Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985
47
kvenna sem hefði tamið sér að
drekka mikið og drekka daglega
eins og ofdrykkjumenn vor á með-
al gera.
Þessi ofdrykkja kvennanna hef-
ur einnig leitt annað af sér. Dr.
Kirsten Lee læknir hefur með
rannsóknum sínum sýnt fram á að
börnum með meðfædda galla, sem
rekja má til drykkju móður, eink-
um þó vangefnum, hefur fjölgað
afar mikið síðasta áratug.
Afengisneysla móður á með-
göngutíma er nú orðin jafnalgeng
orsök fávitaháttar eða algengari
en mongólismi hefur nokkurn
tíma verið svo að þar stöndum við
gagnvart miklu og alvarlegu
vandamáli.
Drykkjusiðir Dana eru í stórum
dráttum mjög ólíkir drykkjuvenj-
um annarra norrænna þjóða.
Annars vegar er um að ræða mjög
almenna drykkju en þó misjafna
milli einstaklinga, hins vegar þá
merkilegu staðreynd að ofdrykkja
er tíðari meðal þeirra efnuðustu
en annarra. Við þetta bætist svo
að drykkja er orðin að vandamáli
meðal kvenna.
Ljóst er að taka verður hér á
hlutunum á annan veg en þar sem
ofdrykkja er, a.m.k. framar öðru,
bundin lágstéttum.
í Danmörku höfum við löngum,
eins og aðrir Norðurlandamenn,
litið á ofdrykkju sem félagslegt
vandamál og tekið hefur verið á
málunum sem slíkum.
Hér eru nú rúmlega 15.000
drykkjumenn undir læknishendi
ár hvert. Það er mjög ef tekið er
mið af þeim fjölda ofneytenda sem
eru í hættu eða eru þegar orðnir
veikir af drykkju á einhvern hátt.
— Ef á að ná þessu fólki — sem
enn er margt á sínum stað og við
sín störf í samfélaginu — verður
að beita öðrum aðferðum en gert
hefur verið hingað til og leitast við
að fá þennan fjölda til að leita
hjálpar. Enn ríkir sá hugsunar-
háttur í Danmörku að ofdrykkja
sé nátengd lágstéttunum og oft er
gert ráð fyrir að hún leiði ætíð til
glæpa, bæði aldinna og ungra, og
ofbeldis gagnvart konum og börn-
um. Þetta viðhorf fælir marga frá
að leita læknishjálpar. Rétt er þó
að í Danmörku er margt drykkju-
manna í lágstéttunum og marga
þeirra er afar erfitt að fá í með-
ferð og árangur hennar jafnan
lélegur þótt miklu fé sé til kostað.
— Drykkjumönnum, sem eru
sæmilega stæðir og ekki enn orðn-
ir félagsleg reköld, er oft auðveld-
ara að hjálpa en þeim sem dýpra
eru sokknir. Oft nægir þeim að-
stoð göngudeilda og er hún að
sjálfsögðu miklu ódýrari en dvöl á
stofnunum. — En erfiðlega gengur
að fá þetta fólk til að leita aðstoð-
ar — meðan ekki er almennt við-
urkennt að ofdrykkjumenn eru yf-
irleitt hvorki glæpamenn né
ofbeldismenn heldur venjulegt
fólk sem
fólk sem á hinn bóginn drekkur
sér til óbóta og stofnar með því
heilsu og lífsgleði sinni og fjöl-
skyldu sinnar í voða.
Wifundur er yfirlæknir við áfeng-
issjúkradeild í Kaupmannahöfn.
lýðing: Ólafur Haukur Arnason.
Hraðlestrarnámskeið
Viltu margfalda lestrarhraða þinn?
Skelltu þér þá á næsta hraðlestrarnámskeið sem
hefst 10. sept. n.k.
Skráning öll kvöld kl. 20—22 í síma 16258.
Hraðlestrarskólinn
V J
Nýtt Nýtt
peysur, blússur, pils, buxnapils.
Glugginn
Laugavegi 40
Kúnsthúsinu. Sími 12854
Vandaður en ódýr
Pantiö nýja Kays-vetrarlistann á kr. 200
+ buröargjald. Nýjasta vetrarlínan,
búsáhöld, leikföng o.fl. o.fl.
Pantið skólafötin
Höfum opnaö nýtt útibú aö
Síöumúla 8. Opið frá kl. 1—6.
B. M AGNÚSSON
HÓLSHRAUNI 2 - SÍMI 52866 • P.H. 410 ■ HAFNARFIRÐI
] s PJöfóar til LXfólksí öllum tarfsgreinum!
l
Bókin
Hagfræöi og stjórnmál
eftir dr. Magna Guðmundsson er uppseld hjá forlagi, en
fæst enn í helztu bókaverzlunum. Tryggið yður eintak í
tíma. Bók ómissandi fyrir hagfræðinga, viðskiptafræð-
inga, stjórnmálamenn og athafnamenn.
Útgefandi
Við höfum opnað aftur eftir gagngerar endurbætur
sem gera okkur kleift að veita fljótari og betri þjónustu.
Nú getum við tekið við bílum af öllum stærðum og gerðum.
Tryggðu þér öruggt eftirlit og umhirðu þess búnaðar
bílsins sem mest mæðir á. Með því að...
... taka upp símtólið og
panta tíma í síma 21246, eða
renna viö á smurstöð Heklu hf.
Laugavegi 172. Þarsem ...
... þú slappar af í nýrri
vistlegri móttöku, færð þér
kaffi og lítur í blöðin.
A meðan...
... við framkvæmum öll
atriði hefðbundinnar smumingar,
auk ýmissa smáatriða t.d.
smumingar á hurðalömum og
læsingum. Auk þess ...
... athugum við ástand viftu-
reima, bremsuvökva, ryðvamar og
pústkerfis og látum þig vita
ef eitthvert þessara atriða
þarfnast lagfæringa. Altt...
5MUR5TÖÐ
... þetta tekur aðeins 15-20
mínútur og þú ekur á brott með
góða samvisku á vel smurðum bíl.