Morgunblaðið - 04.09.1985, Blaðsíða 39
MORGUNBLAÐIÐ, MIDVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
39
Alþjóðasamband eigenda íslenskra hesta. Frá aðalfundi:
Næsta Evrópumót haldið í
Austurríki að tveim árum liðnum
Á AÐALFUNDI FEIF (alþjóðasam-
band eigenda íslenskra hesta) var
ákveðinn staður fyrir næsta Evrópu-
mót og fyrir valinu varð bærinn Wei-
strach í Austurríki en þar búa um
2.000 manns. Að sögn mun undirbún-
ingur vera hafinn en til staðar er
hringvöllur sem væntanlega verður
notaður á mótinu.
Á fundinum var einnig ákveðið að
næsti aðalfundur skyldi haldinn á
ísiandi og þá væntanlega í tengsl-
um við Landsmót. Einnig hefur
komið fram sú hugmynd að haldin
yrði á næsta ári alþjóðleg dómara-
ráðstefna þar sem teknir yrðu fyrir
dómar á kynbótahrossum, gæðinga-
dómar og íþróttadómar. Fyrir ligg-
ur frá Síðasta ársþingi LH sam-
þykkt þess efnis að LH gengist fyrir
slíkri ráðstefnu.
Tvær breytingar urðu á stjórn
samtakanna, Max Indermaur,
Sviss, sem gegnt hefur stöðu gjald-
kera í þau sextán ár sem samtökin
hafa starfað, gaf ekki kost á sér en
í hans stað var kjörinn annar
Svisslendingur, Hans Pfaffen.
Varaforsetinn, Ole Larsen, Dan-
mörku, gaf heldur ekki kost á sér til
endurkjörs og var í hans stað kjörin
Marit Jónsson, Danmörku, sem er
vel kunn meðal aðdáenda íslenska
hestsins í Evrópu.
Aðildarlönd FEIF eru nú 12, síð-
ast gengu Finnland og Kanada i
samtökin og kepptu fulltrúar frá
báðum þessum löndum á nýaf-
stöðnu Evrópumóti. Fulltrúar frá
Bretlandi sátu fundinn sem
áheyrnarfulltrúar en það mun vera
tímaspursmál hvenær af inngöngu
þeirra verður. Stjórn FEIF skipa nú
Volker Ledermann forseti, auk ný-
liðanna sem áður voru nefndir.
Hans Bjöm Boudri, Hollandi, rækt-
unarfulltrúi, Marcel Schabos,
Þýskalandi, íþróttafulltrúi, Sigurð-
ur Ragnarsson, Islandi, ritari, og
Karl-Heinz Koll, Þýskalandi, blaða-
fulltrúi.
Morgu n blaðið/V ald i mar
Forseti FEIF, Volker Ledermann, er jafnframt forstjóri og eigandi Edding- -
fyrirtækisins. Þrátt fyrir að hann sé í góðum efnum járnar hann hrossin sín
sjálfur og lifir raunar mjög alþýðlegu lífi.
raöauglýsingar — raðauglýsingar — raóauglýsingar |
Óskum eftir
lítilli íbúð til leigu sem fyrst. Húshjálp eöa önn-
ur aðstoð kæmi til greina. Reglusemi. Tilboð
sendist augld. Mbl. merkt: „Húsnæði — 8323“.
Húseigendur takiö eftir
Þrír menntaskólanemar á þriöja ári, úr Gull-
hreppunum, bráðvantar 3-4 herb. íbúð til leigu.
Fyrirframgreiðsla og góð umgengni. Traustir
forsvarsmenn. Uppl. ísíma25238 eða 18622.
Hjón með tvö börn
Óskum aö taka á leigu 3ja-4ra herb. íbúö,
helst í Hlíðahverfi. Frá 1. okt. ’85 til 1. apríl
’86. Upplýsingarísíma75318eftirkl. 18.00.
íbúð óskast strax
í stuttan tíma. Góðar öruggar mánaðar-
greiðslur. Greiðist fyrirfram ef óskað er.
Upplýsingarísíma611259.
Verkstæðisvinna
Get bætt viö verkefnum, svo sem glugga-
bílskúrs- og svalahurðasmíöi, önnur smíöi
kemur einnig til greina. Hef á lager svalahuröir
(maghony) og bílskúrshuröir. Mjög gott verð
efsamiðerstrax.
Trésmíðaþjónustan,
Dalshrauni20, Hafn.
Sigurvin Snæbjörnsson,
byggingameistari,
sími53031 eftir kl. 17.00.
Bifreiðaverkstæði
til sölu í fullum rekstri meö góö sambönd. Um
er aö ræöa sölu allra áhalda þar á meðal
tveggja nýrra bílalyfta og viöskiptavildar. Góö
kjör í boöi fyrir traustan kaupanda. Athyglis-
vert fyrir þá sem vilja byggja upp eigiö at-
vinnufyrirtæki. Þeir sem áhuga hafa sendi
nöfn sín til augl.deildar Mbl. merkt „B-3395”.
