Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 53
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
53
finna ýmislegt fleira. þar á meðal
nokkra gullmuni. Seinna fundust
þrjár gullstengur. Merkingarnar
voru grannskoðaðar og upplýs-
ingarnar sendar Lyon. Hann at-
hugaði lýsingar á 901 málmstöng,
sem getið var um í farmskrá At-
ocha
Lyon fann það sem hann leitaði
að. Leit Fishers hafði borið árang-
ur. Nú var aðeins eftir að bjarga
fjársjóðnum upp á yfirborðið. En
það reyndist seinlegt, torsótt og
dýrt verk.
Leifar skipsins höfðu dreifzt yf-
ir stórt svaeði af völdum strauma
og storma og of seinlegt reyndist
að bjarga verðmætum munum til
að standa undir kostnaði.
Atocha krafðist meiri fórna.
Einn af bátum leiðangursmanna,
Northwind, sökk í hvassviðri,
nákvæmlega 10 árum upp á dag
áður en fjársjóðurinn fannst á
fjármagnaði þá með ýmsum ráð-
um.
Hundruð kafara hafa starfað
við Florida-sandrifin síðan eftir
stríð og hafa haft milljónir dala
upp úr krafsinu. Eftirlit með þeim
hefur verið aukið á síðari árum og
þeir hafa verið neyddir til að hafa
náið samstarf við stjórnvöld.
FYRIRTÆKI
Fertugur að aldri seldi Fisher
aleiguna og stofnaði ásamt nokkr-
um öðrum áhugamönnum fyrir-
tækið Fjársjóðabjörgunin hf.
Sumarið 1964 höfðu þeir heppnina
með sér þegar þeir björguðu gulli,
silfurpeningum og skrautmunum
að verðmæti 500.000 dala úr einu
af mörgum skipsflökum, sem er að
finna undan strönd Florida.
{ stað þess að nota sinn hluta af
hagnaðinum til fjárfestinga ákvað
Fisher að leita að mesta fjársjóðn-
um við Floridastrendur — fjár-
sjóðnum í Nuestra Senora de At-
ocha og Santa Margarita
Fisher fluttist til Key West,
hins gamla bæjar Hemingways,
Bill Moore, einn leitarmanna,
með silfurstöng úr flakinu.
Fjögur skip björgunarfélags Fishers
1970 og varð þekktur í bæjarlífinu.
Árum saman bjó hann í gömlum
húsbát og ók um í notuðum Merce-
des, sem hann greiddi 600 dali
fyrir.
Síðan Fisher byrjaði að leita í
gömlum skipsflökum við strönd
Florida hefur öll fjölskylda hans
tekið þátt í björgunaraðgerðunum.
Dolores kona hans stundar enn
köfun og átti eitt sinn heimsmet i
þolsundi.
Fisher taldi sig vita nokkurn
á staðnum þar sem flakið fannst
upp. Einhvem veginn tókst honum
að afla meira fjár og það bjargaði
honum að hann hafði ráðið i sína
þjónustu háskólakennara, Eugene
Lyon, sem vann að doktorsritgerð
um búsetu Spánverja í Florida, i
skjalasafni í Sevilla á Spáni.
Fisher bað hann að leita í safn-
inu, sem hefur að geyma 50 millj-
ónir skjala, flest óskráð, að öllum
upplýsingum, sem þar væri að
finna um gullflotann frá 1622. „Ef
þér tekst að tryggja að ég komist I
veginn hvar leifar Atocha væri að
finna og lagði allt í sölurnar til að
finna það. Til þess að standa
straum af byrjunarkostnaði seldi
hann kjúklingabú sitt.
Árið 1968 leituðu kafarar Fish-
ers í 101 dag á svæðinu við Efri-
og Neðri Matecumbe-sandrif og
studdust við skjöl úr spænskum
söfnum, þar sem minnst var á At-
ocha. Menn Fishers minni flök og
höfðu talsvert upp úr krafsinu, en
Atocha fannst ekki.
