Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR £5. JANÚAR1986 Krot Tveir heiðursmenn hringdu til mín í fyrrakveld og vildu koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri. Herra X taldi að alltof margir leikarar kæmu fram í út- varpsleikritum, sem dæmi nefndi hann að í seinasta útvarpsleikriti voru skráð ekki færri en 12 hlut- verk. Taldi herra X að þessi mikli fjöldi hlutverka í útvarpsleikriti ruglaði áheyrendur í ríminu. Ég kem hér með þessari athugasemd á framfæri við leiklistardeild Rík- isútvarpsins og bendi mönnum á þeim bæ á að athuga reglur er- lendra útvarpsstöðva hér að lút- andi, einkum reglur bandarískra útvarpsstöðva. Herra Y áleit að ekki hefði verið tekið nægilega hart á því níðingsverki er íslenskir leikarar tróðu á íslenska fánanum á leiksviði Gamla Bíós og það fyrir framan alþjóð í þætti Ómars Ragnarssonar: Á líðandi stundu. Reyndar var það ekki Ómar Ragnarsson er beindi myndavél- um feimnislaust að þjóðfána vor- um þar sem hann lá fyrir hunda og manna fótum niðri í Gamla Bíói heldur Agnes Bragadóttir hjálparkokkur Omars í þættinum. Menn verða jú að njóta sann- mælis. Ég þakka herra Y fyrir að benda mér á þetta atriði og ég tek undir með honum, að aum er sú þjóð er á enga helgidóma. Er óskandi að ónefndir sjónvarps- menn átti sig á þessari staðreynd og filmi ekki gagnrýnislaust hvað sem fyrir augu ber. Hvað skal segja? Ég veit nú eiginlega ekki hvað ég á að segja við ykkur næst, lesendur góðir. Vissulega er þögn- in oft gulls ígildi en sumir menn fá jú ekki borgað gnísti þeir tönn- um og feli hendur í skauti og því blaðra ég áfram á gömlu góðu ritvélina mína, þetta skrifli er fannst í ruslabing í ónefndri slipp- stöð úti á landi. Ég efast um að hróið fengi inni á blaðamannahá- skólunum þar sem tölvuskermam- ir ljóma en það er nú önnur saga. Tækninni fleygir fram og við verðum víst að trítla á eftir í auðmýkt, eða halda menn að Jón- as frá Hriflu fengi inni á dagblaði í dag með sitt krot? Samt sakna ég penna Jónasar, hraðfleygrar hugsunarinnar og neistaflugsins en það erlíka önnur saga. Mér dettur helst í hug að segja ykkur frá samtali er Kristján Siguijóns- son átti í morgunþætti rásar-II síðastliðinn miðvikudag við Helgu Jónsdóttur í frystihúsinu á Borg- arfírði eystra. Kristján: Er mikið að gera? Helga: Það hefur verið unnið í 2 daga í frystihúsinu síðan í nóvember... við höfum annars verið á atvinnuleysisbótum. Kristján: Er ekkert einmanalegt þama? Helga: Nei, ekkert ein- manalegt. Félagslífið er að vísu svolítið dauflegt en nú emm við að undirbúa þorrablótið. Kristján: Verða skemmtiatriðin heimatil- búin? Helga: Já, það verður allt heimatilbúið. Brottfluttir Borg- fírðingar koma líka til okkar á þorrablótið hvaðanæva að. Krist- ján: Má ekki bjóða ykkur í frysti- húsinu að senda lag? Helga: Jú, og við viljum senda kveðju með laginu til starfsfólksins í frysti- húsinu á