Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 Eysteinn Helgason ráðinn forstjóri Iceland Seafood EYSTEINN Helgason hefur ver- iA ráðinn forstjóri Iceland Sea- food Corporation, og var ákvörð- un þar að lútandi tekin á stjórnarfundi fyrirtækisins í síð- ustu viku. Eysteinn tekur við starfinu næsta haust þegar Guð- jón B. Ólafsson hættir starfi þar vestra, til þess að koma heim og taka við starfi forstjóra Sam- bandsins. Tekur Guðjón form- lega við forstjórastarfmu 1. janúar 1987. Talið er fullvíst að á stjórnar- fundi Samvinnuferða/Landsýnar á morgun verði Helgi Jóhanns- son ráðinn framkvæmdastjóri Samvinnuferða, en hann hefur um eins og hálfs árs skeið gegnt því starfi, í fjarveru Eysteins Helgasonar. Iceland Seafood Corporation er sölufélag Sambandsins og frysti- húsa innan þess. Fyrirtækið er staðsett í Camp Hill í Pennsylv- aníuríki í Bandaríkjunum og rek- ur fiskréttaverksmiðju og annast sölustarfsemi á frystum sjávar- afurðum. Hjá Iceland Seafood Corporation starfa um 400 manns. Ársvelta fyrirtækisins var 120 milljónir Bandaríkjadala á sl. ári eða tæpar 5.000 milljónir á núgildandi gengi. Erlendur Einarsson, forstjóri Sambandsins, er stjórnarfor- maður Iceland Seafood. Erlendur sagði í samtali við Morgunblaðið í gær að algjör einhugur hefði ríkt í stjórn fyrirtækisins um ráðningu Eysteins. Eysteinn hefði dvalið um 18 mánaða skeið hjá Iceland Seafood við ýmis sér- verkefni, og hann myndi nú í vet- ur starfa hjá Sjávarafurðadeild Eysteinn Helgason, nýráðinn for- stjóri Iceland Seafood Corp. í Bandaríkjunum. Sambandsins í nánu samstarfi við þá Sigurð Markússon fram- kvæmdastjóra deildarinnar og Ólaf Jónsson aðstoðarfram- kvæmdastjóra. Auk þess myndi Eysteinn fara á milli Sambands- frystihúsanna hér á landi og kynna sér rekstur þeirra og framleiðslu. Eysteinn Helgason fæddist 24. september 1948. Hann lauk prófi frá viðskiptadeild Háskóla Is- lands árið 1973. Hann starfaði hjá Sölustofnun lagmetis frá 1973—77, þar af framkvæmda- stjóri seinni árin og varð fram- kvæmdastjóri Samvinnuferða hf. 1977 og Samvinnuferða/Land- sýnar 1978. Eysteinn er kvæntur Kristínu Rútsdóttur og eiga þau þrjú börn. Sjóvá kaupir hluta- bréf í Hagtryggingu SAMKOMULAG hefur tekist um að Sjóvátryggingarfélag íslands hf. kaupi rösklega 50 prósent hluta- bréfa í Hagtryggingu hf. Hagtrygging hf. hefur aðal- lega starfað á sviði ökutækja- trygginga frá því að félagið var stofnað árið 1965. Félagið hefur nú í tryggingu um sex þúsund ökutæki og hafði árið 1984 34 milljónir króna í iðgjaldatekjur. Hjá Hagtryggingu hf. starfa 13 menn. Að sögn forráðamanna Sjóvá er með kaupum þessum stefnt að náinni samvinnu fyrirtækj- anna tveggja og aukinni hagræð- Steypubttl valt í Keflavík Keflavfk, 3. september. SÍÐDEGIS í gær valt hlaðinn steypubfll á gatnamótum Hring- brautar og Vesturgötu í Keflavík. Engin slys urðu á mönnum. Bfllinn kom akandi norður Hringbraut, tók vinstri beygju inn á Vesturgöt- una með þeim afleiðingum að hann valt og hafnaði upp á gangstéttinni. Virtist sem hraðinn hafl verið of mikill svo að bfllinn valt. Stöðvaði