Morgunblaðið - 04.09.1985, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
7
Leikár Þjóðleikhússins að hefjast:
Óperan Grímudansleikurinn
verður frumsýnd 20. september
Breytingar fyrirhugaðar á litla sviðinu
VETRARSTARF ÞjóÖleikhússins er halid og verður fyrsta
frumsýning vetrarins fóstudaginn 20. þ.m. og verður þá
frumsýnd óperan „Grímudansleikurinn“ eftir Giuseppe
Verdi.
Morgunblaðið/RAX
/Efingar standa nú yfir á fyrsta verkefni leikársins, óperunni Grímudans-
leikurinn eftir Verdi. Hér sést Kristján Jóhannsson í dramatísku atriði.
í vetur verða frumsýnd átta
verk á stóra sviðinu og auk þess
verða tekin upp þrjú verkefni frá
síðasta leikári.
Eins og áður sagði verður
fyrsta frumsýning vetrarins á
Grímudansleiknum eftir Verdi.
Þetta er mjög viðamikil sýning
og taka þátt í henni alls milli 60
og 70 manns og er þá hljómsveit
ekki meðtalin. Með helstu hlut-
verk fara Kristján Jóhannsson,
Kristinn Sigmundsson, Sigríður
Ella Magnúsdóttir, Elísabet Ei-
ríksdóttir, Katrín Sigurðardótt-
ir, Robert Becker og Viðar
Gunnarsson. Leikstjóri er
Sveinn Einarsson, hljómsveitar-
stjóri Maurizio Barbacini, Björn
G. Björnsson gerir leikmyndina
og Malín Örlygsdóttir búninga.
Vegna þess að Kristján Jó-
hannsson er samningsbundinn
erlendis verður fjöldi sýninga
takmarkaður og verða þær
væntanlega milli 15 og 20 að
sögn Gísla Alfreðssonar Þjóð-
leikhússtjóra.
Næsta frumsýning á eftir
Grímudansleiknum verður á
gamanleiknum „Með vifið í lúk-
unum“ sem sýndur hefur verið
víðs vegar um land í sumar við
góðar undirtektir. Þar á eftir
kemur svo „Villihunang" eftir
Anton Tsjékhov í leikgerð Bret-
ans Michael Frayn, sem meðal
annars er þekktur hér á landi
fyrir gamanleikinn „Skvaldur".
Þýðandi er Árni Bergmann.
Meðal þeirra sem fara munu
með stór hlutverk eru Guðbjörg
Thoroddsen, Sigurður Skúlason,
Arnar Jónsson, Pétur Einarsson
og Bessi Bjarnason.
Jólaleikrit Þjóðleikhússins að
þessu sinni verður hið þekkta
verk Arthurs Miller „í deigl-
unni“, í þýðingu dr. Jakobs Bene-
diktssonar. Leikstjóri er Gísli
Alfreðsson. Verkið var áður sýnt
í Þjóðleikhúsinu árið 1955.
Fyrsta verkefni eftir áramót
verður nýtt íslenskt leikrit,
„Upphitun", eftir Birgi Engil-
berts í leikstjórn Þórhalls Sig-
urðssonar. Verkið fjallar um líf
stúlku, sem er efnilegur ballett-
dansari og lýsir því hvernig
kröfur, sem gerðar eru til henn-
ar á unglingsaldri brjóta hana
smám saman niður og gera hana
óhæfa til að þroskast og lifa eðli-
legu lífi. Leikritið er sérstakt að
því leyti að í því eru allar per-
sónurnar, tíu að tölu, konur.
í mars verður frumsýndur
ballett eftir Marjo Kuusela frá
Finnlandi, sem hún mun semja
sérstaklega fyrir Islenska dans-
flokkinn og jafnframt stjórna.
Efni hans mun verða um íslensk-
ann veruleika dagsins í dag.
Marjo Kuusela hefur áður sett
upp balletta hér á landi, meðal
annars Tófuskinnið og Sölku
Völku.
Ríkarður III. eftir Shake-
speare verður frumsýndur í
byrjun apríl, en þetta verk var á
dagskrá hjá Þjóðleikhúsinu í
fyrra, en var þá frestað vegna
verkfalls BSRB. Helgi Hálfdan-
arson þýddi verkið en leikstjóri
verður John Burgess frá breska
þjóðleikhúsinu.
Síðasta frumsýning vetrarins
á stóra sviðinu verður svo á
fimm ára gömlu leikriti eftir
Bretann Peter Nicholls, sem
nefnist „Ástríðuleikur" (Passion
Play). Þýðandi og leikstjóri er
Benedikt Árnason. Peter Nich-
olls þykir einn fremsti leikrita-
höfundur Breta og mun þetta
vera í fyrsta sinn sem verk eftir
hann er sýnt hérlendis.
Auk þessara verka verða sýn-
ingar teknar upp aftur á ís-
landsklukkunni eftir Halldór
Laxness, Kardemommubænum
eftir Thorbjörn Egner og söng-
leiknum Cicago. Þá verður hald-
ið áfram sýningum á Valborgu
og bekknum á Litla sviðinu, en
dagskráin þar er ekki ákveðin að
öðru leyti. Stafar það af þvi að
áformað er að breyta rekstri
þess og aðskilja það frá veitinga-
húsinu í kjallaranum. Er áform-
að að gera það að eins konar far-
andleikhúsi, þannig að unnt
verði að setja sýningarnar upp á
ýmsum stöðum.
Þessi átta verk sem frumsýnd
verða, eru öll í áskrift og er það
einu verki fleira en var í fyrra.
