtust í tímariti
bandaríska læknafélagsins, yrði
varpað hlutkesti um þá skipti-
nema sem færu.
Tillögurnar hafa lítinn með-
byr fengið og verið gagnrýndar
fyrir að fela í sér gróf brot gegn
bandarísku stjórnarskránni:
Þær feli í sér frelsissviptingu;
ekki sé hægt að þvinga fólk til að
búa í alræðisríki.
Fyrrnefnt tölublað lækna-
tímaritsins er helgað kjarnorku-
stríði og áhrifum geislunar f
kjölfar þess.
1 blaðinu er einnig lagt til aö
bætt verði í læknaeiðinn ákvæði
sem mæli gegn kjarnorkustríði,
en slíkt ákvæði hefur verið í sov-
éska læknaeiðnum siðan 1983.
„Evrópa“
dregin af
strandstað
(imlandi, 6. ágúst Frá fréttariUra Morgvn-
blaAsins, Nils Jörgen Bruun.
Á SUNNUDAG tókst að draga
skemmtiferðaskipið „Evrópu“ af
strandstað, en það steytti á skeri
fyrir utan llolsteinsborg á vestur-
strönd Grænlands nokkru áður. Það
var „fsblómið“ frá Konunglegu
dönsku Grænlandsversluninni sem
kom skipinu af strandstað.
Um borð f „Evrópu" voru 580
farþegar og 300 manna áhöfn og
sakaði engan mann. Skipið er
vestur-þýzkt og er í siglingum um
Norður-Atlantshaf með ferða-
menn. Það var að koma frá
Reykjavík og flestir farþeganna
eru Þjóðverjar, Frakkar og
Bandaríkjamenn.
Skipstjóri „Evrópu" segir að
ekki hafi verið hafnsögumaður um
borð, skipið hafi verið að létta
ankerum þegar kröftugur vind-
sveipur gekk yfir skipið svo að það
lenti á skerinu.
■ ■■ '
\F/
ERLENT
ÓTRÚLEG
afborgunarkjör
Sumartilboð til 10. ágúst
Gaggenau Bára
heimilistæki þvottavélar
Electrolux WT- 460
eldavélar þurrkarar
Electrolux Electrolux
uppþvottavélar ísskápar
Alda
þvottavélar
0 J
Vörumarkaðurinn hf.
Ármúla 1 a, s. 686117.