Morgunblaðið - 11.10.1985, Blaðsíða 17

Morgunblaðið - 11.10.1985, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR11. OKTÓBER1985 17 „Debut“ tónleikar _______Tónlist Jón Ásgeirsson Ein af efnilegustu söngkonum okkar íslendinga, hélt tónleika í Norræna húsinu sl. þriðjudag og flutti bæði ljóðasöngva eftir Schubert, Schumann, Tsjaí- kofsky, Liszt og aríur eftir Puccini og Mozart. Þessi efni- lega söngkona er Signý Sæ- mundsdóttir og henni til að- stoðar var systir hennar, Þóra Fríða Sæmundsdóttir, píanó- leikari. Signý er við nám í Vínarborg svo að þessi „debut" konsert er í raun forprófun á kunnáttu og getu Signýjar. Hún hefur feikna góða og kraftmikla rödd en hvort það var vegna þess að ljóðasöngur er við- kvæmur og erfiður, eða vegna reynsluleysis söngkonunnar, var rödd hennar ekki í því jafn- vægi sem hlustendur hefðu mátt eiga von á. Svo virðist sem hún sé ekki alveg orðin sátt við að „leggja röddina" samkvæmt því sem hún hefur verið að læra undanfarið. Samt var auðheyrt að tónlistin fékk á stundum óskabyr í útfærslu hennar. Eins og fyrr sagði, má vera að radd- lega sé henni ekki jafn auðvelt að glíma við ljóðasöngva og henni virðist vera létt um að syngja óperuaríur, eins og kom t.d. fram í aríu úr Manon Les- caut og í Come Scoglio, úr Cosi fantutte eftir Mozart. Hér heima var Signý þekkt fyrir öryggi og sérlega góðar upp- færslur á nútímatónlist, svo að hér er um nýja upplifun að ræða fyrir hlustendur að nokkru. Það vill svo til, að í flutningi tónlistar fer oft sam- an að ákveðin raddgerð eins og tilheyri ákveðnum stíl og sam- kvæmt því fellur söngvara misvel að flytja ýmiskonar tón- list. Sterk skil eru á milli þeirr- ar ögunar sem nútímatónlist krefur af söngvara og þess sem hann þarf að kunna fyrir eldri tónlist. Þessi skil eru stundum nærri óbrúanleg á milli ljóða og óperusöngs, fyrir utan þá aðgreiningu sem er til staðar í mismunandi stíl tónskálda. Öllu þessu þarf að huga að, því tæplega mun nokkur söngvari vera til, er söngtæknilega getur gert öllum stíltegundum skil og er þá bæði átt við raddtækni- lega túlkun og meðferð ólíkra stíltegunda. Signý er góður tónlistarmað- ur og að því leyti á hún aðgang að allri tónlist. Raddgerð henn- Signý Sæmundsdóttir ar er í mótun og vandséð hvar styrkur Signýjar liggur en undirritaður hefur ávailt trúað á hana sem „dramatíska" söng- konu, með heila hljómsveit til undirleiks, þar sem söng og túlkun tilfinr.inga er steypt fram á ögurbrún, hátt yfir svarrandi og miskunnarlausu briminu. Fyrir slíka söngkonu Þóra Fríða Sæmundsdóttir er liedersöngur ef til vill of haminn í túlkun. Hvað sem þessu líður er hér á ferðinni efnileg söngkona og þó ekki slægi af neista í þetta sinn, gaf þessi konsert góð fyrirheit. Samleikur systranna var mjög góður og er Þóra Fríða góður undirleikari þó enn skorti hana nokkra reynslu. Hagsveifluvog iðnaðarins: Batnandi söluhorfur í iðnaði FRAMLEIÐSLA og sala í almennum iðnaði var meiri á öðrum ársfjórðungi þessa árs en var á sama tíma í fyrra. Hins vegar var framleiðsla í stóriðju- greinunum, ál- og kísiljárnfram- leiðslu, minni í jtessum fjórðungi