Morgunblaðið - 04.09.1985, Page 56
J
SDVÐFEST lANSTRAIIST
Vetrardagskrá hefst 9. september.
MIÐVIKUDAGUR 4. SEPTEMBER 1985
VERÐ í LAUSASÖLU 35 KR.
Hótel Eimskip
við Skúlagötu?
STJÓRN Kimskipafélags íslands hefur rætt um að láta kanna hagkvæmni
þess, að reisa hótel á lóðum, sem það á við Skúlagötu. Engin ákvörðun hefur
verið tekin um byggingu og ekki heldur hvort Eimskipafélagið yrði eitt
eigandi þess, hluthafi með öðrum eða selji aðstöðuna út Hagkvæmnikönnun-
in miðast við hótel með um 200 herbergjum.
Hörður Sigurgestsson, forstjóri
Eimskipafélagsins, sagði í samtali
við Morgunblaðið, að félagið ætti
lóðir við Skúlagötu og hefði beitt
sér fyrir því, að opinn væri sá
möguleiki, að þar mætti byggja
hótel, ef sú yrði niðurstaðan að það
teldist hagkvæmt. Það hefði verið
rætt um það í stjórn félagsins að
kanna hagkvæmni byggíngar og
rekstrar hótels á þeim stað. Engin
ákvörðun hefði verið tekin um
byggingu, hún yrði ekki tekin fyrr
en að lokinni hagkvæmniathugun-
inni, sem ekki væri enn hafin. Hún
væri í undirbúningi. Ekki væri
heldur þar með sagt, að Eimskip
myndi byggja slíkt hótel. Til
greina kæmi að selja þessa aðstöðu
einhverjum aðila eða byggja hótel
í samvinnu við einhverja aðila.
Þegar menn hefðu verið að horfa á
þetta sem viðfangsefni, hefðu
menn velt fyrir sér 200 herbergja
hóteli. Hvað aðra aðstöðu varðaði,
myndi hún mótast að lokinni hag-
kvæmniathuguninni. Ferða-
mannaiðnaðurinn á íslandi væri í
vexti og sú atvinnugrein, sem
einna mestum tekjum skilaði í er-
lendum gjaldeyri. Því vildi Eim-
skipafélagið skoða þetta dæmi til
þrautar.
UPPI eru áform um að Áfengis- og
tóbaksverslun ríkisins kaupi 1.100
fermetra húsnæði undir áfengisút-
sölu í Hagkaupshúsinu sem nú er í
byggingu í nýja miðbænum í Reykja-
vík. Að sögn Höskuldar Jónssonar,
Viðskiptaráðherra:
Bfla- og eftirlauna-
mál bankastjór-
anna verði athuguð
MATTHÍAS Á. Mathiesen viðskipta-
ráðherra hefur falið bankaráðum ríkis-
bankanna að endurskoða reglur um
bílamál og eftirlaunamál bankastjóra
bankanna.
Leggur hann fyrir bankaráðin að
hafa ákvæði gildandi reglugerðar
um bifreiðamál til hliðsjónar við
ákvörðun bílamálanna og að eftir-
launaréttindi bankastjóranna verði
færð til samræmis við almenn lög-
gjafarviðhorf í því efni.
Sjá fréttatilkynningu viðskipta-
ráðuneytisins og athugun Baldurs
Möller á starfskjörum banka-
stjóra ríkisbankanna á bls. 32-33.
ráðuneytisstjóra fjármálaráðuneytis-
ins, hefur þessi hugmynd mikið verið
rædd undanfarið, en ekki er búið að
ganga frá samningum.
Höskuldur sagði að það hefði
lengi staðið til að flytja áfengisút-
söluna í Laugarási, og jafnvel út-
söluna við Snorrabraut líka, vegna
tilfinnanlegs skorts á bílastæðum
við þessar útsölur.
„Það stóð til að flytja útsöluna í
Laugarási inn í Mjódd, þar sem við
höfum staðið í framkvæmdum í
nokkur ár, en á því verður nokkur
bið, því við erum varla komnir upp
úr jörðinni ennþá,“ sagði Höskuld-
ur. Sagði hann framkvæmdir þar
hafa tafist af ýmsum ástæðum,
ekki síst vegna þess að ÁTVR væri
í samkrulli við fleiri aðila, sem
taka þyrfti tillit til.
Að sögn Höskuldar er gert ráð
fyrir að sjálfsafgreiðsla verði tekin
upp í þessum nýju útsölum ÁTVR
þegar, og ef, þær komast í gagnið.
Nú eru tólf áfengisútsölur á
landinu. Þrjár í Reykjavík, ein á
Akranesi, Isafirði, Sauðárkróki,
Siglufirði, Akureyri, Seyðisfirði,
Vestmannaeyjum, Selfossi og
Keflavík.
Dyttað að fyrir veturinn
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Verður fyrsta fjárfesting Kínverja á Vesturlöndum á íslandi?