Reyðarfirði, vonandi fáum við meiri fisk frá þeim. Ólafur M. Jóhannesson ÚTVARP/SJÓNVARP Hér og nú fréttaþáttur í vikulokin Kynnir verður hinn þekkti gamanleikari Eddie Murphy. Bestu músík- myndböndin 1985 IH Fréttaþátturinn 50 „Hér og nú“ er á dagskrá rásar 1 í dag kl. 13.50 og eru umsjónarmenn hans að þessu sinni fréttamennimir Þorgrímur Gestsson, Kári Jónasson og Friðrik Páll Jónsson. Að sögn Þorgríms verð- ur þátturinn með þorralegu ■i Annar þáttur 00 framhaldsleik- ritsins „Sæfar- inn“ eftir Jules Veme í útvarpsleikgerð Lance Sie- veking verður fluttur á rás 1 kl. 17.00 í dag. Leikstjóri er Benedikt Ámason. í fyrsta þætti var rann- sóknarleiðangur á vegum bandaríska flotamálaráðu- neytisins gerður út til þess að leita að hættulegu sæ- skrímsli sem sjómenn hafa orðið varir við víða um höf. Meðal leiðangurs- manna eru franskur pró- fessor, þjónn hans og kan- adískur hvalveiðimaður. Dag nokkum rekst leið- angursskipið á óþekktan yfirliti þar sem þorri er nú rétt genginn í garð. Kári fer norður á Skagaströnd þar sem hann bregður sér hlut og þessir þrír menn hrökkva útbyrðis. Þeim tekst að klifra upp á eitt- hvert ferlíki sem marar þama í sjónum og em í fyrstu fullvissir um að sé skrímslið ógurlega. Leikendur í öðmm þætti em: Sigurður Skúlason, Róbert Amfinnsson, Pálmi Gestsson, Haraid G. Har- alds, Þorsteinn Gunnars- son, Rúrik Haraldsson, Erlingur Gíslason, Flosi Ólafsson, Aðalsteinn Bergdal og Ellert Engi- mundarson. Þýðandi er Margrét Jónsdóttir. Tækni- menn em Friðrik Stefáns- son og Runólfur Þorláks- son. á þorrablót heimamanna. Einnig ætlar hann að ræða við heimamenn um fólks- flölgun, en þar fjölgaði mönnum um 3% á sl. ári, á meðan mönnum fækkar heldur í öðmm sjávarþorp- um á landinu. Þorgrímur sagði að heimamenn gerðu út fiystitogarann Örvar og hefði útgerðin gengið mjög vel hingað til. Því teldu Skagstrendingar fólks- fjölgunina jafnvel beina afleiðingu af velgengninni. Friðrik Páll hyggst Qalla um kosningar á Filippseyj- um. Stefán Jón Hafstein, fréttaritari útvarps í Bandaríkjunum, verður í símanum og þá ætlar Frið- rik einnig að ræða um málefni Suður-Jemen og reyna að ná sambandi við íslendinga sem verið hafa þar f landi. Þorgrímur sagðist ætla að fjalla um nýja reglugerð, sem tekur gildi 1. febrúar nk., um breytingar á svo- kölluðum torfæmbílum, en Bifreiðaeftirlit ríkisins hef- ur hingað til ekki verið ýkja hrifið af uppátækjum tor- fæm-ökumanna t.d. hvað varðar stærð dekkja, að sögn Þorgríms. Hann ræðir m.a. við formann ferða- klúbbsins 4x4, starfsmann hjá Bifreiðaeftirliti ríkisins auk áhugamanna um tor- færaakstur. ■i „Bestu músík- 25 myndböndin — 1985“ - sjón- varpsþáttur frá árlegri popptónlistar- og mynd- bandahátíð í Bandaríkjun- um- hefst kl. 17.25 í dag. Á hátíðinni em veitt verðlaun fyrir hina ýmsu þætti tónlistar á mynd- böndum, bæði myndgerð og flutning. Hátíðin var haldin nú um áramótin í Radio