Morgunblaðið - 25.01.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
5
Steingrimur: Beitti sér fyrir
ráðningu Gunnlaugs.
lands. Meirihluti stjómarinnar var
hins vegar ekki sammála mér um
þessa afstöðu."
Læt ekki pólití kusa
fjarstýra mér
Davíð lagði áherslu á, að hefði
ekkert við Gunnlaug Sigmundsson
að athuga sem slíkan. „Mér er
sagt að þetta sé harðduglegur og
hæfur maður. Það er Ingjaldur
Hannibalsson líka en ég hefði
einnig hafnað honum ef einhver
stjómmálamaður hefði reynt að
gera hann að framkvæmdastjóra
félagsins," sagði hann. „Þróunar-
félag íslands hf. á nefnilega ekki
að verða ný byggðastofnun eða
ný framkvæmdastofnun. Ef for-
sætisráðherra vill að félagið verði
það, þá verða þeir að fá annan til
Gunnlaugur: Ráðinn fram-
kvæmdastjóri.
verkanna en mig. Mergurinn máls-
ins er sá, að ég ætla ekki að láta
pólitíkusana fjarstýra mér.“
„Það er vandlifað í þessum heimi
ef ég, sem fer með mál stærsta
hluthafans í Þróunarfélaginu, má
ekki láta álit mitt í ljós,“ sagði
Steingrímur Hermannsson forsæt-
isráðherra er umsagnar hans var
leitað. „Mér finnst þetta fljótfæmi
af þeim stjómarmönnum, sem
sögðu af sér. Ég tel Gunnlaug
vera úrvalsmann og hann hefur
mjög góð meðmæli, meðal annars
frá Alþjóðabankanum í Washing-
ton. Það var leitað til margra
hluthafa um þessa ráðningu og það
er rétt að það komi fram, að það
komu ekki fram aðrar tillögur."
Forsætisráðherra kvaðst ekki hafa
beitt þiýstingi í þessu máli „en
mér er engin launung á því, að ég
mælti eindregið með Gunnlaugi,"
sagði hann.
Skoðun forsætisráðherra
á ekki að útiloka manninn
Jón Ingvarsson sagði að það
hefði ekki verið „þrýstingur for-
sætisráðherra, sem réði hans af-
stöðu. Það var hlutlægt mat á
hæfni Gunnlaugs. Ég tel hann
mjög hæfan mann, ekki síst með
tilliti til þess, að hann vann mikið
að undirbúningi stofnunar þessa
félags. Hann hefur getið sér góðs
orðs þar sem hann hefur starfað
áður — og það eitt, að forsætisráð-
herra hafi verið sömu skoðunar og
meirihluti stjómarinnar, á ekki að
útiloka manninn frá því að gegna
þessu starfi. Menn verða svo að
ákveða sjálfir hvemig þeir bregð-
ast við þegar þeir fá ekki sitt fram,
en mér finnst þetta undarleg við-
brögð," sagði Jón.
Hörður Sigurgestsson, forsljóri
Eimskipafélagsins, sem einnig
sagði sig úr stjóminni í gærmorg-
un, sagði um afstöðu sína, að Þró-
unarfélag íslands hefði „meðal
annars verið stofnað til að breyta
vinnubrögðum í sambandi við fiár-
festingu í atvinnulífinu og eflingu
þess, til dæmis með því að draga
úr pólitískum áhrifum við dreifingu
fjármagns. Mér var sagt þegar það
kom fyrst til greina að ég tæki
sæti í stjóm félagsins, að stjómin
myndi sjálf ráða sinum málum og
að hún þyrfti ekki að taka pólitísk-
um vendingum. Nú hefur því verið
breytt og þá em forsendur setu
minnar í stjóminni brostnar," sagði
Hörður. „Auk þess taldi ég aðra
kandidata betri í starfíð.
Dómstólar skeri úr
um sekt eða sýknu
— segir Valur Arnþórsson, stjórnarformaður SÍS
„ÞESSI ákæra kemur ekki á
óvart eftir þá umfjöllun, sem
málið hefur fengið f fjölmiðlum
um langt skeið, og breytir ekki
miklu í mínum huga. Ég legg
áherslu á, að dómur hefur ekki
verið kveðinn upp - ríkissaksókn-
ari hefur gefið út ákæru og dóm-
stólar skera úr um sekt eða
sýknu,“ sagði Valur Amþórsson,
stjómarformaður Sambands ís-
lenskra samvinnufélaga í samtali
við Morgunblaðið, vegna ákæru
ríkissaksóknara á hendur fimm
starfsmönnum SÍS.
