Morgunblaðið - 25.01.1986, Page 32
32
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986
Morgunblaðið/Ámi Sœberg
*
Islenska hljómsveitin:
Frumflutningur á
íslenskri kvik-
myndatónlist
A FIMMTU áskriftartónleikum Islensku hljómsveitarinnar í
vetur verða flutt þijú verk, Siegfried Idyll eftir Wagner, Alt-
Rapsódía eftir Brahms og nýtt hljómsveitarverk eftir Hróðmar
Sigurbjörnsson, „Eins og skepnan deyr“, úr samnefndri kvik-
mynd. Flytjendur með hljómsveitinni á þessum tónleikum eru
Karlakórinn Fóstbræður og Jóhanna V. Þórhallsdóttir einsöngv-
an. Stjórnandi hljómsveitarinnar að þessu sinni er Ragnar
Björnsson.
I frétt frá hljómsveitinni segir
að tónlistin eftir Hróðmar Sigur-
bjömsson við kvikmynd Hilmars
Oddsonar „Eins og skepnan deyr“,
verði flutt í heild sinni í'fyrsta sinn
á þessum tónleikum. Hróðmar út-
skrifaðist úr tónfræðideild Tónlist-
arskólans í Reykjavík 1984 og
stundar hann nú nám við tónlistar-
háskólann í Utrecht í Hollandi.
Hann hefur samið verk fyrir ýmis-
konar hljóðfæraskipan og hefur
Reykjavík
200 ára
- margt gert til hátíðabrigða á afmælisárinu
Samþykkt hefur verið i borgarstjóm að minnast 200 ára afmælis
Reykjavíkur með veglegum hætti, en 18. agúst nk. eru 200 ár liðin
síðan Reykjavík fékk kaupstaðarréttindi. I nýsamþykktri fjárhags-
áætlun borgarinnar er gert ráð fyrir að veita 20 milljónum til
afmælisins. Sú upphæð rennur fyrst og fremst til að standa straum
af kostnaði við hátíðardagskrá afmælisdagsins, en hins vegar munu
ýmsar stofnanir borgarinnar, sem hafa sjálfstæðan fjárhag, minnast
afmælisins með ýmsum hætti. Einnig munu ýmis félög og fyrirtæki
minnast afmælisins sérstaldega. Afmælisnefndin hefur látið gera
ýmiss konar minjagripi, sem seldir verða á almennum markaði.
Árið 1984 skipaði borgarráð
nefnd til að hafa með höndum yfír-
stjóm afmælishaldsins. Nefndina
skipa: Davíð Oddsson, borgarstjóri,
sem jafnframt er formaður, Markús
Öm Antonsson, Ingibjörg Rafnar,
María Jóhanna Lárusdóttir, Gísli
B. Bjömsson. Gerður Steinþórs-
dóttir og Sigurður E. Guðmunds-
son. Framkvæmdastjóri nefndar-
innar er Stefán Kristjánsson, fyrr-
verandi íþróttafulltrúi.
Á árinu er fyrirhugað að minnast
afmælisins með ýmsum hætti. Það
sem þegar hefur verið ákveðið er
eftirfarandi:
Opinber heimsókn
forseta Islands
Forseta íslands hefur verið boðið
í opinbera heimsókn til Reykjavíkur
á afmælisdaginn 18. ágúst.
Fj ölsky lduhátí ð í
Hljómskálagarði
Fjölskylduhátíðin hefst eftir há-
degi afmælisdaginn 18. ágúst og
verður þar fjölbreytt dagskrá, er
höfðar til bæði bama og fullorðinna.
Undirbúning fjölskylduhátíðar hef-
ur sérstök nefnd með höndum.
Hana skipa: Bergur Felixson, for-
maður, Anna K. Jónsdóttir, Sigríður
Hannesdóttir og Hallveig Thorlac-
ius.
Veisluborð
Að lokinni íjölskylduhátíð er
fyrirhugað að bjóða upp á veitingar
í miðbænum. Á ýmsum stöðum í
miðbænum verða þá jafnframt
skemmtanir með hljóðfæraleik o.fl.
Undirbúningsnefnd fyrir þennan
þátt skipa: Sigurður E. Guðmunds-
son, formaður, Ásgeir Hannes Ei-
ríksson, Pétur Sveinbjamarson og
Gunnar Snorrason.
Hátíðardagskrá
á Arnarhóli
Um kvöldið verður hátíðardag-
skrá á Amarhóli. Þar verða flutt
ávörp, ræður og skemmtidagskrá.
Hátíðinni lýkur með flugeldasýn-
ingu.
Dagskrárgerð og umsjón með
undirbúningi hafa með höndum
Hrafn Gunnlaugsson og Kjartan
Ragnarsson.
