Morgunblaðið - 25.01.1986, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
Davíð Schevingog Hörður Sigurgestsson segja sig úr stjórn
Þróunarfélags Islands vegna „þrýstings forsætisráðherra“:
„Hugsjónagnmdvöllur"
félagsins er brostinn“
— segir Davíð Sch. Thorsteinsson
—vandlifað ef ég má ekki hafa skoðun,
segir Steingrímur
DAVÍÐ Scheving Thorsteinsson, stjómarformaður Þróunarfélagfs
íslands hf., sagði sig úr stjóminni i gærmorgun. Það sama gerði
Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags íslands. Ástæðan
er sú, að sögn Davíðs, að Steingrímur Hermannsson forsætisráð-
herra beitti áhrifum sinum innan stjóraarinnar til að Gunnlaugur
M. Sigmundsson, fyrrum forstjóri Framkvæmdastofnunar ríkis-
ins, var ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. Varaformaður Þró-
unarfélagsins, Þorsteinn Ólafsson, framkvæmdastjóri hjá SÍS, tók
við formennsku af Davíð.
Um leið og þeir Davíð og Hörður
gengu af stjómarfundinum í gær-
morgun afhenti Davíð Þorsteini
svohljóðandi bréf:
Hugsjónagrundvöllur
brostinn
„Ég álít að höfuðskilyrði þess
að Þróunarfélag íslands hf. nái
tilgangi sínum sé að það sé laust
undan áhrifum og afskiptum
stjómmálamanna.
Nú hefur það hins vegar gerst,
að forsætisráðherra hefur beitt
áhrifum sínum innan stjómar fé-
lagsins til að hafa áhrif á val fram-
kvæmdastjóra.
Ég tel að þar með sé brostinn
hinn hugsjónalegi grundvöllur,
sem ég áleit að lægi að baki Þróun-
arfélagi íslands hf. og því hef ég
ákveðið að segja af mér stjómar-
formennsku og stjómarsetu í Þró-
unarfélagi íslands hf. frá og með
þessari stundu."
Þrír stjómarmenn greiddu því
atkvæði, að Gunnlaugur yrði ráð-
inn framkvæmdastjóri félagsins:
Þorsteinn Ólafsson, Guðmundur
G. Þórarinsson verkfræðingur og
Jón: Atkvæði hans réð úrslitum.
Davíð Scheving: Sagði af sér. Hörður: Sagði af sér.
Jón Ingvarsson, stjómarformaður
Sölumiðstöðvar hraðfrystihú-
sanna. Hugmynd Davíðs og Harð-
ar var að Ingjaldur Hannibalsson,
forstjóri Iðntæknistofnunar ís-
lands, yrði ráðinn framkvæmda-
stjóri.
í framhaldi af afsögn Davíðs og
Harðar gerði meirihluti stjómar-
innar eftirfarandi bókun:
Byggt á hlutlægu mati
„Vegna afsagnar þeirra Davíðs
Schevings Thorsteinssonar og
Harðar Sigurgestssonar úr stjóm
Þróunarfélags íslands hf. lýsum
við undirritaðir stjómarmenn yfir
eftirfarandi:
Niðurstaða meirihluta stjómar-
innar um ráðningu Gunnlaugs M.
Sigmundssonar viðskiptafræðings
í starf framkvæmdastjóra félags-
ins er byggð á hlutlægu mati á
hæfni hans í starfið.
Stjóm félagsins mun hér eftir
sem hingað til fyrst og fremst
vinna störf sín með hagsmuni fé-
lagsins að leiðarljósi.
Við undirritaðir lýsum yfir mikl-
um vonbrigðum með viðbrögð
þessara tveggja stjómarmanna í
máli þessu."
Davfð Sch. Thorsteinsson sagði
í samtali við blm. Morgunblaðsins
í gær, að Steingrímur Hermanns-
son forsætisráðherra hefði beitt sér
fyrir því að Gunnlaugur yrði ráð-
inn. „Hann gerði það með því að
tala við stjómarmenn — meðal
annars við mig,“ sagði Davíð. „Það
var tilgangslaust, því ég hafði áður
lýst því yfir, að sérhverri málaleit-
an stjómmálamanna yrði vísað frá
í sfjóm þessa félags, enda er ég á
móti afskiptum stjómmálamanna
af málefnum Þróunarfélags ís-
Yfirlýsing forsljóra SÍS
MORGUNBLAÐINU barst í gær
eftirfarandi yfirlýsing Erlends
Einarssonar, forstjóra Sambands
íslenskra samvinnufélaga, vegna
ákæra ríkissaksóknara.
