Morgunblaðið - 07.08.1985, Page 67
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
67
Frá Þjórsárdal
Morgunblaðið/RAX
f Þjórsárdal var ekki haldið bindindismót. Flestir hinna ölvuðu virðast þó bafa farið að d«mi mannsins á myndinni
því ófriður að þeim var mcð minnsta móti.
Yngstu kynslóðinni var vel sinnt á Galtalekjarmótinu. Þegar ekki var verið
að atast í leikUekjum sem komið hafði veríð upp var hægt að fylgjast með
skemmtiatriðum ýmiss konar.
Morgunblaftið/Júlíus
Hátt í 6.000 manns voru á bindindismótinu á Galtalck um helgina beði
ungir og gamlir, meðal annarra þessar stúlkur sem hér sjásL
Atlavík:
Sjö þús. manns
KftitsKtöðum, S. ágúrt.
GKKTIK á Atlavíkurhátíð eru nú farnir að tygja sig til heimferðar. Alls munu
um 7.000 gestir hafa dvalið í Atlavík nú um verslunarmannahelgina auk 1.000
manna starfsliðs. Að sögn forvígismanna UÍA urðu engin teljandi óhöpp á
hátíðinni þrátt fyrir mannfjöldann, óhagstett veður og talsverða ölvun.
„Við höfum lagt metnað okkar
í það að þessar Atlavíkursam-
komur megi fara eins vel fram
og hugsast getur," sagði Her-
mann Níelsson, formaður UÍA,
við tíðindamann Morgunblaðsins
í gær. „Hér starfa 500 sjálfboða-
liðar úr 34 aðildarfélögum Uí A á
þriskiptum vöktum við hvers
konar hjálpar- og eftirlitsstörf.
Fyrsta vaktin tók til starfa á
fimmtudag og hér verður vakt
allt til klukkan 22 annað kvöld.
Auk þess njótum við aðstoðar
ýmissa aðila, ber þar fyrst að
nefna Skógrækt rlkisins og
Hjálparsveit skáta á Fljóts-
dalshéraði sér um hjúkrunar- og
læknisþjónustu. Hér er læknir á
vakt og átta hjúkrunarliðar auk
læknavaktar á Sjúkrahúsinu á
Egilsstöðum og björgunarsveit
slysavarnadeildarinnar Gróar
annast aðhlynningu fólks sem er
aðframkomið af einhverjum
ástæðum. í Atlavik sjálfri eru
tveir upphitaðir skúrar — þar
sem hægt er að gefa fólki heitt
kaffi og súpu — og þarfnist fólk
enn frekari aðhlynningar er það
flutt inn að Buðlungavöllum,
eyðibýli hér rétt fyrir innan. Þá
eru björgunarsveitarmenn með
bát til taks hér í vikinni og hér
eru alltaf 12 lögreglumenn á
vakt hverju sinni. Félag far-
stöðvaeigenda á Seyðisfirði hef-
ur svo séð til þess að fjarskiptin
okkar á milli hafa gengið
snurðulaust.
— Hvenær komu fyrstu gest-
irnir?
„Við byrjuðum að selja inn á
svæðið á hádegi á fimmtudaginn
og þá voru nokkrir gestir þegar
búnir að hreiðra um sig í víkinni.
Á föstudagsmorgun höfðu um
2.000 gestir keypt sig inn á svæð-
ið. Það eru félagar úr Einherja
og Golfklúbbi Vopnafjarðar sem
sjá um sölu inn á svæðið en fé-
lagar úr Leikni á Fáskrúðsfirði
sjá hins vegar um veitingasölu á
hátíðarsvæðinu."
Að sögn Skúla Oddssonar,
framkvæmdastjóra UÍA, kostaði
2000 krónur inn á mótssvæðið.
„Aðildarfélög UÍ A fá ákveðinn
hluta af aðgangseyrinum i réttu
hlutfalli við framlagöar vinnu-
stundir sjálfboðaliðanna þegar
allur kostnaður hefur verið
greiddur og hann er hreint ekki
svo lítill eins og mönnum hlýtur
að vera ljóst. Við greiðum Skóg-
rækt rikisins 1 milljón fyrir að-
stöðuna hér í skóginum, að-
keyptir skemmtikraftar kosta 2
milljónir og þá er löggæsla ótal-
in, auglýsingakostnaður og sitt-
hvað fleira. Það sem kann að
vera eftir að þessu uppgjöri
loknu rennur til heildarsam-
takanna, UÍA.
Hermann Níelsson lagði
áherslu á það að hið öfluga
íþrótta- og æskulýðsstarf UÍA
víða um Austurland yrði vart
svipur hjá sjón ef tekna af Atla-
víkurhátíð nyti ekki við — og
menn skyldu hafa það i huga áð-
ur en átölur væru bornar fram
að íþrótta- og æskulýðsfélög viða
um land væru að koma i veg fyr-
Skúli Oddsson, framkvjdj. UÍA, og Hermann Níelsson, formaður UÍA.
MorminblaJið/Olafur
ir eftirlitslausar sukksamkomur
með skipulögðu samkomuhaldi
um verslunarmannahelgina.
„Ungmenna- og iþróttasam-
band Austurlands gekkst fyrir
samkomuhaldi í Atlavik um
verslunarmannahelgi árið 1962
og siðan árlega, allt til 1973. Þá
lögðust hátiðirnar af en voru
teknar upp aftur fyrir fjórum
árum. Síðan hefur Atlavikurhá-
tíðin verið með fjölsóttustu úti-
samkomum um verslunar-
mannahelgi."
Veður var heldur hvimleitt til
útilegu í Atlavik um þessa versl-
unarmannahelgi. Gekk á með
rigningu, þótt veður væri annars
milt og einstaka sinnum sæi til
sólar. Ölvun var talsverð. Lög-
regla tók nokkra ökumenn fyrir
meintan ölvunarakstur og einn
Morgunblaftift/Anii Seberg
Mótsgestir í Atlavík.
góðkunningi fikniefnalög-
reglunnar var tekinn fastur með
talsvert magn kannabisefna og
amfetamins i fórum sinum. Ann-
ars varð ekki vart við neyslu
fíkniefna á hátiðinni að sögn
UÍA-manna. Tveir gestir fót-
brotnuðu, nokkrir tognuðu eða
skárust litillega og eru þá nær
öll óhöpp upptalin.
Skemmtidagskránni var vel
tekið að sögn. Útvarp Atlavik út-
varpaði viðtölum, upplýsingum
og tilkynningum nótt sem nýtan
dag. Þá skipuðu íþróttir, keppni
og sýningar, veglegan sess i dag-
skrá hátiðarinnar. Hljómsveitin
Skriðjöklar frá Akureyri vann
hljómsveitakeppnina en norð-
firska hljómsveitin Sú Ellen
varð í öðru sæti.
Að sögn forvigismanna UÍA
mun meðalaldur samkomugesta
hafa verið 18—20 ár. Börn 12 ára
og yngri fengu ekki aðgang að
samkomusvæðinu nema i fylgd
með fullorðnum.
— Ólafur