City-tónlistarsalnum í New York. Á sviðinu skemmta m.a. Eurythmics, Hall og Oates, John Cougar Mellencamp, Run DMC, Tears for Fears, Pat Bena- tar og Sting. Auk þeirra birtast ýmsir frægir lista- menn í svip, svo sem Tina Tumer, Julian Lennon, Glen Frey, Joan Baez, Bob Geldof, Cyndi Lauper, Don Henley og fleiri. Kynnir er Eddie Murphy, þekktur fyrir leik sinn í „Beverly Hills-löggunum". Þýðandi er Veturliði Guðnason. „SÆFARINN" — annar þáttur ÚTVARP LAUGARDAGUR 25. janúar 7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn. 7.15 Tónleikar, þulur velur og kynnir. 7.20 Morguntrimm. 7.30 fslenskir einsöngvarar ogkórarsyngja. 8.00 Fréttir. Dagskrá. 8.15 Veöurfregnir. Tónleikar. 8.30 Lesiö úr forystugreinum dagblaöanna. Tónleikar. 9.00 Fréttir. Tilkynningar. Tónleikar. 9.30 Óskalög sjúklinga. Helga Þ. Stephensen kynn- ir. 10.00 Fréttir. 10.05 Daglegt mál. Endurtek- inn þáttur frá kvöldinu áöur sem Margrét Jónsdóttir flyt- ur. 10.10 Veðurfregnir. Óskalög sjúklinga, fram- hald. 11.00 Heimshorn Umsjón: Ólafur Angantýs- son og Þorgeir Ólafsson. 12.00 Dagskrá. Tilkynningar. 12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Tilkynn- ingar. Tónleikar. 13.50 Hér og nú. Fréttaþáttur ívikulokin. 15.00 Miödegistónleikar „Myndir á sýningu" tónverk eftir Modest Mussorgski. Sinfóníuhljómsveitin í Dallas leikur; Eduardo Mata stjórn- ar. 15.50 íslenskt mál. Gunnlaug- ur Ingólfsson flytur þáttinn. 16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veöurfregnir. 16.20 Ustagrip. Þáttur um list- ir og menningarmál. Um- sjón. Sigrún Björnsdóttir. 17.00 Framhaldsleikrit barna og unglinga: „Særarinn" eftir Jules Verne i útvarps- gerö Lance Sieveking. Annar þáttur: „Ævilangt fangelsi." Þýöandi: Margrét Jónsdótt- ir. Leikstjóri: Benedikt Árna- son. Leikendur: Siguröur Skúla- son, Róber* Arnfinnsson, Pálmi Gestsson, Harald G. Haralds, Þorsteinn Gunn- arsson, Rúrik Haraldsson, Aðalsteinn Bergdal, Ellert Ingimundarson, Erlingur Gíslason og Flosi Ólafsson. 17.40 Síðdegistónleikar „Fjör í París", hljómsveitar- svíta eftir Charles Offen- bach. Hljómsveitin Fílharm- 14.45 Manchester City — Watford Bein útsending frá ensku knattspyrnunni. 16.45 íþróttir Umsjónarmaöur Bjarni Fel- ixson. 17.25 Bestu músíkmyndbönd- in 1985 (The 2nd MTV Music and VideoAwards 1985) Sjónvarpsþáttur frá árlegri popptónlistar- og mynd- bandahátíö I Bandaríkjun- um. Á henni eru veitt verð- laun fyrir hina ýmsu þætti tónlistar á myndböndum, bæöi myndgerö og flutning. Hátíöin var haldin nú um áramótin í Radio City- tónlistarsalnum í New York. Á sviöinu skemmta m.a. Eurythmics, Hall og Oates, John Cougar Mellencamp, Run DMC, Tears for Fears, Pat Benatarog Sting. Auk þeirra birtast ýmsir frægir listamenn ( svip, svo sem Tina Turner, Julian Lennon, Glen Frey, Joan Baez, Bon Geldof, Cindy Lauper, Don Henley og fleiri. onia leikur; Herbert von Karajan stjórnar. Tónleikar. Tilkynningar. 