Morgunblaðið - 04.09.1985, Síða 20

Morgunblaðið - 04.09.1985, Síða 20
20 MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 Aqua Nor ’85 — Fiskeldissýning í Þrándheimi Rúmlega 200 fyrirtæki sýndu á 8000 fermetrum — eftir Kristján Þ. Davíðsson ÞANN 12. ágúst opnuðust hlið þriðju norsku fiskeldissýningar í Þránd- heimi. Rúmlega 200 fyrirtski og stofnanir sýndu og buðu vönir og þjónustu á 8000 fermetra svæði, sem á stóðu fjórar sýningarhallir og úti- svaeði. Sýningin stóð í fjóra daga og var heimsótt af um það bil 15.000 manns. í tengslum við sýninguna voru haldnar tvær ráðstefnur. Sú fyrri var helguð þjóðlegum norskum málefnum og umræður fóru fram út frá stikkorðunum: Pólitísk stjórnun fiskeidis, fiskeldisrann- sóknir á krossgötum?, og norskur laxútflutningur — alþjóðlegt fyr- irtæki? Seinni ráðstefnan var alþjóðleg og markmið hennar var að safna saman áhrifafólki og vísinda- mönnum frá Noregi og öðrum fiskiræktarþjóðum til að ræða stöðu og framtíðarhorfur í fisk- eldi, í þess orðs víðasta skilningi, í heiminum sem heild. Thor Listau sjávarútvegsráð- herra Noregs opnaði sýninguna og bauð sýnendur og gesti velkomna á þessa þriðju Aqua Nor-sýningu og jafnframt þá fyrstu sem haldin er sem alþjóðleg sýning. í ræðu sinni sagði Listau að stjórnvöld í Noregi litu á fiskeldi sem framtíð- aratvinnugrein og lofaði virkum stuðningi stjórnvalda í framtíð- inni til að byggja upp og þróa þennan iðnað, og átti þá sérstak- lega við uppbyggingu rannsókna- og menntakerfis. Hann sagði þró- un fiskeldis hafa verið öra og að stjórnvöld hefðu dregist aftur úr, en tók fram að ríkisstjórnin legði áherslu á að taka virkan þátt í þróun þessarar atvinnugreinar og efla fyrirtæki og einstaklinga. Sjávarútvegsráðherrann skoð- aði síðan sýninguna í fylgd skipu- leggjendanna, en það eru forráða- menn félags norska fiskiræktar- manna. Á blaðamannafundi að af- lokinni skoðunarferðinni kvaðst ráðherrann ánægður með sýning- una og sagði það sérstaklega hafa vakið athygli sína að gæði og fjöl- breytni virtust vera helstu ein- kenni sýningarinnar. Einnig sagði ráðherrann það eftirtektarvert að sýnendur voru margir tiltölulega smá fyrirtæki, frá flestum héruð- um landsins. Þetta kvaðst hann líta á sem staðfestingu á þeirri skoðun stjórnvalda að fiskeldi væri atvinnugrein sem hentaði vel úti um landið í dreifbýlli héruðum. Á fundinum kom fram að norsk stjórnvöld líta á fiskeldið sem at- vinnugrein í fleiri en einum skiln- ingi. Lögð er áhersla á að nýta þá möguleika sem liggja í eldi ýmissa tegunda í Noregi, svo sem lax- fiska, skelfisks, krabbadýra, kola- tegunda, þorsks og lúðu. En í við- bót við það er reiknað með tölu- verðum tekjum til þjóðarbúsins frá útflutningi á tækni, það er að segja fagiegri þekkingu og tækni- legum búnaði til fiskeldis og þjón- ustu. í allri umræðu um fiskeldi í Noregi ríkir mikil bjartsýni og kannski ekki að ástæðulausu. Þótt ýmsir erfiðleikar hafi vissulega gert vart við sig, sjúkdómar og áföll af völdum veðra og lélegs búnaðar, hefur norskt fiskeldi gengið vel undanfarin ár. Flestir hafa getað sýnt fram á dágóðan hagnað og þar af leiðandi haft getu til að bæta og endurnýja bún- að sinn með nýfjárfestingum. Reiknað er með að innan fárra áratuga hafi norskt fiskeldi skap- að tugþúsundir nýrra atvinnutæk- ifæra. Þess má einnig geta að Nidarhöllin í Þrándheimi hýsti aðalhluta sýningarinnar en umfang hennar var þó svo mikið að þrír skálar og útisvæði var undirlagt auk