Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 65
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGCST 1985
65 -
Óskar Svavarsson sýnir bjargsig í Fiskhellum, um 200 m háu bjargi, en
bjargsig er einn af föstu póstunum á ÞjóAhátió Vestmannaeyja.
Þjóðhátíðarbrennan á Fjósakletti í Herjólfsdal varpar miklum ævintýra-
bjarma á Dalinn og ekki dregur austurlenska hofió úr.
fróðir menn að um 7.000 manna
kór hafi tekið undir með Árna i
söngnum og það eru engar ýkjur
að þá tók undir í fjöllunum.
Ánægjuleg og velheppnuð þjóð-
hátíð er nú að baki. I veðurblíð-
unni í dag, mánudag, eru heima-
menn að taka niður hústjöld sin
Bflvelta við
Gunnarshólma
BÍLL Á leið vestur Suðurlandsveg
fór út af veginum skammt austan
Gunnarshólma aðfaranótt mánu-
dagsins. í bflnum voru ökumaður og
einn farþegi. Ökumaðurinn hlaut
minniháttar meiðsli en farþeginn
slasaðist meira, þó ekki alvarlega að
því talið er.
Að sögn lögreglu er ekki vitað
nákvæmlega um tildrög slyssins
en ökumaður virðist hafa misst
stjórn á bifreiðinni með þeim af-
leiðingum að bíllinn kastaðist út
af veginum og valt einn hring áður
en hann stöðvaðist. Bíllinn er tal-
inn gjörónýtur. Ástæðan fyrir því
að farþeginn varð verr úti er eink-
um talin sú að hann var ekki f
bílbelti en það var ökumaðurinn
hinsvegar. Farþeginn datt því út
úr bílnum og var fastur undir hon-
um þegar lögreglan kom á staðinn.
Umferðin um verslunarmannahelgina:
91 ökumaður undir
áhrifum áfengis
— segir Óli H. Þórðarson framkvæmdastjóri Umferðarráðs
og flytja búslóð sína aftur í bæinn
og aðkomufólkið hefur haldið
heim á leið aftur ýmiat með Herj-
ólfi eða Flugleiðum. Nú getur fólk
farið að hlakka til næstu þjóðhá-
tíðar að ári.
hkj.
„UMFERÐIN um verslunarmanna-
helgina gekk liðlega og engin telj-
andi slys urðu á mönnum," sagði Óli
H. Þórðarson framkvæmdastjóri
umferðarráðs þegar blaðamaður
innti hann eftir umferðinni um versl-
unarmannahelgina.
„Það skyggir þó nokkuð á að 91
ökumaður var tekinn undir áhrif-
um áfengis og var þriðjungur
þeirra í Árnessýslu. Þar voru
margar útihátíðir sem veldur án
efa þessum fjölda en þær afsaka
hann ekki og svo má einnig benda
á að þegar 91 er tekinn má búast
við að fjöldi ölvaðra bílstjóra hafi
verið fimmföld sú tala.“
Að sögn Óla safnaði starfsfólk
upplýsingamiðstöðvar umferðar-
ráðs og lögreglunnar saman upp-
lýsingum um atvik í helgarum-
ferðinni. Kom í ljós að bílveltur
voru 15, smávægilegir árekstrar
35, aðeins 13 fengu skrámur en
enginn slasaðist alvarlega sem er
mjög óvanalegt um þessa mestu
ferðahelgi ársins. Einnig voru
nokkrir teknir fyrir of hraðan
akstur. Ljósanotkun var frekar
dræm til að byrja með en jókst
gar leið á helgina.
)li sagði ennfremur að lang-
flestir, sem löggæslumenn sáu til
á vegum úti, notuðu bílbelti. „Með-
al annars fréttum við af mjög
hörðum árekstri á blindhæð i
Norðurárdal í Borgarfirði og voru
bílarnir dregnir burt með drátt-
arbílum. Engin slys urðu á
mönnum og þökkuðu lögreglu-
menn því að allir voru með bílbelt-
in spennt.