steypubfllinn umferð þó nokkurn tíma, eða uns kranabifreið hafði rétt hann við. EFR. Uppboð fískiskipa: Tap Byggðasjóðs um 55 milljónir króna Sölvi Bjarnason sleginn Fiskveiðasjóði fyrir 146 milljónir ingu í rekstri þeirra. Þar með skapast forsendur til þess að draga úr rekstrarkostnaði og bæta jafnframt þjónustu við viðskiptavini þeirra. Hagtrygging hf. verður eftir sem áður sjálfstætt fyrirtæki og starfsmenn þess verða hinir sömu og verið hefur. Sjóvátryggingarfélag íslands hf. var stofnað árið 1918. Þar starfa nú um 50 manns. Ið- gjaldatekjur Sjóvá árið 1984 voru 306 milljónir króna. Félagið rekur alhliða vátryggingarstarf- semi. Það hefur nú um 20 þúsund ökutæki í tryggingu. TOGARINN Sölvi Bjarnason BA 65 var í gær sleginn Fiskveiðasjóði á uppboði á Patreksfirði fyrír 146 milljónir króna. Togarinn er tryggð- ur á sömu upphæð. Skuldir eigenda skipsins við sjóðinn nema 172 millj- ónum króna, við Byggðasjóð 21,6 milljónum og við Landsbankann 12 milljónum. Lögveðskröfur nema um 3 milljónum króna. Ljóst er að Byggðasjóður, Landsbankinn og lögveðskröfuhafar tapa fé því, sem þeir hafa átt hjá eigendum Sölva Bjarnasonar. Alls verða fjögur fiski- skip boðin upp í þessum mánuði og næsta að kröfu Fiskveiðasjóðs og nemur tap Byggðasjóðs um 55 millj- ónum króna vegna þess. Fyrra uppboð á Kolbeinsey ÞH í eigu Höfða hf. á Húsavík var einn- ig í gær. Fiskveiðasjóður bauð 176 milljónir i skipið, en kröfur hans nema 266 milljónum króna. Annað og síðara uppboð á Kolbeinsey verður 30. október næstkomandi. Síðar i mánuðinum verður síðara uppboð á skipunum Sigurfara II frá Grundarfirði og Helga S. úr Keflavík. Samkvæmt upplýsingum sem Morgunblaðið fékk í Byggðasjóði, , á sjóðurinn útistandandi 55,5 milljónir króna hjá eigendum þessara skipa. Krafan á Sölva Bjarnasyni nemur 21,6 milljónum, á Kolbeinsey 13,8 milljónum, á Sigurfara 15,1 milljón og Helga S. 5 milljónum. Krafa Fiskveiðasjóðs á þessi skip er í öllum tilfellum hærri en vátryggingaverð skip- anna. Aðeins lítill hluti þessarar upphæðar er tryggður með öðrum hætti en í viðkomandi skipum eða 6 til 8 milljónir króna. Sölumet hjá Iceland Seafood í ágúst: Salan í fyrsta sinn yfir þrettán milljónir dollara SALA Iceland Seafood Corporation á frystum sjávarafurðum hefur aldrei verið meiri en í ágústmánuði, en þá fór hún í fyrsta sinn í sögu fyrirtækis- ins yfir 13 milljónir dollara. Sam- kvæmt upplýsingum Guðjóns B. Olafssonar, forstjóra Iceland Sea- food, þá er hér um 7,7% söluaukn- ingu að ræða, miðað við ágústmánuð I fyrra, en sala hjá fyrirtækinu frá ára- mótum hefur aukist um 10,6% miðað við sama tfma á sfðasta ári. „Við seldum fyrir 13 milljónir og 46 þúsund dollara i ágústmánuði nú,“ sagði Guðjón í samtali við Morgunblaðið f gærkveldi, „og er Snæugluhreiður fundið - það fyrsta í 28 ar SNÆUGLUHREIÐUR fannst inn á hálendinu norðanlands fyrir skömmu. Snæugluhreiður hefur ekki fundist hér á landi svo staðfest sé síðan 1957, eða í 28 ár, þó flækingsfuglar sjáist á hverju ári. Hreiðríð er yfirgefið en eggin enn f því. Ævar Petersen, fuglafræðingur hjá