Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
\
\
Morgunblaðið/Ól. K. Mag.
' JJJp $ m
mff **«1 } -mj: ’.mí'' '' Hh - * x* S l'Áé BSK W I: : Jgggg w |j|gí m Bí M/fm JIUN"mMM w-M ti ymw s
\ ' .
Matthías A. Mathiesen tekinn
við utanríkisráðherraembættinu
Á FUNDI ríkisráðs sem haldinn var á Bessastöðum fyrir hádegið
í gær veitti Vigdis Finnbogadóttir forseti íslands Geir Hallgríms-
syni lausn frá embætti utanríkisráðherra og skipaði Matthías Á.
Mathiesen til þess að vera ráðherra í ríkisstjórn íslands.
Þá staðfesti forseti íslands forsetaúrskurð um breyting á forsetaúr-
skurði frá 16. október 1985 um skipun og skiptingu starfa ráðherra.
Matthías tók við utanríkisráðuneytinu af Geir en aðrar breytingar
urðu ekki á störfum ráðherra í ríkisstjóminni.
Ríkisráð hélt sinn fyrsta fund eftir breytinguna á Bessastöðum í gær
og var meðfylgjandi mynd þá tekin:
F.v.: Halldór Ásgrímsson sjávarútvegsráðherra, Albert Guðmundsson
iðnaðarráðherra, Alexander Stefánsson félagsmálaráðherra, Jón Helga-
son landbúnaðar- og dómsmálaráðherra, Steingrímur Hermannsson
forsætisráðherra, Vigdís Finnbogadóttir forseti íslands, Matthías Á.
Mathiesen utanríkisráðherra, Þorsteinn Pálsson fjármálaráðherra,
Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðis- og tryggingaráðherra, Matthías
Bjamason samgöngu- og viðskiptaráðherra og Sverrir Hermannsson
menntamálaráðherra.
Fullviss um að
sömu stefnu
verðurfylgt
Segir Geir Hallgrímsson
„ÉG ER þess fullviss að sömu stefnu verður fylgt i utanrikismál-
um og verið hefur og óska ég eftirmanni mínum allra heilla i
starfi", sagði Geir Hallgrímsson i samtali við Morgunblaðið að
loknum rikisráðsfundinum á Bessastöðum í gærmorgun, þar sem
hann lét af embætti utanrikisráðherra.
-Hvað er þér efst í huga á
þessum tímamótum?
„Fyrst og fremst er ég þak’klát-
ur fyrir að hafa átt þess kost að
gegna þessu starfi, en ég hef lengi
haft áhuga á utanríkismálum. í
þeim felst meðal annars að gæta
sjálfstæðis og sjálfsákvörðunar-
réttar þjóðarinnar. Ég hef haft
mjög hæft samstarfsfólk, þannig
að ég veit að ég mun sakna þess
og þeirra viðfangsefna sem unnið
hefur verið að undanfarin misseri.
En á hinn bóginn hlakka ég til
að takast á við ný verkefni sem
bankastjórí Seðlabankans".
-Hvaða verkefni í utanríkismál-
um eru þér eftirminnilegust frá
því tímabili sem þú hefur farið
meðþau mál?
„Eg minnist sérstaklega stað-
festingar íslendinga á hafréttar-
sáttmáianum og afmörkun land-
grunnsins á Reykjaneshrygg og
Hatton/Rockall-svæðinu. Ég
minnist stofnunar sérstakrar
vamarmálaskrifstofa og opnari
umræðu um vamar- og öryggis-
mál en áður var. Einnig minnist
ég þess þegar ákveðið var að við
íslendingar tækjum þátt í störfum
hermálanefndar Atlantshafs-
bandalagsins og gerðum okkur
þannig betur grein fyrir hvað
nauðsynlegt er að gera í samvinnu
við bandalagsþjóðir okkar til að
tryggja öryggi landsins. Bygging
ratsjárstöðva og flugstöðvar á
Keflavíkurflugvelli eru einnig
ákveðnir áfangar sem minnis-
stæðir eru.“
-Þegar skýrt var frá fyrir-
huguðum breytingum á ríkis-
stjóminni lýstir þú því yfir að þú
hygðist ekki hætta þátttöku í
stjómmálum. Nú er ákveðið að
þú verðir bankastjóri í Seðlabank-
anum. Hefur orðið einhver breyt-
ing á afstöðu þinni?
„Það liggur í augum uppi að ég
mun í störfum mínum sem seðla-
bankastjóri gæta óhlutdrægni í
hvívetna. í lögum um Seðlabanka
íslands eru þó ákvæði sem áskilja
bankastjórum Seðlabankans rétt
til að segja hreinskilnislega álit
sitt á framvindu efnahagsmála og
stefnumótun á þeim vettvangi.
Hitt skal svo tekið fram að þótt
ég hverfi nú að störfum í Seðla-
bankanum get ég engu lofað um
það hvort ég skipti um skoðun
eða starf í framtíðinni eða ekki.“
Geir Hallgrímsson skipaður
í stöðu seðlabankastj óra
GEIR Hallgrímsson hefur verið
skipaður í stöðu seðlabanka-
stjóra frá 1. september næst-
komandi.
Davíð Ólafsson, sem verður
sjötugur á þessu ári, hefur óskað
eftir að verða leystur frá störfum
hinn 1. september og hefur Matt-
hías Bjamason, viðskiptaráð-
herra, veitt honum lausn frá
embætti frá þeim tíma. Jafnframt
hefur viðskiptaráðherra, að tillögu
bankaráðs Seðlabanka íslands,
skipað Geir Hallgrímsson í stöðu
seðlabankastjóra.
