Morgunblaðið - 25.01.1986, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 25. JANÚAR 1986
51
VELVAKANDI
SVARAR f SÍMA
10100 KL. 10—11.30
FRÁ MÁNUDEGI
w, TIL FÖSTUDAGS
lí ní'Kifftuii-i'l
Dallas
— besta sjón-
varpsmyndin
Heiðraði Velvakandi.
Víkveiji er stundum að gera lítið
úr Dallasþáttunum. Nú síðast var
hann að að bera saman heimilið á
Hornbjargsvita og Southfork í
Dallas. Nokkuð er þessu ólíkt
saman að jafna, enda langt milli
þessara staða, þó eiga þessi tvö
heimili það sameiginlegt að vera
heimili en olíuna vantar bara í
Látravík. Timbrið er þar í staðinn
og vissulega væri hægt að deila um
það.
Báðir staðimir eru bújarðir og
hafa sést nautgripir og hestar á
Southfork en á Hombjargsvita veit
ég ekki hvað er til búskapar. Villtar
tófur sáust á ferli í umræddri mynd,
sem Víkverji tekur samanburð sinn
úr, en það var í sjálfu sér ekkert
merkilegt. Lífið hlýtur að vera til-
breytingarlítið á þessum afskekktu
stöðum og svekkjandi að láta aðra
leggja sér allt upp í hendumar.
Annars er ekki hægt að gera þessu
skil í stuttu máli.
Dallasþættimir em að mínum
dómi með því besta sem sýnt er í
sjónvarpinu enda ekki af miklu að
státa á þeirri stofnun. Dallas gefur
glögga mynd af fjölmörgum atrið-
um í fólks og sjálfsagt oft stuðst
við raunvemlega atburði. Ef ein-
blínt lífi er á bellibrögð JR og
keppnina um yfirráðin yfir olíunni
þá má segja að ekki væri eftirsókn-
arvert að glápa á þetta ef ekki
væri einhver spenna. Það sýnir líka
hvemig fólk getur látið illt og gott
af sér leiða.
Það má líka segja Dallasþáttun-
um til málsbóta að ekki em þar
mannvíg þótt hart sé barist. Lífið
getur verið erfitt þótt auðurinn sé
fyrir hendi. Margar myndir í sjón-
varpinu em um allskonar ólifnað
og má nefna ömurlegt dæmi um
það — íslenska leikritið sem sýnt
var á annan í jólum. Þar lá fólk
drykkjudautt í rúmi og allsbert út
um öll gólf, og var sýnt morð sem
afleiðing ólifnaðarins. En ég er
hræddur um að vínelskendur hafi
ekki litið svo á að víninu væri þama
um að kenna. Vínneyslan er orðin
svo fastur liður í lífi fólks að það
blindast af vímunni, en sér ekki
bölvunina sem af henni hlýst.
Þorleifur Kr. Guðlaugsson
Handriðið vantar
Til Velvakanda.
Um leið og ég sendi þér þessa
mynd, Velvakandi góður, af tröpp-
unum við Leifsstyttuna vil ég
hreyfa því um leið að það væri til
mikilla bóta og m}mdi auka öryggið
að sett yrði upp smekklegt, ömggt
handrið við þessar tröppur. Ég tel
að hér sé líka um að ræða mál sem
snertir sjálfa Hallgrímskirkju vegna
kirkjugesta. Þeir ættu líka að styðja
framgang þessa þarfa átaks.
I von um að þeir starfsmenn
borgarinnar, sem svona ábendingar
falla undir, taki þetta mál föstum
tökum og hrindi því í framkvæmd.
Skólavörðuholtsbúi
Ahugaverð skrif
um endurholdgun
Til Velvakanda.
Það hefur verið áhugavert að
lesa þau skrif sem birst hafa um
endurholdgun siðan vakin var at-
hygli á bókinni Out on a Limb (Á
ystu nöf) eftir Shirley MacLaine í
Velvakanda. Vil ég sérstaklega
þakka fyrir grein Omars Svein-
bjömssonar um þessi efni. Að minni
hyggju var hún skemmtileg og skýr,
án staðhæfinga og sleggjudóma,
og fjallaði um það efni sem hlýtur
að vekja spumingar hjá hugsandi
fólki. Hvort fólk nennir svo að leita
svara við þessum spumingum er
svo annað mál.
Um „sannanir" með eða á móti
er auðvitað ekki að ræða — „sönn-
un“ á því hvað lífíð er í eðli sínu
er ekki einu sinni til. Og þó er lífíð
í bijósti okkar allra. En umhugsun
og rannsókn á því í ljósi staðreynda,
hvort menn eiga fortíð og framtíð
margvísjegra lífsskeiða finnst mér
að hveijum manni hljóti að vera
eðlileg. Hvort tilgangur er með líf-
inu? Hvort ólík kjör og aðstæður
séu einungis tilviljun? Hvort við
ráðum sjálf einhveijum um aðstæð-
ur okkar og skilyrði hér og nú?
Hvort breytni okkar skiptir máli,
og hvers vegna?
Það fer svo eftir niðurstöðum
hvers og eins eftir samanburð eigin
reynslu, skilning og hugrekki, hvort
okkur finnst slíkt þróunar- og
þroskaferli líklegt eða ekki.
Ágústa P. Snæland
Minar hjartanlegustu þakkir til vandamanna
og vina og allra þeirra, sem glöddu mig meÖ
heimsóknum, gjöfum og heillaöskum á sjötugs-
afmœli mínu þann 20. þessa mánaÖar.
Guðmundur Ludvigsson,
Tjarnarstig 7,
Seltjarnarnesi.
V-reimar og
reimskífur í úrvali.
G.J. Fossberg
vélaverzlun hf.
Skúlagötu 63
Símar 18560-13027
HARVEY
SKJALASKÁPAR
er vönduð ensk framleiðsla á
hagstæðu verði...
2 — 3 — 4 — 5 skúffu skápar.
Einnig skjalabúnaður í fjöl-
breyttu úrvali.
Síðumúla 32. simi 38000