Morgunblaðið - 15.09.1985, Page 34
34 B
MORGUKBLADIp, SUNHUDAGUR 15. SEPTEMBER 1985
j ——— 1
VINSÆLDALISTAR
VIKUNNAR
Rás 2
1.(1) Dancing In The Street David Bowie/Mick Jagger
2. ( 5) Rock Me Amadeus Falco
3. ( 2) Into The Groove
4. ( 3) Tarzan Boy Baltimore
5. ( 7) Shake The Disease DepecheMode
6. ( 8) PeepingTom Rockwell
7. ( 6) Money for Nothing
8. ( 4) We Don’t Need Another Hero TinaTurner
9. (10) InTooDeep DeadorAlive
10. (—) Parl Time Lover StevieWonder
11. (—) You Can Win If You Want Modern Talking
12. (13) Secret OMD
13. ( 9) Á rauðu Ijósi
14. (16) Road to Nowhere TalkingHeads
15. (11) Uve Is Life OPUS
16. (17) Tve Got You Babe
17. (15) Glory Days
18. (—) Alone Without You King
19. (—) Running up That Hill KateBush
20. (-) PopLife
Mick Jagger og Tina Turner hafa b»ði ástæðu til
að gleðjast þessa dagana. Jagger er í fyrsta sæti
í Bretlandi og á rásarlistanum og Tina Turner
stefnir ótrauð á fyrsta sætið í Bandaríkjunum. Er
í öðru sæti þessa stundína.
Bretland
1. (—) Dancing In The Street .David Bowie/Mick Jagger
2. (10) Holding oot tor A Hero ...Bonnie Týter
3. ( 2) I Got You Babe .....UB/40Chrissie Hynde
4. ( 3) Tarzan Boy ................Baltimore
5. (20) Part Time Lover ........Stevie Wonder
6. ( 6) Drive ........................Cars
7. ( 4) Into The Groove ...........Madonna
8. ( 5) Running up That Hitl ...... Kate Bush
9. ( 7) Say l'm Your Number One . Princess
10. (11) BodyAndSoul.................MaiTai
Bandaríkin
1. ( 1) St. Elmo’s Rre ............John Parr
2. ( 3) We Don't Need Another Hero ..Tine Turner
3. ( 6) Money For Nothing ........Dire Strails
4. ( 7) Cherish ............. Kool and The Gang
5. ( 2) Power Ot Love ...........Huey Lewis
6. ( 8) Don’t Loose My Number .... Phil Collins
7. ( 4) Freewayof Love .......Aretha Franklin
8. (12) Freedom .....................Wham!
9. (10) Pop Life ................. Prince
10. (11) Invindble ..............PatBenatar
Þessir tveir eru með geðþekkustu poppurum landsins. Popparinn er ekki i neinum
vafa um það eftir aö hafa spjallað viö þessi Ijúfmenni.
Af úri Magnúsar
og ýmsu fleira
— Magnús og Pálmi í Mannakornum
spurðir spjörunum úr
UMSJÓN
JÓN
ÓLAFSSON
„Þaö er fyrst núna sem við höfum getað
smalað í hljómsveit til að koma fram opin-
berlega. Menn hafa veriö í sumarfríi og upp-
teknir við aðra hluti,“ sagði Magnús Eiríks-
son, helsti fánaberi Mannakorna í spjalli við
Popparann í tilefni af lerð þeirra um landið.
Pálmi Gunnarsson bassaleikari og söngvari
var einnig til staöar og sagði: „Það má gjarn-
an koma fram að eftir þonnan túr verður
haldið áfram af fullum dsmpi. Við ætlum aö
spila alveg á fullu í vetur."
Þaö er ekki sf einekærri peningaþörf sem
þiö takiö til við tónleikahald eða hvað?
Nei, nei,“ svaráð) Pálml og hló viö. .Viö i
Mannakornum höfum yftrleitt ekki fylgt plöt-
um okkar neitt eftir. Kaupendur eiga þó svo
sannarlega skiliö aö fá aö sjá þaö sem þeir
kaupa. Því gerum viö þetta meö glööu geði.“
Magnús bætti þarna vió: „Svo er þaö alltaf
hættan á að staóna i stúdíóvinnunni."
Það skal tekið fram áður en lengra er hald-
iö að Mannakorn er skipuö eftirtöldum á
þessu ferðalagi um landið: Magnús og Pálmi
sjá um söng, gítar- og bassaleik, Sigfús
Óttarsson ber bumbur, Guðmunriur Bene-
diktsson spilar á hljómborö og raddar vænt-
anlega þegar við á og Jens Hansson sem
blæs í saxófóna og spilar á hljómborð þegar
þannig liggur á honum.
Hvernig hefur ykkur verið tekiö hingað til?
„Við erum mjög ánægðir með bæði viö-
tökur og aðsókn,“ svaraði Magnús.
Og hvernig er prógramminu háttaö?
„Þetta eru hljómleikar og ball á eftir, stund-
um eingöngu hljómleikar og stundum ein-
göngu ball." svaraði Magnút.
„Við erum með 50 laga alíslenskt pró-
gramm. Öll Mannakornslögin auk taga af
sólóplötum mínum eöa Magga," bœtti Pálmi
viö.
Hvar verðiö þiö á næstunni?
„Við erum nýkomnir frá Hellissandi og
Hnífsdat. Næst er það Noröurlandið, þ.e.
