Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 30
30 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
Píll Jóhannsson, tenórsöngvari. MorgunbiaSii/Friðþjéfur
Ætlaði að verða bóndi
— stundar nú söngnám á Ítalíu
Páll Jóhannsson, íslenzkur tenórsöngvari, sem
stundað hefur söngnám á Ítalíu undanfarin fjögur
ár, er staddur hér heima um þessar mundir. Við-
talið við Pál, sem hér birtist, tók Elín Guðjóns-
dóttir fyrir skömmu. Hún spurði hann fyrst um
uppruna hans.
Foreldrar mínir Guðný Páls-
dóttir er frá Litlu-Reykjum í
Árnessýslu, faðir minn Jó-
hannes Hjálmarsson var af
skagfirskum ættum. Þau
bjuggu sveitarbúi í Stíflu við
Akureyri. Við vorum níu systk-
inin. Það er snjóþungt í gilinu
utan við Glerá, ég eignaðist
skíði ungur, og var mikið á
skíðum. Vélakostur búsins,
sem jókst frá ári til árs, átti
hug minn í æsku, þá og Iengi
síðan var ég staðráðinn í því
að verða bóndi.
Var fólkið þitt söngfólk?
Ekki nema svona eins og
gengur. Faðir minn hafði
bjarga rödd, og hafði sungið í
kór, en hann var hættur því
þegar ég man eftir.
Söngst þú sem barn?
Ég söng í skólakórnum. Ég
er þakklæatur fyrir það. Ég
held að það sé mjög hollt fyrir
hvaða rödd sem er. Það þro-
skar raddböndin og getur orðið
fóð þjálfun fyrir seinni tíma.
Ig held að þetta eigi sérstak-
lega við um tenóra, þeirra
raddbönd eru styttri og þurfa
því meiri þjálfun, og sé eitt-
hvað til í því að tenórum fari
fækkandi, þá held ég að orsa-
kanna sé þar að leita. Fólk
syngur ekki eins mikið í heima-
húsum ogáður var.
Átti einhver tónlist hug þinn
á æskuskeiði?
Nei, eiginlega ekki. Eldri
bróðir minn fékk sér plötuspil-
ara og keypti plötu með lögum
úr Rigoletto, þá mun ég hafa
verið um 10 ára. Mér fannst
þessi plata stórgóð, þarna
opnaðist mér sýn í heim sí-
gildrar tónlistar. Bítlarnir
voru allsráðandi í dægurlaga-
heiminum á unglingsárum
mínum.
Söngst þú unglingur?
Söngur hefur alltaf verið hluti
af tilverunni í mínu lífi, ég
söng í kórum og var með þar
sem sungið var.
Hvenær fórst þú fyrst að læra
söng?
Ég fór í söngtíma til hans
Demenzar á Akureyri. Þá
fannst mér hann strangur og
ekki alltaf sanngjarn. Þegar ég
lít til baka, þá finnst mér hann
vera á meðal bestu kennara
sem ég hef haft. En ég var
ákveðinn í því að verða bóndi,
ég fór á bændaskóla, ég er
búfræðingur frá Hvanneyri. Á
Hvanneyri þótti mér gott að
vera. Seinna fór ég í Söngskól-
ann í Reykjavík. Þar var
Magnús Jonsson kennari minn.
Ég var þá orðinn 26 ára. í
Söngskólanum fór ég fyrst að
læra eitthvað í tónlist.
Hvernig fórst þú að því að
kosta nám þitt?
Ég var í alls konar vinnu
með skólanum, byggingar-
vinnu, vann í reiðhjólaverslun,
var við hvalskurð og sitthvað
fleira.
Og svo lá leiðin til ftalíu?
Já, mig hafði lengi langað
til Ítalíu. Fyrst fór ég þengað
kynnisferð, kom aftur heim og
fór í ítölskutíma. Þá kom hún
Eugenia Ratti, fyrrverandi
stórsöngkona, hingað og hélt
söngnámskeið sem ég sótti.
Það var ástæðan til þess að ég
fór til Fiornzuola og settist í
tónlistarskólann þar. Ratti er
þar aðalsöngkennarinn og ég
varð nemandi hennar. Þarna
var ég í tvö ár. Þar kom að
mér fannst hún hafa kennt
mér það sem hún gæti kennt
mér. Ég ákvað að hætta hjá
henni og fara til annars kenn-
ara. Ratti varð æf. Það var
synd að segja að hún tæki
þessu þegjandi. Þetta var allt
saman skelfing leiðinlegt.
Ég fór til kennara í Milano
sem heitir Piet Miranda Ferr-
aro, sem líka er fyrrverandi
stórsöngvari. Hann söng á
sínum tíma í stóru óperuhús-
unum; Metrópólitan, Scala,
Vínaróperunni og víðar. Þarna
leistust raddvandamál og hjá
honum læri ég meðal annars
heilar óperur. Ég er núna að
læra Toscu eftir Puccini.