Sala áskriftarkorta mun hefjast
um næstu helgi. Að sögn Gísla
Alfreðssonar Þjóðleikhússtjóra
verður starfsemi leikhússins
með mesta móti í vetur og
kvaðst hann bjartsýnn á vetur-
inn, því síðasta vetur hefði að-
sókn verið með eindæmun góð og
væri i framhaldi af því eðlilegt
að hafa kraft í starfseminni á
því leikári sem nú fer í hönd.
SKIPTIBÓKAMARKAÐUR
- sumarlaunin þín endast lengur
Þú þarft ekki að fletta lengi í stærðfræðibókinni þinni frá í
fyrra til að reikna út, að það getur borgað sig að skipta við
Skiptibókamarkað Eymundsson í Austurstræti. Fjörugan
markað með notaðar kennslubækur.
Vid skiptumst á
ÍSLENSKA:
í fáum dráttum (Njörður P. Njarðvík)
Istonsk málfrœftl II, 2. útg. (Kristján Árnason)
StafMtningarorftabók, 3. útg.
(Halldór Halldórsson)
Straumar og Stefnur, 2. útg. (Heimir Pálsson)
Vartu ekkl meft avona blá augu (Olga G )
DANSKA:
Dftnak-lslensk orftabók, Isafold 1973
íalenak-dftnak orftabók, Isafold 1976
Gyklendala ordbog for akole og hjem
Nu-Danak Ordbog etblndaudgave
Hlldur
Operatlon Cobra
Nár anerlen Blomater
Ksrtlghed ved fftrate hik
ZAPPA
Llv og Alexander
FREMMED
Fra Regnormenea liv
Legetftj
ENSKA:
Enak-falenak orftabók, Isafold 1976
lalenak-enak orftabók, ísafold 1983
Oxford Advanced Leamera Dict. of current
Engllah (revised and regulary updated)
Now Read On
Waya to Grammar
The Klng'a Mlaalon
The Importance of Being Earneat
Intermediate Engllah Practice Book
(nýrri útgáfan)
Thlnklng Engliah . Book 4, lesbók
Meaning Into worda (rauft), lesbok
Uar
My World . Book 1
The Puppetmaatera
The language of Bualneaa
Uae of Engllah
Short atorlea for Today
Flrat Certlflcate Skllla, lesbók
Turnlng Point, lesbók
Open Road, lesbók
Brave New World Revlstted
Developlng Skllls,
Courae in Intermedlate Scientiflc Engllsh
New Proflciency English . Book 1
Readlng Between the Linea
Lucky Jlm
The Catcher In the Rye (nýrri útgáfan)
The Great Gataby
The Diary of Adrlan Mole
Fluency In Engllsh
Exploring Engliah. Book 3
More Modern Short Storlea
PÝSKA:
Pyak-íalenak orftabók, Isafold 3. útg.
Pyak málfraaftl (Baldur Ingólfsson)
Deutach fur junge Leute, lesbók
Andorra
D*e Panne
Vorstadt Krokodlle
Kein Schapa fúr Tamara
Waa aagen aie dazu
Anruf fúr einen Toten
Wie kommt das Saiz in Meer
Aua Modemer Technlk und
Naturwlaaenachaft
Schulerduden, Bedeutungswörterbuch
Schreck in der Abendstunde
Kontakt mlt der Zelt
Einfach Geaagt
FRANSKA:
S'il vous plalt 1, lesbók
S II vous plalt 2, lesbók
Dict. du francaia langue étrangere,
niveau 1 og 2
Antigone
Le train bieu
SAGA:
Frá elnveldl til lýftveldia, 3. útg
(Heimir Þorleifsson)
Frá aamfálagamyndun tll ajálfataaftlabaráttu
(Lýftur Björnsson)
Þasttlr úr sftgu nýaldar, útg 1976
(Helgi Skúli Kjartansson)
Penguin Atlas of World Hlatory, Vol 1
Penguin Atlas of World Hlstory, Vol 2
ANNAÐ:
Þjófthagfrnftl (Gytfi P Gíslason)
Baaic, útg 1982 (Halla B Baldursdóttir)
Efnafraaftl I (Anderson o.fl.)
Eftllafraaftl Ib - 2c (Staffanson o.fl.)
Jarftfraaftl, 3. og 4. útg. (Þorleifur Einarsson)
Vefturfraaftl, 3. útg. (Markús Á. Einarsson)
Llffraaftl (Colin Clegg)
Lífeftllafraaftl (örnólfur Thorlacius)
Erfftafraafti (ömólfur Thorlacius) 2. pr. 1983
Staarftfraaftlgrelning fyrir framhaldaakóla
Staarftfraaftl 2MN (Erstad Bjómsgárd)
Black Holea, Ouaaar and The Unlverae,
2. útg.
The Story of Art, 14. útg.
Anlmals wlthout Backbones (nýjasta útgáfa)
Physlcs-Principies and Problems
þt) GRÆ&ÍK.
HUtíDWíBKALL
Þú græðir HUNDRAÐKALL á því að kaupa reikningsbœkurnar
og stílabækurnar fijá okkur.
Tvdr 5 stykkja pakkar eru 100 krónum ódýrari en almennt gerist.
Láttu sjá þig. Sumarlaunin þín endast lengur, látirðu stærðfræði-
bókina þína frá í fyrra vísa þér veginn - í Austurstrætið.
EYMUNDSSON
Tryggur fylginautur skólafólks í meiren lOOár