Vilja með eignaraðild
tryggja örugg aðfóng
DR. ERNST, varaforstjóri Alu-
suisse, sagði í samtali við Morgun-
blaðið í gær að ef samningar takist á
milli Kínverska alþýðulýðveldisins,
Alusuisse og islen.skra stjórnvalda
um þátttöku Kínverja í stækkun ál-
versins í Straumsvík, þá verði það
Samráðsnefnd ASÍ og VSÍ um málefni fískvinnslufólks:
Sammála um að mennt-
un verði metin til launa
SAMRÁÐSNEFND VSÍ og ASÍ um málefni nskvinnslufólks er sammála um
að menntun og reynsla fiskvinnslufólks verði metin til launa og í undirbúningi
eru 2—3 vikna námskeið fyrir það, sem verði til helminga verklegt og bóklegt
— og fjalli það um hina ólíku þætti vinnslunnar, sem og mikilvægustu markaðs-
þætti framleiðslunnar. Ekki er Ijóst hvað þessi námskeið koma til með að gilda
mikið í launum. Þá vill VSÍ að Atvinnuleysistryggingasjóður greiði laun fóiks-
ins meðan það situr á námskeiðinu.
Þessar upplýsingar komu fram í
samtali Morgunblaðsins við Guð-
mund J. Guðmundsson, formann
Verkamannasambands fslands, en
samráðsnefndin var á fundi í gær.
. Nefndin hefur einkum fjallað um
menntunarmál og atvinnuöryggi
fiskvinnslufólks. Guðmundur sagði
að ef af námskeiðunum yrði myndu
sennilega 6—7 þúsund manns
sækja þau og tæki að minnsta kosti
2—3 ár að halda þau fyrir þennan
fjölda. Þetta yrði eitt merkasta
fraintak í verkmenntunarmálum
íslendinga frá upphafi.
Þá fara viðræður um nýjan
landssamning um bónus fisk-
vinnslufólks í gang á nýjan leik í
dag, en tæpt mánaðarhlé hefur ver-
ið á viðræðurtum. Bónussamningar
verkalýðsfélaga eru víða lausir og
hafa þau hótað að stöðva vinnu í
bónus frá mánudeginum 9. sept-
ember, hafi engin breyting orðið á
afstöðu VSf til krafna VMSÍ, en
aðalkrafa þess er um 30 króna
fastan bónus á hverja unna vinnu-
stund.
Sjá ennfremur viðtöl við fisk
vinnslufólk í Vestmannaeyjum
um kjör þess á bls. 16—17 í dag.
líklega fyrsta fjárfesting Kína er-
lendis.
Dr. Ernst greinir jafnframt frá
því að Alusuisse hafi rekið álverk-
smiðju í Shanghai í Kína í lok
þriðja áratugar þessarar aldar og
í byrjun þess fjórða. Hún hafi ver-
ið yfirtekin í byltingunni og þjóð-
nýtt, en Alusuisse hafi fengið
hana fullgreidda í ýmiskonar vör-
um.
Þeir Geir Hallgrímsson utan-
ríkisráðherra, Birgir ísleifur
Gunnarsson, formaður stóriðju-
nefndar, og dr. Jóhannes Nordal,
formaður samninganefndar um
stóriðju, lýstu allir jákvæðri af-
stöðu sinni í gær til þessa hugs-
anlega samstarfs við Kínverja.
„Ég teldi mjög jákvætt ef hag-
stæðir samningar tækjust um
stækkun álbræðslunnar í
Straumsvík, þannig að Kínverjar
yrðu aðilar að þeim rekstri," sagði
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra m.a. 1 samtali við Morgun-
blaðið.
Birgir ísleifur Gunnarsson
sagöi m.a.: „Kínverjar þurfa að
tryggja sér örugg aðföng á áli, og
með eignaraðild að svona verk-
smiðju væru þeir búnir að því.“
Dr. Jóhannes Nordal sagði að ef
af þessu samstarfi við Kínverja
yrði, leiddi það án efa til aukinna
samskipta sem gætu orðið okkur
hagkvæm. Hann sagðist ekki
draga í efa að Kínverjar gætu út-
vegað það fjármagn sem þeir
þyrftu að leggja fram, ef þeir
tækju þátt í stækkun álverksmiðj-
unnar í Straumsvík, því þeir nytu
mjög góðs lánstrausts.
Sjá nánar viðtöl og frétt á bls. 4.
Lána 6 flug-
menn til
Sterling
FLUGMENN sem starfaó hafa
hjá Flugleiðum hafa verið lánað-
ir til danska flugfélagsins Sterl-
ing og munu aóallega fljúga
leiguvélum á vegum þess næstu
tvo mánuðina eða svo.
Þetta kom fram í samtali
við Svein Sæmundsson blaöa-
fulltrúa Fiugleiða. Hann sagði
umsvif félagsins dragast veru-
lega saman yfir vetrarmánuð-
ina svo þörfin fyrir flugmenn
sem og annað starfsfólk
minnki mikið.
ÁTVR áformar
að opna verslun í
Hagkaupshúsinu