Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
„En fyrr en varði fjall að hyggja, tók að sækja á dal að byggja." Úr
„Síðasta blóminu".
A sýningu hjá Perlunum, leiklist-
arklúbbi sem nemendur þjálfunar-
skólans í Bjarkarási starfrækja
Þarna eru meðlimir Perlunnar að túlka Ijóð Steins Steinarr, Vor.
Það er svo smitandi að leika
„Það er svo smitandi að leika,
þetta er einhvers konar baktería
sem myndast í manni,“ sagði
Gunnar Gunnarsson, einn af með-
limum Leiklistarklúbbsins PerÞ
unnar. sem nemendur í þjálfun-
arskólanum í Bjarkarási starf-
rækja og hafa gert undanfarin ár
ár undir leiðsögn Sigríðar Eyþórs-
dóttur leiklistarkennara. Bjarkar-
ás er starfsþjálfunar- og kennslu-
stofnun fyrir vangefna.
Þessi orð Gunnars gátu svo
sannarlega átt við um hvern ein-
asta meðlim Perlunnar, því
leikgleðin og innlifunin skein úr
andlitum þeirra þegar upp á
sviðið var komið og þau tóku að
túlka ljóð James Thurber „Síð-
asta blómið“ í þýðingu Magnús-
ar Ásgeirssonar.
Sigríður las upp ljóðið og leik-
endur túlkuðu orðin með hreyf-
ingum sínum; látbragðsleikur
við ljóð. „Síðasta blómið" er
langt og snúið ljóð þar sem
margar persónur koma við sögu.
Það undraði okkur Morgun-
blaðsmenn hversu vel hver og
einn mundi hlutverk sitt og hvað
leikurinn gekk átakalaust og
eðlilega fyrir sig.
„Það er mikil þolinmæðis-
vinna að kenna þeim hlutverk-
in,“ sagði Sigríður, „en þegar það
hefur einu sinni tekist gleyma
þau rullunum ekki svo glatt. Það
er dæmigert fyrir þetta fólk það
man best þá hluti sem tengjast
athöfn og þess vegna er svo þýð-
ingarmikið að halda upp þjálfun
af þessu tagi.“
Þau byrjuðu að æfa „Síðasta
blómið" eftir áramót og hafa
nokkrum sinnum sýnt það opin-
berlega, m.a. á landsráðstefnu
Þroskahjálpar og í Laugardals-
höll á hátíð Æskulýðsráðs og
síðast við skólaslitin í Bjarkar-
ási. í vetur hafa þau jafnframt
túlkað ljóð Steins Steinars,
„Vor“.
Perluhópurinn tekur leiklist-
ina mjög alvarlega. Þau fara oft
i leikhús og hafa þá áður lesið
viðkomandi leikrit saman með
kennara sínum. Og iðulega fara
þau baksviðs og spjalla við leik-
endur eftir sýningar. Einlægnin
og áhuginn er þeirra aðalsmerki,
og þrátt fyrir að þetta sé svolítið
erfitt fyrst, eins og þau sögðu, þá
er svo gaman að leika að það er
þess virði að leggja á sig nokkra
vinnu.
Morgunblaðið/Bjarni
„Horfnir von með hlýðni þrotna,
hundar sviku lánardrottna. Sótti á
bágstatt mannkyn margur,
meinkvikinda stefnuvargur.“ Úr
„Síðasta blóminu".
Meólimir Leiklistarklúbbs Perl-
unnar ásamt kennara sínum.
Fremri röð frá vinstri: Auður Ein-
arsdóttir, Sigfús Svanbergsson,
Sigríður Eyþórsdóttir leiðbeinandi,
Gunnar Gunnbjörnsson og Gunnar
Gunnarsson. Efri röð frá vinstri:
Hildur Óskarsdóttir, Anna Sólrún
Jóhannesdóttir, Jóhanna Sigrún
Guðmundsdóttir, Ingveldur Ólöf
Ragnarsdóttir og Þorbjörg Guð-
laugsdóttir. A myndina vantar einn
meðlim, Ingibjörgu Árnadóttur, en
hún var fjarverandi.
