Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 3

Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 3
GB AUGIÝSINGAÞJÓNUSTAN / SlA MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986 3 Tvær af stærstu auglýsingastofum landsins sameinast. GBB Auglýsingastofa hf. og Auglýsingaþjónustan hf. hafa sameinað starfsemi sína. Frá og með fimmtudeginum 23. janúar 1986 starfa fyrirtækin undir einu heiti á einum stað: GBB-AUGLÝSINGAPJÓNUSTAN HF., Brautarholti 8,105 Reykjavík. Þetta tilkynnist hér með öllum hlutaðeigandi. Hversvegna? Próun á sviði auglýsinga-, markaðs- og sölumála er geysilega ör. Slíkt kallar sífellt á öflugri og fjölbreyttari þjónustu fyrirtækja á þessu sviði. Með sameiningu þessarra tveggja auglýsingastofa verður til eitt fyrirtæki, byggt á reynslu og krafti hinna tveggja; - fyrirtæki sem sinnt getur hinum fjölbreytilegustu verkefnum fyrir alla auglýsendur, einstaklinga sem stórfyrirtæki, á hagkvæmari hátt en áður hefur þekkst á íslenskum auglýsingamarkaði. Hvaðaþjónusta? GBB-Auglýsingaþjónustan er ótrúlega fjölhæf auglýsingastofa sem hefur innan sinna veggja alla nauðsynlega þjónustuþætti: • Markaðsathuganir, markaðsráðgjöf. • AMða auglýsingagerð: Hugmyndavinna, textagerð, teiknivinna, setning, umbrot, filmugerð. • Grafísk hönnun merkja, umbúða, blaða, tímarita o.fl. • Gerð auglýsinga- og birtingaáætlana. • Gerð sjónvarpsauglýsinga, þ.m.t. handritagerð, upptökur og úrvinnsla. • Dreifing auglýsinga til fjölmiðla. • Almenningstengsl. Hvað svo? Við göngum nú af endumýjuðum krafti og sköpunargleði til verka, sannfærð um að sameiningin sé til góðs fyrir alla. Fyrst og fremst viðskiptavini okkar, síðan okkur starfsfólkið, .. .og við leyfum okkur að segja íslenskan auglýsingamarkað. Áfram gakk góðir hálsar! AUGLÝSINGAÞJÓNUSTAN Brautarholti 8 105 Reykjavík Sími 621177 Aðili að SÍA, Sambandi íslenskra auglýsingastofa.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.