POPPARI VIKUNNAR
IviLHJÁLMUR ÁSTRÁÐSSON
Þeir eru margir sem hafa tekiö iétt
dansspor undir tónlist valinni af Vilhjálmi
Ástráðssyni. Kappinn sá er búinn að vera
viðloöandi annan hvern plötuspilara í
ööru hverju veitingahúsi. SUMSE: Einn
ástsælasti plötusnúður okkar Frónverja
fyrr og síöar. Eitthvað hefur hann líka
verið með puttana í sýningarvélum Laug-
arásbíós. Hér er listi Vilhjálms.
Uppáhaldsplöturnar: Uppáhaldslögin:
1. Mirage 1. Gypsy
Fleetwood Mac Fleetwood Mac
2. Breakfast in America 2. LogicalSong
Supertramp Supertramp
3. BoysandGirls 3. Sultansof Swing
Bryan Ferry DireStraits
4. OfftheWall 4. Abracadabra
Michael Jackson Steve Miller Band
5. Before the Flood 5. ComeonEileen
Bob Dylan and the Band Dexy's Midnight Runners
6. Layla 6. Could you be loved
Derek and the Dominos Bob Marley and the Wailers
7. Exodus 7. SlavetoLove
Bob Marley and the Waifers Bryan Ferry
8. Liveandlet 8. Don’tyouforgetaboutme
10 cc. SimpleMinds
9. Madonna 9. OnemoreNight
Madonna PhilCollins
10. Outoftheblue 10. EyeintheSky
Electric Light Orchestra Alan Parsons Project
Sjaliinn og Húsavík. Svo kemur þetta hvert á
eftir ööru eins og eðlilegt er. Kannski endum
við þetta á Hornafirði,“ sagði Pálmi og brosti.
Af hverju á Hornafirði?
„Við eigum góöa kunningja þar. Einfalt
mál.“ (Sameiginlegt svar.)
Svona túr er væntanlega mjög krefjandi?
„Hann er það. Þetta er svona upp og ofan.
Menn eru misjafnlega fyrir kallaöir eins og
fólkið er misjafnt," sagöi Magnús.
Hvaö eruð þiö aö dedúa fyrir utan þetta?
„Bara hitt og þetta," sagði Magnús.
„Ég ætla aö vera duglegur aö taka upp lög
og hlusta, því væntanlega geri ég plötu á
næsta ári. Stefnan er mjög óskýr ennþá,“
sagöi Pálmi.
Hvaö meö Blús Company?
„Þaö mun starfa af fullum krafti (vetur.“
Hverjir veröa í því?
„Þaö verðum alltaf viö Pálmi og vonandi
Ásgeir Óskarsson og Guömundur Ingólfsson,"
svaraöi Magnús.
Ég heyröi ykkur spila létt lag á Rás 2 um
daginn. Voruö þió stressaöir?
„Viö vorum nú aöallega í tímahraki. Vorum
seinir fyrir og náðum ekki aö stilla kontra-
bassann og gitarinn,“ svaraði Pálmi.
Eruð þið óstundvísir eins og svo margir
islenskir popparar?
„Ég var nú aö fá nýtt úr og vonandi hjálpar
þaö mér til aö vera á réttum tíma. Ég er þeirr-
ar skoðunar aö óstundvisi sé algjört virö-
ingarleysi gagnvart öörum," sagöi Magnús.
Þetta akademíska korter hérna myndi
hvergi líðast erlendis,“ bætti Pálmi viö.
Eruð þið ánægöir meö íslenska popp-
skribenta?
Magnús varð tyrir svörum. „Þetta er allt
saman svo þokukennt. Menn koma og fara og
umfjöllun öll er mjög óskipulögö. Poppiö í
Mogganum siöustu árin hefur aö mínu áliti
veriö þoku hulið. Það finnst mór ekki sæma
mest lesna blaöinu á landinu. Vonandi stend-
ur þetta allt til bóta.“
En hvaö meö íslenskt popp i dag?
„Þaö er blóðugt hvernig staöan er i dag.
Margir hverjir neyöast til að gefa þetta út
sjáltir og margir eru á peningabömmer vegna
lélegrar plötusölu. Gildir þá einu hvort etnið er
gott eöa slæmt. Hins vegar margir ágætir
menn aö gera góða hluti og nýliöarniar sumir
hverjir lofa góðu,” svaraöi Pálmi.
Á hvað hlustiö þió félagarnir þessa dag-
ana? Á rauöu Ijósi?
„Nei, ætli maður sé ekki að fá nóg af því,“
svaraði Magnús og brosti í kampinn. „Ég
hlusta ekki á neitt sérstakt. Ég hef gaman af
Los Lobos.“
En Pálmi?
Sting er mikiö á fóninum hjá mér. Nýja
platan er dulítiö djössuö og þaö er kannski
þess vegna sem ég hef svona gaman af
henni.“
Rás 2?
„Þar mætti nú margt betur fara. Ég get
nefnt Mannakornsplötuna sem dæmi. Sama
lagiö er spilaö attur og aftur þó aö platan
innihaldl mörg önnur ágæt lög. Dagskrárgerö-
arrnennlmir flestir eru ekki nógu iönir viö aö
kynna fjölbreytta tónlist fyrir fólki, þekkta
listamenn sem og óþekkta,” sagði PálmL
Fær Pálmi Gunnarsson aldrei að semja
lög á Mannakornsplötur?
„Jú, jú. Þegar hann kemur meö eitthvaö
aögengilegt sem fer vel í fólkiö," svaraöi
Magnús. „Hann er bara svo kröfuharöur viö
sjálfan síg.“
Aö lokum: Lifa Mannakorn á meöan Pálmi
og Magnús lifa?
„Ætli viö veröum ekki látnir performera
þetta á elliheimilunum,” svaraöi Magnús og
glotti. Aö svo búnu henti Popparinn þessum
sómamönnum út og skellti!