Svæðisþing Mont Pelerin-samtakanna:
Ör hagvöxtur í Suðaustur-Asíu
er einkaframtakinu að þakka
— segir Hannes H. Gissurarson
HINN öri vöxtur atvinnulífsins í
flestum löndum Suðaustur-Asíu er
því að þakka, að rfkisstjórnir þess-
ara landa hafa fremur treyst á
einkaframtak en ríkisafskipti. Að
þessari niðurstöðu komust fræði-
menn, sem settust nýlega á rökstóla
í Sydney í Ástralfu, en þar var haidið
svæðisþing Mont Pelerin-samtak-
anna alþjóðlegra samtaka frjáls-
lyndra mennta- og kaupsýslumanna,
dagana 19.—23. ágúst.
Meðalvöxtur atvinnulífs í
Singapore á tímabilinu 1960—1982
var 7,4% og í Hong Kong á sama
tímabili 7,0%. I Suður-Kóreu var
sambærileg tala 6,6% og á Taivan
einnig 6,6%. „Á bak við þessar
þurru tölur er mikil og hetjuleg
saga,“ sagði Hannes H. Gissurar-
son sagnfræðingur í viðtali við
Morgunblaðið, en hann sat þingið
í Sydney og flutti þar erindi. „Sú
saga er um örfátækar þjóðir, sem
hafa brotist til bjargálna. Ekki fer
á milli mála, hvaða lærdóm má
draga af reynslu þjóðanna í Suð-
austur-Asfu. Atvinnufrelsi er enn
sem fyrr nauðsynlegt skilyrði
fyrir hagvexti."
Mont Pélerin-samtökin voru
stofnuð af þeim Friedrich A.
Hayek, Milton Friedman, George
Stigler og fleiri frjálshyggju-
mönnum í apríl 1947, en félagar
hittast árlega til að bera saman
bækur sínar. Á meðal hinna rúm-
lega 400 félaga eru heimspeking-
urinn Karl R. Popper, William E.
Simon, fyrrverandi fjármálaráð-
herra Bandaríkjanna, rithöfund-
urinn William Buckly og hagfræð-
ingarnir Gary Becker prófessor og
Bauer lávarður. Núverandi forseti
samtakanna er James M. Buchan-
an, prófessor í George Mason-
háskóla í Virginíu í Bandaríkjun-
um. Hannes H. Gissurarson er
eini íslendingurinn í þessum sam-
tökum.
Á þessu þingi í Sydney var rætt
um margt annað en reynslu þjóð-
anna í Suðuraustur-Asíu, þar á
meðal um þá hættu, sem réttar-
ríkið væri í vegna sfaukinna ríkis-
afskipta, um samband (eða sam-
bandsleysi) kristinnar trúar og
frjálshyggju, um hagkerfi Sví-
þjóðar og Austurríkis og um við-
horf á vinnumarkaði, skipulagn-
ingu þingsins annaðist Centre for
Independent Studies í Sydney.
„Ég flutti erindi um tengsl
íhaldsstefnu og frjálslyndis-
stefnu,“ sagði Hannes H. Giss-
urarson við Morgunblaðið. „Við
vorum þrír fengnir til að ræða það
mál á þinginu við dr. John Gray,
félagi á Jesús-garði í Oxford, og
Kenneth Minogue, prófessor í
London School of Economice. Ég
reyndi að leiða rök að því, að
íhaldssemi og frjálslyndi væru
ekki ósættanlegar andstæður. Við
gætum verið íhaldssöm í siðferði-
legum efnum, aðhyllst með öðrum
orðum guðsótta og góða siði, og
frjálslyndi i atvinnumálum án
þess að vera ósamkvæm sjálfum
okkur.
Þetta var fróðlegt og skemmti-
legt þing,“ bætti Hannes við. „En
mér fannst þó mest til um það að
hafa viðdvöl í Hong Kong, þar sem
íbúarnir hafa lyft grettistaki síð-
ustu áratugi. Á sama tíma og
milljónir eða tugmilljónir manna
hafa annaðhvort dáið úr hungri og
verið myrtar að skipun stjórn-
valda í Rauða-Kína hefur þetta
borgríki risið og dafnað og búið
fimm milljónum manna betri
lífskjör en í nokkru öðru landi
Asíu að Japan undanskildu."