Aðspurður hvort hinir ákærðu
létu af störfum þar til dómur yrði
upp kveðinn, sagðist Valur ekki
geta sagt til um hver yrðu viðbrögð
stjómar SÍS. „Stjómarfundur verð-
ur haldinn áður en langt um líður
eins og áformað var og þá ber þetta
mál á góma. Það er fyrir löngu úr
höndum stjómar SÍS — þar til
bærir opinberir aðilar hafa um það
fjallað og dómstóla nú að kveða upp
dóm,“ sagði Valur.
„Það er þýðingarmikið í mínum
huga að þeir em ekki ákærðir fyrir
að hagnast persónulega, né brot á
verðlagslöggjöf, skatta- eða tolla-
löggjöfunum. Þeir em ákærðir fyrir
að hafa skapað fyrirtæki, sem þeir
stjóma, óeðiilega miklar tekjur af
kaffibaunum og eiga að sjálfsögðu
eftir að skýra sín sjónarmið fyrir
dómstólum.
Valur Amþórsson
Ákæmatriði em alvarleg - ég
geri síður en svo lítið úr þeim.
Benda má á að allar tekjur vom
bókfærðar og taldar fram til skatts
og gjaldeyrisskil hafa verið gerð.
Rétt er að rifja upp að árið 1981,
áður en rannsókn skattrannsóknar-
stjóra hófst, ákvað SÍS að lækka
umboðslaun sín af kaffibaunum
verulega og árið 1984 var Kaffi-
brennslu Akureyrar endurgreitt féð
að fullu á gmndvelli útreikninga,
sem skattrannsóknarstjóri gerði
ekki athugasemd við og stjóm
Kaffíbrennslu Akureyrar féllst á.
En ákæmatriði em vissulega alvar-
leg og rétt að dómstólar skeri úr
um sekt eða sýknu,“ sagði Valur
Amþórsson.
f
eftir dr. Jón Óttar Ragnarsson
Fáar ef nokkrar algengar fæðutegundir eru eins góðar
uppsprettur fyrir bætiefni og mjólk. Hún er I flokki
örfárra alhliða næringarefnagjafa, og yfirburðafæða t.d.
fyrir bein, tennur, húð, hár og taugakerfi.
Böm og unglingar ættu að nota allan mjólkurmat eftir
því sem smekkur þeirra býður.
Fullorðnir ættu á hinn bóginn að halda sig við fituminni
miólkurmat, raunar við magra fæðu yfirieitt. 2
mjólkurglös á dag eru hæfilegur lágmarksskammtur á
dag ævilangt. Mundu að hugtakið miólk nær yfir
léttmiólk, undanrennu og nýmiólk.
MJÓLKURDAGSNEFND
Mjólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna.
Látum mjolkina
vinna með okkur
i erli dagsins
Valgeir Cuðjónsson er vinnuhestur. Hann er menntaður
féiagsráðgjafi, hefurfengist við bókaútgáfu, kvikmyndgerð, gerð
útvarps- og sjónvarpsþátta, kennslu, unnið vð leikhús og á
tónlistarsviðinu hefur hann samið, leikið og sungið, einkum með
Spilverki þjóðanna og Stuömönnum, mörg skemmtilegustu og
vinsælustu dæguriög síðustu ára, tekið þátt i gerð ótal
hljómplatna og komið fram á tónleikum og dansleikium i
hundruða og þúsunda tali. Og er þá ekki allt talið.
Starfsorka, þjartsýni og úthald kemur ekki af sjálfu sér. Til þess
að geta stundað skapandi og erfiða vinnu undir álagi þarftu að
þorða holla og góða fæðu, Þetta veit Valgeir Guðjónsson. Enda
drekkur hann mjólk.
Mjólk er full af bætiefnum. Hún er ómissandi liður í daglegri
fæðu okkar allra!