Reykjavík í 200 ár
— sýning á Kjar-
valsstöðum
Dagana 16. ágúst til 28. septem-
ber verður opin sýningin Reykjavík
í 200 ár á Kjarvalsstöðum. Þar
verður með líkönum, myndum og
munum sýnd þróun Reykjavíkur sl.
tvö hundruð ár, auk þess sem einnig
verða fluttir fyrirlestrar, leikþættir
o.fl.
Undirbúningsnefnd skipa: Þor-
valdur S.- Þorvaldsson, formaður,
Páll Líndal, Magnús Tómasson,
Gísli B. Bjömsson, Gísli Kristjáns-
son og Ragnheiður Þórarinsdóttir.
Starfsmaður sýningarinnar hefur
verið ráðinn Magnús Tómasson,
myndlistarmaður.
Tæknisýning í nýja
Borgarleikhúsinu
17. ágúst til 28. september verð-
ur opin sýning, sem margar borgar-
stofnanir svo og Landsvirkjun
standa að.
Á sýningunni verður kynnt m.a.
orkuöflun og orkudreifíng svo og
starfsemi stofnananna. Þetta verð-
ur gert með líkönum, myndum,
munum ogmyndböndum.
í undirbúningsnefnd eiga sæti:
Þórður Þ. Þorbjamarson, formaður,
Ingibjörg Rafnar, Jóhannes Zoéga,
Jóhann Már Maríusson.
^DAGÁTAT
imm raaðAR . aphíi,
Í.JfM. . JJ v'A«-«
AJþjí"iV«iy.
bers«nnjlo>r. vlé
baigwndik.
UAI
10. 20. JAN
-Miúiunnar.
Xja>VHl*atóðum.
ir JAN
Sttría.’nxruut.'A:
fí K y'n': a ví’a : i J x: t
' HS*j*
M .ViSf MESR.
P^yhícnikm-
skxK-n.y,
j4 pebr.
-atUJxUiko)
<.h9ro1kc»(«m.
10 tii MAÍ
M-j-.ú: 03 - »>•»:::« I :
’ :«■« Jaiahei: -
idaíílAÍ •
Kaupattrtnan
tl MAf
; fc;*r:»pyrr:ul»:&>jW
VaJiif?6*:H-
t& AfKÍL
AAnJMlúxtauur
ÍOÍIMJ UlHlldí.
t5.-J3.AP.Rfc,
Evrojxiit4pjx.il
i.':fíuitn«:tl«*. í*Ur.<t; ;
brtAiiMAtib
HaykiavikurhtJfti.
; 31.MAI-1?. JtTNl
UttahXtid
t JÚW!
• (lorj*
.....Unæg
fiJVNÍ
fhfíÚlidm&Uii
opi:*Aui :
b -VNI
:■ u.í'n;,>o::iw.
Skf-pnxi::á;tí«au;
7. UÍ. XW1
PaoruMtrvflu
tRayktarifc.
v. JUNl
Í-Uatalaxwi írl
iir*tti*l«.:
» Xntl
7úíjí«4ku ■Tfmaí
' Jxuj:)h<í Ixiritós.
8 JCNl
Ox'xaloifcudU
r>:»ra«;ar..
9. JÚNÍ
P^ixVtf-nJeslotr—
CUuflfoAiuu.
tö JVNÍ
''•:;'•;> >::|.>:Va> (>:»::
Acxfcawa
-...MaaÁ......J
XtaíKkfU'
i.rirtf
LaixiatxujkiJKíd:..
100 3u Op»m4.
ry.Xr.u: h>>*»k>»::i
S«5UJxuJcaox
4 -B JÚlJ
HiUíOehiJJri 3::&rí.j: *.
. lHagftfjcnþilyHiiyj
8 a fí<m
Vá,-S»jk«(j*«>>4tfcg
íyrít udtu utf
utbljv«>»>.
' X t'JKV.
A.'»:.-<-!:jl;:íti0 Jíáskhl.
.... Waw5*..................
Kklvarnarvtkx
SidJckvtOð*
Hayajavikw.
<ió*:»s»íVhchU«'
I? MAÍ
Þajur Pjarvxjvns*-:
!éU»y« Rcyk.:»v:fcri
1S> ÍAAl
Kjx i>,U2u3*{jp
r nAuiikt.
V.. JOtf
MMCHKtfUuUutin.
lS.JÚNt
17 j0n(
hjtJðixríió.
lti.JÍ-tí!
Hugu)i y':<
Ati»nt*tuií.
18 27 J0li
IWrítð nonxvujx
Jurí&inas».t ixt
*k«s>.'r.tiiciK!ut
24 ,ogJ6. APRtl.
K.»kt*íxt»n
?í*th**>A)r tfcríxfcxi
vacrw 70 •»» aí:;»sJts. ;i
23.0AN
>«y».:i*(AU0t8
Tl*a ;f>::::< éC *.-X •
J:*tiAa!;<j^l
28. fflfh.
Opr*.:nhiíM»
BorgaiJjCkxMir::* t .
