Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 46
'.GERÐU ÞÉR GLAÐAFi DAG.
• • • § • m j* Séé • • • § •
• ••••• J ••••••
• • • 1 tfl/tl/li • • •
* kynningarueröS' á góöu kexi
Gildiríjúlí og ágúst í öUum góöum verslunum
Félagsráð Osta-
og smjörsölunnar.
Otvíræð laga-
skylda ráðherra
að leita til-
lagna ráðsins
MOBGUNBLAÐINU hefur borizt
eftirfarandi fréttatilkynning frá Fé-
lagsridi Osta- og smjörsölunnar,
sem undirrituð er af formanni ráðs-
ins, Guðmundi Þorsteinssyni:
Fundur í stjórn Félagsráðs
Osta- og smjörsölunnar sf. 30. júlí
sl. fjallaði um starfshætti land-
búnaðarráðuneytisins, við samn-
ingu reglugerðar um endurgreiðslu
hins sérstaka fóðurgjalds og þá
staðreynd að ráðherra hefur ekki
orðið við skriflegum tilmælum
formanns Félagsráðs frá 13. þ.m.
um að það fái að fylgjast með und-
irbúningi reglugerðarinnar.
Af tilefni frétta af þessu máli í
útvarpi undanfarið, var samþykkt
að senda ráðherra eftirfarandi
ábendingar og afhenda þær einnig
fjölmiðlum:
1. Samkvæmt 2. málsgrein 35. gr.
laga nr. 46 frá 27. júnf 1985, um
framleiðslu, verðlagningu og
sölu á búvörum er skylt að leita
tillagna samtaka framleiðenda í
viðkomandi búgrein áður en
reglugerðir skv. VII. kafla lag-
anna, um stjórn búvörufram-
leiðslunnar eru gefnar út.
2. I 5. gr. sömu laga er Félagsráði
OSS falið að tilnefna fulltrúa
mjólkurframleiðenda i Fram-
leiðsluráð landbúnaðarins.
3. Félagsráð OSS er einu samtök-
in, sem allir mjólkurframleið-
endur landsins eiga aðild aö.
Því telur fundurinn að á land-
búnaðarráðherra hvíli ótvíræð
lagaskylda til að leita tillagna Fé-
lagsráðs um væntanlega reglugerð
um endurgreiðslu hins sérstaka
fóðurgjalds.
Kjörmannafundur
Ámessýslu:
„Leyfið ekki
innflutning
á kjöti“
Kyntra < >Mingahoki, Cnúpverjahreppi, 1. ipúnL
Á kjörmannafundi Stéttarsam-
bands bænda í Árnessýslu, sem
haldinn var í Árnesi í dag, 1. ág-
úst, var einróma samþykkt að
skora á ráðamenn að leyfa ekki
innflutning á kjöti til varnarliðs-
ins.
í greinargerð með tillögunni
segir að nóg kjöt af öllum teg-
undum sé til í landinu fyrir
varnarliðið en mikil hætta á
smitsjúkdómum og smygli út af
vellinum fylgi innflutningi þess
á kjöti. Samþykktin var undir-
rituð af öllum fundarmönnum.
— Jón