Morgunblaðið - 07.08.1985, Qupperneq 68
EUROCARO
^--- ■ ■
SDtDFEST lANSIRAIIST
MIÐVIKUDAGUR 7. ÁGÚST 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Reykjavík:
Vantar fólk
í 86 stöðu-
gildi við
dagvistar-
stofnanir
barna
Samkvæmt könnun, sem lögð
var fram á fundi stjórnarnefndar
dagvista Keykjavíkurborgar sl.
föstudag, verða áttatíu og sex stöð-
ur starfsfólks við leikskóla og
dagheimili fyrir börn á forskóla-
aldri lausar 1. september nk. og er
ekki séð hvernig á að manna þær
fyrir þann tíma.
Af þessum stððugildum eru
þrjátíu og átta ætluð fóstrum en
fjörutíu og átta ófaglærðu
starfsfólki. Fáist ekki ráðið í
þessar stöður að einhverju eða
öllu leyti segja fóstrur að loka
verði mörgum deildum dagvist-
arstofnana fyrir börn í borginni
eftir mánaðamótin.
„Ástandið hefur oft verið
slæmt en aldrei eins og nú. Ef
ekkert gerist í mannaráðningum
fyrir 1. september verður að loka
deildum á sumum heimilanna og
í Fellaborg, sem er tvísettur
leikskóii þar sem alls eru vistuð
um 110 börn, sagði allt starfsfólk
við síðdegisdeildirnar upp störf-
um fyrir sumarleyfi. Þar verður
því að öllu óbreyttu ekki hægt að
hafa opið nema hálfan daginn,"
sagði Þórunn Einarsdóttir um-
sjónarfóstra, sem gerði könnun-
ina.
„Verst er ástandið á stóru dag-
heimilunum, þar þarf jafnvel að
loka fleiri en einni deild, eða
tveimur deildum af fjórum. í
Hagaborg vantar t.d. starfsfólk
til að manna tvær deildir og í
Laugaborg á a.m.k. eina og hálfa
deild. í Austurborg vantar níu
starfsmenn, þar af þrjár fóstrur
og í leikskólanum Lækjarborg
vantar þrjá af sjö starfs-
mönnum. f Hraunborg, sem er
með tvær dagheimilisdeildir og
eina leikskóladeild, er óráðið í
fimm og hálft stöðugildi, í Múl-
aborg eru þau sjö og svona mætti
lengi telja,“ sagði Þórunn Ein-
arsdóttir.
Birkir Baldvinsson
Yngstu gestirnir á útihátíðinni í Galtalæk fylgjast spenntir með dagskrá Brúðubflsins. Morgunbiaðia/Júiíus
ÞJÓÐIN VAR Á FERÐ OG FLUGI
Verslunarmannahelgin stóð undir nafni sem mesta ferðahelgi árs- I var. Flestir komu á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum, um 8000 manns.
ins. Samkvæmt upplýsingum Umferðarráðs var bifreiðaumferð sú lang I Veður var hið bezta sunnanlands og vestan, sól og blíða, en norðan-
mesta síðan talning hófst 1978. Flugumferð var einnig geysimikil. I lands og austan var kaldara og sums staðar rigndi. Fréttir frá verzlun-
A útihátíðum er talið að nær 30 þúsund manns hafi verið þegar flest | armannahelginni eru á bls. 5, 64, 65, 66 og 67.
Birkir Baldvinsson býður 63 milljónir í hlutabréf Flugleiða:
Tilboðið aðgengilegt
— segir AJbert Guðmundsson fjármálaráðherra
„ÉG VIL EKKI tjá mig um innihald tilboðsins í smáatriðum, það gæti
koraið sér illa fyrir mig eins og er, ef fleiri aðilar hafa hugsað sér að bjóða
í bréfin. Það eina sem ég get sagt er að ég hef boðið þá upphæð sem
fjármálaráðherra fór fram á, 63 milljónir, og gert tilboð um að greiða
ákveðna upphæð strax og eftirstöðvarnar á ákveðnu tímabilí," sagði
Birkir Baldvinsson í Lúxemborg, en hann hefur gert fjármálaráðherra
tilboð um kaup á hlutabréfum ríkisins í Flugleiðum, 20% sem Fjárfest-
ingarfélagið hefur metið á níföldu nafnverði, eða á 63 milljónir króna.
