Morgunblaðið - 04.09.1985, Qupperneq 29
28
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
FTMMTUDAGSTÓNLEIKAR SE
STARFSÁí
Fyrra misseri
1
3. október 1985
Stjórnandi MiltiadesCaridis
Einleikarar úr Blásarakvintett Reykjavíkur
L.v. Beethoven:
Jean Francaix:
BélaBartók:
Sinfónía nr. 6 í F-dúr, op. 68, „Pastoral“
Konsert fyrir f jóra tréblásara og hljómsveit
„Mandaríninn makalausi"
Miltiades Caridis er af grísk-þýskum ættum, ólst upp í Dresd-
en og Aþenu en stundaöi nám viö Tónlistarháskólann í Vín.
Hann hefur starfaö víöa um lönd, var m.a. um skeið fastur
stjórnandi slnfóníuhljómsveltar danska útvarpsins og meira
en áratug var hann aðalstjórnandi Fílharmoniuhljómsveitar-
innar í Osló. Á aldarafmæli Bartóks 1981 var hann sæmdur
heiöurspeningi þeim sem kenndur er viö tónskáldiö.
Miltiades Caridit
2
17.október 1985
Stjórnandi Jean-Pierre Jacquillat
Einsöngvari Ólöf Kolbrún Harðardóttir
Páll ísólfsson:
Alban Berg:
Fr. Schubert:
Introduktion og Passacaglia í f-moll
„Siebenfrúhe Lieder“
Sinfónía nr. 9 í C-dúr, „Hin stóra“
Stjórnandi þessara tónleika — eins og margra annarra á
starfsárinu — er aöalstjórnandi Sinfóníuhljómsveltarinnar,
Jean-Pierre Jacquillat. Bæöi hann og Ólöf Kolbrún Haröar-
dóttir eru kunnari en svo meðal íslenskra tónleikagesta aö
þörf sé á aö kynna þau sérstaklega. Ólöf Kolbrún syngur hér
sjö sönglög sem Alban Berg samdi á æskuárum sínum
meðan hann var enn í námi hjá Arnold Schönberg. Löngu
síðar (1928) tók hann fram þessi lög og færöi þau í þann
hljómsveitarbúning sem þau skarta síöan. Alban Berg var
fæddur 1885 og á því aldarafmæli á þessu „ári tónlistarinn-
ar
Ólöf Kolbrún Haröardóttir
3
31.október 1985
Stjórnandi Jean-Pierre Jacquillat
Einleikari Erling Blöndal Bengtsson
4
14. nóvember 1985
Stjórnandi Jean-Pierre Jacquillat
Einleikari Anna-Sophie Mutter
H. Berlioz:
C. Saint-Saéns:
Richard Strauss:
Béatrice et Bénédict, forleikur
Konsert nr. 1 í a-moll fyrir hnéfiðlu og hljóm-
sveit, op. 33
„Don Quixote", ævintýraleg tilbrigði um ridd-
aralegt stef, op. 35
KarólínaEiríksdóttir: Nýttverk
Johannes Brahms: Fiðlukonsert í D-dúr, op. 77
IgorStravinsky: „Eldfuglinn", ballett-svíta
Erllng Blöndal Bengtsson er íslenskur (móöurætt sem kunn-
ugt er og hefur allt frá unglingsaldri verlö tíöur og velkominn
gestur á tónleikum hér. Hann hefur komiö fram sem einleik-
ari mjög vföa um lönd og nýtur melrl frægöar en flestir aörir
norrænir tónlistarmenn. Hann er einnig eftirsóttur kennari.
Hann leikur hér, auk konsertslns eftir Saint-Saéns, veigamik-
Iö einleikshlutverk í hinu bráðskemmtilega verki „Don Quix-
ote“ eftir Richard Strauss, sem er nú frumflutt hér.
Anna-Sophie Mutter var „uppgötvuð“ 13 ára gömul þegar
hlómsveitarstjórinn frægi Herbert von Karajan heyröi hana
leika fiölukonsertinn í G-dúr eftir Mozart á vorhátíöinni í
Salzburg 1977. Síöan hefur hún unniö sér heimsfrægö,
komiö fram meö mörgum ágætustu hljómsveitarstjórum
sem nú eru uppi og er orðin heimavön í helstu tónlistarhúsum
veraldar, ^afnt í London, New York, Moskvu, París, Vín og
Tókýó. Um upptöku hennar á fiðlukonsertinum eftir Brahms
segir tímaritiö „Gramophone“ aö hún sé meðal hinna ágæt-
ustu sem til eru af þessu erfiða og vandmeðfarna verki, og
er þámikiö sagt.