Ég hefi ávallt verið þeirrar skoð-
unar að þeir sem ákærðir em eigi
að reka mál sitt fyrir^ dómstólum,
en ekki í fjölmiðlum. Ég hefi ekki
skipt um skoðun, þótt mál hafi verið
höfðað á hendur mér og öðmm, en
þar sem ég er í forsvari fyrir fjölda-
hreyfingu, snýst málið um meira en
mig persónulega og því þykir mér
rétt að koma eftirfarandi atriðum á
framfæri:
1. Dómsmál það sem hér er til
Fréttatil-
kynning
ríkissak-
sóknara
EMBÆTTI ríkissaksóknara
sendi í gær frá sér eftirfar-
andi fréttatilkynningu um
ákæruna á hendur fimm
starfsmönnum SÍS:
í dag hefur verið gefin út
ákæra á hendur fimm starfs-
mönnum Sambands íslenskra
samvinnufélaga í svokölluðu
„kaffibaunamáli". í ákæmnni
er þeim gefíð að sök að hafa á
ámnum 1980 og 1981 náð undir
Samband íslenskra samvinnufé-
laga með refsiverðum hætti
samtals 4,8 milljónum dollara
af innflutningsverði kaffibauna,
sem Kaffíbrennsla Akureyrar
hf. flutti inn á fýrrgreindum
ámm með milligöngu Sambands
íslenskra samvinnufélaga. Þá
er þeim ennfremur gefið að sök
skjalafals og brot á lögum um
skipan gjaldeyris- og viðskipta-
mála.
Málið er höfðað fyrir saka-
dómi Reykjavíkur.
Reykjavík, 24. janúar 1986.
umfjöllunar er vegna meintra
brota Sambandsins frá ámnum
1979—1981, en ekki þaðan í frá.
Akæra er frá ríkissaksóknaraemb-
ættinu sjálfu, en engir aðrir —
hvorki einstaklingar né fyrirtæki
— gera neina bóta- eða áfellis-
kröfu í málinu.
2. Athygli er vakin á því að ekki
er ákært fyrir tolla- eða verðlags-
brot, né brot á skattalögum, en
verðlagsyfirvöld hafa staðfest
rétt neytendaverð á kaffi á
umræddu tímabili.
3. Öll bókhaldsskil Sambandsins
hafa reynst í fyllsta lagi og
hvergi er hægt að benda á auðg-
unarbrot þeirra sem nú sæta
opinberri ákæm, né að fé hafi
verið haft af samfélaginu, heldur
snýst málið um það hvemig
staðið var að tekjufærslu milli
Sambandsins og samstarfsfyrir-
Erlendur Einarsson,
Sambandsins.
tækis þess.
4. Umboðslaun Sambandsins hafa
frá árinu 1982 numið 4% af
innflutningsandvirði kaffíkaup-
anna, en vom 8% árið áður.
5. Sambandið varð að lúta reglum
stjómvalda Brasilíu um hin svo-
kölluðu tvíþættu reikningsskil á
kaffiútflutningsviðskiptum, en
þar sem þau fólu m.a. í sér út-
gáfu afsláttarstaðfestinga „Avis-
os“, sem giltu einungis gagnvart
síðari vömafskipunum eða send-
ingum, mun Sambandið í nokkr-
um tilvikum hafa orðið að leita
aðstoðar erlendra aðila til að
nýta þessa „Avisos" vegna kaffí-
kaupa þeirra, ella hefði afsláttur-
inn tapast. Allt var þetta ítarlega
bókfært og gjaldeyrisskil gerð,
enda mun enginn ágreiningur
. . um þau uppgjör.
forstjóri g i9gi ákvað Sambandið að
lækka umboðslaun sín af kaffi-
kaupum og var það mörgum
mánuðum fyrir bókhaldsrann-
sókn skattrannsóknarstjóra. En
vorið 1984 var uppgjör af eldri
viðskiptum tekjufært Kaffí-
brennslu Akureyrar með sam-
þykki stjómar fyrirtækisins, en
kaffibrennslan er í eigu sam-
vinnuhreyfíngarinnar.
7. Kaffíbrennsla Akureyrar var
ekki viðmiðunaraðili þegar há-
marksverð á kaffi var ákveðið
af verðlagsyfirvöldum og seldi
því á verði sem þau ákváðu;
stundum neðan við hámarksverð.
Þar sem verið er að birta mér
hina opinberu ákæru í dag, hefi ég
ekki haft tíma til að leita lögfræði-
legs álits á ákæruatriðum, en ég fæ
ekki betur séð en meðal þeirra sé
ávirðingaratriði um að hlíta við-
skiptakjörum Brasilíumanna á al-
þjóðlegum kaffimarkaði, eins og
rakið er í lið 5 hér að framan.
