Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1985 27 Ársþing TUC, breska verkalýðssambandsins, hafíð í Blacpool: Sundrung og óeining einkenna þinghaldið Blackpool, Englandi, 2. september AP. BRESKA verkalýðssambandið hóf í dag 117. landsþing sitt í Blackpool, það fyrsta síðan námamenn gáfust upp í stríðinu við ríkisstjórn Margar- et Thatchers. Því fer fjarri, að ein- drægnin sé aðalsmerki þessa þings og til kasta þess munu koma tvö mikil ágreiningsmál. Annað málið, sem tekist verður á um á þinginu, er hvort vísa skuli Félagi vélsmiða og járniðnaðar- manna úr verkalýðssamtökunum fyrir að hafa haft „samstarf" við ríkisstjórnina um að brjóta á bak aftur veldi verkalýðsfélaganna, en hitt er sú krafa námamanna, að ríkið bæti þeim það tjón, sem þeir urðu fyrir í árslöngu verkfalli. The Times of London sagði í dag, að svo virtist sem TUC, bresku verka- lýðssamtökin, horfðust nú í augu við mestu kreppu innan samtak- anna í meira en áratug. Norman Willis, framkvæmda- stjóri TUC, kvaðst vona, að sam- tökin bæru gæfu til að komast heil og sterk frá þinginu og sagði hann, að enginn vildi, að því lyki með brottrekstri AUEW, Félags vélsmiða og járniðnaðarmanna, sem er næststærsta félagið innan samtakanna og telur nærri milljón manna. Deilan stendur um að AUEW hætti að taka við fé frá stjórnvöldum til að auðvelda fé- lagsmönnum að senda atkvæði sitt í pósti en samkvæmt lögum sem ríkisstjórnin hefur sett, skal það ákveðið í leynilegri atkvæða- greiðslu hvort efnt er til verkfalla og hverjir skuli skipa trúnaðar- stöður í verkalýðsfélögunum. 1 upphafi þingsins í dag voru fulltrúar beðnir að standa að baki forystunni, hverjar sem niðurstöð- Neil Kinnock urnar yrðu í máli AUEW, en full- trúar rafvirkja, rafeindavirkja, símamanna og pípulagningar- manna hótuðu hins vegar að ganga út ef AUEW yrði rekið úr samtök- unum eða refsað á annan hátt Námamönnum með marxistann Arthur Scargill í broddi fylkingar tókst að fá tekna til umræðu á þinginu ályktun þar sem þess er krafist, að næsta ríkisstjórn Verkamannaflokksins, hvenær sem hún verður, bæti námamanna- sambandinu upp allan fjármiss- inn, sem það varð fyrir vegna ólög- legra aðgerða í verkfallinu, og taki mál þeirra manna til endurskoð- unar, sem dæmdir voru fyrir of- beldisverk. Þessi ályktun er eins og köld vatnsgusa framan í þá Norman Willis, framkvæmdastjóra TUC, og Neil Kinnock, formann Verka- mannaflokksins, sem telja, að samþykkt hennar yrði til að senda Verkamannaflokkinn út í ystu myrkur í breskum stjórnmálum. Dagblaðið The Guardian sagði í dag, að 1985 yrði minnst í sögunni Arthur Scargill, leiðtogi breskra námumanna. „sem ársins þegar verkalýðshreyf- ingin klofnaði". Breska verkalýðs- hreyfingin, sem einu sinni hafði ofurvald yfir félögum sínum, hefur orðið fyrir hverju áfallinu á fætur öðru að undanförnu. Fyrst ber að telja námamannaverkfallið. Verkalýðsforystan studdi það en breskur almenningur ekki og af- leiðingarnar urðu þær að náma- menn í Nottinghamskíri hafa klof- ið sig út úr námamannasamband- inu og líkur á, að fleiri fari að þeirra dæmi. í síðasta mánuði felldu lestarverðir að boða til verk- falls þótt verkalýðsforingjarnir hefðu hvatt til þess og raunar talið sig vissa um mikinn stuðning. Það bætist svo við, að félagsbundnum mönnum í verkalýðsfélögunum fækkar