Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 52

Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 52
52 MORGUNBLADID, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985 MEGNIÐ af fjársjóði úr frægu spænsku skipi, sem sökk undan strönd Kúbu í sept- ember 1622, hlaðið siifurstöngum og pening- um, er fundiö. Þetta er einhver mesti fjár- sjóöur, sem fundizt hefur. VeriÖ getur aö verðmæti hans nemi allt aö 400 milljónum dala. „Við höfum verið á slóð fjársjóðsins í nokkurn tíma og nú höfum við rekizt á geysi- stóran stafla af gulli, silfri og gimsteinum," sagði Mel Fisher, sem leitað hefur að fjár- sjóðnum um langt árabil. Skipstjórinn segir að hann hafi fundið silfur- stengur í stórum haug, milljónir silfurpeninga, koparmuni og aðra hluti,“ sagði Bleth McHaley, vara- forseti fyrirtækis, sem Fisher stofnaði á sínum tima til að leita að fjársjóðnum. Kafarar telja að á staðnum þar sem fjársjóðurinn fannst, um 60 km vestur af Key West, Florida, séu 48 lestir af silfurstöngum, sem hver um sig vegur 32 kíló. Meðal annars sem fannst voru trékistur fullar af silfurpeningum, silf- urskjöldum, skeiðum og öðrum verðmætum munum. A.m.k. 100.000 silfurpeningar eru þegar komnir í leitirnar, eða rúmur þriðjungur þeirra silfur- peninga, sem getið var um í farm- skrá skipsins. Þar með er lokið leitinni að flaki Nuestra Senora de Atocha 550 lesta galleóns úr spænskum gullflota, sem sigldi frá Havana á Kúbu og lenti í fellibyl 6.september 1662. Samkvæmt farmskránni voru í skipinu 1200 silfurstengur frá Kúbu og öðrum nýlendum Spán- verja í Nýja heiminum þegar það sökk í fellibylnum. Hálfum mánuði áður en fjár- sjóðurinn fannst átti Fisher ekki fyrir launagreiðslum til starfs- manna sinna. Tveimur dögum eft- ir fundinn höfðu 40 kafarar bjarg- að 200 silfurmunum, sem vógu sjö lestir, og enn eru ekki öll kurl komin til grafar. „Þetta er ómetanlegur fjársjóð- ur,“ sagði Fisher í viðtali. „Þetta er stórkostlegt." “-Ég er milljónamæringur," sagði næstráðandi hans, Don Kincaid. „Það er heilmikið af silf- urmunum þarna niðri.“ FELLIBYLURINN Nuestra Senhora de Atocha var flaggskip de Cadeireta mark- greifa, sem var fær og reyndur notaforingi. Hann var einnig varkár stjórnmálamaður og vissi að embættismenn í Madrid gátu hæglega eyðilagt frama manna, sem höfðu náð langt. Gull- og silfurverzlun Spánverja stóð í um 250 ár og á þeim tíma fórust þúsundir skipa þeirra, flest á alræmdum, 250 km löngum sandrifjum við Florida. Brottför silfurflotans 1622 seinkaði vegna sögusagna um hol- lenzka sjóræningja og mótsagna- kenndra orðsendinga, sem sífellt bárust frá Spáni. Cadeireta komst ekki til Havana, þar sem gullskip- Mel Fisher og fólag hans fundu fyrst silfurstengur og akkeri úr flakinu 1973 yzt á keilulaga svæöinu. Meö því aö fara ótal sinn- um þvert og endilangt um svæöiö gátu þeir fylgt slóö | flaksins til skipsskrokks- ins, þar sem þeir fundu megniö af fjársjóðnum fyrir nokkrum dögum. - I fárviöri einum mánuöi síöar dreiföust reiöa- búnaöurinn og efri þiljur yfir a.m.k. 10 km keilulaga svæöi í norövestri. Spænska skipiö Nuestra Senora de Atocha var á leiö frá Kúbu til Spánar 1622 þegar þaö rakst á rif viö Flórída í fellibyl. Þaö sökk um 1600 norð-norö- vestur af rifinu. Staðurinn þar sem fjársjóðurinn leyndist. Fjarlægðin frá staðnum þar sem fyrstu hlutirnir fundust 1973 um 15 km. in söfnuðust saman fyrir sigling- una yfir Atlantshaf, fyrr en í ág- ústbyrjun og nokkur tími leið áður en öll skip hans komust þangað. Cadeireta ákvað að flotinn skyldi leggja af stað 4.september og flotinn fór frá Havana í góðu veðri. Tæpum sólarhring síðar lentu skipin í gífurlegum fellibyl. Þau dreifðust um stórt svæði, segl- búnaður