NÝ VITNESKJA
Fimm eða sex árum síðar hafði
Fisher eytt aleigunni, en það
hvarflaði ekki að honum að gefast
innan við 400 metra fjarlægð frá
Atocha skal ég greiða þér 10.000
dollara," sagði hann.
Þetta var gífurlegt verk, en Ly-
on lét sér hvergi bregða. Hann
stautaði sig fram úr 350 ára göml-
um, illlæsilegum, opinberum
skjölum og farmskrám. Smám
saman komu staðreyndirnar í ljós.
Hann gat fljótlega fært Fisher
mikilvægar fréttir: „Staðurinn,
sem þú leitar að, er 160 km frá
staðnum þar sem flotanum frá
1622 hlekktist á.“
Upplýsingarnar bentu til þess
að flak Atocha gæti verið við
Marquesas-sandrifin skammt frá
Key West. Fisher sendi kafara
Fisher skálar
fyrir fjársjóðnum.
sína þangað og gaf þeim fyrirmæli
um að rannsaka þriggja fermílna
neðansjávarsandrif 16 km suð-
vestur af Marquesas. Hann gizk-
aði á að Atocha hefði siglt á rifið
og brotnað í spón. Smáuppgötvun,
sem virtist uppörvandi í fyrstu,
villti um fyrir honum.
Árið 1973 fundu menn á bát
Fishers, „Virgalona", fyrstu hlut-
ina úr flakinu — akkeri og þrjár
silfurstengur, tæpa fimm kíló-
metra frá staðnum sem Fisher
hafði gizkað á. Seinna sagði einn
aðstoðarmanna Fishers: „Þetta
var röng vísbending og kostaði
okkur mörg ár.“
ÞROTLAUS VINNA
Allur búnaður björgunarfélags
Fishers var fluttur á nýja staðinn
og sama ár fannst skipskjölur. En
var þetta rétta skipið?
Með þrotlausri vinnu tókst að
Mununum komið
niður í lest.
dögunum. Tuttugu og eins árs
gamall sonur Fishers, Dirk, ung
eiginkona hans og ungur kafari
biðu bana.
Fisher hélt samt ótrauður
áfram að kafa ofan í flakið. Þá
varð hann fyrir öðru áfalli. Yfir-
völd í Florida gerðu kröfu til alls
þess sem björgunarmennirnir
höfðu fundið og gerðu það upp-
tækt.
Það tók Fisher mörg ár að
sanna rétt sinn til farms Atocha
Samkvæmt úrskurði hæstaréttar
Bandaríkjanna 1982 munu rúm-
lega 80 menn, sem standa að Fjár-
sjóðsbjörgunarfélagi Fishers og
hafa lagt margar milljónir dala í
leitina, skipta andvirði þess sem
verður bjargað á milli sín, Fish-
er-fjölskyldunnar og starfsmanna
fyrirtækisins.
Starfsmenn Fishers fá að með-
altali 100.000-300.000 dollara í
sinn hlut, eftir því hvað verðmæti
fjársjóðsins reynist mikið. Til að
koma i veg fyrir að einhverjir
utanaðkomandi færu að leita í
flaki Atocha réð Fisher í sína þjón-
ustu vopnaða kafaraverði og kom
fyrir myndbandseftirlitskerfi neð-
ansjávar. Sjö björgunarskip eru á
verði á svæðinu.
„Golden Doubloon", sem Mel Fisher lét smíða. Þar sýnir hann
ferðamönnum nokkuð af því sem hann hefur fundið á hafsbotni.
Kortið sýnir staðinn
þar sem fjársjóðurinn fannst.
FLORIDA
Miami
KeyWest
Havana
CUBA
0 HiltS 100
ÁRANGUR
Þegar Fisher hafði sigrað í
málaferlunum höfðu hann og
menn hans fundið megnið af stór-
brotnum farmi skipsins. Síðan
fundu þeir flak Santa Margarita
í maí i vor fundu menn Fishers
gull, gullpeninga, silfur og gim-
steina að verðmæti tveggja millj-
óna dala í skipsflökunum, en
sögðu að þeim hefði ekki tekizt að
hafa upp á aðalhluta flaks Atocha
Leitin var aukin um allan helm-
ing.
