Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 Sri Lanka: Sjö lögreglu- menn felldir ('olombo, Sri I>anka, 3. september. AP. TVEIMUR fyrrverandi þingmönnum Sri 'Lanka-þings var í gær rænt frá heimilum sínum í borginni Jaffna í norðurhluta landsins og þeir síðan myrtir, að því er stjórnvöld í Colombo sögðu í dag, þriðjudag. Sögðu þau tamflska aðskilnaðarsinna hafa verið þar að verki. Tveggja annarra stjórnmála- manna er saknað, og er óttast, að þeir hafi hlotið sömu örlög. Talsmaður aðskilnaðarsinna kvað samtökin engan þátt eiga í morðunum eða mannránunum. „Þetta er blekkingaráróður stjórn- valda í Colombo," sagði hann. í gærkvöldi gerðu tamílskir skæruliðar árás á lögreglustöð í austurhluta landsins og beittu sprengjuvörpum. Sjö lögreglu- menn létu lífið og átta særðust, að sögn embættismanna í Colombo. Stöðin var jöfnuð við jörðu. Yfirvöld telja, að þarna hafi einnig verið að verki skæruliða- hópur aðskilnaðarsinna, sem and- vígir séu áframhaldandi friðarvið- ræðum. Kambódía: Pol Pot lætur af herstjórn Pekinff, 2. september. AP. POL POT hefur látið af embætti yf- irstjórnanda skæruliðahreyfingar rauðra khmera í Kambódíu, að því er sendiráð kambódísku andspyrnu- hreyfingarinnar í Peking tilkynnti í dag, mánudag. „The Mirror" kemur út á ný Sendifulltrúar erlendra ríkja töldu, að breyting þessi gæti orðið til að auka líkur á friðarsamning- um í landinu, en þar hafa nú geis- að blóðug innanlandsátök í sex ár. Pol Pot lét af embætti 24. ágúst sl., en dvelst áfram í Kambódíu, þar sem hann mun veita forstöðu skóla fyrir liðsforingja og stjórn- endur rauðra khmera. Við yfirherstjórn rauðra khmera tekur Son Sen herráðsfor- ingi. Hann verður einnig varafor- seti Lýðræðisflokks Kambódíu, en forseti hans er Khieu Samphan, pólitískur leiðtogi hreyfingarinn- ar. í stjórnartíð Pol Pots í Kambód- íu 1975—78 voru hundruð þúsunda óbreyttra borgara tekin af lífi. Mótmælaganga stöðvuð AP/Símamynd Lögregla rædst að hópi manna í þorpinu Athlone, nærri Höfðaborg, fyrir viku. Fólkið var á leið til Pollsmoor- fangelsisins þar sem Nelson Mandela er í haldi. Mótmælagangan var leyst upp af lögreglu, sem notaði kylfur, gúmmíkúlur og táragas. Grænland: Lögreglumaður lézt eftir skotbardaga Nuuk, 2. september. Frá fréttariUra Morgunblaðsins, N. J. Bruun. GRÆNLENZKUR lögreglumaður lézt á sunnudag af völdum skotsára, sem hann hlaut á laugardagskvöld í skotbardaga við þjóf einn í höfninni í Fredrikshaab. Annar lögreglumað- ur særðist illa en þó ekki lífshættu- lega. Lögreglumennirnir tveir voru í eftirlitsferð í grennd við lystibát í höfninni, er þeir urðu varir við mannaferðir um borð í bátnum. Þegar þeir hugðust kanna málið betur, kom maður á móti þeim, miðaði á þá riffli og neyddi þá til að fara aftur inn í lögreglubílinn, sem hann læsti síðan. Er lögreglu- mennirnir reyndu að komast út, kom til skotbardaga milli hans og þeirra. Fékk annar þeirra byssu- kúlu í magann og lézt svo á sunnu- dag. Hinn lögreglumaðurinn varð fyrir glerbrotum, er bílrúðurnar brotnuðu af völdum skothríðar frá byssumanninum. Hlaut lögreglu- maðurinn slæm sár í andliti og er talin hætta á, að hann missi sjón á öðru auga. Hann náði samt að hæfa árásarmanninn þremur skotum. Er árásarmaðurinn mikið særður, en er þó ekki í lífshættu. The Mirror, næststærsta dagblað í Bretlandi, kom á ný út í gær, mánudag, eftir að sam- komulag náðist við prentara í deilu, sem staðið hafði í 11 daga. Hótuðu prentarar að loka öllum blöðum Mirror-útgáfunnar. Deilan hófst, er Robert Maxwell útgefandi tilkynnti, að hann hefði í hyggju að færa hluta útgáfunnar frá aðal- stöðvum Mirror nærri Fleet Street til prentsmiðju í Berm- ondsey í sparnaðarskyni. Á sunnudag tókst að ná sam- komulagi í deilunni eftir lang- ar fundasetur og sagði Max- well við fréttamenn, að sá hluti útgáfunnar, sem deilunum olli, yrði seldur. Astralskur dómarí dæmd- ur til fangels- isvistar Sjdaey, Áxtralíu, 3. wptember. AP. í DAG VAR þriðji æðsti dómari Ástralíu dæmdur til 18 mánaða fang- elsisvistar fyrir að hafa reynt að hafa áhrif á meðdómara sinn í málaferl- um. Embættismaðurinn, Lionel Murphy hæstaréttardómari, sem er 62 ára að aldri og fyrrverandi lögfræðilegur ráðunautur ríkisins, er fyrsti