Birkir rekur fyrirtækið Loch Ness í Lúxemborg, sem stundar viðskipti
með flugvélar og flest þeim viðkomandi.
Albert Guðmundsson fjár- greina frá innihaldi tilboðsins að
málaráðherra fékk tilboðið inn á
borð til sín í gærmorgun. Albert
sagði að sér virtist tilboðið að-
gengilegt og tryggingar fullnægj-
andi, og í fljótu bragði sæi hann
ekki á því neina óyfirstíganlega
annmarka. Hann vildi þó ekki
svo komnu máli. Tilboð Birkis er
nú til athugunar hjá sérfræðing-
um fjármálaráðuneytisins og
vænti Albert þess að því yrði
svarað á fimmtudaginn, eða
a.m.k. fyrir helgi.
Birkir Baldvinsson sagði að-
spuröur að hann stæði einn að
baki tilboðinu og hefði ekki leitað
eftir samstarfi við aðra hluthafa
í því skyni að ná umtalsverðum
völdum í félaginu, enda væri það
ekki tímabært.
Birkir var spurður hvaða hag
hann sæi sér í því að kaupa bréfn
á verði sem fjölmargir aðilar,
m.a. Sigurður Helgason forstjóri
Flugleiða, telja allt of hátt. Hann
sagði:
„011 fjárfesting byggist á því
að maður líti til framtíðarinnar
og ég hef trú á félaginu, sérstak-
lega starfsfólkinu, sem ég þekki
margt, og er sannfærður um það
að þessi kaup eru peninganna
virði. Ég er fyrst og fremst að
fjárfesta í starfsfólkinu."
Flugleiðir þurfa
að lækka fargjöldin
— segir Sigurdur Helgason forstjóri Flugleiða um fargjaldastríðið á flugleiðinni yfir Atlantshaf
ITTLIT er fyrir mjög harðnandi sam-
keppni og að fargjöld lækki á Atl-
antshafsflugleiðinni í vetur. Sigurð-
ur Helgason, forstjóri Flugleiða,
sagði í samtali við Morgunblaðið að
beðið yrði átekta og séð hvað önnur
flugfélög gerðu áður en ákvarðanir
um viðbrögð yrðu teknar, en Ijóst
væri að Flugleiðir yrðu að vera með
lægri fargöld á þessari leið í vetur en
í fyrravetur, sérstaklega frá New
York.
Bandaríska flugfélagið People
Express hefur ákveðið 198 dollara
kynningarverð frá 8. september til
1. október á fargjaldi fram og til
baka frá Brussel til New York.
Eftir það hækkar fargjaldið í 298
dollara. Önnur flugfélög eru þegar
farin að hugleiða fargjaldalækk-
un. Belgíska flugfélagið Sabena
hefur ákveðið lækkun, en ekki er
enn vitað hve mikil hún verður.
Þýska félagið Lufthansa tilkynnti
á nýlegri ráðstefnu IATA, Al-
þjóðasamtaka flugfélaga, að það
hygði á fargjaldalækkun á kom-
andi vetri til að mæta aukinni
samkeppni frá bandarískum flug-
félögum. Þá var talað um 399 doll-
ara fargjald fram og til baka milli
New York og Frankfurt, sem er
90—100 dollurum lægra en far-
gjald félagsins var á síðasta ári. í
fyrravetur var fargjald Flugleiða
milli New York og Lúxemborgar
fram og til baka 389 dollarar.
„Það er ljóst að við munum
þurfa að vera með lægri fargöld á
Atlantshafsflugleiðinni í vetur en
í fyrravetur, einkum þó frá New
York, vegna þess hve samkeppnin
er að aukast mikið. Flugfélög hafa
í sumar aukið sætaframboð á Atl-
antshafsflugleiðinni og það sæta-
framboð hverfur ekki í vetur,"
sagði Sigurður aðspurður um
ástæðurnar fyrir harðnandi sam-
keppni nú.