Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
63
VELVAKANDI
SVARAR í SÍMA
10100 KL. 14—15
FRÁ MÁNUDEGI
TIL FÖSTUDAGS
IItt'U If
Hjálpsamir lögregluþjónar
Þakklát móðir skrifar:
Á undanförnum vikum hafa
mikið verið til umræðu starfs-
hættir lögreglunnar. Hefur þessi
umræða að mestu verið neikvæð í
garð lögreglunnar og tengst
„Skaptamálinu" margfræga. Hef-
ur í þessum umræðum komið ber-
lega í ljós sú árátta íslendinga að
hamra á því sem miður fer, en láta
ógetið þess sem vel er gert. Vil ég
því gjarnan lýsa þvi jákvæða, sem
mér hefur mætt i skiptum mínum
við lögreglu, sem ég tel og fullyrði
að er einkennandi fyrir störf
hennar. Vil ég af mörgum dæmum
nefna aðeins eitt.
Fyrr í sumar var ég á ferð um
miðborg Reykjavíkur í bifreið
minni einu sinni sem oftar, ásamt
eins árs gamalli dóttur minni.
Þurfti ég að skjótast í hús eitt
andartak og þar sem dóttir mín
var sofandi skildi ég hana eftir í
bílnum. Er ég kom út aftur
skömmu síðar uppgötvaði ég mér
til mikillar skelfingar, að í öllu
óðagotinu hafði ég læst bíllyklana
inni í bílnum og var auk þess
sprungið á öðru afturhjóli bílsins.
Stend ég þarna og veit ekki mitt
rjúkandi ráð, er tveir ungir og al-
mennilegir lögregluþjónar komu
aðvífandi með bros á vör og buðu
mér aðstoð sína. Nú hafði dóttir
mín vaknað og grét sáran, innilok-
uð í bílnum. Lögregluþjónarnir
brugðu skjótt við og opnuðu bíl-
inn. Annar lögregluþjónninn tók
upp grátandi dóttur mína og rétti
mér. Stafaði mikil hlýja og elsku-
legheit frá lögregluþjónunum, sem
jafnvel kornung dóttir mín virtist
skynja, svo snögglega hætti grát-
ur hennar. Er þessir liðlegu lög-
regluþjónar höfðu fært mér barn-
ið úr lokuðum bílnum, tóku þeir
strax til við að skipta um sprung-
inn hjólbarðann. Að því loknu
hurfu þeir á braut, jafn snögglega
og þeir birtust. Svo lítillátir voru
þeir að mér gafst ekki færi á að
þakka þeim fyrir ómetanlega
hjálp þeirra. Vil ég því nota tæki-
færið og þakka lögregluþjónunum
nr. 184 og 213. Er mikið öryggi í
því fólgið að vita af mönnum sem
ykkur, sem ætíð eru boðnir og
búnir að rétta borgurunum hjálp-
arhönd þegar illa stendur á.
. .
Bréfritari telur að raargir lögregluþjónar séu hin mestu Ijúfmenni og sendir nr. 184 og 213 sérstakar þakkir fyrir
hjálpsemi.
Oflof er háð
Bókmenntaunnandi skrifar:
Morgunblaðið er gott blað og
ber að virða að þar hefur löngum
verið skipst á skoðunum en ein-
hæfur áróður legið í láginni. Blað-
ið er efnismikið, næstum allir eiga
að geta fundið þar eitthvað við sitt
hæfi. ólafur M. Jóhannesson hef-
ur nú um skeið ritað pistla i blaðið
þar sem gjarnan er rætt um dag-
Skrifið eða
hringið til
Velvakanda
Velvakandi hvetur lesendur til
að skrifa þættinum um hvaðeina,
sem hugur þeirra stendur til —
eða hringja milli kl. 14 og 15,
mánudaga til föstudaga, ef þeir
koma þvi ekki við að skrifa.
Meðal efnis, sem vel er þegið,
eru ábendingar og orðaskipti,
fyrirspurnir og frásagnir, auk
pistla og stuttra greina. Bréf
þurfa ekki að vera vélrituð, en
nöfn, nafnnúmer og heimilisföng
verða að fylgja ölhi efni til þátt-
arins, þó að höfundar óski nafn-
leyndar.
Sérstaklega þykir ástæða til að
beina því til lesenda blaðsins
utan böfuðborgarsvæðisins, að
þeir láti sinn hlut ekki eftir liggja
hér í dálkunum.
skrárliði fjölmiðlanna. Flestir eru
þeir læsilegir og margir hverjir
ágætir. Ég get þó ekki neitað þvi
að fimmtudaginn 1. ágúst rak mig
i rogastans er ég las pistil ólafs.
Þar heldur hann þvi fram, að
breski sjónvarpsþátturinn „Hver
greiðir ferjutollinn?" standist
fyllilega samjöfnuð við „klassísk
meistaraverk bókmenntanna, eins
og þeirra sem hafa sprottið undan
penna Ibsens, Synge, O’Neiil,
Tennessee Williams eða Sófókles-
ar, þótt frásagnarmátinn sé ann-
ar“. Manninum getur ekki verið
alvara. Ég hef horft á þessa sjón-
varpsþætti og finnst þeir ágætir,
en að líkja þeim við hugverk
margra mestu andans jöfra hlýtur
annað hvort að vera grín eða sett
fram i fljótfærni. Menn verða að
vera færir um að greina á milli
hreinnar skemmtunar og listar
þegar verk sem þessi eru athuguð.
Eins og Snorri sagði, er oflof háð.
Er maðurinn að spotta?
Opnum aftur í Suðurveri
12. ágúst
Byrjum af fullum krafti meö kúr, 3ja
vikna 4x í viku.
Morgun, dag- og kvöldtímar.
Lausir tímar.
Líkamsrækt og megrun fyrir konur á
öllum aldri.
Allir finna flokk viö sitt hæfi í Suöurveri.
Innritun fri 6. ágúst. gímj 8373()
Ath.:
Námskeiöin halda áfram í Bolholti
6.—15. ágúst 2ja vikna 3x í viku.
20.—29. ágúst 2ja vikna 3x í viku.
Innritun í síma 36645.
Ljósastofa JSB
Bolholti 6
er opin frá kl. 8 á
morgnana til 23 á kvöld-
in virka daga og frá
10—18 á laugardögum.
25 mín. Sontegra-perur.
Toppgæöi — Toppaö-
staöa — Toppþjónusta.
Tímapantanir í síma
36645.
Jazzballettskóli Báru