Morgunblaðið - 04.09.1985, Page 50

Morgunblaðið - 04.09.1985, Page 50
50 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985 „Ég býst \j]S db (?ú hoifi'r heyrt hi/oÖ Korn -fynr mijj i stócisbPi mdina&i !' Þú verður að taka við og halda áfram, ég hef gleymt ökuskírteininu! HÖGNI HREKKVISI — r® / — // —- — // EKKERT ICATTABLAÐ EMNIPA•" Megas og Bubbi Morthens. Eru þeir götustrákar? Hversvegna skiptir nútíma- ljóðlist almenning engu máli? Guðjón Eyjólfsson skrifar: íslendingar eru þjóð sem hefur mátt sæta þeim þungu örlögum að týna öllum skáldunum sínum og fá í staðinn umskiptinga sem eru annaðhvort bullukollar eða götustrákar nema hvorttveggja sé. Þessi óþjóðalýður er í sameiningu að ganga af ljóðinu dauðu. Sú þjóð sem eitt sinn gat státað af skáldum eins og Einari Benediktssyni, Davíð Stefánssyni og Tómasi Guðmundssyni verður nú að láta sé nægja Megas og Bubba Mort- hens. Þessi orð lýsa með nokkuð ýkt- um hætti afstöðu meirihluta fs- lendinga af eldri kynslóðinni til ljóðlistar, kynslóðar sem hefur lifað það að sjá íslenska þjóðfélag- ið taka stökkbreytingum. Það er til ódýr og einföld leið til að af- greiða fólk af þessu tagi. „Þetta er þröngsýnt, óuppfrætt og for- dómafullt fólk sem hefur skerta hæfileika til þess að njóta skáld- skapar," getum við sagt og klappað okkur sjálfum á öxlina yfir því hve klár við séum. En þar með höfum við bæst í hóp þess fjölmenna skara sem hefur orðið menningar- fasismanum að bráð, það er við erum farin að líta niður fólk sem hefur annan smekk en við sjálf. Ég held því fram að ástæða þess að meiri hluti eldri kynslóðarinnar og stærsti hluti yngri kynslóðar- innar hafni í reynd nútíma ljóðum sé þegar vel er að gáð ofureðlileg. Ljóð eins og önnur list verður til í þeim hugmyndaheimi sem skáld- ið lifir og hrærist í. Það verður til fyrir reynslu hugmyndaheims og tilfinninga og markast af fagur- fræðilegu gildismati. Ljóðið fæst oft við fínlegustu blæbrigði tilver- unnar og kallar sennilega á agaöri málnotkun en nokkur önnur list- grein. Skáldskapurinn hlýtur að end- urspegla það líf sem skáldið lifir, gildismat þess og reynslu, að vissu leyti má líkja ljóðalestri við mjög persónulegt samtal. Hafi skáldið og lesandinn svo ólík viðhorf til lifsins að þeir gætu naumast talað saman um lífið og tilveruna ef þeir hittust er ekki við því að búast að skáldið geti orð ljóð sem les- andinn hefur not af. Ástæður þess að viðhorf manna til skáldskapar voru ekki eins sundurleit fyrr á tímum og nú, er að þjóðin átti sameiginlegan reynsluheim að miklu stærri hluta en nú, sameiginlegan hugmynda- heim. f vissum skilningi býr ekki lengur ein þjóð í þessu landi, held- ur margar þjóðir sem hver býr í sínum hugmyndaheimi og hver slíkur hugmyndaheimur hefur sínaeiginljóðlist. Menntaðir, ómenntaðir, borgar- búar, bændur, hægrimenn, vinstri- menn o.s.frv. allt eru þetta atriði sem móta reynslu manna og af- marka að vissu marki hugmyndir þeirra og gera þeim í sumum til- vikum torvelt að skilja hvern annan. Vissulega er hér verið að ýkja og einfalda, en ég held samt sem áður, að hér sé að finna eina skýringuna á því að við eigum ekki lengur nein þjóðskáld. Önnur skýring er að gjörbreyttir lífshættir hafa gert það að