Digital Rainbow 100+
meö gólfstandi til sölu. Innra minni 256 Kb.
Harður diskur 10 ND 2x400 Kb. diskettu-
drif.
Einnig fylgja stýrikerfi MS-DOS 2,05 og
CP/M-86-80 2,0. Tekið í notkun 1. okt. 1984.
Fæst með góöum kjörum.
Háberghf.,
sími 687121.
Til leigu 2-5 hundr. fm
Til leigu nálægt Hlemmi lager eða iðnaöar-
húsnæði meö mikilli lofthæö og góöum að-
keyrsludyrum. Laust strax.
VAGN JÓNSSON B
FASTEIGNASöJ-A SUCHJRLANDSBRAUT18 SÍMl84433
UOGFRÆCHNGURATU V4GNSSOM
Núpsskóli
Skólaár 1985-1986
Við starfrækjum:
— 8. bekk grunnskóla
— 9. bekk grunnskóla
— Fornám
Ennfremur framhaldsdeildir:
— Viðskiptabraut
— Uppeldisbraut
— íþróttabraut
— Almenn bóknámsbraut
Við bjóöum:
— 6 daga skólaviku sem hefst 30. september
oglýkur 10.maí.
— Lestíma þar sem kennarar aöstoða viö
heimanám.
— Líflegt félags- og íþróttalíf.
— Heimavist og mötuneyti.
Héraðsskólinn á Núpi,
471 Þingeyri, Dýrafiröi,
simi94-8234.
Fjármagn á lausu
Óska eftir að ávaxta kr. 10 milljónir í eitt ár.
Þeir sem hafa áhuga, öruggar tryggingar og
vilja greiöa sanngjarna vexti, sendi nauösyn-
legar upplýsingar til auglýsingadeild Morgun-
blaðsins fyrir 9. september nk. merkt: „Sann-
gjörn ávöxtun — 3892“.
Lokað
Skrifstofur embættisins í Hafnarfiröi, á
Seltjarnarnesi og í Mosfellssveit veröa lokaö-
ar frá kl. 12.00 á hádegi miövikudaginn 4.
september nk., vegna útfarar Erlu Axelsdótt-
ur.
Bæjarfogetaembættið
í Hafnarfirði.
5 Tónlistarskóli
^ Garðabæjar
Smiðsbúð 6, sími 42270.
Innritun nemenda stendur nú yfir og lýkur
föstudaginn 6. september. Skrifstofan er opin
daglega kl. 14-18. Til þess að skólavist sé
tryggö er mikilvægt aö allir nemendur láti skrá
sig og greiði, eða semji um greiðslu skóla-
gjalda á ofangreindum tíma.
Badmintonfélagar Hafn-
arfjarðar
Æfingar hefjast í byrjun september.
Æft verður í íþróttahúsinu Strandgötu og
íþróttahúsi Víðistaðaskóla.
Skráning fer fram gegn greiöslu vallar- og fé-
lagsgjalds föstudaginn 6. september frá kl.
18-20 og laugardaginn 7. sept. frá kl. 13-15 í
anddyri íþróttahússins Strandgötu.
Stjórnin
Q) ÚTBOÐ
Tilboö óskast í aö steypa upp kjallara ásamt
stigahúsi á 1. hæö 3. áfanga bækistöövar
Rafmagnsveitu Reykjavíkur, í Ármúla 31,
Reykjavík.
Útboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri, Frí-
kirkjuvegi 3, Reykjavík, gegn 10.000 kr skila-
tryggingu. Tilboö veröa opnuö á sama staö
miövikudaginn 18.septembernk. kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800
ty ÚTBOÐ
Tilboð óskast í plastpípur í 150 m langa skolp-
útrás í sjó fyrir gatnamálastjórann í Reykjavík.
Þvermál pípnanna skal vera Ö 630 aö utan-
máli. Pípurnar skulu vera þrýstipípur 10-12 m
langar af geröinni PEH NT 4 og uppfylla
gæöakröfur samkvæmt sænskum staöli SS
3362 eöa öörum sambærilegum staöli fyrir
REH-pípur. Tilboöi skal fylgja lýsing á pípun-
um og samsetningu þeirra ásamt afhending-
arfresti.
Ennfremur óskast tilboö í samsetningu pípn-
anna á staö nálægt Grafarvogi. Innkaupa-
stofnun Reykjavíkurborgar áskilur sér rétt til
aö taka hvaöa tilboði sem er eöa haf na öllum.
Tilboö sem óskast send oss í tvíriti merkt:
„Útboð nr 85033/GAT" veröa opnuö á skrif-
stofu vorri Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík, þriöju-
daginn 1. október 1985 kl. 11.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVIKURBORGAR
Frikirkjuvegi 3 — Simi 25800