Morgunblaðið - 04.09.1985, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 04.09.1985, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 33 þóknun. I ríkisviðskiptabönkunum er enginn formaður bankastjórn- ar. Heildarlaun hinna almennu bankastjóra eru samkvæmt þessu um 96-97 þús. kr. á mánuði. Mán- aðarlaun formanns bankastjórnar Seðlabanka eru nokkru hærri, sbr. framanritað. — Risna bankastjóra er ákveðin árlega og er nú kr. 36.000 (í Búnaðarbanka 35 þús. kr.). (Aðstoðarbankastjórar hafa í laun 80% launa bankastjóra og 80% risnu bankastjóra). III Bifreiðamál bankastjóra ríkis- bankanna munu á síðustu 30-40 árum og að nokkru raunar þegar fyrir stríð hafa verið með sama hætti og hjá ráðherrum, og var þeim svo hagað um árabil fyrir 1970, að bankastjórunum var lögð til bifreið af bönkunum, sem kost- uðu einnig rekstur þeirra. Er lögin um Stjórnarráð íslands, sem tóku gildi 1. jan. 1970, voru sett, var í reglugerð um Stjórnarráðið ákveð- ið í verkefnaskiptingu ráðuneyt- anna að um „bifreiðamál ríkisins" skyldi fjallað í fjármálaráðuneyt- inu, fjárlaga- og hagsýsludeild. Þáverandi fjármálaráðherra, sem hafði um þetta efni samráð við fjárveitinganefnd Alþingis, mun hafa talið þá skipan bifreiðamála ráðherranna, sem tíðkast hafði, vera ríkissjóði dýra. Setti hann því í reglugerð um „bifreiðamál ríkis- ins“ (nr. 6 30. jan. 1970) ákvæði um bifreiðamál ráðherranna. (Ætla verður að það hafi verið gert í samráði við ríkisstjórnina eða allavega forsætisráðherra, sem málið heyrir að nokkru leyti undir vegna meðferðar málefna Stjórnarráðsins). í þeim reglum var farið inn á þá braut, að ríkis- bifreiðir skuli almennt auðkennd- ar, ef þær eru á annað borð keyptar og reknar og einkaafnot óheimil, en tekið var upp sérstakt ákvæði (auk hins almenna ákvæðis með ofangreindu innihaldi) um að ráð- herrar geti keypt sjálfir bifreiðar og fengið eftirgefin aðflutnings- gjöld af þeim, samkvæmt heimild í tollskrárlögum (1. nr. 1 11. febr. 1970, 3. gr. 14. tölul.) er samþykkt voru á sama alþingi og Stjórnar- ráðslögin. Fjármálaráðherra rit- aði 30. jan. 1970 bankaráðum ríkis- bankanna (formlega réttar hefði e.t.v. verið að viðskiptaráðherra og landbúnaðarráðherra, sem bankamálaráðherra og ráðherra Búnaðarbankans, hefðu skrifað bankaráðunum að ósk fjármála- ráðherra). Var í því bréfi reglu- gerðin kynnt, og frá því skýrt að ríkisstjórnin hafi ákveðið að reglu- gerðin skuli ná til allra stofnana ríkisins og því lýst að þess sé vænst, „að bankaráðin hlutist til um“ að koma bifreiðamálum í það horf sem samræmist ákvæðum reglugerðarinnar. Eins og lýst er annarstaðar í þessari greinargerð er ekki Ijóst að ráðherra hafi beint ákvörðunarvald um þetta efni, samkvæmt bankalögunum, enda má segja að orðavalið „ráðuneytið væntir þess“ taki ekki beint af skarið um það efni. Hinsvegar tóku öll bankaráðin bendingarnar til greina og breyttu reglunum í það horf, að bankastjórarnir skyldu kaupa og eiga bifreiðirnar en bankarnir greiða af þeim aðflutn- ingsgjöldin og greiða reksturs- kostnað. Stóðu bankastjórarnir þannig eftir sem áður í sömu stöðu og ráðherrarnir. Verður að telja að öllum stjórnvöldum, sem málið gat varðað, hafi verið ljóst að sú fylgni við kjör ráðherra um emb- ættisbifreiðir var áfram fyrir hendi. — Eftir að samþykkt hafði verið í maí 1984 þingsályktun um afnám bílakaupafríðinda embætt- ismanna, var hugað að breytingum á reglugerðinni frá 1970, þannig að felldar yrðu niður reglur um eftirgjöf aðflutningsgjalda fyrir ráðherra. Var sú reglugerð, sem sett var af fjármálaráðherra, birt á sl. vori (reglug. nr. 190 30. apríl 1985) Um og eftir sl. áramót höfðu