þeirra eyðilagðist, mörg siglutré brotnuðu og mörg hundr- uð sjómenn og farþegar fórust. Skipstjórarnir reyndu að sigla undan vindi og biðu eftir þvl að veðrið lægði. Fárviðrið stóð í fimm eða sex daga. Þegar það gekk niður sneru þau skip, sem staðið höfðu felli- bylinn af sér, aftur til Havana. Niu eða 10 hinna 28 skipa, sem lagt höfðu af stað, komu ekki aft- ur. Flest skipin sem fórust voru herskip, en þrjú helztu galeón flot- ans, sem höfðu verið hlaðin fjár- sjóðum, höfðu sokkið — Nuesta Senora de Atocha, Santa Margarita og Nuestra Senora de Kosario. LEIT HAFIN Leit var þegar hafin að skipun- um og fyrst gekk allt að óskum. „Rosario" fannst strandað á einni Tortugas-eyja. öll áhöfnin og allir farþegarnir voru á lífi og á næstu vikum tókst að bjarga farminum. Lengra I austri sáu Spánverjar „Santa Margarita“ mara í kafi og fengu þær upplýsingar hjá mönnum, sem þeir björguðu, að Senora de Atocha hefði farizt skammt þar frá, í um fimm kíló- metra fjarlægð. Annað fárviðri skall á áður en takast mætti að finna flakið og hætta varð við björgunartilraun- ina. Seinna þegar björgunarmenn fóru aftur á staðinn sáust engin ummerki um Atocha eða Margarita Atocha hafði sokkið á aðeins um 15 metra dýpi, en í síðari fellibyln- um dreifðist flakið yfir 21 ferkíló- metra svæði. Síðan fór skipið á kaf í botnleðju. Svo mikið var í húfi að ekki var hætt við leitina að gullskipunum. Samkvæmt opinberum upplýsing- um voru 47 lestir af silfurstöng- um, peningum og gulli I Atocha og líklega um helmingi minna magn í Margarita Auk þess var mikill smyglvarningur í báðum skipun- um — óskráðar gull- og silfur- stengur, sem kaupmenn, landnem- 1 / - Spænskur gullpeningur, doblúna, jafnvirði tveggja punda á sínum tíma. Laun manna voru 6—14 pens í dag. Kafari bjargar silfurmun. Karfa dregin upp með muni úr flakinu. ar og spilltir embættismenn ætl- uðu að smygla til Evrópu. Þetta voru gífurleg auðæfi á 17.aldar mælikvarða. Það var því engin furða að stjórnvöld og aðrir hlutaðeigandi aðilar réðu til starfa „sérfræðinga" og ævintýra- menn, sem voru reiðubúnir að hætta lífinu til að leita að týndu skipunum í von um að finna fjár- sjóðinn. Árið 1626 fann einn þessara leitarmanna flak Margarita og hluta farmsins var bjargað á næstu árum. Hér var um að ræða 350 silfurstengur, 64.750 peninga, 109 koparplötur, 17 silfurmuni og auk þess fallbyssur, framhlaðn- inga, sverð, skeiðar, diska og fleiri hluti. Björgunin var geysimikið afrek, ef tillit er tekið til þess hve frum- stæð björgunartæki voru notuð á þessum tíma. Engan þarf að undra að Spánverjum tókst ekki að ljúka verkinu, en furðulegt má telja að þeim skyldi takast að bjarga e.t.v. tveimur þriðju hlutum fjársjóðs- ins í Margarita Afgangurinn varð eftir á hafsbotni, ásamt fjársjóðn- um í Atocha, sem var ennþá meiri. GAMALT ÁHUGAMÁL Melvin Fisher, sem nú hefur fundið fjársjóðinn í Nuestra Sen- ora de Atocha, og hyggst bjarga honum á næstu árum, hefur haft áhuga á flakinu og fjársjóðnum árum saman. Fisher er dæmigerður fjár- sjóðsleitarmaður: eirðarlaus og bjartsýnn ævintýramaður. Hann er verkfræðingur að mennt, en fann ekkert starf við sitt hæfi þeg- ar hann lét af herþjónustu eftir síðari heimsstyrjöldina. Hann fékkst við ýmis störf og stundaði m.a. um tíma kjúklinga- rækt í Hobart, Indiana, en ákvað að leggja fyrir sig köfun, sem hann hafði haft áhuga á síðan hann var 11 ára. Þá munaði minnstu að hann drukknaði þegar hann reyndi málningadollu fyrir köfunarhjálm. Hann fór til Florida til þess að lifa á þessu áhugamáli sínu, kaf- aði eftir humri, seldi köfunarbún- að og kenndi köfun. Hann fór í nokkra misheppnaða leiðangra og

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.