Náttúrufræðistofnun, sagði að snæugla sæist hér á hverju ári, ekki síst fyrir norðan. Hann sagði að fyrsta hreiðrið hér á landi hefði fundist upp úr 1930, síðan nokkur fram til 1945 og það sfðasta árið 1957. Þó væru sagnir um að snæ- ugluhreiður hefði fundist á sjö- unda áratugnum, en það væri ekki staðfest. Sagði Ævar að snæuglur sæust hér á landi á hverju ári og ekki hægt að skjóta loku fyrir það að hún verpi hér að staðaldri því erfitt væri um vik að fylgjast með því. Snæuglan verpti um miðjan maí og ungarnir kæmu úr hreiðr- unum um 20. júnf og á þeim tíma væru litlar mannaferðir um há- lendið. Snæugluhreiðrið fannst þegar komið var fram í ágúst. Eggin voru enn í hreiðrinu en engir fuglar nálægt. Taldi Ævar líkleg- ast að uglan hafi yfirgefið það f Hvítasunnuhretinu f vor. Þegar fréttist af hreiðrinu var allt komið á kaf í snjó á þessum slóðum og sagði Ævar að starfsmenn Nátt- úrufræðistofnunar hefðu ekki lagt í að fara til að skoða hreiðrið vegna þess mikla kostnaðar sem þvf væri samfara. Taldi hann nokkuð öruggt að um væri að ræða snæugluhreiður. Snæugla er með stærstu uglum. Hún er 56-65 cm á lengd og væng- haf 150-160 cm. Karlfugiinn er að mestu hvftur en kvenfuglinn er alsettur dökkum fikrum. Snæugl- an er hánorrænn fugl og verpir á heimskautasvæðum allt i kring um pólinn, m.a. á Grænlandi. Aðalfæða hennar er læmingjar en talið líklegast að hún lifi á rjúpu, gæsarungum og vaðfuglum á vorin og sumrin hér á landi. í riti Land- verndar, „Fuglar", segir að snæ- uglan hafi verið þekkt lengi sem sjaldgæfur gestur hér á landi, er fyrsta hreiðrið fannst vorið 1932. Síðan hafi nokkur hreiður fundist, en engin sfðan um miðjan sjötta áratuginn. „Það er því alls óvíst að til sé fslenskur snæuglustofn, og e.t.v. eru þær snæuglur sem sjást hér af grænlenskum upp- runa,“ segir einnig í riti Land- verndar. þetta í fyrsta sinn sem við förum yfir 13 milljónir f sölu. Næst því höfum við komist í mars 1983, en þá seldum við fyrir 12,5 milljónir dollara.“ Guðjón sagði að í siðasta mánuði hefðu 6,1 milljón punda af verk- smiðjuframleiddum vörum selst fyrir 6,8 milljónir dollara. 2,9 millj- ónir punda af flökum hefðu selst fyrir 4,6 milljónir dollara. Siðan væru ýmsar aðrar sölur, svo sem skelfisksölur, sem lykju dæminu. Guðjón sagði að fyrstu átta mán- uði þessa árs hefði fyrirtækið selt 68,5 milljónir punda fyrir 87,6 milljónir dollara, en í fyrra á sama tíma hefðu 62,2 milljónir punda verið seld fyrir 79,2 milljónir doll- ara. Aukningin frá áramótum til 1. september miðað við sama tíma í fyrra væri því 10,6%. Tíu sækja um stöðu borgar- minjavarðar Tíu manns sóttu um embætti borg- arminjavarðar Reykjavíkurborgar. Þeir sem sækja eru Bjarni Ein- arsson, Guðný Gerður Gunnars- dóttir, Gunnlaugur Haraldsson, Jó- hann Æ. Jakobsson, Júlíana Gottskálksdóttir, Kristín Huld Sig- urðardóttir, Magnús Þorkelsson, Ragnheiður H. Þórarinsdóttir, Salvör Jónsdóttir og Sólveig Georgsdóttir. Settur borgarminjavörður er Ragnheiður H. Þórarinsdóttir og er hún meðal umsækjenda um stöð- una.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.