Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 64
64
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
VERSLUNARMANNAHELGIN ’85
Blíða á Birkimel
en fáir gestir
FREKAR fáir sóttu hátíðina sem haldin var á Birkimel á Barðaströnd um
verslunarmannahelgina að sögn lögreglunnar á Patreksfirði.
„Hátiðin fór mjög vel fram í alla
staði og voru engin teljandi óhöpp
hvorki á Birkimelum eða á vegum í
sýslunni," sagði Jónas Jónsson lög-
regluþjónn í samtali við Morgun-
blaðið. „Ölvun var ekki mikil þótt
gestir væru eingöngu unglingar
sem höfðu lítið við að vera þar sem
einungis voru haldnir dansleikir á
mótssvæðinu. Veðrið var stórkost-
legt alla helgina og olli blíðan því
að mótsgestir voru rólegir i tíðinni
og lengi að tygja sig til heimferðar.
Umferð var talsverð, sérstaklega í
austurhluta sýslunnar."
Jónas sagði einnig að óvenjumik-
ið hefði verið um fjölskyldufólk í
Vatnsfirði og hefðu verið milli 80 og
90 tjöld í firðinum þegar mest var.
Laugahátíð:
Sex hundruð gestir
UM 8EX hundruð gestir sóttu Lauga-
hátið héraðssambands Suður-I'ingey-
inga um helgina, að sögn Kristjáns
Ingasonar eins af forráðamönnum há-
tíðarinnar. Samkoman var haldin á
sunnudaginn og var fjölskyldu-
skemmtun síðdegis en dansleikur un.
kvöldið.
„Veður var slæmt og gekk á með
rigningu og roki á mótsdaginn. Það
kom þó ekki að sök þar sem
skemmmtanirnar voru haldnar i
leikfimihúsinu við héraðsskólann á
Laugum og skemmti fólk sér hið
besta,“ sagði Kristján meðal ann-
ars. „Umgengni var mjög góð, ölvun
sáralítil og óhöpp ekki teljandi.
Gestir voru aðallega fólk úr sýsl-
unni sem hvarf til síns heima eftir
hátíðahöldin, þannig að enginn
tjaldaði á mótssvæðinu í rigning-
unni.“
ÞAÐ ER
GAMAN
AÐ MALA..
Nú er sumar og allar vikur fegrunarvikur.
Húsasmiðja, byggingamarkaðurinn við sund,
er með á nótunum!
Á einum og sama stæð færð þú bæði efni og áhöld.
HLJSA
SMIÐJAINJ
i 3-5
Morgunbladið/Sigurgei r
Séð yfir hluta af tjaldborginni, heimatjöld og aðkomutjöld, en samfleytt í þrjá sólarhringa mátti sjá fólk sitjandi í
brekkunum.
Vestmannaeyjar:
Atta þúsund manns
á Þjóðhátíðinni
Vestmannaeyjum, 5. ágiwL
UM EÐA yfir 8.000 manns sóttu
þjóðhátíð Vestmannaeyja { Herj-
ólfsdal um helgina og er þetta því
fjölmennasta þjóðhátíðin, a.m.k. nú
hin síðari árin. Þetta þótti ákaflega
velheppnuð þjóðhátíð í alla staði og
fór hún hið besta fram í hvívetna.
Hjálpaðist þar allt að, mikill mann-
fjöldi í hátíðarskapi, sérlega gott
veður alla helgina og síðast en ekki
síst að hátíðin gekk yfir án teljandi
óhappa eða slysa. Ökklabrot mun
hafa verið alvarlegasta slysið í Daln-
um.
Eins og gjarnan áður var tals-
verð ölvun á hátíðarsvæðinu í
Herjólfsdal en mjög lítið um að
það slettist upp á vinskapinn hjá
samkomugestum. Mjög góð gæsla
var á svæðinu sem félagar úr
Björgunarfélagi Vestmannaeyja
önnuðust og Hjálparsveit skáta
var allan tímann með slysavakt í
gamla Golfskálanum þar sem því
fólki var veitt aðhlynning sem
varð fyrir einhverjum meiðslum
og hlúð var að þeim er sofnuðu
útaf á víðavangi vegna ofnotkunar
áfengis. Læknavakt var alla hátíð-
ina og lögreglan ávallt viðbúin ef á
þurfti að halda.
Þjóðhátíðin stóð að vanda yfir í
þrjá daga og þrjár nætur með
samfelldri skemmtidagskrá og
dansleikjum frá miðjum degi á
föstudag og fram á rauðan mánu-
Mikil veóurblíða var á Þjóðhátíðinni í Herjólfsdal og fólk naut góða veðurs-
ins í ríkum mæli.
dagsmorguninn. Þátttaka heima-
fólks í hátíðinni var nú meiri og
almennari en mörg undanfarin ár
og tjaldborg Eyjabúa, með sín sér-
stæðu hvítu hústjöld, þar af leið-
andi stærri en oftast áður. Hinir
föstu og sérstöku hápunktar þjóð-
hátíðarinnar, bjargsigið, brennan
á Fjósakletti, flugeldasýningin
stórkostlega, ásamt varðeldi og
brekkusöng síðasta kvöldið, vöktu
mikla hrifningu meðal þjóðhátíð-
argesta. Að vanda stjórnaði Árni
Johnsen, alþingismaður, brekku-
söngnum við varðeldinn á sunnu-
dagskvöldið og hefur ekki fyrr sést
annar eins mannfjöldi samankom-
inn í brekkunni á þjóðhátíð. Töldu