stöðugt. The Guardian, sem er breskra blaða hlynntast Verkamanna- flokknum, hvatti í dag TUC, breska verkalýðssambandið, til að draga réttan lærdóm af atburðum ársins, hlusta á óbreytta félags menn og hætta pólitískum kross- ferðum. Pólland: Afmælís Samstöðu minnst í kirkjum (.dansk, Póllandi, 2. september AP. LECH Walesa og um 12 aórir frammámenn í Samstöðu voru við messu sl. laugardag ásamt þúsund- um annarra en þar var þess minnst, að fimm ár eru liðin frá stofnun Samstöðu, fyrstu óháðu verkalýðs- félaganna í kommúnistaríki. Sam- staða var siðan bönnuð með herlög- unum í desember 1981. í Wroclaw voru þrír forystumenn Samstöðu þar í borg handteknir þegar þeir ætluðu að leggja blóm að minnismerki Samstöðu. Afmælis Samstöðu var minnst víða í kirkjum í Póllandi og voru hvarvetna saman komnar þúsund- ir tnanna. Kom hvergi til átaka nema í Kraká þar sem 2000 manns gengu um götur borgarinnar að messu lokinni og sungu Samstöðu- söngva. Réðst lögreglan á fólkið og er það haft eftir vitnum, að hún hafi beitt kylfum til að reka það á brott. í Gdansk voru um 7000 manns í kirkju heilagrar Brygidu og þar komst presturinn, séra Henryk Jankowski, svo að orði, að árið 1980 hefðu verkamenn „sýnt það I verki, að menn verða að standa vörð um réttindi sín og hafa hug- rekki til að krefjast þess, að fyrir þeim sé borin virðing þrátt fyrir kúgun og hótanir". I Wroclaw voru þrír forystu- menn Samstöðu í borginni hand- teknir þegar þeir ætluðu að leggja blómsveig að minnismerki Sam- stöðu og er haft eftir vitnum, að lögreglan hafi leikið þá grátt, eink- um einn þeirra, Jozef Pinior. Jozef fór lengi huldu höfði eftir að her- lögin voru sett og sat um skeið í fangelsi eftir að lögreglan hafði uppí á honum. tolen p LP Wwiil m ■ IGUR Mörg hundruö þúsund metrar af snjóbræöslu- rörum úr húls VESTOLEN P bræöa ís og snjó af ís- lenskum bílastæöum, göngugötum, íþróttavöllum og gangstéttum og sjá þannig um aö hemja Vetur konung. Snjóbræðslurör úr VESTOLEN P hafa sýnt og sannað aö þau hafa meira frostþol en nokkurt annaö plastefni, sem notaö er í sama skyni. Framúrskarandi tækniþekking og áratuga reynsla standa aö baki þróunar VESTOLEN P, sem er fjölliða óreglubund- iö polyprópylen. Aörir eiginleikar þessa rörahráefnis eru auðveld og örugg samsuða, frábært kalþflæöiþol og mikill sveigjanleiki. Samspil verös og gæöa talar sínu máli fyrir VESTOLEN P. Viö munum meö ánægju senda yður allar upplýsingar. Hafiö samband viö fulltrúa huls á íslandi. Pósthólf 1249, 121 Reykjavík. t ræðu, sem Reagan, Banda- ríkjaforseti, flutti í gær, sunnudag, á hátíðisdegi bandarísks verka- lýðs, lofaði hann Samstöðu og sagði, að áhrif hennar hefðu ekki horfið þótt samtökin hefðu verið bönnuð. hiils CHEMISCHE WERKE HULS AG Referat1122, D-4370Marl Skólaritvélar Olympla ritvélarnar eru allt í senn skóla-, ferða- og heimilisritvélar. Ódýrar og fáanlegar í mörgum gerðum. Carina áreiðanleg vél, búin margs konar vinnslu sem aðeins er á stærri ritvélum. TraveHer de Luxe fyrirferðarlítil og léttbyggð vél sem þolir auðveldlega hnjask og ferðalög. Reporter rafritvel með leiðréttingarbún- aði. Fisléttur ásláttur auk annarra kosta stórra skrifstofuvéla þótt Reporter sé bæði minni og ódýrari. E KJARAN ÁRMÚLA 22, SlMI 83022108 REYKJAVlK
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.