Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 Morgunblaðift/Ásdís Lömbin leidd til slátrunar. Til hægri er Þórður Guðmundsson réttarstjóri í sláturhúsinu í Borgarnesi. Nýtt lambakjöt á boðstólum í ágúst SUMARSLÁTRUN hófst í Slátur- húsinu í Borgarnesi síðastliðinn mánudag. Slátrunin var í tengslum við verkieg námskeið sem Búvöru- deild Sambandsins gekkst fyrir undir stjórn þeirra Sigurðar Arnar Hanssonar forstöðumanns rann- sóknarstofu Búvörudeildarinnar og David Jennings frá Nýja-Sjálandi, en hann er sérfræðingur í pökkun og meðferð lambakjöts. Verkstjórar og flokksstjórar í sláturhúsum alls staðar á landinu komu á þessi nám- skeið, þar sem þeim var kynnt nýj- asta tækni við slátrun, innanúrtöku o.fl. Afurðasala Sambands íslenskra samvinnufélaga hefur á undanförn- um dögum verið að setja þetta nýja, ófrysta lambakjöt á markað. Blaðamönnum var boðið að fylgj- ast með slátruninni á miðvikudaginn en það var síðasti dagur sumarslátr- unarinnar í Borgarnesi. Síðar um daginn var fylgst með vinnu í nýju pökkunarstöð Afurðasölunnar. Sumarsláturtíð í Borgarnesi er eitt af fullkomn- ustu sláturhúsum landsins. Þar er fé slátrað í 4-6 vikur á hverju hausti og eru afköstin um 2500- 2800 kindur á dag. í „sumarslátur- tiðinni var aðeins slátrað rúmlega 2000 lömbum. Komið er með lömbin í slátur- húsið daginn áður en þeim er slátr- að. Þau eru sett í rétt í húsinu þar sem þau eru skráð af réttarstjór- anum. Þegar að slátruninni kemur fer lambið í svokallað „banabox" þar sem það er aflífað. Síðan tekur færibandið við. Við færibandið vinnur fjöldi manns við ýmis störf. Og á þessu færibandi fer lambið í gegnum öll vinnslustigin og alla leið inn í kæliklefann. Greinilegt var að skipulag var gott. Skrokkarnir í einni röð á færibandinu og starfsfólkið stóð hlið við hlið og vann sitt verk með snörum handbrögðum. Á skömm- um tíma var búið að flá, taka innan úr, þvo og snyrta. Hreinlætis er gætt í hvívetna í sláturhúsinu. Stöðugt rennur vatn undir færibandinu og skolast t.d. allt blóð í burtu á svipstundu. Hnífar eru sótthreinsaðir áður en hafist er handa við að verka næstu kind. Vaskar eru meðfram færi- bandinu og er t.d. skrúfað frá vatninu með því að því að stíga á fetil. Þess er gætt að haus, innyfli og Vinnan við fcribandið í fullum gangi. MorgunblaSii/Arni Sæberg Morgunblaðið/Árni Sæberg Skrokkarnir komnir í kæligeymsluna, vegnir og metnir. Morgunblaðið/Ásdfs Nýja kjötið unnið í Afurðadeild Sambands fslenskra samvinnufélaga. skrokkur fylgist að í gegnum skoð- un hjá dýralækni því ef eitthvað bjátar á er skrokkurinn tekinn frá. Að lokum stöðvast skrokkur- inn á tölvuvog, sem vigtar og skrá- ir þyngd hans og matsmaðurinn ákveður gæðaflokkinn. Þaðan fer skrokkurinn beint í kæligeymslu þar sem hann er stimplaður. Mest af þessu kjöti er flutt á markað til Reykjavíkur. Annað í Borgarnes og á Akranes. Ný pökkunarstöð Úr Borgarnesi lá leiðin til Reykjavíkur þar sem ný pökkunar- stöð Afurðasölu SlS var skoðuð. Þarna er kjötið látið hanga í tvo sólarhringa, en á þeim tíma meyrnar kjötið. Ástand þess helst síðan óbreytt 1 10 daga. En þegar kjötið hefur náð að meyrna hefst vinnsla þess. 1 pökkunarstöðinni er m.a. aðstaða til að hluta í sund- ur kjöt og er nú hægt að bjóða upp á fleiri og smærri hluta en áður hefur þekkst. Það vakti athygli að nú er hægt að fá hálft læri, eða hálfan hrygg, sem ætti að koma einstaklingum og litlum fjölskyld- um mjög til góða. Kjötinu er pakkað í loftþéttar umbúðir eftir að það hefur verið hlutað niður og eykur það geymsluþol þess. Þess er gætt að allir bitar sjáist, þannig að kaup- endurnir sjái nákvæmlega hvað þeir eru að kaupa. Kjöt sem ekki næst að selja tólf dögum eftir slátrun er fryst. Þá er hægt að taka það út úr frysti og láta strax inn í ofn eftir að það er þiðnað þar sem það hefur þegar verið látið meyrna. Áður hefur þurft að láta kjöt þiðna hægt í kæliskáp til þess