Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
21
Fylkisstjórn British Columbia í Kanada kynnti aðstæður til fískiræktar í fylkinu og auglýsti eftir fyrirtækjum og
einstaklingum sem vildu fjárfesta.
og eftirlitsstofa, fóðureldhús,
birgðageymslur og starfsmanna-
aðstaða eru staðsett í húsi sem
byggt er ofan á stöðina. Undir
tönkunum eru dælu- og leiðslu-
kerfi sem sjá um hringrás sjávar
og hreinsun. Öll er stöðin tækni-
vædd til hins ýtrasta og á að
standast ströngustu kröfur til
styrkleika, hagkvæmni og öryggis.
Fyrsta stöðin verður að líkindum
fullbúin á næsta ári og verður
fróðlegt að sjá hvernig reksturinn
gengur. Þess má geta að í útreikn-
ingum frá framleiðanda er gert
ráð fyrir hagnaði strax á öðru ári,
miðað við afurðaverð 2.75$ á kíló.
Af öðru áberandi og athyglis-
verðu má nefna að fjölmargir
sýndu alls kyns gerðir og stærðir
af flotbúrum og bryggjum, hring-
laga, ferhyrningar, sex- og átt-
hyrningar. Stærsta flotbúrið var
örugglega Bridgestone-búrið, jap-
önsk framleiðsla hönnuð með það
fyrir augum að þola opið haf og
þau veður sem þar eru. Búrið sem
er sexhyrnt var fyrst prófað i Jap-
an árið 1980 og eftir tveggja ára
prófanir, þar á meðal i fellibyl og
sjógangi upp í 7 metra ölduhæð,
var það sett í framleiðslu. Nú hafa
verið seld búr af þessari gerð til
Sovétríkjanna, Bretlands, Kan-
ada, Noregs, íslands og Færeyja.
Búrið var ekki sýnt í heilu lagi á
sýningunni, aðeins bútur úr einni
einingu. Það er kannski auðskilið
þegar á það er litið að í einu búri
eru 6 einingar 10—16 metra lang-
ar hver um sig. Bara flatarmálið á
slíku búri er 665 fermetrar.
Áberandi margir sýndu mis-
munandi mikið sjálfvirk og tölvu-
vædd fóðurblöndunar- og gjafar-
kerfi. Slíkt sparar mikla vinnu og
eykur hagkvæmni, hægt er að
jafna fóðrunina, fóðra oftar og
minna og á þann hátt forðast
botnfall og mengun sem því fylgir.
Aukin yfirsýn yfir ástandið al-
mennt, fóðursamsetningu og fóðr-
un, vöxt og svo framvegis telst
þessum kerfum til tekna, þótt
aldrei sé hægt að skipta á neinu
tölvukerfi, hversu fullkomið sem
það er, og manninum sem lítur
eftir og er í daglegri snertingu við
allt það sem er að gerast. Einnig
er vert að undirstrika þá stað-
reynd að hagkvæmni þessara
tölvustýrðu kerfa er að öllu leyti
undir því komin að þau séu rétt
nýtt af kunnáttufólki.
Það var ekki bara lax, sem var í
kerjunum á sýningunni. Auk hans
gat að líta lúðuseiði, sem áður er
getið, sandhverfa, krabbi, humar,
áll og þorskur voru einnig sýnd
sem mögulegar eldistegundir.
Það er við hæfi að ljúka þessu
skrifi með því að minna á íslensku
fiskeldissýninguna sem verður
haldin 18.—22. september í Laug-
ardalshöll, þótt kannski sé það
óþarft, eins og áhugi virðist vera
almennur á fiskeldi í landinu, um
þessar mundir.
Höíundur er nemandi í sjárarút-
regsfræðum rið háskólann í
Tromsö, Noregi.
IKeraste-línuna frá L’Oreal.
Vinnum einungis úr úrvals efnum.
Qpið fimmtudag til kl. 8.
Hárgreiðslustofan Lokkablik,
áður Hárgreiöslustofa Lollu,
Miklubraut 68,
Sími 21375.
Dollý Grétarsdóttir hárgreiðslumeistari.
Super-
svefnbekk-
urinn
stillanlegt
höfuðlag
og rúmfata-
geymsla.
Kr. 11.630.-
HAMRABORG 3, SÍMI. 42011, KÓPAVOGI
in!nu
HOSGÖGN SEM HENTA ÖLLUM
2ja sæta sóf i
sem breyta
má í rúm meö
einu hand-
taki.
Kr. 13.700.-