hallarinnar. Sýnendur voru frá ellefu lönd- um og þeirra á meðal nokkur ís- lensk fyrirtæki, sem kynntu sig og sína framleiðslu í gegnum norska umboðsaðila sína. Má þar nefna ístess hf., nýstofnað eyfirskt fyrirtæki sem selur og í náinni framtíð framleiðir fóður til fisk- eldis. Marel hf. í Reykjavík kynnti tölvuvogir og hugbúnað og Póllinn hf. á ísafirði (og í Kópavogi) sýndi sínar vogir og tölvukerfi. Að öðr- um ólöstuðum vakti útstilling Pólsins óskipta athygli, enda til þess fallin að kveikja forvitni áhorfenda. Ein af vogunum var á kafi í vatni ofan í fiskabúri, ásamt nokkrum gullfiskum og á henni nokkur lóð. Á hlið búrsins var letrað á norsku „Okkar vog þolir vatn“ og Magni Veturliðason sagði undirrituðum að augu margra stækkuðu þegar sýnt væri fram á að vogin virkar ofan í vatni. Fiskimálastjórn norska ríkisins sýndi tvö lítil lúðuseiði, 5—6 senti- metra löng. Þau eru merkileg fyrir að vera einu lúðurnar í heiminum sem tekist hefur að klekja og ala af mönnum. Vísindamenn í Auste- voll-rannsóknarstöðinni eiga heið- urinn af því afreki, sem þykir tímamótaverk. Líklega hefur norska fyrirtækið NORATEC a/s boðið upp á stærstu fjárfestinguna. Fyrir 11—13 milljónir Bandaríkjadoll- ara selur fyrirtækið fullbúna framleiðslustöð fyrir regnbogasil- ung og lax ef vill. Á sýningunni fiskeridirektoratet =iskeridirektoratet Sjávarútvegsráðherra Noregs, Thor Listau, bauð gesti og sýnendur vel- komna. Fiskimálastjórn Noregs fræddi um starfsssemi sína og sýndi meðal annars lúðuseiðin tvö. Þau eru í búrinu sem stendur fyrir miðjum básnum. Háskólinn í Tromsö kynnti nám og rannsóknir. Sérstaklega var auglýst eftir kvenfólki í stúdentahópinn, en konur þykja of fáar í sjávarútveginum. norskur eldislax er nú seldur til hátt í 30 landa víðsvegar um heim, meðal annars til Bretlands, Frakklands, Bandaríkjanna, Jap- ans, Kanada, Hong Kong og Sviss. Ef vikið er að sýningunni sjálfri er vonlaust verk að gera grein fyrir öllu því sem þar gat að líta. Hér skal aðeins stiklað á stóru og minnst á einstök forvitnileg atriði að mati undirritaðs og reynt að gefa mynd af fjölbreytninni. Á sýningarsvæðinu mátti sjá alls kyns tækjabúnað til fiski- ræktar, allt frá smæstu einingum, eins og pakkningum i vatnsrör til lyftara, báta, bryggja og löndun- arkrana. Fyrirtækin sem sýndu vörur sínar voru allt frá sérhæfð- um plaströraframleiðendum til þess að geta boðið upp á „pakka" með tilbúinni fiskeldisstöð með 6000 tonna árlegri framleiðslu- getu, auk aðstoðar við fjármögnun og gangsetningu. Það voru ekki bara framleiðend- ur tækjabúnaðar og rekstrarvara til fiskeldis sem buðu afurðir sín- ar á sýningunni. Tryggingafélög, fjárfestingafélög og sjóðir, dag- blöð, skólar, rannsóknarstofnanir, ráðgjafar-, flutnings- og sölufyrir- tæki kynntu og buðu þjónustu sína í ræðu og riti. Bæklingafjöldinn var marglitur og mikill að vöxtum og það er meira en liklegt að margir gestanna hafi mátt borga drjúgan skilding í yfirvigt á heim- leiðinni. var módel af stöðinni, sem hefur 3000 tonna árlega framleiðslugetu, meiri ef óskað er. Stöðin er hönn- uð sem fljótandi eining, eins konar tankskip sem dregið er á útvalinn stað og lagt þar við festar og fjög- ur akkeri eða land og tvö akkeri. Stærðin er rúmlega 100 metrar á lengdina, 40 á breiddina, heildar- hæð er 12 metrar og djúpristan 8 metrar. Um borð eiga að vera fjór- ar framleiðslulínur með samtals 16 tönkum. Klakstöð, rannsókna-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.