Morgunblaðið - 15.09.1985, Side 28
28 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
Víðast hvar á landinu eru réttir að hefjast. Bændur hafa
nákvæma tölu á sauðfé sínu og hætta helst ekki smölun
fyrr en allt féð er komið í leitirnar. Það minnir á dæmisögu
Krists um týnda sauðinn.
Tilefni dæmisögunnar var
hneykslun ýmissa samtímanna
Krists á því að hann skyldi taka
að sér syndara og jafnvel sam-
neyta þeim. Kristur gerði sér
grein fyrir þessari gagnrýni og
vildi sýna með dæmisögum að
Guð hefur andstyggð á synd en
elskar syndara.
Á þessum tímum gættu fjár-
hirðar hjarða sinna dag og nótt.
Góður hirðir leiddi féð að grös-
ugu beitilandi, tæru vatni og
góðum lautum til hvíldar. Hirðir-
inn gaf sérhverjum sauði nafn —
því honum þótti vænt um hvern
og einn og þekkti jafnvel sauðina
í sundur. Á næturnar gætti hann
þeirra fyrir óargadýrum.
Það var slíkur fjárhirðir sem
Kristur hafði í huga er hann
sagði dæmisöguna um hirðinn
og týnda sauðinn í 15. kafla Lúk-
asarguðspjalls. Sá hirðir átti 100
sauði. Einn vék af leið. Þegar
hirðirinn gerði sér grein fyrir
hvarfinu bjó hann vel um hina
99 og hóf leit týnda sauðarins.
En hvaða máli skipti einn sauður
til eða frá? Fyrir þessum fjár-
hirði skipti týndi sauðurinn
miklu máli. Hann þekkti hann
og elskaði hann.
Leitin var ekki auðveld. Hirð-
irinn varð að klífa fjöll og firn-
indi, vaða straumharðar ár og
mæta ýmsum víllidýrum. En
hann gafst ekki upp því takmark-
ft var að finna hinn týnda sauð.
Allt í einu heyrði hann dauft og
máttvana jarm týnda sauðarins.
Hvílík gleði. Öll þreytumerki
fjárhirðisins hurfu. Hann hljóp
til sauðarins, lyfti honum á öxl
sér og hljóp með hann heim þar
sem hann kallaði saman vini og
vandamenn til þess að samgleðj-
ast sér.
„Ég segi yður, þannig mun
verða meiri gleði á himni yfir
einum syndara, sem gjörir iðrun,
en yfir níutíu og níu réttlátum
er ekki þurfa iðrunar við.“
Kristur líkir okkur við týndan
sauð því við höfum villst af leið
frá Guði, farið villur vegar og
rötum ekki til baka. En „manns-
sonurinn er kominn til þess að
leita að hinu týnda og frelsa
það“. Guð elskar alla menn og
þar sem við „erum týnd“ sendi
Guð mannssoninn í heiminn til
þess að hver sem á hann trúir
glatist ekki heldur hafi eilíft líf.
Jesús sagði: „Ég er góði hirðir-
inn, góði hirðirinn leggur líf sitt
í sölurnar fyrir sauðina."
Ef við trúum að Kristur sé
tilgangur lífs okkar, að við höfum
verið sköpuð til samfélags við
Drottin, sem elskar okkur og
kennir okkur að elska — þá er
gott að vera sauður í hjörð hans. Ert þú týndur sauður?
„Drottinn er minn hirðir"
23. Davíðssálmur:
Drottinn er minn hirðir, mig mun ekkert bresta.
Á grænum grundum lætur hann mig hvílast,
leiðir mig að vötnum, þar sem ég má næðis njóta.
Hann hressir sál mína,
leiðir mig um rétta vegu fyrir sakir nafns síns.
Jafnvel þótt ég fari um dimman dal,
óttast ég ekkert illt, því að þú ert hjá mér,
sproti þinn og stafur hugga mig.
Þú býr mér borð frammi fyrir fjendum mínum,
þú smyrð höfuð mitt með olíu;
bikar minn er barmafullur.
Já, gæfa og náð fylgja mér alla ævidaga mína,
og í húsi Drottins bý ég langa ævi.
Keflavíkurflugyöllur:
Ný skrifstofubygging
íslenskra aöalverktaka
HAFNAR eru framkvæmdir á at-
hafnasvsði íslenskra aðalverktaka á
Keflavíkurflugvelli vegna nýrrar
skrifstofubyggingar fyrirtækisins. Að
sögn Gunnars Gunnarssonar fram-
kvæmdastjóra verður nýja skríf-
stofubyggingin 800 fermetrar á
tveimur hæðum. Það eru Hörður
Bjarnason og Garðar Halldórsson
sem teikna bygginguna.
Núverandi skrifstofur fyrirtæk-
isins, fyrir bandaríska herinn á
Keflavíkurflugvelli, en slíku
bráðabirgðahúsnæði er ætlað að
standa i stuttan tíma. Skrifstofur
fslenskra aðalverktaka hafa verið
í þessum húsum sem eru orðin 34
ára gamlar, en byggingarnar eru
orðnar mjög viðhaldsfrekar. Alls
sex íbúðaskálar hafa verið teknir
undir skrifstofur, og byggt á milli
þeirra.
Að sögn Gunnars verður bygg-
ingarhraði ekki meiri en svo að
framkvæmdir við skrifstofuhúsið
hafi áhrif á aðrar framkvæmdir
sem fyrirtækið er með í gangi. E.G.
Morgunbladið/E.G.
Skrifstofur ÍAV eru í húsnæði sem reiflt var árið 1951 fyrir bandaríkjaher til
bráðabirgða.