bankaráðin samþykkt að hverfa frá greiðslu aðflutningsgjalda en taka í þess stað upp „launaauka" bankastjórunum til handa er gerði þá jafnsetta og áður. Eins og áður segir telur sá er þetta ritar það ekki vera sitt hlutverk að gera tillögur um kjarastöðu bankastjór- anna í samanburði við ráðherra eða aðra í einkarekstri eða annar- staðar. Hinsvegar sé verkefnið að meta það fyrirkomulag sem verið hefur og hvernig eðlilegt sé að um verði fjallað. Að þessu sögðu skal þó tekið fram, að áratuga hefð um fyrirkomulag og viðmiðun felur í sér ærna viðurkenningu á því sem gilt hefur um bifreiðamál banka- ■ stjóranna. Að öðru leyti er vísað til þess sem áður er sagt og þess sem nánar verður rakið í V hér á eftir, um hvernig megi bæta úr þeirri umfjöllun sem viðhöfð hefur verið um töku ákvarðana um kjaramál bankastjóranna, m.a. í því skyni að þeir aðilar, sem um geta þurft að fjalla, hafi aðstöðu til að fylgjast með því sem í þessu efni gerist. IV Frá upphafi hafa verið ákvæði í lögum um ríkisbankana um heim- ild til uppsagnar bankastjóranna. í Landsbankalögunum 1885 var uppsagnarfrestur hálft ár en í Landsbankalögunum 1928 12 mán- uðir en þó heimild til uppsagnar án frests, með 6 mánaða biðlaunum. I lögum um ríkisviðskiptabankana 1%1 (um Búnaðarbanka 1960) er áfram ákvæði um 12 mánaða uppsagnarfrest (gagnkvæman) en án heimildarákvæðis um fyrir- varalausa uppsögn án saka, með biðlaunum. Skv. Seðlabankalögun- um (frá 1961) skipar ráðherra bankastjóra að fengnum tillögum bankaráðs, en almenn heimild er til uppsagnar með tilgreindum ástæðum og rétti til biðlauna í 1-3 ár eftir ákvörðun ráðherra. Ákvæði um eftirlaun eftir ákvörð- un bankaráðs komu inn í Lands- bankalögin 1928 með hámarki 50% launa. I bankalögin 1961 komu inn almenn ákvæði, án nánari af- mörkunar, um að bankaráð ákveði eftirlaun bankastjóra. Ekki hefur ákvæðum um eftirlaun banka- stjóra fylgt nein skylda til ið- gjaldagreiðslu af þeirra hálfu. Verður væntanlega, í upphafinu allavega, að skoða það í samhengi við starfskjör þeirra um uppsagn- arheimildir. Hinsvegar sýnist skipan eftirlaunamáia banka- stjóra komin úr samræmi við þró- un þeirra mála um alla aðra starfs- menn ríkisins, þar með taldir bankamenn almennt, sbr. einnig ákvæði laga nr. 55 frá 1980, um starfskjör launafólks og skyldu- tryggingar lífeyrisréttinda. Sýnist meir en tímabært að samræma þetta fyrirkomulag almennum löggjafarviðhorfum í dag, og getur ef til vill verið þörf á vissri hlið- sjón af lagareglum um lífeyri al- þingismanna og ráðherra. Ekki sýnist í fljótu bragði þörf á sér- stakri lagasetningu í þessu sam- bandi. Mundi væntanlega nægja umfjöllun bankaráðanna, gjarnan samræmd, og yrði að sjálfsögðu að hafa hliðsjón af reglum áður- greindra laga 55/1980. Reglur um eftirlaun bankastjóranna eru byggðar upp með lítillega breyti- legum hætti, þótt svipað sé í höfuð- atriðum. í Seðlabanka eru reglurn- ar þær að 20% réttur fæst eftir eins árs starf, síðan bætist við 5% réttur fyrir hvert ár uns náð er 75% eftir 12 ár. Hlunnindi eru metin til 15% launa til eftirlauna, þannig að við bætist 4% eftir eitt ár en síðan bætist við 1% hvert ár, þannig að fullum eftirlauna- rétti 90% (bankaráðsþóknun er reiknuð með launum til lífeyris hjá öllum bönkunum) er náð eftir 12 ára starf sem bankastjóri. Hjá Landsbanka og Búnaðarbanka vinnst fullur eftirlaunaréttur 90% á 15 árum, þannig að fyrsta árið fást 20%, en síðan 5% á ári í 14 ár. Útvegsbanki hefur sérstöðu í því efni, að eftirlaunaréttindi geta náð 100% launa (með bankaráðs- þóknun) en eftir 25 ár, þannig að 7% fást á ári í 10 ár en síðan 2% á ári í 15 ár. Ekki þykir ástæða