ástralski hæstaréttar- dómarinn, sem leiddur er fyrir rétt í sakamáli. Hann neitar sak- argiftum. Murphy var ákærður 5. júlí sl., en þegar rétti var slitið í dag, þriðjudag, hélt hann enn fram sakleysi sínu og kvaðst „sannfærð- ur um að ég verð hreinsaður af áburðinum". Dóminum hefur ver- ið áfrýjað. Viðtal við Gorbachev í Time: Ásakar Bandaríkjamenn lítinn samningsvilja New York, 1. september. AP. ^ MIKHAIL S. Gorbachev, leiðtogi Sovétríkjanna, telur að Bandaríkja- stjóm eigi eftir að taka harða afstöðu í viðræðunum í Genf í nóvember og Sovétmenn þurfi að gera ýmsar tilslakanir, ef árangur á að nást. Þetta kemur fram í viðtali sem tímaritið Time átti við Gorbachev á sunnudag. Gorbachev segir í viðtalinu að helst líti út fyrir að Bandaríkja- menn séu að búa sig undir „glímukeppni stórveldanna" og þeim sé efst í huga að koma „góðu höggi á andstæðinginn og vinna stig í rimmunni". Viðtalið var tekið þannig að Gorbachev svaraði aðsendum spurningum og ræddi við frétta- stjóra Time á skrifstofu sinni í Kreml. Gorbachev segir að geimvarn- aráætlun Bandaríkjamanna sé afvopnunarviðræðum óyfirstíg- anleg hindrun og ekki verði kom- ist að neinu samkomlagi um af- vopnun, nema Bandaríkjamenn falli frá þeim. Síðar í viðtalinu segir hann aftur á móti að Guð almáttugur hafi örugglega gefið manninum næga skynsemi til að finna leiðir til bóta á sambúð stórveldanna tveggja. Sovétleiðtoginn lýsir yfir áhyggjum sínum yfir nýlegum ákvörðunum Bandaríkjastjórnar og nefnir að þeir hafi hafnað til- lögu Sovétmanna um bann á kjarnorkuvopnatilraunum, þeir kvarti sífellt undan því að Sov- étmenn virði ekki almenn mannréttindi og virðist stað- ráðnir í að halda áfram geimvarnarannsóknum sínum. „Reynt er að þrengja að okkur. Eins og svo oft áður erum við ásakaðir um að stuðla að vopna- kapphlaupinu, valdníðslu í Mið- austurlöndum, mannréttinda- brotum og jafnvel íhlutunum í Suður-Afríku,“ segir Gorbachev og heldur áfram: „Þetta er ekki stjórnarstefna [hjá Bandaríkjamönnum] heldur glórulaus leit að öflum hins illa.“ Gorbachev segist reiðubúinn að setjast við samningaborðið í Genf 19. og 20. nóvember og ræða af alvöru við Reagan, Bandaríkjaforseta, og það sé ekki of seint fyrir Bandaríkja- menn að létta lævi blandið and- rúmsloftið fyrir fundinn. Reagan hefur lýst því yfir að geimvarnaáætlunin sé aðeins á rannsóknarstigi og hann hafi ekki skuldbundið sig til að hrinda henni í framkvæmd. En Gorbachev lítur ekki á geim- varnaáætlunina sem rannsókn- arverkefni eingöngu og segir að Sovétmenn muni ekki sofa á verðinum, heldur finna viðeig- andi mótleik. Mikhail Gorbachev, leiðtogi Sov- étrfkjanna. Hann segir að Sovétmenn séu aðeins reiðubúnir til að fyrir- byggja vopnakapphlaup f geimn- um, en ekki til að semja um hvernig skuli vopnast í geimn- um. Viðbrögð bandarískra ráða- manna við yfirlýsingum Gorb- achevs í Time einkenndust af varkárni. Talsmaður utanrfkis- ráðuneytisins, Pete Martinez, sagði á sunnudag, að Banda- ríkjamenn vonuðust til að sam- band stórveldanna yrði betra eftir viðræðurnar í Genf. En hann sagði að þeir gerðu sér eng- ar gyllivonir, það tæki tíma að leysa úr ágreiningsmálum og báðir aðiljar þyrftu að sýna þol- inmæði og ákveðni. Martinez skýrði frá því, að mikilvægi viðræðnanna í nóv- ember kæmi ekki í veg fyrir að Bandaríkjamenn ræddu deilu- mál sín við Sovétmenn af hrein- skilni, frekar en Sovétmenn bæru klæði á vopnin í ummælum sínum. Reagan talaði síðast um leið- togafundinn i viðtali 24. ágúst, þar sem hann sagðist mundu gera sitt besta til að sýna fram á að Bandaríkjamenn vildu ekki grfpa til fjandsamlegra aðgerða gegn Sovétmönnum. En hann sagðist hafa fulla ástæðu til að ætla að Sovétmenn kæmu til við- ræðnanna af óvinveittum hug. í viðtalinu við Time ræðir Gorbachev einnig um sovésk efnahagsmál. Segist hann stað- ráðinn í að bæta efnahag þjóðar- innar með aukinni miðstýringu og „lögmálum lýðræðisins í stjórn efnahagsmála" með því að auka sjálfsvald framleiðenda. Kvaðst Gorbachev ætla að ýta undir einstaklingsframtakið og því þyrftu íbúar Sovétrfkjanna að breyta vinnuháttum sínum. Hann sagði að meginmarkmið sitt væri að bæta lífskjör þjóðar- innar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.