Morgunblaðið - 25.01.1986, Page 39

Morgunblaðið - 25.01.1986, Page 39
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986 39 Arni Björn Þor- valdsson - Minning Fæddur 8. febrúar 1937 Dáinn 16. janúar 1986 Sl. nýársnótt þegar við Ámi Bjöm Þorvaldsson tókumst í hendur og kvöddumst mun hvorugan hafa grunað að það yrði síðasta kveðjan. En hann andaðist 16. janúar sl. Við Ámi Bjöm og konur okkar höfum átt saman kvöldstund um flest áramót frá því um 1960. Árið 1981 tók Ámi Bjöm að kenna þess sjúkdóms er varð honum að aldurtila. Á miðju sumri 1982 var svo komið að Ámi Bjöm þurfti að nota hjólastól. Við sem fylgd- umst með framvindu mála hug- leiddum hversu lengi baráttan gæti staðið. En um lokin var aldrei rætt í samtölum okkar heldur sagði Ámi Bjöm mér og öðrum sem til hans komu hvað hann hygðist gera næst eða væri búinn að gera til að takast á við lífíð. Þar var ekkert til sparað til að færa sér nýja tækni í nyt er kraftardvínuðu. Ámi Bjöm fæddist á Húsavík 8. febrúar 1937. Foreldrar hans vom Þóra Sigurbjömsdóttir og Þorvald- ur Ámason. Þau eignuðust 2 syni, Áma Bjöm og Ingvar. Þeir misstu móður sína 1940, Ámi þá aðeins þriggja ára. Vafalítið hefur móður- missirinn mótað Áma á sinn hátt eins og fleiri sem fyrir slíku verða. Þeir bræður ólust síðan upp með föður sínum, en 1950 giftist Þor- valdur Karólínu Sigurpálsdóttur og dvöldust þeir bræður þar til fullorð- insára. Þar eignuðust þeir 6 systk- ini._ Ami fór mjög ungur að vinna, fyrst sem sendisveinn og síðan við línuvinnu og síldarvinnu. Þegar komið var fram yfír sextán ára aldur var farið á vertíð í Grindavík og Keflavík og á síld á sumrin. Á þeim tíma þótti sjálfsagt að ungt fólk færi frá Húsavík í atvinnuleit eftir hver áramót, aðallega til Suð- umesja ýmist til sjós eða í frystihús enda engar atvinnuleysisbætur á þeim ámm. Árið 1954 byggir Ámi Bjöm í félagi við föður sinn tvílyft hús að Laugarbrekku 15 og eignast neðri hæðina, þá aðeins 17 ára gamall. Þetta segir sína sögu um þennan unga pilt sem snemma vildi verða sjálfbjarga. Þannig hefír vinnusem- in mótað öll systkinin í æsku og öll hafa þau reynst dugmikið fólk og traust. Árið 1957 hóf Ámi Bjöm nám í bifvélavirkjun á vélaverkstæðinu Foss þar sem faðir hans var fram- kvæmdastjóri. Ekki liðu mörg ár þar til Ámi Björn var orðinn verkstæðisformað- ur og gegndi því starfí í nokkur ár. Þeir sem til slíkra starfa þekkja og þangað þurfa að leita vita að þar, ekki síður en annars staðar, er erfítt að gera svo öllum líki. Ámi Bjöm sem ávallt var ein- staklega samviskusamur í starfí og fyrirgreiðslusamur var oft þreyttur og leiður á ýmsu sem fylgdi. Enda minnist ég þess oft þegar við vomm að skemmta okkur að ýmsir þurftu að ræða málin við Áma Bjöm. 1974 hætti hann störfum við Foss og hóf vinnu hjá bifreiðaeftir- litinu á Húsavík og starfaði þar í 4 ár. Jafnframt fékkst hann við bfla- viðgerðir í bflskúr heima hjá sér á kvöldin. Einnig stundaði hann leigubfla- akstur um helgar. Þá var skotist í ferðalag að kvöldi eða nóttu ef svo bar undir. Varð vinnudagur því oft langur á þessum ámm. Árið 1975 stofnaði Ámi Bjöm Bflaleigu Húsavíkur ásamt þrem öðmm og var Ámi Bjöm fram- kvæmdastjóri til dánardægurs. Þetta fyrirtæki hefir verið í ömm vexti allt frá stofnun. í tilefni 10 ára afmælis bflaleig- unnar var haldið veglegt hóf á Hótel Húsavík í lok nóv. sl. þar sem