Morgunblaðið - 03.09.1985, Blaðsíða 56
56
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 3. SEPTEMBER 1986
Lögvemd opnar skrifstofu:
Markmiðið að gera
fólki grein fyrir mis-
notkun verðtryggingar
Morgunblaðið/Júlíus
Frá vinstri: Ólafur Hrólfsson meðstjórnandi, Guðbjörg Hermannsdóttir, Anna Kristjánsdóttir formaður Lögverndar,
Valdís Viðarsdóttir gjaldkeri og Þorgils Axelsson fulltrúi framkvæmdanefndar samtakanna.
„EF maður skrifar undir verðtryggð-
an samning eins og málum er háttað
í dag hér á landi, er hægt að senda
manni hvaða reikning sem er,“ sagði
Þorgils Axelsson, fulltrúi fram-
kvæmdanefndar Lögverndar á
blaðamannafundi, sem haldinn var í
tilefni af opnun nýrrar skrifstofu
samtakanna að Ármúla 19, annarri
hæð. Markmið samtakanna er að
vekja fólk almennt til umhugsunar
um hina ógnvænlegu misnotkun
verðtryggingar sem gerir fólki
ókleift að lifa mannsæmandi lífi af
óverðtryggðum launum, að því er
talsmenn samtakanna segja.
að við höfum skólavörur í úrvali
Merktu við þennan lista svo þú gleymir engu
□ Skólatöskur
□ Skjalatöskur
□ LBikskólatöskur
□ Pennaveski
□ Skrifundirlegg
□ Stílabœkur
□ Reikningsbœkur
□ Glósubœkur
□ Hringbœkur
□ Laus blöö
□ Fönablöö
□ Skýrslublokkir
□ Millimetrablokkir
□ Vélritunarpappír
□ Skrifblokkir
□ Minnisblokkir
□ Klemmuspjöld
□ Plastmöppur
□ Plastumslög
□ Blekpennar
□ Kúlupennar
□ Kúlutússpennar
□ Filttússpennar
□ Glœrupennar
□ Áherslupennar
□ Reglustikur
□ Horn
□ Skœri
□ Bókaplast
□ Trélitir
□ Tússlitir
□ Vatnslitir
□ Vaxlitir
□ Blýantar
□ Teikniblýantar
□ Fallblýantar
□ Yddarar
□ Strokleöur
Meö nýjungarnar og nœg bílastœöi
Síðumúla 35 — Sími 36811
Fyrir menntofólk fró fimm órg gldfi
Geröu góö koup hjá óriffli
Lögvernd vill vinna gegn því að
mannréttindi séu brotin á Islandi,
en þau eru mjög svo fótum troðin
hér að sögn forráðamanna Lög-
verndar. „Til dæmis reynist fólki
erfitt að fá lögfræðiaðstoð og ef
það fær hana, er hún svo dýr að
fáir fá við ráðið. Hér á landi er
útfærsla verðtryggingar notuð
sem forsenda fyrir stórfelldum
„löglegum" þjófnaði sem bitnar
eingöngu á hinum almenna laun-
þega. Við sitjum ekki við sama
borð og aðrar þjóðir hvað þetta
varðar. Myndast hafa ýmsir sér-
hagsmunahópar sem græða enda-
laust á verðtryggingu. Þessir hóp-
ar eru varðir af stjórnvöldum og
af þeim sökum streymir til þeirra
fjármagn í stórum stíl sem er í
raun og veru fjármagn almenn-
ings.“
Þorgils sagði að verðtryggingu
væri hægt að teygja þannig til að
það munaði allt að 300% á sama
dæminu eftir því hvernig það væri
reiknað. „Fólk áttar sig ekki á
þessum staðreyndum þegar það
skrifar undir samning og fer þetta
gjörsamlega með fólk sem stendur
í húsbyggingum og kaupum. Það
þarf engan lögfræðing til að sjá
þetta út, enda ekki ætlunin að
kaupa lögfræðinga til starfa hjá
samtökunum. Það er heldur ekki
talað um í lögunum hvernig verð-
myndun verður til við verðtrygg-
ingu. Komið hafa upp dæmi hjá
okkur þar sem húsbyggjandinn
greiðir 65% hærri verðbætur en
bankavextir segja til um. Hinsveg-
ar leggur byggingaraðilinn aldrei
meira út en 1/3 af kostnaðarverð-
inu. Hlutverkum fólks hefur verið
snúið við í þjóðfélaginu.
Svokölluð Bókun 188a var gefin
út á fundi efnahags- og samvinnu-
nefndar Sameinuðu Þjóðanna í
Genf árið 1954 og var hún fljót-
lega lögleidd af flestum þjóðum
eftir þann fund. Hinsvegar hefur
íslenska ríkið ekki tekið upp þessa
bókun og fyrir vikið er fólk al-
gjörlega réttindalaust þegar í
óefni er komið. Bókun þessi tekur
tillit til verðlagshækkana í báðum
löndum ef viðskipti hafa átt sér
stað milli landa og ef við hefðum
lögleitt bókun þessa hingað, hefði
bagginn aldrei orðið svo þungur á
t.d. togaraeigendum þeim sem nú
eru að missa skip sín vegna er-
lendra lána.“
Hjá Lögvernd vinna 25 um-
boðsmenn um land allt og auk
starfsfólks á skrifstofunni í
Reykjavík. Ætlunin er að hafa
skrifstofuna opna frá klukkan
18.00 til 21.00 alla virka daga og er
öll vinna hjá samtökunum unnin í
sjálfboðavinnu.
Leiðrétting
FYRIR nokkrum vikum skrifaði
ég grein í Morgunblaðið um heim-
sókn mína á gestaheimilið á
Breiðuvík í Rauðasandshreppi.
Get ég þess að heimilið sé í
Sandshreppi sem er rangt, vegna
míns eigin misskilnings i viðtali
mínu við búendur þar. Bið ég þau
afsökunar á missögninni um leið
og ég sendi þeim mínar bestu
kveðjur.
Filippia Kristjánsdóttir
* W
Fer inn á lang
f lest
heimili landsins!