Á heildina litið held ég að við
getum verið ánægð með umferðina
um helgina og er tilkynning frá
Viðari Waage, lögregluþjóni á
Búðardal, einkennandi fyrir
stemmninguna sem ríkti um helg-
ina. Viðar sagði að í Dalabúð
hefðu verið milli 30 og 40 tjöld og
var umgengni unglinganna sem
þar dvöldu góð með afbrigðum.
Voru þau sér og uppalendum sín-
um til mikils sóma.“
Gód stemmning úti á vegum
Morgunblaðið hafði einnig sam-
band við Óskar Ólason yfirlög-
regluþjón. „Við hjá vegalögregl-
unni erum himinlifandi yfir um-
ferðinni þessa helgi og löggæslu-
menn bera bílstjórum mjög góða
sögu.
Umferð var sérlega mikil og
jöfn alla dagana á Suður- og Vest-
urlandi og var mikið um að borg-
arbúar færu í dagsferðir um ná-
grenni Reykjavíkur."
Að sögn Óskars háði ryk á veg-
um nokkuð umferð en engin slys
urðu vegna þess. „Það er augljóst
eftir þessa helgi að íslendingar
kunna vel að aka og haga sér eftir
aðstæðum hverju sinni. Meðan við
fylgdumst með umferðinni yfir
Hellisheiðina var áberandi hvað
allir virtust samstilltir að taka líf-
inu með ró. Yngri bílstjórar óku
ekki fram úr að óþörfu og eldri
ökumenn vöruðu sig á að aka ekki
of hægt.
Veðurblíðan olli því að fólk var .
lengi að tygja sig til heimfarar og
var bílastraumurinn til Reykja-
víkur sleitulaus langt fram yfir v
miðnætti aðfaranótt þriðjudags-
ins. Það var ánægjulegt að fylgj-
ast með því hvað ferðalangarnir
undu sér vel í sólskininu á sunnan-
og vestanverðu landinu og allir
voru staðráðnir í að njóta veðurs-
ins sem mest þeir rnáttu."
Það var rólegt á Geirsárbökkum um helgina þar sem þessir ungu menn létu
líða úr sér í glampandi sólskini.
Fámennt í Húnaveri
og á Geirsárbökkum
Fámennt var í Húnaveri um verslunarmannahelgina, aðeins fjögur til fimm
tjöld á svæðinu að sögn lögreglunnar á Blönduósi. 100 manns voru á dansleik
og er það með minnsta móti en kalt var og skýjað mestan part helgarinnar.
Allnokkur ölvun var meðal gesta en allt fór hið besta fram og urðu engin óhöpp
eða slys.
í Borgarfirði var allt með ró og
spekt um helgina. Um 60 manns
keyptu sig inn á tjaldsvæðið við
Geirsárbakka að sögn lögreglunnar
í Borgamesi. Öllu fleiri komu þó á
dansleiki í Logalandi, þar voru til
dæmis 300 manns á laugardags-
kvöldið. Lítið varð lögreglan vör við
ölvun og engin óhöpp urðu af völd-
um mótsgesta. Margt fólk var
hinsvegar í Húsafelli, bæöi í tjöld-
um og sumarbústöðum, mest fjöl-
skyldufólk. Önnur sumarbústaða-
lönd Borgfirðinga voru og þéttsetin.
Veður var hið besta á þessum slóð-
um um helgina.
Meðal þeirra sem skemmtu gestum í Borgarfirði var Hallbjörn Hjartarson
sem hér sést taka lagið með söngflokknum Hálft í hvoru.
r.~.
Develop 10
Minnsta
Ijósritunarvél í heimi
Ljósritunarvél fyrir einstaklinga,
fyrirtæki og stofnanir. Ótrúlega lítil,
áreiðanleg og auðveld í notkun. Vél
sem skilar svörtu kolsvörtu og hvítu
snjóhvítu. ___
Ekjaran
ÁRMÚLA 22, SlMI 83022,108 REYKJAVlK