Morgunblaðið - 07.08.1985, Side 55
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
55
gott málefni. Sr. Sigurður var
málafylgjumaður og góður félagi,
fljóthuga og skapríkur tilfinn-
ingamaður. Hann átti ríkan metn-
að og vildi heilshugar ræktun
lands og lýðs.
Sr. Sigurður var drengskapar-
maður og vildi ávallt hafa það,
sem sannara reyndist. Því tók
hann nærri sér hvers konar óheil-
indi og undirferli, því að engum
manni vildi hann vísvitndi gera
illt.
Sr. Sigurður kveður, eftir langt
og merkt ævistarf. Söfnuðir hans
fyrir vestan og hér syðra kveðja
mætan kennimann með virðingu
og þökk. Öll prestsverk fóru hon-
um einkar vel úr hendi. Við prest-
ar í Rangárþingi, sem vorum hon-
um samferða á lífsins vegi í lengri
eða skemmri tíma, söknum hans,
en samgleðjumst honum með það
hlutskipti, sem við trúum að nú sé
orðið hans. Sr. Sigurður var ein-
stakur gæfumaður í einkalífi.
Hann kvæntist Benediktu Egg-
ertsdóttur hreppstjóra og fyrrum
alþingismanns í Laugardælum,
sem hann unni hugástum frá
fyrsta degi til hins síðasta. Guð
einn veit, hve mikill og góður lífs-
förunautur hún var, en það kunni
sr. Sigurður að meta. Þau hjónin
eignuðust tvo syni og eina fóstur-
dóttur. Synirnir eru: Sigurður,
flugstjóri í Reykjavík, og Eggert,
alþingismaður á Bergþórshvoli.
Uppeldisdóttirin er Ásta Valdi-
marsdóttir frá Hvallátrum á
Breiðafirði.
Nokkru áður en sr. Sigurður
andaðist, spurði ég hann, hvar
hann hefði kosið sér leg. Hann var
að vanda fljótur til svars og sagði:
„í Laugardælakirkjugarði. Frá
Laugardælum á ég einhverjar
mínar bestu minningar. Þar
kynntist ég konunni minni."
Við prestar í Rangárþingi vott-
um fjölskyldu sr. Sigurðar og
vandamönnum hans öllum inni-
lega samúð og munum ávallt
blessa minningu hans.
Hannes Guðmundsson, Fellsmúla
Ragnhildur Jóns-
dóttir - Minning
Fædd 5. apríl 1929
Dáin 28. júlí 1985
Það var vor árið 1949 á skrif-
stofu Viðskiptanefndar,
Skólavörðustíg 12. Einn daginn
birtist ung og gjörvuleg stúlka —
og var ráðin í sumarafleysingar.
Hún var þá nemandi í Verzlun-
arskóla íslands, full af áhuga og
sópaði að henni hvar sem hún fór.
Þarna var komin Ragnhildur
Jónsdóttir frá Nýja-bæ á Seltjarn-
arnesi, dóttir Jóns Guðmundsson-
ar bónda þar og endurskoðanda og
Bryndísar Jónsdóttur konu hans.
Ragnhildur var mikill Seltirning-
ur og yfirgaf reyndar aldrei nesið
til búsetu á öðrum stað.
{ blóma lífsins, árið 1950, giftist
Ragnhildur Ingólfi Björnssyni vél-
stjóra, en varð fyrir því þunga
áfalli að missa hann eftir nokk-
urra mánaða hjónaband. Síðar
giftist hún Sigtryggi Hallgríms-
syni framkvæmdastjóra. Ragn-
hildur eignaðist 5 börn og ól upp
fóstursoninn Ingólf Árna Jónsson.
Á skrifstofunni var góð sam-
vinna og sérstaklega ríkti mikil
eining í vélritunarherberginu. Úr
því varð að 1949 stofnuðum við
saumaklúbb, sem starfar enn í
dag. Þótt leiðir hafi legið út og
suður hefur enginn helst úr lest-
inni, en nál hefur ekki verið snert
í áraraðir. { klúbbnum okkar hafa
vináttan og trygglyndið skipað
hæsta sess og þar var Ragnhildur
enginn eftirbátur. Þrátt fyrir mik-
il umsvif á stóru heimili og ómæld
störf utan heimilis gaf hún sér
tíma til að líta inn ef nokkur tök
voru á. Ragnhildur var mjög eftir-
sótt til starfa enda hamhleypa til
verka og þótti einn bezti vélritari
hér strax á yngri árum. Ekki var
svikist um og engu verki skilað
hálfu — því Ragnhildur vinkona
okkar var heilsteypt og vönduð til
orðs og æðis. Lengi hefur hún átt
við margs konar heilsuleysi að
stríða en hetjulundin brást henni
aldrei.
Við vinkonurnar úr sauma-
klúbbnum 35 ára gamla söknum
nú vinar í stað. Það er skarð fyrir
skildi, sem ekki verður fyllt.
Hressandi blærinn og alúðin, sem
fylgdu Ragnhildi, leika ekki leng-
ur um stofur okkar. Við þökkum
allar stundirnar, sem okkur verða
ógleymanlegar og við geymum nú
í sjóði hjartans.
Við biðjum Ragnhildi vinkonu
okkar góðrar heimkomu við vista-
skiptin. Þreyttur líkami hefur
hlotið hvíld eftir allt of stutta ævi.
Ástvinum öllum vottum við
dýpstu samúð.
Áslaug, Sisi, Gerður,
Anna G. og Anna S.
Gestum okkar kemur saman um aö maturinn
okkar sé góöur, enda koma þeir aftur og aftur. Nú
er búiö aö opna nýja salinn og auka þjónustuna.
En hvaö um það:
Um helgina ætlar Ning aö stjórna matseldinni á
sinn alkunna hátt. Upplagt aö gefa frúnni, karli
og krökkum frí frá matseld og uppvaski og aka
suöur í Kópavog.
Sérstaklega mælum viö meö:
★ Lambi í ostrusósu með sveppum og
grænmeti.
★ Snöggsteiktu nautakjöti m/gulri bauna-
sósu.
VEISLURNAR
okkar eru orönar fræg-
ar um allan bæ.
Litlar, stórar og góöar
veislur með austur-
lenskum mat og skreyt-
ingum.
Reynid austur-
lenska matinn. Allt
ödruvísi matur og
betri en nokkurn
gat grunad.
Manðarin
Nýbýlavegi 20
Sími 46212
:\ö,
{P-
iv
Jrvai
Svef/
nsófa
S. 77440
Opið fimmtudag og
föstudag til kl. 19.00.
ÚTLIT — VERÐ — GÆÐI
fyrir hvern sem er.
0ar<)<j, ~',sj
ské/anSt°f(jnjz
Þú finnur alltaf réttu
svefnherbergishúsgögnin
hjá okkur