verkum að íslenskt mál talað og ritað gegnir nú veigaminna hlutverki í daglegu lífi okkar en áður gerðist. Við stöndum í miðri fjölmiðlabylt- ingu sem einkennist fyrst og fremst af því að fólki býðst marg- falt meira af allskyns erlendu afþreyingar- og skemmtiefni. Þar við bætist, a.m.k. að því er varðar höfuðborgarbúa, að fólk hefur nú margfalt fleiri tækifæri en áður að njóta alls kyns tilbreytingar, hvort sem það er fólgið í því að fara út að borða, í leikhús, óperur, bíó eða á sýningar af einhverju tagi o.s.frv. Því er nú svo komið að með örfáum undantekningum les almenningur ekki nútímaljóð- list, hún er nær einungis fyrir menningarvita, listamenn, kenn- ara í bókmenntum og nemendur þeirra. Stór meirihluti ungu kynslóðar- innar les ekki ljóð ótilneyddur, vegna þess að það passar ekki inn í lífsmynstrið, popptónlist er að mestu búin að ryðja skáldunum úr vegi. Það er þó ekki ósennilegt að tiltölulega stór hópur ungs fólks fáist eitthvað við ljóðalestur og nær sá hópur sennilega út fyrir raðir upprennandi listamanna og menningarvita, enda er ungt fólk oftast opið og leitandi auk þess sem það hefur meiri tíma en hinir eldri. Þetta breytir þó ekki þeirri staðreynd að ljóðið á sér engan eðlilegan vettvang í nútímalífi þar sem það nýtur sín til fullnustu fyrir utan bækur, það er því senni- lega dæmt til þeirra örlaga að verða einungis eign tiltölulegra fárra áhugamanna auk skáldanna sjálfra. Er hættulegra að selja kjöt en vinnu? Ég les í Morgunblaðinu að Sjálf- stæðisflokkurinn vilji ekki að varnarliðið kaupi íslenskan mat. Það er andstætt stefnu hans að þar séu nokkur þau viðskipti sem geri okkur háða varnarliðinu svo að einhverjir kynnu að freistast til þess að óska af annarlegum ástæðum eftir því að það yrði hér lengur en þess væri þörf. Þetta finnst mér ég skilji vel. En svo les ég í sama blaði, sama leiðara meira að segja, að í nýju ratsjárstöðvunum muni enginn Ameríkumaður vinna, heldur ein- ungis íslendingar. Og það er líka stefna Sjálfstæðisflokksins. Þá hætti ég að skilja. Ég hélt í einfeldni minni að hættan af viðskiptunum færi eftir því hve mikið þau gæfu af sér í okkar vasa. Því hélt ég að það væri jafn hættulegt að selja vinnu og að selja mat. Og ég hélt að t.d. einn maður í ratsjárstöð eða Helguvík væri á móti nokkrum kjötskrokkum. Seljum aðeins Gosi skrifar: Ég er sammála þeim sem ekki vilja leyfa bjórinn hér á landi. Ástæðan er sú að ég tel besta ráðið til að sporna við áfengisneyslu það að selja hér aðeins lélega áfenga drykki! Hvers vegna halda menn t.d. að bjórinn auki áfengisneyslu? Það er vegna þess að gæði bjórs eru of mikil til að landsmenn geti staðistþau. Hér vantar mig gleggri skýring- ar svo að ég átti mig til fulls á stefnu Sjálfstæðisflokksins. Er hættulaust að selja vinnu en hættulegt að selja kjöt? Hvers vegna skyldi það vera? H.Kr. bragðvond vín Göngum því lengra og bönnum alla vinsæla áfenga drykki sem seldir eru hér á landi og seljum hér aðeins bragðvond vín, og gæt- um þess að þau standist ekki þær gæðakröfur sem almenningur ger- ir. Ég er viss um að Jóni Helgasyni líst vel á þessa tillögu og skora ég á hann að reyna að koma henni í framkvæmd.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.