Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 ftttfgmilrlfifrife Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aðstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fréttastjórar Auglýsingastjóri hf. Árvakur, Reykjavík. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst Ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aöalstræti 6, sími 10100. Auglýsingar: Aö- aistræti 6, sími 22480. Afgreiðsla: Kringlan 1, sími 83033. Áskrift- argjald 400 kr. á mánuöi innanlands. i lausasölu 35 kr. eintakiö. Helsjúkt eða heilbrigt? Fréttir um nauðungar- uppboð á togurum og greiðslustöðvanir og gjald- þrot hjá fyrirtækjum eru tíðar um þessar mundir. Nokkur landskunn fyrir- tæki hafa leitað skjóls í greiðslustöðvun lögum skv. að undanförnu. Gjaldþrot blasa við öðrum og í gær voru tveir togarar til við- bótar á nauðungaruppboði. Kunnugt er um alvarlega rekstrarerfiðleika margra fyrirtækja. Líta má á þesi tíðindi út frá mismunandi sjónarmið- um. Sumir kunna að segja sem svo, að þetta sé þróun, sem ekki beri að harma, heldur vísbending um, að efnahagslíf okkar sé að verða heilbrigðara. Við eðli- leg skilyrði komi í ljós, hvaða fyrirtæki hafi verið illa rekin og þau hljóti að lenda í rekstrarstöðvun og jafnvel gjaldþroti. Þess vegna sé þetta til marks um kraftmikið efnahagslíf, sem hreinsi út fyrirtæki og at- vinnugreinar, sem ekki standi sig. Aðrar telja, að tíð gjald- þrot og nauðungaruppboð á eignum séu til marks um- efnahagslíf á hraðri niður- leið. Erfið rekstrarskilyrði atvinnuveganna valdi því, að jafnvel fyrirtæki, sem alltaf hafi verið vel rekin og hafi ekki fjárfest um of séu komin á kné og í þrot. Þessi þróun eigi ekkert skylt við heilbrigt efna- hagslíf heldur helsjúkt. Sjálfsagt er skýringin einhvers staðar á milli þessara tveggja ólíku sjón- armiða. Auðvitað er mikið af atvinnufyrirtækjum, sem eru illa rekin. Það væri til marks um sjúkt efna- hagskerfi, ef mikil áherzla væri lögð á að halda þeim gangandi. Á hinn bóginn er ljóst, að eignir fjölmargra traustra fyrirtækja brenna upp með ótrúlegum hraða sérstaklega í sjávarútvegi vegna þess, að rekstrarskil- yrði þeirrar atvinnugreinar eru óbærileg með öllu. Við lifum á tímum mikill- ar breytinga í atvinnulíf- inu. Hefðbundnar atvinnu- greinar á borð við land- búnað eru á undanhaldi. Með vissum hætti má segja, að barátta landbúnaðar- samtakanna beinist að því, að það undanhald verði skipulagt. Það tjón, sem bændur verði fyrir, verði sem minnst um leið og þeir söðla um og leggja vaxandi áherzlu á nýjar búgreinar. Það er rangt að líta á slík umskipti í atvinnulífinu sem neikvæð. Hvarvetna í hinum vestræna heimi hafa gamlar atvinnugreinar liðið undir lok og komizt í hend- ur nýrra þjóða, sem hafa betri aðstöðu til að stunda þær með árangursríkum hætti. Þessi þróun hefur orðið viðar en í landbúnaði. Hún hefur t.d. orðið í verzluninni á höfuðborgarsvæðinu. Þar hefur orðið gjörbylting. Kaupmaðurinn á horninu og smáheildsalinn hafa horfið að mestu og við tekið kjörbúðir og stórmarkaðir. Það hefur lítið heyrzt í því fólki, sem hefur orðið fyrir búsifjum af þeim sökum. Kannski er það fyrst og fremst til marks um mátt bændasamtakanna og póli- tískan styrk þeirra, að at- hyglin hefur beinzt meira að þessum umskiptum í landbúnaði en verzlun. í öðrum löndum, sem hafa k'ynnzt breytingum af þessu tagi hefur mikil áherzla verið lögð á að nýj- ar atvinnugreinar komi í stað þeirra, sem líða undir lok. Hættan fyrir okkur íslendinga er kannski fyrst og fremst fólgin í því, að það fer ekki nógu mikið fyrir slíkum nýjungum í okkar atvinnulífi á sama tíma og gömlu fyrirtækin líða undir lok. Vera má að þessi endurnýjun sé á ferð- inni, þótt menn verði henn- ar ekki varir að ráði. En ef svo er ekki, eru nauðungar- uppboðin og gjaldþrotin