til að rekja nánar reglur um gildis- töku eftirlaunaréttar. V Allt frá setningu Landsbanka- laganna 1928 hefur það verið undirstrikað með beinu ákvæði í viðkomandi lögum um hvern ríkis- banka, að bankinn sé sjálfstæð stofnun, en síðan greint frá verk- skiptingu bankastjóra, bankaráðs og ráðherra. Það er nokkuð ljóst af þessu, að á undanförnum ára- tugum hafa menn gert sér grein fyrir að vissar hættur fylgja því að höfuðbankar landsins eru ríkis- bankar sem, ef ekki er að gáð, getur leitt til óæskilegra afskipta ríkisvaldsins af hinni almennu viðskiptastarfsemi, en jafnframt ljóst, að þar sem bankarnir eru reknir á ábyrgð ríkisins verður ekki undan því vikist, að af hálfu ríkisvaldsins sé haft nokkuð náið eftirlit með fjármunameðferð þeirra. Sú leið sem löggjafinn hefur valið, með skipan bankaráð- anna, sýnist hyggileg leið til að hinu almenna „pólitíska" eftirliti verði komið við, án þess að það hvíli um of á hinu æðsta fram- kvæmdavaldi (þ.e. ríkisstjórn), sem gaéti verið óæskilegt fyrir báða aðila. Minna má einnig á í þessu sambandi, að bankaeftirlit- ið, sem starfar samkvæmt lögun- um um Seðlabankann sem sérstök starfsemi innan hans, gegnir veigamiklu hlutyerki gagnvart öll- um innlánsstofnunum varðandi bankalega starfsemi þeirra og þar með bókhalds- og reikningsleg vinnubrögð. Eins og vikið var að í lok I hér að framan, verður að ætla að vald ráðherra til að fylgj- ast með og gefa ábendingar í sambandi við framkvæmd á starfsreglum muni eðli máls sam- kvæmt vera meira en beint er orðað, sbr. Einnig um meðferð bifreiðamála í III hér á undan. Er í því sambandi minnt á, að það er hlutverk ráðherra að setja al- mennar reglugerðir um starfsemi ríkisbanka (og staðfesta sam- þykktir hlutafélagabanka). Þess má geta hér að nokkuð óskýrt hafa verið sett fram ákvæði í hinum nýsettu lögum um viðskiptabanka um að ráðherra setji ríkisbönkun- um starfsreglugerð. Ákvæðið er eftir orðanna hljóðan eingöngu um setningu upphaflegrar reglugerðar innan árs frá gildistöku laganna. Sjálfgefið er að túlka verður ákvæðið almennt þannig að það sé almennt hlutverk ráðherra að setja bönkunum slíka reglugerð, en að hún skuli að þessu sinni sett innan árs frá gildistöku laganna. Sú umræða sem á liðnum vetri og vori (og að vísu einnig áður) hefur orðið um launa- og starfs- kjör bankastjóra ríkisbankanna, hefur leitt til ýmissa hugleiðinga um a) það hvort heppilegt sé að ákvörðunarvald um það efni sé í hendi bankaráðanna eða hvort heppilegri meðferð þeirra mála væri b) að kjaradómi verði falið með einhverjum hætti meðferð þess ákvörðunarvalds, með lagasetn- ingu, eða c) hvort einhver önnur úrræði gætu orðið til þess að tryggja, að meðferð þessara mála fengi skipu- legri umfjöllun. Áður en þær þrjár leiðir sem hér er bent á verða ræddar þykir rétt að víkja að því, að þá „póli- tísku“ umræðu, sem orðið hefur um þetta málefni hlýtur sá er þetta ritar að leiða hjá sér, en jafnframt er vakin athygli á því að allri umræðu um tekjuskiptingu í þjóð- félaginu hættir til að fara úr böndum, þannig að hætt sé við að fari úr einum öfgum í aðrar. Aftur á móti þarf ekki að koma á óvart þótt á hinn bóginn verði vart á þessum vettvangi kjarasjónarmiða einkarekstrarins, sem er mestan part vettvangur bankastarfsemi í öðrum löndum, en þarna er nauð- synlegt að haldið verði jafnvægi milli sjónarmiða, enda hefur komið fram í umræðunni, að ekki er deilt um að störf bankastjór- anna séu með ábyrgðarmestu störfum í samfélaginu. a) Hér að framan er þeirri skoð- un lýst, að sú skipan, að banka- ráðin standi að stjórn bankanna sé hyggileg, sérstaklega til hæfi- legs „pólitísks" eftirlits af