Morgunblaðið - 07.08.1985, Síða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
„ \!\ í'í'u komo. í risaeblu skcifukast?'1
... að láta hana
iða alla afkœti.
sams konar flöskum!
HÖGNI HREKKVÍSI
n Ri'kiSSTJÓRN/N e>Of?JSAÐi HONU/M FyKlP^
AÐ SETJA EKKI NI6XJR ROFOR l'ÁR/
Þyrmid
lífi
trjánna
Einn langþreyttur skrifar:
Nú er nóg komið. Menn verða að
kunna sín takmörk. Hvað á þetta
gegndarlausa kjaftæði í smábörn-
um að ganga lengi? Maður þorir
vart að opna blað lengur, því þau
eru öll yfirfull af linnulausu
þvaðri óharðnaðra unglinga um
fánýt poppgoð. Af hverju er svona
rusl birt? Leiðir þessi „umræða"
unglinganna til einhverrar niður-
stöðu? Birtingar þessara bréfa á
að stöðva og það snarlega. Papp-
írssóunin sem fylgir þessu tóm-
stundagamni er óhófleg. ímynduð
ykkur hvað aðdáendurnir hafa á
samviskunni: Daglega eru birt
sams konar bréf þar sem deilt er
fram og aftur um keisarans skegg.
þau eru svo prentuð í ríflega
40.000 eintökum svo að ég miði nú
við Moggann. Hvað ætli þetta vegi
þungt? Hvað hefur mörgum tonn-
um af pappír verið eytt í þennan
óþarfa? Þeir mega hafa líf margra
fagurra trjáa á samviskunni. í
guðs lifandi bænum hættið, þótt
ekki sé nema til þess að þyrma lífi
nokkurra alsaklausra trjáplantna
sem vita ekki einu sinni að lífi
þeirra er eytt til ónýtis.
Bréfritari telur Wham- og Duran Duran-aðdáendur stuðla að dauða alsak-
lausra trjáa með blaðaskrifum sínum.
Þessir hringdu . . .
Auðveldið
umferð
gangandi
vegfarenda
Guðmundur Magnússon
hringdi:
Eftir að SVR fór að ganga
Fjallkonuveginn upp að
Reykjafold gafst möguleiki á
gönguleið yfir hæðina. Þar
fylgir þó einn böggull skamm-
rifi. Á hæðinni er gömul girð-
ing sem helst þarf að köngrast
yfir. Einnig er kirkjugarðurinn
mjög vel girtur þeim megin
frá, þannig að maður þarf að
ganga hringinn i kring til að
komast inn í hann. Þar sem
þetta er fyrirtaks gönguleið,
væri ekki úr vegi að borgin léti
fjarlægja girðinguna eða
a.m.k. gera fólki auðveldara að
fara ferða sinna um svæðið, því.
þar er fagurt útsýni.
Dagstimplið
eggin
Dóra Líndal, Haukanesi 20,
hringdi:
Ég er búin að kaupa egg marg-
sinnis í sumar, sem mjög oft
hafa reynst óæt þegar þau hafa
verið soðin. Ég fór í ferðalag um
daginn, keypti 10 egg og sauð.
Þegar við ætluðum að fara að
borða, voru þau gul og græn. Nú
er verðhækkun á eggjum fyrir-
huguð og mig langar til að
spyrja eggjaframleiðendur hvort
þeir geti ekki verið svo elskulegir
að hreinsa gömul egg úr búðum
áður en verðhækkunin tekur
gildi, svo þetta endurtaki sig
ekki. Væri ekki hægt að stimpla
eggin, rétt eins og mjólkurhyrn-
urnar, þar sem kveðið er á um
síðasta söludag? Neytendur eiga
heimtingu á góðri vöru, þótt hún
sé dýrari fyrir vikið.
Ég vil þakka sjónvarpinu fyrir
þáttinn Hver greiðir ferjutoll-
inn?, sem er afbragð. Til þjón-
ustu reiðubúinn var einnig ágæt-
is þáttur. Hættið að sýna ofbeld-
ismyndir í sjónvarpinu, hafið í
huga að þetta efni lendir inni á
heimilum hjá fólki.
Gleraugu
fundust
5241-3874 hringdi.
Ég fann gleraugu fyrir rúm-
lega hálfum mánuði (laugardag-
inn 20. júlí) á Fríkirkjuvegi, rétt
fyrir framan Fríkirkjuna. Þau
eru í rauðu leðurhulstri, karl-
mannsgleraugu með lituðu gleri.
Þau eru vönduð að allri gerð,
sennilega eign eldri manns.
Velvakandi hvetur lesendur
sem sakna umræddra gleraugna
að hafa samband sem fyrst.
Ættu að hætta
að hindra
fæðuöflun vinn-
andi manna
Finnur Pálmason, Laugarnes-
vegi 39 hringdi:
Ég hvet íslensk stjórnvöld ein-
dregið til að láta í engu undan
þrýstingi Greenpeace-manna.
Þeir eru ekkert annað en sam-
ansafn eftirleguhippa sem trufla
hvalveiðar íslendinga. Það er á
þeirra ábyrgð og því hvet ég
skipstjóra íslensku hvalveiði-
skipanna til að láta ekki deigan
síga og keyra þá í kaf. Ég veit
um dæmi þess að Grænfriðungar
hafi lengt dauðastríð hvala til
muna með afskiptasemi sinni.
Grænfriðungar ættu að hætta
þessu stríði og fá sér nytsamlega
vinnu eins og heiðarlegt fólk,
berjast gegn hungri í heiminum
í stað þess að hindra fæðuöflun
vinnandi manna.
Kona í Kópavogi furðar sig á því að leknar sem stundað hafa sérnám
erlendis séu ekki kallaðir sérfræðingar.
Eru heimilislæknar
ekki sérfræðingar?
Kona í Kópavogi hringdi. þeirra hafa stundað sérnám með
Mig langar til að spyrja hlut- heimilislækningar sem aðal-
aðeigandi yfirvöld, þ.e. gerð- grein, en eru ekki sagðir sér-
ardóm, hvort heimilislæknar séu fræðingar og fá laun f samræmi
ekki sérfræðingar rétt eins og við það. Þetta er óneitanlega dá-
aðrir læknar, margir hverjir eft- lítið öfugsnúið.
ir margra ára nám? Margir