að fá það nógu gott. Það vakti einnig athygli að þetta nýja kjöt virtist ekki nærri eins feitt og kjötið var í fyrra. Að sögn forsvarsmanna búvörudeildarinn- ar er það stefna þeirra að skera burt alla sjáanlega fitu. Herramannsmatur Að lokum fengu blaðamenn að smakka á nýja lambakjötinu. Óhætt er að segja að þetta var herramannsmatur. Hugmyndir eru uppi um að slátra einnig fyrir jól og páska og munu þessar nýj- ungar trúlega falla neytendum vel ígeð. Glíman við grímuna Kvikmyndir Árni Þórarinsson Laugarásbíó: Gríma — Ma.sk ☆ ☆ ☆ Bandarísk. Árgerð 1985. Handrit: Anna Hamilton Phelan. Leikstjóri: Peter Bogdanovich. Aðalhlutverk: Cher, Eric Stoltz, Sam Elliott, Laura Dern. Kvikmyndin Mask tekst á við svipað verkefni og the Elephant Man leysti af hendi með mikilli snilld, þ.e. að gera „ljótleikann" fagran, hið „afbrigðilega" að því sem er eðlilegt, sem sagt að breyta hefðbundnum viðmiðun- um, snúa við mælikvörðum á fólki og umhverfi. Þetta er erfitt verkefni og aðstandendur Mask eiga heiður skilinn fyrir úrlausn þess. Eins og í the Elephant Man er aðalpersónan í Mask van- skapnaður sem í reynd er heil- brigðari en þeir sem heilbrigðir eru taldir. Rocky Dennis er sext- án ára drengur, bráðvel gefinn og innrættur. En hann er haldinn sérkennilegum sjúkdómi sem hefur tvöfaldað höfuðstærð hans og afmyndað andlitið. Bogd- anovich leikstjóri og Phelan handritshöfundur vinna hálfan björninn strax í upphafi með því að kynna Rocky fyrir áhorfend- um á látlausan, eðlilegan hátt, fyrstan persónanna. Með því að láta hann lifa í umhverfi sem er allt annað en verndað, öruggt og góðborgaralegt tekst þeim — reyndar með því að fylgja raun- veruleikanum því þetta mun vera sönn saga — að forðast gryfjuna stóru sem svona efni er ævinlega hætt við að falla ofan í, þ.e. væmnina. Rocky er, eða ætti að vera, útlitsins vegna, utangarðs- maður og aðstæðna vegna ætti hann að lifa utangarðslífi; hann býr með einstæðri móður sinni sem lifir rótlausu lífi með flokki Hells Angels, miðaldra mótor- hjólatöffara og dópar sig og duflar við nánast hvern sem er. En á þessu hvoru tveggja sigrast Rocky, og móðir hans líka, og á þessari félagslegu uppstillingu hvílir drjúgur hluti af sjarma og áhrifamætti myndarinnar. Það kann að vera að þessi sigur sé að sumu leyti of auðunninn í myndinni. Rocky gengur furðu auðveldlega að yfirvinna fjand- skap og tortryggni umhverfisins, t.d. í skólanum. Samkvæmt Mask er fólk almennt gott og jákvætt og er fljótt að komast yfir for- dóma sína, með nokkrum undan- tekningum. Kannski er það stað- reyndin, þótt Teigahverfið í Reykjavík hafi ekki heyrt um það. En með því að hafa dramat- ískar andstæður myndarinnar ekki skarpari verður léttara yfir lýsingu hennar á lífsgrímu hinn- ar óvenjulegu söguhetju. Cher er framúrskarandi I hhitverki óvenjulegrar einstæðrar tnóður { Mask. Mask er mestanpart skemmti- leg mynd, með góðu handriti, gamansemi, vel skrifuðum sam- tölum og fjölda eftirminnilegra atriða. Harmrænn strengur hennar er ekki hávær. Myndin er jafn sterk og raun ber vitni fyrst og fremst vegna áreynslu- lauss einfaldleika en einnig dramatískrar hugkvæmni sem hvað eftir annað skilar skýrt formuðum myndskeiðum. Gott dæmi er atriði í tívolí, þegar Rocky og móðir hans fara ásamt mótorhjólagenginu í speglasal- inn, þar sem allir eru afmyndaðir nema sá sem er afmyndaður fyrir; afstæði fegurðar og mann- gildis fær þarna þögla, mynd- ræna túlkun. Afturámóti er ekki unnt að segja að persónusköpun sé mikil og djúp utan aðalhlutverkanna tveggja, mæðginanna sem Cher og Eric Stoltz leika afburða vel. Persóna móðurinnar er kvenlýs- ing sem lengi verður í minnum höfð; þversagnakennd en samt heilsteypt, rótlaus en traust í því viðhorfi sínu að fegurð sé inni í fólki frekar en utan á því. Og Rocky er svo hin rökrétta stað- festing á réttmæti þess viðhorfs.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.