Fisher hefur haft 73 menn í
vinnu i sumar og þeir hafa notað
nokkra báta við björgunina. Við
leitina hafa verið notuð fullkomn-
ustu neðansjávar-leitartæki, sem
hafa komið að miklum notum.
Tveir synir Fishers, Kim og
Kane, stjórnuðu leitinni þegar
fjársjóðurinn fannst á dögunum
og nutu aðstoðar 20 kafara.
Fjársjóðurinn fannst undir
sandi og leðju á um 20 metra dýpi,
um 3,5 km frá staðnum þar sem
gullið fannst í vor. Fyrir fimm ár-
um kafaöi fjölskyldan á svipuðu
svæði — aðeins rúmum kílómetra
frá fjársjóðnum. Þegar hann
fannst að lokum hafði fjölskyldan
vitað í marga mánuði að hún væri
rétt hjá honum.
Eftir fundinn sagði Fisher að
björgunarævintýrið hefði borgað
sig, þótt það hefði kostað son hans
lífið fyrir tíu árum. Hann neitaði
því að hann hefði ráðizt í björgun-
ina til þess að hagnast á henni.
„Fyrir mér er þetta fyrst og
fremst áhugamál," sagði hann.
Áður en fjársjóðurinn fannst
hafði munum að verðmæti 80
milljónum dala verið bjargað af
svæðinu, þar sem skipinu hlekkt-
ist á, þótt meginhluti fjársjóðsins
gengi Fisher alltaf úr greipum.
Flakið er ekki aðeins mikilvægt
vegna silfurs þess og gulls. Það er
mjög vel varðveitt og verður
merkilegt viðfangsefni vísinda-
manna. Mestallur skipsskrokkurin
og farmurinn virðast leynast und-
ir öllum silfurstöngunum.
Aðalfornleifafræðingur björg-
unarfélagsins, Duncan Mathew-
son, telur að ef það reynist rétt
geti fundur Atocha orðið eins mik-
ilvægur og fundur Pompeii og
grafhýsis Tutankhamons.
Sjaldgæft er að finna heilan og
óskemmdan farm frá 17.öld og
hann getur fært mikilvæga vitn-
eskju um siglingar í Nýja heimin-
um og margt annað á þeim tíma.
Mathewson bendir á að skipið var
smíðað i Havana 1618, einum
mannsaldri eftir ófarir spænska
ógnarflotans við strendur Eng-
lands. Hann telur að flakið geti
m.a. varpað ljósi á nýjungar í
skipasmíði á þessum tíma.
Fleiri upplýsingar geta fengizt í
flaki Santa Margarita Og ekki er
langt síðan athyglin beindist að
enn einu skipsflaki, sem Fisher
hefur fundið. Um 450 km norður
af Key West, við Fort Pierce i
Florida, hafa aðrir starfsmenn
fyrirtækis hans fundið fjársjóð,
sem talið er að sé úr fimm skipum
er sukku 1715.
í Key West er því haldið fram
að aðeins broti af fjársjóðnum úr
Atocha hafi verið bjargað. Sjálfur
segir Fisher að það muni taka tvö
ár að bjarga verðmætunum og að-
eins það verk að skrásetja alla
munina getur tekið mörg ár.
Síðan flakið fannst hafa menn
hallazt að því að fjársjóðurinn sé
ekki alveg eins verðmætur og talið
var í fyrstu. En hann hefur greini-
lega vakið athygli bandarísku
gjaldheimtunnar. Skopteiknari
nokkur velti því fyrir sér hvort
hann gæti ekki orðið lausnin á
fjárlagahalla Ronalds Reagan for-
seta.
Starf Fishers hefur að lokum
borið árangur, en hann hefur orð-
ið að færa miklar fórnir.
— GH tók saman.