G«rðut»>::;i
28.rSBR.-3.MAHS
SynnJngarvflia
BorgarbákAiitilna
ÍUJjtúar:
Osnnn MUg*m^-
ítú»v»rvX>
V'nataákýJl
Oi*fcI: »4,»X<-pp<á um
n*>Vjivn»;:úyj
Ojxivn houráa* lyrír
. &!.'!;x9» (SvaotUfc ■
31.MA1-17.30N1
Uat*hiU6.
iJ.l/iA'
Pacto PJcaxos •
28.JUNI
Vk>v(aría»1
fvt>>al<ság* UiatvJx
2S 23.3ÚN1
VkVryyttJuV.
J7Mv5«át.
IftAOUST
SfcJ'ítcwíCÚöUUwla
rr>'v> halfcansiit*}
«VrJ::<j» í Su:;<J*á*ið;.
1S 17 AOdST
ftxhlUiujhl í
LaugaitJal
■'á/ááfrMv/jv/j/srM,
1». Acúst
Kokfcbaríd*
Ainacbáll.
20. AOÚST
Jaa*tá»J«Uui á
AtnarháU.
20 AOÍKT
Lxrdíir'.ku'
Iknaíupvrou
Wuiagu: UUnil
23 AOÚ8T
Fiugjlagur.
23 AriiJST -7 S£B. í;
: íiosiJ'.fcí 'AS <vríi:;g í ¥
. Laug*«UJxb0ll
F:::<fj:kIMyiwvo -
RtUv IríríArkfc-
taínaix.
24. OX7
Skov-tJ*ktx:'AUg
KrykjavOn:c40áJ«.
Þegar hefur verið gefið út dagatal fyrir 200 ára afmælisár Reykjavíkur. Þar eru færðir inn þeir við-
burðir, sem þegar eru ákveðnir. Dagatali þessu verður dreift ókeypis til allra fjölskyldna í Reykjavík.
Starfsmaður sýningarinnar hefur
verið ráðinn Baldur Hermannsson,
eðlisfræðingur.
Rokkhátíð og djass-
tónleikar
Þann 19. og 20. ágúst verða
rokkhátíð og djasstónleikar á Am-
arhóli.
Reykjavíkurkvikmynd
Unnið er að gerð kvikmyndar,
sem tileinkuð er Reykjavík. Hún
lýsir mannlífí í Reykjavík vorra
daga. Hún verður frumsýnd 19.
ágúst.
Höfundur og stjómandi er Hrafn
Gunnlaugsson.
Kvikmyndatökumaður er Tony
Forsberg frá Svíþjóð.
Sýning í Árbæjarsafni
í sumar verður sýning á myndum
og munum er tengjast sögu Reykja-
víkur. Sýningunni verður komið
fyrir í gamla prófessorsbústaðnum
frá Kleppi. Sýningin mun standa út
afmæiisárið og verða á vissan hátt
kjami Árbæjarsafns í framtíðinni.
Á vegum Árbæjarsafns hefur
verið gefíð út almanak með gömlum
og nýjum kortum af Reykjavík, sem
sýnir þróun byggðar í borginni.
Almanakið er til sölu í bókaverslun-
um og Árbæjarsafni.
Listahátíð
Listahátið fer fram í Reykjavík
31. maí til 17. júní. Mun þar m.a.
tekið mið af 200 ára afmæli borgar-
innar.
Eftirtalin atriði hafa þegar verið
ákveðin:
Sýning á verkum Pablo Picasso,
dagskrá vegna komu rithöfund-
arins Doris Lessing,
gestaleikur frá Dramaten,
tónleikar Tomas Lander, bariton,
píanótónleikar — Claudio Arrau,
orgeltónleikar — Colin Andrews,
tónleikar Vínarkvartettsins,
tónleikar Sinfóníuhljómsveitar
íslands.
Framkvæmdastjóri Listahátíðar
er Salvör Nordal.
Reykjavíkurlag
Efnt hefur verið til samkeppni
um Reykjavíkurlag í samvinnu við
sjónvarpið. Frestur til að skila inn
lögum er til 31. janúar. Úrslit verða
kynnt í aprílmánuði.
Dómnefnd skipa: Svavar Gests,
form., Birgir ísl. Gunnarsson, Krist-
ín Ólafsdóttir, Friðrik Þór Frðriks-
son, Gunnlaugur Helgason, dag-
skrárgerðarmaður.
Saga Reykjavíkur
Unnið er að skráningu á sögu
Reykjavíkur. Á afmælisárinu kemur
út eitt bindi, Bæjar- og borgarfull-
trúatal.
Páll Líndal hefur ritstýrt verkinu.
Fegrun borgarinnar
Hátíðamefndin leggur á það
áherslu að í sambandi við afmælið
verði gert sérstakt átak í að fegra
og snyrta Reykjavík og að sem allra
flestir einstaklingar og fyrirtæki
taki þátt í því.
Á sl. ári var fegrunarvika í borg-
inni, sem þótti takast vel. Þann