fremur til marks um hel- sjúkt efnahagslíf en heil- brigt. Megum ekki verða fjá lega háðir dvöl varnar — sagði Geir H. Haarde í ræðu á þingi Sambands ungra sjál „Eitt af því sem komið hefur verið til leiðar í tíð þessarar ríkis- stjórnar og ég veit að er ungu fólki mikið hjartans mál eru nýju út- varpslögin. Með þeim var brotið blað í sögu fjölmiðlunar á íslandi þótt á framkvæmdina eigi að sjálf- sögðu enn eftir að reyna. Allt frumkvæði í þessu máli, innan þings og utan, var í höndum sjálf- stæðismanna. Og það tókst að koma málinu í gegn þrátt fyrir harða andstöðu afturhaldsaflanna í landinu og undanbrögð Fram- sóknar. Eftir því munu hinir ungu kjósendur að sjálfsögðu muna. En það eru fleiri mál, sem sér- staklega snúa að yngra fólkinu, sem verður að koma í framkvæmd. í drögum að stjórnmálaályktun þingsins er lagt til að skyldusparn- aður ungmenna verði afnuminn. Þetta fyrirbæri er löngu úrelt orðið, framkvæmdin er götótt og alþekkt hvernig farið er í kringum reglurnar. Að auki skilar skyldu- sparnaðurinn litlu sem engu nú orðið til húsnæðismálanna, eins og þó var meiningin. Meginatriðið varðandi þetta er þó kannski það, að það er rangt að hafa vit fyrir ungu fólki með þessum hætti. Það er röng stefna að gera fólki skylt að spara með þessum hætti, þegar það er að byrja að vinna fyrir sér. Það er miklu nær að gera fólki ljóst að gildi hins frjálsa sparnað- ar og hinir nýju húsnæðissparnað- arreikningar eru mun aðgengilegri kostur fyrir ungt fólk, sem vill spara til að leggja í húsnæði, held- ur en iögþvingaður skyldusparnað- ur. En varðandi húsnæðismálin almennt, sem eru sígilt hagsmuna- mál hinna yngri borgara, vildi ég segja að þar þurfa vissulega að koma til umbætur í anda þeirra samþykkta sem sjálfstæðismenn hafa látið frá sér fara. Meginatriði þess máls eru tvö. Hið fyrra er að þeir, sem byggja eða kaupa í fyrsta sinn, hafi forgang. Hið síðara er að jöfnuð verði aðstaða þeirra sem kaupa notað húsnæði og hinna sem byggja nýtt. Ég fer ekki nánar út í þessi mál hér. Ég vil þó segja vegna nokkurra umræðna í þjóð- félaginu um svokallaðar búsetu- réttaríbúðir, að slíkar íbúðir eiga að sjálfsögðu fullan rétt á sér fyrir þá, sem kjósa sér slíkt sambýlis- form. Ef fólk vill frekar búa í leigu- húsnæði með búseturéttarskipu- Hér fer á eftir kafli úr setningarræðu Geirs H. Haarde, fráfarandi for- manns SUS, á þingi Sambands ungra sjálf- stæðismanna um síðustu helgi: lagi en leigja hjá öðrum eða eiga sitt eigið húsnæði, þá er það auð- vitað sjálfsagt og ekkert við það að athuga. En það er heilmikið við það að athuga, að slíkum leigu- íbúðum séu veitt forréttindi innan hins opinbera húsnæðislánakerfis og njóti sérstakra vildarkjara á því takmarkaða lánsfé sem til ráð- stöfunar er til húsnæðismála. Þessu höfum við sjálfstæðismenn barist gegn og munum gera áfram. Ég má svo til með að nefna hér, að við viljum ekki láta bjóða okkur lengur þá endaleysu, sem hér hefur viðgengist varðandi áfengan bjór. Foreldrar okkar 1 fram og við þurfu VILHJÁLMUR Egilsson hagfræd- ingur var kjörinn formaöur Sam- bands ungra sjálfstæöismanna á þingi sambandsins sem lauk síðast- liðinn sunnudag. Hér á eftir er birt ræða hans sem hann flutti eftir að hann tók við embættinu: Félagar og vinir Ég þakka ykkur það traust og þann heiður sem þið sýnið mér með því að kjósa mig formann, Sambands ungra sjálfstæð- ismanna. Ég mun gera mitt besta til þess að vera trausts ykkar verður. Ég vil þakka fráfarandi formanni, Geir H. Haarde, giftu- rík störf hans i þágu sambandsins og vænti þess og raunar veit að til hans munu ungir sjálfstæðismenn jafnan geta sótt liðveislu. Ég óska honum heilla í öllu hans framtíð- arstarfi. Við ungir sjálfstæðismenn höf- um verk að vinna, og við höfum miklum skyldum að gegna við þá kynslóð sem nú