Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 51
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
51
Ýmsir stuöningmenn bjórsins
hafa líka sínar athugasemdir við
frumvarpið. Hversvegna að leyfa
bjór með 4% til 5% alkóhólstyrk-
leika að rúmmáli en ekki 2,5—4% ?
Hversvegna má ekki selja bjór, ef
leyfður verður, í einnota umbúð-
um (dósum)? Eru pósthús hentug-
ar bjórafgreiðslur á þeim stöðum
þar sem ATVR hefur ekki útsölur?
Bjórinn átti, samkvæmt frum-
varpinu, eingöngu að selja í verzl-
unun ÁTVR, en mjög víða eru eng-
ar slíkar. Þess vegna talaði stöku
þingmaður um misrétti eftir bú-
setu þetta mál varðandi.
Bjórinn á víð-
ast griðland
Bruggun, sala og neyzla bjórs á
sér stað meðal allflestra þjóða
heims. Styrkleiki ölsins er mis-
munandi, allt upp að 13% að
rúmmáli. Álgengasti styrkleikinn
er um eða rétt undir 5%. Flestum
þykja bragðgæði bjórs af þeim
styrkleika mest. Á Norðurlöndum,
í Englandi og N-Ameríku er styrk-
leikinn yfirhöfuð frá 3,2% til 5%
vínandi að rúmmáli.
í greinargerð með bjórfrum-
varpinu segja flutningsmenn:
„Frá upphafi fslandsbyggðar,
alla söguöldina og jafnvel lengur,
var af áfengum drykkjum ein-
göngu drukkið öl og mjöður. Eftir
því sem leið fram á aldir breyttist
þetta til hins verra þegar brenni-
vínið kom til sögunnar. Lengi vel
hafði þó ölið betur en upp úr miðri
17. öld fóru hlutföllin að jafnast.
Eftir 1730 náði brennivínið yfir-
höndinni og ölið þvarr að mestu
leyti. Af þessum orsökum jókst
drykkjuskapur svo ákaflega að
beztu mönnum þjóðarinnar þótti
horfa til vandræða ...
Frá setningu bannlaga 1. janúar
1912 til þessa dags hafa allmörg
frumvörp verið flutt á Alþingi til
breytingar á áfengislögunum.
Smám saman vóru bannlögin af-
numin, en slitur af þeim hefur þó
haldizt í íslenzkri löggjöf, þ.e.
bann við bruggun og sölu áfengs
öls...“
Síðan er rakin saga bjórfrum-
varpa: 1932, 1947, 1960, 1965 og
breytingartillagna við áfengislög
og tillagna um þjóðaratkvæði um
bjór: 1945,1966 og 1967. Þessi mál
komu þó aldrei til endanlegrar
ákvörðunartöku. Það er fyrst á
liðnu þingi sem frumvarp af þessu
tagi gengur til atkvæða í báðum
þingdeildum. Með þeim hætti þó,
sem flestir þekkja, að þingmenn
nánast glutruðu málinu úr hönd-
um sér.
Slitur úr bannlögum frá 1912
Bannlögin vóru sett 1912. Sumir telja tíma þeirra, þ.e. tfmabil áfengis-
banns í landinu, góðæri. AArir ár heimabruggs og áfengissmygls. Bannlögin
vóni smám saman afnumin. Fyrst komu létt vín — í tengslum við söluhags-
muni okkar á saltfiski. Sfðan sterkari drykkir. Slitur af bannlögunum stend-
ur þó enn: bjórbannið. íslendingar hafa ekki drukkið bjór löglega í 73 ár, ef
undan eru skildir ferðamenn (sem raunar eru fjölmargir), farmenn, flugliðar
og gestir erlendra sendiráða.
Alþingi stendur enn á bjórbanninu. Alþingi felldi það svo fólk fengi að
taka afstöðu til þessa máls í þjóðaratkvæðagreiðslu.
sérfargjald
-fjölskyldufargjald
Veittur er 20-30% afsláttur af fullu
fargjaldi. Þetta fargjald heimilar sérstak-
an afslátt fyrir fjölskyldur sem ferðast
saman báðar leiðir, t.d. til Norðurland-
anna, Bretlands og Luxemborgar. Þá
borgar einn fullt fargjald og hinir hálft.
Gildistími er allt að þrem mánuðum en þó
aldrei meira en einn mánuður á
fjölskyldufargjöldum.
Gildir ekki til Ameríku.
Hringduísíma 25100 eða komdu við
á næstu söluskrifstof u okkar
FLUGLEIDIR
Duglegir og sparney tnir
vinnubílarfrá PEUGEOT
■Y‘ W ' '» »
TALBOT 1100 VF 2 PEUGEOT 504GR PICK-UP
Vélastærð 1118-3 55 HA Vólastærðir: 1796-380HA Benzín
Framhjóladrifinn 2304-370HA Diesel
Sjálfstæð fjöörun Afturhjóladrifinn
Flutningsrými 2600 lítrar „Splittað drif“
Burðargeta 500 kíló Pallstærð 1,45x2,00 M.
Kostar kr. 307.000 Buröargeta 1400 KG. Kostar frá kr. 420.000
HAFRAFELL
símar 685211 - 683537
Tollgengi 1. marz 85
UMBOÐIO Á AKUREYRI
VÍKINGUR SF.
FURUVÖLLUM 11
SÍMI: 21670