Hvaða hlutverk finnst þér
sjálfum hæfa þér best?
Það er erfitt að segja, senni-
lega hlutverk hertogans í Rigo-
letto.
Hefur þú ekki sungið í kirkju-
verkum?
Ég hef ekki lagt mig neitt
sérstaklega eftir kirkjutónlist.
Eins og er einbeiti ég mér að
ljóða- og óperusöng. Mig lang-
ar mikið til þess að vera hjá
Ferraro í vetur, læra fleiri
óperur og vinna að því að koma
sjálfum mér á framfæri. En
þetta er mjög kostnaðarsamt,
tíminn kostar 800 kr. Ég fer
til hans þrisvar í viku, þannig
að kostnaðurinn er um 10.000
á mánuði en þá er eftir að
greiða fyrir uppihald. Það þýð-
ir ekki að reyna fyrir sér í
óperuhúsunum nema nokkurn-
veginn fullnuma. Þeir, sem
fylgdust með söngvakeppninni
í Cardiff í sjónvarpinu, geta
áttað sig á samkeppninni, sem
er meðal ungra söngvara úti í
hinum stóra heimi.
Ég var hissa á því að þú
skyldir ekki taka þátt í þeirri
keppni.
Eg hafði fullan hug á því
sjálfur, fór þess á leit að sjón-
varpsupptaka sem ég söng inn
síðastliðið haust yrði tekin sem
þátttaka af minni hálfu, en það
gekk ekki. Fyrir þann sem er
við nám eða starf erlendis, er
þessi tími árs á miðjum vetri
mjögóhentugur.
Hefur þú tekið þátt í söng-
keppni?
Já, ég hef tvisvar tekið þátt
í keppni. Ég var ekki í hópi
sigurvegara í fyrri keppninni,
en fremur ofarlega held ég, það
marka ég af því að mér var
boðið að taka þátt í tónleikum
sem sigurvegararnir héldu,
tenórinn í hópi þeirra forfall-
aðist, svo þá vantaði tenór.
Skömmu áður en ég kom
hingað tók ég þátt í annari
keppni. Henni var ekki lokið
þegar ég fór, en það var mikill
fjöldi þátttakenda þar, yfir 70
manns. Síðasti áfangi keppn-
innar verður ekki fyrr en í
október.
Hefur þú sungið opinberlega
á Ítalíu.
Nei, ég hef ekki gert það.
Ástæðan er sú að ég hef ekki
atvinnuleyfi þar. Mér var boðið
að syngja í óperu á Sikiley en
stéttarfélagið tók fyrir það.
Það eru bara stóru óperuhúsin
sem geta ráðið útlendinga, t.d.
Scala og Rómaróperan.
Er Scala framtíðardraumur-
inn?
Að sjálfsögðu. Framtíðar-
draumur minn og allra ann-
arra sem læra söng. Annars
er minn framtíðardraumur
ekki raunsær^ en hann er að
koma heim til Islands og lifa hér
mannsæmandi lífi af því að
syngja.
Annars getur það verið
beggja blands að syngja í
Scalaóperunni. Það getur alveg
sett fótinn fyrir fólk að fá
slæma gagnrýni fyrir söng þar.
Ferðu mikið á óperur?
Já, ég geri það. Þarna í
borginni sem ég bý, um 70 km
suður af Mílanó, er ekki starf-
andi ópera, en þar er gott tón-
leikahús. Þangað koma ge-
stauppfærslur víða að, oftast
mjög góðar. Ég er tíður gestur
í Scalaóperunni í Mílanó, fer
þangað eins oft og efnin leyfa.
Þótt sætið kosti ekki nema 170
kr. þá dregur það sig saman.
En það hljómar vel þarna í
ódýru sætunum eða stæðunum
í Scala.
Verona er ekki langt frá
Mílanó, en þar eru sýndar
óperur ár hvert, seinni part
sumars, í hringleikahúsi frá
dögum Rómverja.. Þessi hring-
leikahús taka ótrúlegan fjölda
af fólki í sæti.sumir segja yfir
tvö hundruð þú sund.
Uppfærslur þar eru mjög
góðar. Það er auglýst eftir fólki
tilþess að syngja þar og mun
vera mikið úrval söngvara sem
sækir um þann starfa.
þar sá ég í sumar afburða
uppfærslu á Aidu eftir Verdi.
Að sjálfsögðu keypti ég ódýr-
ustu sætin, en öfugt við ódýru
sætin í Scalaóperunni heyrðist
fremur illa til söngvaranna.
Áttu eftirlætissöngvara?
Af þeim sem maður þekkir
af plötum þá hef ég miklar
mætur á Callas, eins Juss
Björling. Það eru margir aðrir
sem ég er hrifinn af. Núna
ekki fyrir löngu heyrði ég unga
söngkonu syngja á tónleikum.
Hún hét Gruberova, hún var
alveg stórkostleg. Ég hafði
aldrei heyrt hennar getið.