Vigdís Finnbogadóttir, forseti íslands, kveður Geir Hallgrimsson
eftir ríkisráðsfundinn I gærmorgun þar sem Geir lét af embætti
utanríkisráðherra í ríkisstjóm Steingríms Hermannssonar.
„Mun efla starf-
semina á sviði
viðskiptamála“
*
Segir Matthías A. Mathiesen
utanríkisráðherra
„UM LEIÐ og ég tek við þessu
ráðuneyti vil ég nota tækifær-
ið til að þakka Geir Hallgríms-
syni fyrir mikilsverð og ár-
angursrík störf í embætti
utanríkisráðherra. Hann hef-
ur aukið mjög frumkvæði
okkar í utanríkis- og vamar-
málum,“ sagði Matthías Á.
Mathiesen utanrikisráðherra
í samtali við Morgunblaðið
eftir ríkisráðsfundinn á
Bessastöðum í gærmorgun
þar sem hann tók við utan-
ríkisráðherraembættinu.
— Verða breytingar á utan-
ríkisstefnunni við þessi ráð-
herraskipti?
„Við munum að sjálfsögðu
halda óbreyttri stefnu, steftiu
ríkisstjórnarinnar í utanríkis-
málum. Ég mun halda áfram á
þeirri braut sem Geir hverfur
frá og reyna að koma þeim
málum fram sem unnið hefur
verjð að í ráðuneytinu.
Ég vann að ákveðnum breyt-
ingum á útflutningsmálunum í
embætti mínu sem viðskiptaráð-
herra, vann meðal annars að
því að koma á samstarfí allra
sem að útflutningsmálum vinna.
Þar kemur utanríkisráðuneytið
og starfsfólkið þar mjög við sögu
svo og sendiráðin sem hafa
unnið gott starf á þessu sviði. í
framhaldi af þessu undirbún-
ingsstarfí mun ég efla starfsemi
utanríkisþjónustunnar á sviði
viðskiptamála, nú þegar ég tek
við embætti utanríkisráðherra,"
sagði Matthías Á. Mathiesen
utanríkisráðherra.
Krabbameinsf élag
Islands:
Fræðsluvika
’86 á Kjar-
valsstöðum
FORSETI íslands, Vigdís Finn-
bogadóttir, opnaði í gær fræðslu-
viku sem haldin er_ á vegum
Krabbameinsfélags íslands að
Kjarvalsstöðum og stendur til 2.
febrúar.
Með fræðsluvikunni vill Krabba-
meinsfélagið kynna starfsemi fé-
lagsins eins og hún er á 35. starfs-
ári félagsins og jafnframt reyna að
skyggnast fram á veginn. Forstjóri
félagsins, G. Snorri Ingimarsson,
segir í kynningu að athyglisverður
árangur hafi náðst í baráttunni
gegn krabbameini og ljóst sé að
viðunandi árangur náist ekki nema
með samhentu átaki lærðra og
leikra. Til þess að svo megi verða
þurfi aukna þekkingu og skilning á
vandamálinu og þess vegna sé efnt
til þessarar fræðsluviku.
Ýmislegt er á dagskrá fræðslu-
vikunnar, svo sem kvikmyndir,
fyrirlestrar og tónlistarviðburðir.
Þá hefur verið sett upp fræðslusýn-
ing um krabbamein, sem nemendur
á þriðja ári í auglýsingadeild Mynd-
lista- og handíðaskóla íslands hafa
gert. Þá verða sýndar litskyggnur
af starfsemi Krabbameinsfélagsins
að Skógarhlíð alla dagana. Auk
þess eru hundrað teikningar 10—12
ára skólabama á sýningunni, en þau
voru beðin að teikna myndir af
einhveiju sem þeim dytti í hug
þegar þau heyrðu talað um krabba-
mein.
Flugnmf erðar-
stjórar slitu
viðræðunum
Á FUNDI samninganefnda flug-
umferðarstjóra og flugmálayfir-
valda i gærdag slitnaði upp úr
samningaviðræðum aðila og hef-
ur ekki verið boðað til nýs fundar.
Guðlaugur Kristinsson formaður
samninganefndar flugumferðar-
stjóra sagði í gærkvöldi að viðsemj-
endur þeirra hefðu ekki séð sér fært
að afturkalla þau aðvörunarbréf sem
send hefðu verið til margra flugum-,
ferðarstjóra að undanfömu. Flug-
umferðarstjórar hefðu gengið af
fundi og slitið viðræðunum þvi þeir
teldu ófært að vera með þessar hót-
anir sífellt yfir höfðinu.
Kj ötinnflutningnr
Varnarliðsins:
Ráðherrar
ganga frá
skilyrðum
RÍKISSTJÓRNIN hefur falið
þremur ráðherrum, utanrikisráð-
herra, fjármálaráðherra og land-
búnaðarráðherra, að ganga frá
skilyrðum fyrir innflutningi vam-
arliðsins á kjöti.
Geir Hallgrímsson utanríkisráð-
herra lagði fram ákveðin skilyrði
fyrir kjötinnflutningnum á ríkis-
stjómarfundi sem haldinn var á
fimmtudag og var niðurstaðan sem
að ofan greinir. Sverrir Haukur
Gunnlaugsson skrifstofustjóri vam-
armálaskrifstofu utanríkisráðuneyt-
isins sagðist í gær vonast til að
hægt yrði að ganga frá málinu fljót-
lega í næstu viku.
íslenska Óperan:
II Trovatore
frumsýnd í mars
ÍSLENSKA óperan hefur ákveðið
að taka til flutnings óperuna D
Trovatore eftir Verdi. Samkvæmt
áreiðanlegum heimildum hefur
enn ekki verið gengið frá ráðn-
ingu í öll hlutverk, en frumsýning
hefur verið ákveðin 11. apríl.