er að hasla sér völl í þjóðlífinu. Við ungir sjálfstæð- ismenn erum öflugusta stjórn- málahreyfing þessarar kynslóðar. Það er skylda okkar að hafa for- ystu í baráttunni fyirr því að skapa á íslandi það þjóðfélag sem gerir okkar kynslóð kleift að njóta síh og að búa í haginn fyrir þeirri næstu. Það er skylda okkar að berjast fyrir því að Island verði land frelsisins, land tækifæranna og land velferðarinnar. Erlendar lántökur hneppa ungt fólk í fjötra ísland er land möguleikanna, og kynslóð okkar þarf að fá tækifæri til þess að nýta möguleikana sem landið býður uppá. Möguleikarnir eru alls staðar, í náttúrunni sem skaparinn hefur gefið okkur og hjá okkur sjálfum. Við eigum mik- inn auð, bæði í náttúruauðlindun- um og fjárfestingunum en ekki síst í þeim mannauö sem felst í hæfileikum og menntun kynslóðar okkar. Það sem háir okkur er að möguleikarnir hafa ekki verið nýttir. Kunningjaþjóðfélagið hef- ur verið aðalsmerki íslensks þjóð- lífs, og illa hefur verið hugsað um að notfæra sér þá möguleika sem felast í náttúrugæðunum og í okkur sjálfum. Fjárfestingarnar hafa oft á tíðum ekki skilað nein- um arði heldur aðeins kostnaði þar sem við þurfum að skattleggja hvert annað til þess að borga okkur kaup. Við búum við velferð- arkerfi sem getur ekki enst okkur vegna þess að fjárhagslegar og siðferðislegar undirstöður þess eru of veikar. Skattheimtan er alltof mikil og í ýmsum tilfellum borgar sig fyrir fullfrískt fólk að ákveða að verða hjálpar þurfi. Al- varlegasta vandamál okkar er þó það að foreldrar okkar, sú kynslóð sen nú ræður mestu í landinu, lifir um efni fram og safnar skuldum sem kynslóð okkar þarf að greiða í framtíðinni. Á þessu ári samsvara viðbótarlántökurnar erlendis meira en einni milljón króna fyrir hvern þann úr kynslóð okkar sem kemur nýr á vinnumarkaðinn. Óbreytt stefna í þessum efnum þýðir að hver sá sem kemur nýr inn á vinnumarkaðinn úr okkar kynslóð byrjar með eina milljón króna í skuld og þarf að greiða vexti og afborganir af henni með verðmætasköpun sinni. Lántök- urnar erlendis eru þannig á góðri leið með að hneppa kynslóð okkar í fjötra vegna þess að sífellt stærri hluti af verðmætasköpun atvinnu- lifsins fer til þess að greiða vexti og afborganir af þessum lánum. Mikilvægasta verkefni okkar ungra sjálfstæðismanna fyrir kynslóð okkar er að tryggja að hún fái eitthvað annað í arf en skatta og skuldir. Ef okkur tekst ekki að brjótast úr hringiðu hinna erlendu skulda, þá glötum við efnahagslegu sjálf- stæði okkar í hendur erlendra lánadrottna, og þar með frelsinu. Innstreymi af erlendu lánsfé skapar misvægi milli atvinnu- greinanna. Það skapar tekjur beint og óbeint í ýmsum greinum framkvæmda, verslunar og þjón- ustu, sem geta notað þessar tekjur til þess að yfirbjóða útflutnings- greinarnar í samkeppninni um vinnyafl og fjármagn. Én einmitt í útflutningsgreinunum, og þá sér- staklega í sjávarútveginum, eru tækifærin sem kynslóð okkar verður að nýta til þess að gera ísland að landi velferðarinnar. Skuldasöfnunin erlendis er því ekki einungis ógnun við frelsið, hún sviptir okkur líka tækifærun- um og velferðinni. Skattheimtan eyðir tækifærum Skattheimtan í landinu dregur úr vinnuvilja og verðmætasköpun. Skattheimtan eyðir því fyrir okkur tækifærunum jafnt sem frelsinu til þess að velja og ráð- stafa því sem við öflum. Alltof lengi hefur sú skoðun verið út- breidd að velferðin byggist á mik- illi skattheimtu svipaðri og tíðk- ast hér á landi ef ekki ennþá meiri. Þessi skoðun byggist á mis- skilningi. Á þessu þingi höfum við ungir sjálfstæðismenn rætt um hvernig samrýma megi aukna vel- ferð og minni skattheimtu. Við höfum rætt um að gagnkvæma að- stoð við einstaklinga, fjölskyldna, vina og nágranna verði að byggj-
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.