Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 25.01.1986, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986 25 Fyrsta árs nemar fá skuldabréfalán Rætt við Ólaf Arnarson fulltrúa stúdenta í stjórn LÍN „ÉG var á fundi með Sverri Hermannssyni menntamálaráð- herra í morgnn og ræddum við um stöðuna í málefnum Lána- sjóðs islenskra námsmanna. Ég fór fram á það við menntamála- ráðherra að hann setti inn í drög að frumvarpi um Lánasjóðinn grein sem kveður á um að fyrsta árs nemar fái skuldabréfalán eins og aðrir nemar og sam- þykkti hann það,“ sagði Ólafur Amarson fulltrúi stúdenta í stjóm LIN í samtali við Morgun- blaðið í gær. Ólafur sagði að stúdentar telji það vera forsendu fyrir jafnrétti til náms að fyrsta árs nemar njóti sömu réttinda og aðrir og þar með að eiga kost á skuldabréfaláni. „Eg tók þá ákvörðun að draga til baka beiðni mína um lausn úr stjóm LÍN sem ég hafði afhent ráðherra. Ég hef hugsað mér að sitja í stjóminni enn um sinn,“ sagði Ólafur. Þess má geta að Ólafur hefur setið í stjóminni frá því á sunnudaginn að ósk menntamáia- ráðherra, þrátt fyrir að ný stjóm Stúdentaráðs hafi verið skipuð. „Astæðan fyrir þessu er sú að ég hef áhuga á að starfa áfram þar til úthlutunarreglur sjóðsins hafa verið gefnar út. Ég hef verið í þessari stjóm frá því í sumar og tel mig því betur geta gert mér grein fyrir hvemig þessar reglur eigi að vera en maður sem kemur nýr inn í stjómina. Mér fínnst að atburðir þessarar viku og sú um- ræða sem verið hefur um Lánasjóð- inn sýna best hvaða baráttuaðferð- um nýi meirihlutinn hyggst beita. Hann vill sýna hörku og afneitar samstarfí við yfírvöld. Ég held því fram að aðferðir mínar dugi betur. Ráðherra hefur lýst' því yfír að reglugerðin um frystingu lánanna verði afnumin og nú fellst hann á að fyrsta árs nemar fái skuldabréfa- lán. Þetta kalla ég árangur. Þess vegna hyggst ég sitja áfram og halda áfram að ná málum fram okkur stúdentum til hagsbóta með því að beita rökum. Meirihlutinn hefur sýnt það í skrifum sínum og málflutningi að hann hugsar ekki um hagsmuni stúdenta heldur sína eigin pólitísku hagsmuni. Ég sætti mig ekki við að hagsmunabarátta stúdenta sé lögð til hliðar meðan menn eru í eiginhagsmunabrölti. Formaður stúdentaráðs er til dæmis að taka þátt í forvali Alþýðubandaiagsins fyrir komandi borgarstjómarkosn- ingar. Meirihlutinn hefur ákveðið fyrirfram að ekki sé hægt að tala við stjómvöld. Þess í stað vilja þeir „marsera" um strætin með heróp á vörum," sagði Ólafur Amarson að lokum. Ólafur Arnarson Dalvík: Ný skíðalyfta tekin í notkun Dalvfk, 24. janúar. AÐ undanfömu hafa félagar í Skíðafélagi Dalvíkur unnið að því að setja upp nýja skiðalyftu í Böggviðstaðafjalli á skíðasvæði félagsins. Þessu verki er nú lokið og verður hin nýja lyfta, sem er diskalyfta af gerðinni Leitner, formlega tekin í notkun laugardaginn 25. janúar klukkan 13.30. Munu bæjarfíilltrú- ar á Dalvík vígja lyftuna en Dalvík- urbær lagði fram fjármagn til lyftu- kaupmanna. Fréttaritarar. Gleymum þeim ekki Munið eftir Kópavogsheimilinu. Tékkareikningur 979 í Landsbanka Islands Breiðholtsútibúi. Móttaka í öllum bönkum og spari- sjóðum landsins. Takmarkið er: Fullkomið bruna- varnakerfi í Kópavogshæli. Kiwanishreyfingin ■ w RÝMINGARSALA í heila viku Salerni frá WARNETON. Vönduð og smekkleg framleiðsla. 1,2 og 3 Blöndunartœki frá KLUDI. Vestur-þýsk gœðaframleiðsla. OGSVO LOKUM VIÐ KL. 4 í DAG VATNSVIRKINN/U ÁRMÚU 21 - PÓSTHÓLF 8620 - 128 REYKJAVÍK SÍMAR: VERSLUN 686455, SKRIFSTOFA 685966
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.