hálfu löggjafarvaldsins. Tvennt kemur hinsvegar til þess að bankaráðin hafa veikari stöðu til þess að fjalla um kjaramál bankastjór- anna. Annarsvegar er augljóst að það er ekki auðveld aðstaða til að halda fastri hendi um kjaramál svo náinna daglegra samstarfsmanna sem banka- stjórarnir eru bankaráðsmönn- um. Hinsvegar kemur til hin sér- staka staða þingkjörinna stjórn- armanna (ekki eingöngu banka- ráða heldur einnig fjölda ann- arra) sem standa í óljósri stöðu milli stofnunar og viðkomandi ráðherra, sem ekki á skýra stöðu gagnvart þeim, og getur væntan- lega ekki borið stjórnskipulega ábyrgð á verkum þeirra. Hins- vegar geta bankaráðsmenn ekki borið hina stjórnskipulegu ábyrgð framkvæmdavaldshafa með sama hætti og ráðherrar. Verður í c hér á eftir vikið nánar að þessu úrlausnarefni. b) A Alþingi komu fram, á sl. vetri og vori, hugmyndir um að fela kjaradómi umfjöllun um launakjör bankastjóra ríkis- bankanna. Svo sem kunnugt er hefur kjaradómi undanfarin ár verið falin umfjöllun launakjara fleiri og fleiri aðila. Það er í sjálfu sér ekkert sem útilokar að kjaradómi sé falið með lögum að fjalla um launamál bankastjóra. tvennt kemur þó til þess, að sá er þetta ritar telur það ekki heppilegustu úrlausn um með- ferð þessara málefna, enda hefur Alþingi við setningu laga um viðskiptabanka á síðastliðnu vori raunar tekið afstöðu í þessu efni með því að lögfesta enn fyrri skipan um hlutverk bankaráð- anna í þessu efni. Ekki sýnist æskilegt, ef önnur úrræði eru til, að rjúfa með þeim hætti þá sérstöku stöðu sem bönkunum hefur verið og er ætluð í lögum um þá, sem „sjálfstæðar stofnan- ir“. Þar við bætist, að í allri þeirri umræðu, sem orðið hefur um kjör bankastjóranna, hefur í raun lítið verið fundið að sjálfri launaákvörðuninni, hinsvegar voru það önnur starfskjör og framkvæmd þeirra, sem gagn- rýni var beint að. Kjaradómi yrði vart með skynsamlegum hætti falin umfjöllun þeirra málefná að neinu verulegu leyti, þar sem fyrst og fremst er um stjórnunaratriði að ræða. Sýnist því að með þessu yrði að verulegu leyti skotið fram hjá markinu. c) Vikið hefur verið að því hér að framan, að ákveðnar veilur séu i aðstöðu bankaráðanna til að fjalla um kjaramál banka- stjóranna. Það er álit undirrit- aðs, að tiltölulega auðvelt ætti að vera að styrkja þá stöðu svo að ekki yrði hætta á vanhugsuð- um ákvörðunum. Jafnframt má reyndar vænta þess að sú um- ræða, sem orðið hefur fyrr á ár- inu, þótt að nokkru hafi verið öfgafull, muni efalaust hvetja til aukinnar aðgátar við töku ákvarðana í þessu efni. Jafn- framt er minnt á að fyrir dyrum stendur að ráðherra setji reglu- gerð um starfsemi ríkisvið- skiptabanka. Sýnist heppileg leið að taka þar inn ákvæði um umfjöllun þessara kjaramálefna og mætti þar m.a. hafa ákvæði um að ráðherra séu kynntar fyrirhugaðar eða þegar teknar ákvarðanir um þessi málefni. Eins og áður er sagt, verður að telja að ráðherra geti fylgst með og gefið bankaráði bendingar um tiltekin almenn atriði, þótt ekki séu um slíkt bein ákvæði í lögum, sbr. það sem áður er sagt í III um bifreiðamálin. Ef ekki þætti rétt að setja ákvæði i reglugerð um þessi efni, mætti allt að einu taka upp vinnureglur á þá leið sem um er rætt í samráði við bankaráðin. í sjálfu sér mætti hugleiða aðra aðila, sem gætu fylgst með þessari málameðferð, svo sem skoðunarmenn hvers banka. Eðlilegast sýnist, m.a. með hliðsjón af stjórnskipulegri ábyrgð ráðherra, að slík umfjöll- un yrði í hans höndum. Eftir sem áður yrðu hin beinu og formlegu forráð á töku ákvarðana um starfskjör bankastjóranna í höndum bankaráðanna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.