Að lokum vil ég taka fram að ég
álít að það sé fyrir bestu, bæði okkur
sem nú sætum opinberri ákæru, svo
og samvinnuhreyfingunni, að þetta
mál verði rekið fyrir dómstólum, svo
endanlega verði skorið úr sök eða
sýknu manna í málinu.
„Kaffibaunamálið“ rifjað upp:
Kaffiafsláttur frá Brasilíu
hafnaði í sjóðum SÍS
„KAFFIBAUNAMÁLIÐ*1 komst i hámæli fyrir réttu ári þegar skýrt
var frá umfangsmikilli rannsókn á bókhaldi Sambands íslenskra
samvinnufélaga og Kaffibrennslu Akureyrar, dótturfyrirtækis SÍS.
Rannsókn á vegum skattrannsóknarstjóra var þá nýlokið og leiddi
í ljós að endurgreiðslur opinberra kaffisala í Brasiliu fyrir sölu á
kaffi á árunum 1979, 1980 og 1981 lentu í sjóðum Sambandsins en
ekki kaffibrennslunnar.
Sambandið framvísaði reikning-
um án afsláttar, sem sölufyrirtækið
í Brasilíu veitti þegar fengnar voru
gjaldeyrisyfirfærslur. Samtals
fengust yfirfærslur fyrir um 16
milljónir dollara, en í raun greiddi
SÍS ekki nema um hálfa elleftu
milljón dollara til Brasilíu og mis-
munurinn því 5,5 milljónir dala.
Ákæra' rikissaksóknara hljóðar um
á að SÍS hafi náð undir sig 4,8
miiljónum króna og samkvæmt
heimildum Mbl. er mismunurinn að
meginhluta áætluð umboðslaun
SÍS. SÍS endurgreiddi Kaffi-
brennslu Akureyrar féð ekki fyrr
en rannsóknin stóð sem hæst á
árinu 1984.
Viðskiptin annaðist skrifstofa
SÍS í Lundúnum og heyrði hún þá
beint undir Erlend Einarsson, for-
stjóra SÍS. Kaffið var keypt í gegn-
um Nordisk Andelsforbund, inn-
kaupasamband samvinnufélaga á
Norðurlöndum, og annaðist fóður-
vörudeild Innflutningsdeildar SÍS
milligöngu hér á landi.
Viðskiptin munu hafa farið þann-
ig fram, að brasilíska sölufyrirtækið
veitti afslátt eftir á. Þannig hafi til
dæmis kaffi verið keypt fyrir 200
dollara og helmingur reiknaður í
afslátt eða bónus á næstu kaup.
Þá hafi verið keypt fyrir 300 doll-
ara, en til góða var bónus upp á
eitt hundrað dali og því hafi komið
reikningur til skrifstofu SÍS fyrir
300 dali að frátöldum 100 dollurum.
Nýr 300 dala reikningur var
sendur til íslands og kaffibrennslan
fékk gjaldeyrisyfirfærslu, en SÍS
færði mismun til sín sem afslátt og
umboðslaun. Þá mun hafa komið í
ljós að umboðslaunum var bætt
ofan á reikninga. Forráðamenn
Kaffíbrennslu Akureyrar höfðu ekki
vitneskju um afslátt þegar hann var
veittur á sfnum tíma, enda ekki
upplýstir um hann af forráðamönn-
um SÍS.
f mars 1985 lagði ríkissaksóknari
fyrir Rannsóknarlögreglu ríkisins
að hefja opinbera rannsókn á
„kaffibaunamálinu". Fjölmargir
voru yfirheyrðir vegna rannsóknar
málsins, þar á meðal hinir ákærðu
og stjómarmenn í Sambandi ís-
Ienskra samvinnufélaga. Fóru rann-
sóknarmenn meðal annars erlendis
vegna rannsóknar málsins.
Þess má að lokum geta, að f fyrra
varð Kaffibrennsla Akureyrar ann-
ar hæsti skattgreiðandi f umdæm-
inu. Heildargjöld fyrirtækisins þá
voru rúmar 15,8 milljónir króna,
sem var 13 sinnum hærri Qárhæð
en fyrirtækið greiddi árið 1984.
Munaði þar mestu um 14 milljóna
króna telquskatt miðað við engan
árið áður. Ástæða þessarar miklu
hækkunar voru endurgreiðslur SÍS
vegna kafffibaunamálsins.