Erling Blöndal Bangtaaon
Anna-Sophie Mutter
5
28. nóvember 1985
Stjórnandi Karsten Andersen
Einleikari Staffan Scheja
Jón Nordal:
L. v. Beethoven:
P. I. Tjaíkovskí:
„Concerto lirico“ fyrir hörpu og strengi
Píanókonsert nr. 4 í G-dúr, op. 58
Sinfónía nr. 4 í f-moll, op. 36
Staffan Scheja er sænskur píanóleikari sem hefur vakiö mikla
athygll í mörgum löndum á síöustu árum. Hann er búsettur
í New York en er annars á stööugum feröum um helminn. A
þessu ári fór hann m.a. tónlelkaför til Asíu og síöan meö
Sinfóníuhljómsveltlnnl í Singapore um Evrópu.
Karsten Andersen var fastur aöalstjórnandl Sinfóníuhljóm-
sveftar islands á árunum 1973-77 og er því áheyrendum
hennar aö góöu kunnur.
ö.desember 1985
Stjórnandi: KarolosTrikolidis
Söngsveitin Fílharmonía, kórstjóri Guömundur
Emilsson v
Einsöngvarar: Anna Júlíana Sveinsdóttir,
Elísabet Waage, SigurðurBjörnsson,
Kristinn Hallsson
Kartten Andoratn
Tónverk eftir Anton Bruckner: Sinfónía nr. 9 í d-moll og Te Deum
Karolos Trikolidis hefur starfaö allmikiö meö Sinfóníuhljóm-
sveitinni aö undanförnu, veröur aöaigestur hennar á stjórn-
andapallinum á starfsárinu 1986—87 og mun þá stjórna
mörgum tónleikum. A sföasta starfsári stjórnaöi hann hljóm-
sveitinni á tvennum tónleikum í Reykjavík og í tónleikaför til
Austurlands. Á þessum tónleikum flytur hann tvö verk eftir
eitt af mikilhæfustu tónskáldum 19. aldar, Anton Bruckner,
og er annað þeirra, sinfónían nr. 9, frumflutt hér aö þessu
sinni.
VamlM TribAliiÍM
fvaroiov i nKOiiais
7
9. janúar 1986
Stjórnandi Páll P. Pálsson
Einleikari Joseph Ognibene
8
23. janúar1986
Stjórnandi Jean-Pierre Jacquillat
Einleikari Guöný Guömundsdóttir
John Speight:
Richard Strauss:
O. Respighi:
Sinfónía
Hornkonsert nr. 1 í Es-dúr, op. 11
„Furur Rómaborgar"
Árni Björnsson:
E. Chausson:
M. Ravel:
A. Dvorák:
Tvær rómönsur (úts. eftir Atla H. Sveinsson)
Poem
Tzigane
Sinfónía nr. 8 í G-dúr, op. 88
Þaö eru heimamenn hér, þó langt aö komnir báöir, sem bera
hita og þunga þessara tónleika. Páll P. Páisson er austurrík-
ismaöur aö uppruna en fluttist hingaö rúmlega tvítugur og
hefur verlö fastráöinn stjórnandi Sinfóníuhljómsveitarlnnar
frá því 1971. Joseph Ognibene hefur veriö fyrsti hornleikari
Sinfóníuhljómsveitarinnar undanfarin ár og hefur vakiö at-
hygli fyrir frábærlega fagran tón og glæsilegan leik. Hann
er Bandaríkjamaöur og var lengst búsettur 7 Los Angeles.
Hann hefur oft ieikiö einleik meö hljómsveitinni bæöi (
Reykjavík og átónleikaferöum um landiö.
Konsertmeistari Sinfóníuhljómsveitarinnar leikur hér einleik
í tveimur vinsælum og afar áheyrilegum verkum fyrir fiölu
og hljómsveit eftir Chausson og Ravel. Guöný Guömunds-
dóttir hefur veriö konsertmeistari síöan 1974 og tók þá viö
því starfi eftir kennara sinn, Björn Ólafsson, en aö loknu námi
viö Tónlistarskólann í Reykjavík haföi hún stundaö fram-
haldsnám í Bandaríkjunum og London, síöast viö Juiliiard—
skólann í New York þar sem hún lauk meistaraprófi. Guöný
hefur haldiö mikinn fjölda tónleika hér heima og víöa erlend-
is.
JoMbpOgnibMM
Guðný Gudmundtdóttir