í ár en var í fyrra. Alframleiðslan reynd- ist 8% minni, en kísiljárnframleiðsl- an 19%minni. Þessar upplýsingar koma fram í síðustu „Hagsveifluvog iðnaðar- ins“, sem er ársfjórðungsleg könn- un á vegum Félags íslenskra iðn- rekenda og Landsambands iðnað- armanna á breytingum í iðnaðin- um hérlendis. Hagsveifluvog iðnaðarins metur einnig horfur í sölumálum iðnað- arins á næsta ársfjórðungi og töldu 33,5% aðspurðra að söluhorf- ur væru betri fyrir þriðja fjórðung þessa árs en annan, en 15,6% töldu horfurnar lakari. Kynning á starfi grunnskólanna KYNNINGARNEFND Kennara- sambands íslands gengst í samráði við menntamálaráðuneytið fyrir kynningardegi í grunnskólum lands- ins laugardaginn 2. nóvember nk. Haldin verður kynning á almennu skólastarfi og í staðinn fellur niður kennsla mánudaginn 4. nóvember en kennt verður samkvæmt stunda- skrá þess dags á laugardaginn. I frétt frá kynningarnefndinni segir að markmiðið með slíkum degi sé að kynna aðstandendum barna og öðrum það starf sem fram fer í grunnskólum landsins og vinnuaðstöðu kennara og nem- enda. Laugardagurinn sé valinn til þess að sem flestir eigi möguleika á að koma í heimsókn. í tilefni dagsins verði Kennslumiðstöð Námsgagnastofnunar að Lauga- vegi 166 opin frá kl. 11-15. I fréttinni segir jafnframt: „Það er ósk kynningarnefndarinnar að aðstandendur barna og aðrir vel- unnarar skóla noti þetta tækifæri til að kynnast aðbúnaði á vinnu- stað kennara og nemenda og því fjölbreytta starfi sem fram fer í skólum, einnig að dagurinn takist sem best, verði öllum þeim er hlut eiga að máli til ánægju og fróðleiks og stuðli að auknum samskiptum milli heimila og skóla. LYSI Hugsaðu um íslenska hreysti Okkur er hún eðlileg. . . Hugsaðu um Magnamín — ný straumhvörf í heilbrigði á Islandi Magnamín er árangur íslenskra heilsurannsókna. Magnamín hefur 24 nauðsynleg vítamín og steinefni sem íslendingar á öllum aldri þarfnast. Og það er laust við hvers konar aukaefni sem er stundum blandað saman við bætiefni undir yfirskyni „töfra“ eða „fullnustu". Spurðu okkur bara og við útskýrum nákvæmlega hvernig Magnamín nýtist líkamanum. Magnamín — það er magnað fyrir- bæri. Alkunna er að við íslendingar verðum flestum langlífari. Þetta á sér margar orsakir. Sumar þeirra tengjast beint Lýsi hf. í Reykjavík Hugsaðu um þorskalýsið frá Lýsi hf. — íslenska kólestrólhemilinn Við teljum að það sé hreinasta lýsi í heimi. Náttúran hefur gætt það A og D vítamínum í ríkum mæli og auk náttúrulega bragðsins fæst það með ávaxta- og myntbragði. Síðast en ekki síst er það þrungið af fjöl- ómettuðu fitusýrunum, EPA og DHA. Af þeirra völdum dregur lýsið frá Lýsi hf. úr kólestróli í blóði. Þorskalýsið frá Lýsi hf. — það er jafníslenskt og íslendinga- sögurnar. Hugsaðu um Frískamín. Það er eftirlæti íslenskra barna Það er jneð góðu ávaxtabragði. Og það er auðugt að A, D, C og Bi; B2, B3 og B6 vítamínum. Þess vegna taka börn og foreldrar það reglulega. Nú er verið að kynna Frískamín innflytjendum í flestum Evrópu- löndum. Verður það jafnvinsælt þar ytra og á íslandi?

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.