18.46 Veðurfregnir. Dagskrá kvöldins. 19.00 Fréttir. 19.30 Tilkynningar. 19.35 „Sama og þegið". Umsjón: Karl Ágúst Úlfsson, Siguröur Sigurjónsson og örnÁrnason. 20.00 Harmoníkuþáttur. Um- sjón: Bjarni Marteinsson. 20.30 Sögustaðir á Norður- LAUGARDAGUR 25. janúar Kynnir er Eddie Murphy, þekktur fyrir leik sinn í „Bev- erly Hills-löggunum". Þýð- andi Veturliöi Guönason. 19.25 Búrabyggö (Fraggle Rock) Fjóröi þáttur Brúöumyndaflokkur eftir Jim Henson. Hola ( vegg hjá gömatm uppfinningamanni er inn gangur í furöuveröld þar sem þrenns konar hulduver- ur eiga heima, Búrar, dvergaþjóöin Byggjar og tröllafjölskyldan Dofrar. Þýðandi Guöni Kolbeins- son. 19.50 Fréttaágrip á táknmáli 20.00 Fréttirog veöur 20.30 Auglýsingarogdagskrá 20.35 Glettur - Arnar Árna- sonar Nýrgamanþáttur. í þessum þáttum munu ýmsir kunnir listamenn bregöa á leik. I þessum fyrsta þætti á örn Árnason leikinn. Stjórn upptöku: Björn Emils- son. 20.65 Staupasteinn (Cheers) Fimmtándi þáttur landi. Umsjón: Hrafnhildui Jónsdóttir. (Frá Akureyri.) 21.20 Vísnakvöld. Aöalsteinn Ásberg Sigurðsson sér um þáttinn. 22.00 Fréttir. Dagskrá morg- undagsins. Orö kvöldsins. 22.15 Veöurfregnir. 22.20 Bréf úr hnattferð. 4. þáttur. Dóra Stefánsdóttir segirfrá. 22.50 Danslög. 24.00 Fréttir. 00.05 Miðnæturtónleikar. Bandarískur gamanmynda- flokkur. Þýðandi Guöni Kolbeins- son. 21.25 (The Elephant Man) Bresk-bandarísk biómynd frá 1980. Leikstjóri David Lynch. Aöalhlutverk: Anthony Hopkins, John Hurt, John Gielgud og Anne Bancroft. Myndin stuöst viö raun- verulega atburöi í Lundún- um á öldinni sem eiö. John Merrick — Fílamaðurinn — er afmyndaöur af sjaldgæf- um sjúkdómi og er haföur almenningi til sýnis eins og dýr. Læknir einn bjargar honum úr þessari niðurlægingu, tekur Merrick upp á sína arma og kynnir hann fyrir heldra fólkinu. Þýöandi Kristmann Eiösson. 23.25 Danskeppni i Berlin Þýskur sjónvarpsþáttur frá heimsmeistarakeppni áhugamanna í samkvæmis- dönsum, heföbundnum og suöur-amerískum. (Evróvision — Þýska sjón- varpiö.) 00.35 Dagskrárlok. Umsjón: Jón Örn Marinós- son. 01.00 Dagskrárlok. Næturútvarp á rás 2 til kl. 03.00. 10.00 Morgunþáttur Stjórnandi: Sigurður Blön- dal. 12.00 Hlé 14.00 Laugardagurtillukku Stjórnandi: Svavar Gests. 16.00 Listapopp Stjórnandi: Gunnar Salvars- son. 17.00 Hringboröið Erna Arnardóttir stjórnar umræðuþætti um tónlist. 18.00 Hlé 20.00 Línur Stjórnandi: Heiöbjört Jó- hannsdóttir. 21.00 Millistriöa Jón Gröndal kynnir dægur- lög frá árunum 1920-1940. 22.00 Bárujárn Þáttur um þungarokk f umsjá Siguröar Sverrisson- ar. 23.00 Svifflugur Stjórnandi: Hákon Sigur- jónsson. 24.00 Ánæturvakt með Jóni Axel Ólafssyni. 03.00 Dagskráríok. REYKJAVÍK 17.03—18.00 Svæöisútvarp fyrir Reykjavík og nágrenni — FM 90,1 MHz. akureyri 17.03—18.30 Svæðisútvarp fyrir Akureyri og nágrenni — FM 96,5 MHz. SJÓNVARP
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.