mættir vom starfsmenn og hlut- hafar núverandi og fyrrverandi. Ami Bjöm lét sér ekki nægja starfíð við fyrirtækið. Hann var félagslega sinnaður. Hafði yndi af söng, starfaði um skeið í karlakóm- um Þrym og kirkjukór Húsavíkur þar sem hann söng m.a. eftir að hann var kominn í hjólastól og var hjálpað upp á loft í kirkjunni með hjálp góðra vina. Hann setti sig ekki úr færi að hlýða á tónleika ef kostur var. Hann var félagi í Lions- klúbbi Húsavíkur og i Sjálfsbjörg á Húsavík og var þar formaður er hann lést. Fór sem fulltrúi lands- samtaka Sjálfsbjargarfélaganna á þing fatlaðra f Finnlandi árið 1984. Þá var Ámi Bjöm í stjóm Ferða- málafélags Húsavíkur er hann lést. Alls staðar var hann áhugamaður, þátttakandi og góður félagi. Hann brást með hetjuskap við þeim sjúkdómi sem olli hrömun svo að fætur urðu máttlausir, síðan handleggir. Þá var röddin notuð. Og hún var að bresta er yfír lauk. Það sýnir vel æðmleysi þessa ágæta drengs er hann lét svo um mælt er hann var kominn í hjóla- stól og ekki vitað hvert framhaldið yrði: „Það þarf svo sem ekki að vor- kenna mér. Ég hef mitt fyrirtæki, ég stjóma minni vinnu sjálfur og get lagað mið að aðstæðum." Og það gerði hann til hinstu stundar. 25. desember 1960 gekk Ámi Bjöm að eiga eftirlifandi konu sfna Jónu Guðlaugsdóttur frá Stóra- Laugardal í Tálknafírði. Þau hófu búskap í Laugarbrekku 15 og dvöldu þar uns þau keyptu húsið nr. 2 við Höfðabrekku 1967 og fluttu þangað og hafa átt þar heim- ili sfðan. Böm þeirra em 4: Þorvaldur Þór, bifvélavirki, dvelst heima; Ásrún, gift Óskari Kristjánssyni, þau vom gefin saman á 25 ára brúðkaupsafmæli Áma og Jónu 25. des. sl.; Guðlaugur, býr með Jónu Matthíasdóttur; Alma, dvelst heima. Ámi Bjöm var mikill hamingju- maður í einkalífi og hefír fjölskyld- an stutt hann með aðdáunarverðri samheldni frá þvf að heilsu Áma tók að hraka. Bömin hafa smám saman axlað og skipt með sér verkum og ábyrgð í fyrirtækinu eftir því sem líkams- þrek Áma hefir dvínað. En hann var þó sá sem ákvörðun tók. Heima hefír Jóna verið það bjarg sem allt annað hefir hvflt á. Það vita þeir best sem til þekkja. Jóna mín. Megi minning um góð- an dreng, sem hélt fullri reisn til loka og stóð lengur en stætt var, vera fjölskyldunni hvatning til að halda merki hans á loft. Við Adda vottum fjölskyldunni innilega samúð og biðjum góðan Guð að styrkja ykkur. Gunnar Páll Jóhannesson JL-byggingavörur: Samningur um sölu á Árfells- innréttingum JL-byggingavörur sf. hafa gert samning um sölu og fram- leiðslu á ölium innréttingum, sem fyrirtækið Árfell hf. hefur hann- að og framleitt. Hér er um að ræða skilrúm, sem eru notuð til þess að skipta herbergjum, og eru skilrúmin, ásamt inni- og útihandriðum, samsett úr stöðl- uðum einingum. Eins og áður, þá sér Ámi B. Guðjónsson um alla hönnun og teikningar af umræddum innrétt- ingum, ásamt hverskonar sérút- færslum s.s. fyrir hótel og veitinga- hús. Teiknistofa Áma B. Guðjóns- sonar heitir ÁRIS og er til húsa í Ármúla 20. Á næstu mánuðum verður unnið að uppsetningu sýn- ingarsals í nýju verslunarhúsnæði . JL-byggingavara á Stórhöfða. 70% DÚNÚLPUR 2.990 STREDSSKÍÐABUXUR 990 BARNALÚFFUR 100 VATTHÚFUR290 l‘M ATHLETTIC GALLAR 990 VATTBUXUR750 SKÍÐAGALLAR BARNA 1.990 SKÍDAGALLAR 2.790 SKÍÐASAMFESTINGAR 1.490 ROCKY-JAKKAR 1.290 »hummePá?

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.