Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 56

Morgunblaðið - 25.01.1986, Side 56
i TJöfðar til XTX fólks í öllum starfsgreinum! DTT KORT AUS SERMR LAUGARDAGUR 25. JANÚAR1986 VERÐ í LAUSASÖLU 40 KR. 5 yfirmenn SÍS ákærð- ir í,, kaffibaunamálinu ‘ ‘ SÍS varð að lúta reglum í Brasilíu, segir Erlendur Einarsson forstjóri RÍKISSAKSÓKNARI gaf í gær út ákæru á hendur fimm starfs- mðnnum Sambands íslenskra samvinnufélaga í svokölluðu „kaffibaunamáli"; þeim Erlendi Einarssyni, forstjóra, Hjalta Pálssyni, framkvæmdastjóra innflutningsdeildar, Sigurði Á. Sigurðssyni, forstöðumanni Lundúnaskrifstofu SÍS, Gísla _Jlieódórssyni, forstöðumanni XiUndúnaskrifstofunnar til 1980 og Arnóri Valgeirssyni, deildar- stjóra fóðurvörudeildar innflutn- ingsdeildar SÍS, en hann tók við henni af Sigurði 1980 er hann hélt til Lundúna. Þeim er gefið að sök að hafa náð undir SÍS með refisverðum hætti samtals 4,8 milljónum dollara — um 200 miiyónir króna — af innflutn- ingsverði kaffibauna, sem Kaffi- brennsla Akureyrar hf. flutti inn ^ árunum 1980 og 1981 með milligöngu SÍS. Þeim er einnig gefið að sök skjalafals og brot á lögum um skipan gjaldeyris- og viðskiptamála. Háttemi þeirra þykir varða við auðgunarkafla hegningarlaganna, 248. grein, sem kveður á um að hver, sem á ólögmætan hátt hag- nýtir sér óljósa hugmynd einhvers og hefur þannig af honum fé, þá varði það fangelsi allt að 6 árum. Einnig eru þeir ákærðir fyrir brot gegn 155. grein sömu laga, sem kveður á um skjalafals. Jafnframt eru þeir ákærðir fyrir gjaldeyris- brot. SÍS er sakað um að hafa fram- vísað reikningum án þess afsláttar, sem sölufyrirtæki í Brasilíu veitti, þegar gjaldeyrisyfírfærslur fengust hér á landi fyrir samtals 16 milljónir dollara. SÍS greiddi aðeins hálfa elleftu milljón dollara og er mis- munurinn 5,5 milljónir dollara. En sem fyrr segir er SÍS sakað um að hafa náð undir sig með refsiverðum hætti 4,8 milljónum dollara, eða sem nemur um 200 milljónum króna. SÍS endurgreiddi þetta fé þegar rannsókn skattrannsóknar- stjóra stóð sem hæst árið 1984. í yfíriýsingu frá Erlendi Einars- syni, forstjóra SÍS, sem barst Morg- unblaðinu í gær, segir hann að fé hafí ekki verið haft af samfélaginu og að SÍS hafí orðið að „lúta reglum stjómvalda Brasilíu um hin svoköll- uðu tvíþættu reikningsskil á kaffí- útflutningsviðskiptum". Og enn- fremur segir forstjóri SIS um ákæmatriði; „ . . .ég fæ ekki bet- ur séð en meðal þeirra sé ávirðing- aratriði um að hlíta viðskiptakjörum Brasilíumanna á alþjóðlegum kaffí- markaði . . .“ Morgunblaðið reyndi í gærkvöldi að ná tali af öðrum ákærðu í málinu, en án ár- angurs. Valur_ Amþórsson, sljómarfor- maður SÍS, segir að ákæmatriði séu vissulega alvarleg og leggur áherslu á að dómstólar skeri úr um sekt eðasýknu. Ákæmvaldið mun reka mál þetta fyrir Sakadómi Reykjavíkur. Sjá: „Dómstólar skeri úr um sekt eða sýknu“, yfir- Iýsingu Erlends Einarsson- ar, fréttatilkynningu ríkis- saksóknara og upprifjun „kaffibaunamálsins" á blaðsíðu 4. Ráðherraskipti Morgunblaðið/Ól. K. Mag". í gær urðu breytingar á ríkisstjórninni. Geir Hallgrímsson lét af embætti utanrikisráðherra en við því tók Matthias Á. Mathiesen sem áður var viðskiptaráðherra. Myndin var tekin i utan- ríkisráðuneytinu i gær þegar Geir afhenti Matt- híasi lyklana að skrifstofu utanrikisráðherra. Sjá viðtöl við Geir Hallgrímsson og Matthías Á. Mathiesen á blaðsíðu 2 og forystugrein i miðopnu. Tveir segja sig úr stjórn Þróunarfélagsins: -Grundvöllurinn brostinn eftir afskipti Steingríms — segir Davíð Scheving Thorsteinsson, fráfarandi stjórnarformaður, um ráðningu framkvæmdastjóra DAVÍÐ Scheving Thorsteinsson, kvæmdastjóri félagsins. Vara- _8tjómarformaður Þróunarfélags formaður Þróunarfélagsins, Islands hf., sagði sigúr stjórninni Þorsteinn Ólafsson, fram- kvæmdastjóri hjá SÍS, tók við í gærmorgun. Það sama gerði Hörður Sigurgestsson, forstjóri Eimskipafélags íslands. Ástæðan er sú, að sögn Davíðs, að Stein- grímur Hermannsson forsætis- ráðherra beitti áhrifum sínum innan stjómarinnar til að Gunn- ^augur M. Sigmundsson, fyrrum lorstjóri Framkvæmdastofnunar ríkisins, var ráðinn fram- formennsku af Davíð. Þrír stjómarmenn greiddu þvl atkvæði, að Gunnlaugur yrði ráðinn framkvæmdastjóri félagsins: Þor- steinn Ólafsson, Guðmundur G. Þórarinsson, verkfræðingur og Jón Ingvarsson, stjómarformaður Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna. Hugmynd Davíðs og Harðar var að Ingjaldur Hannibalsson, forstjóri Iðntæknistofnunar íslands, yrði ráðinn framkvæmdastjóri. Davíð Scheving Thorsteinsson tjáði Morgunblaðinu að hann hefði talið það höfuðskilyrði að Þróunar- félagið yrði laust undan áhrifum stjómmálamanna. Eftir afskipti forsætisráðherra af ráðningu fram- kvæmdastjóra teldi hann hugsjóna- legan grundvöll félagsins brostinn. í sama streng tók Hörður Sigur- gestsson. Jón Ingvarsson sagði að hlutlægt mat á hæfni Gunnlaugs M. Sig- mundssonar hefði ráðið afstöðu hans en ekki þrýstingur frá forsæt- isráðherra. Jón sagðist telja Gunn- laug mjög hæfan. Forsætisráðherra Steingrímur Hermannsson kvaðst ekki hafa beitt þrýstingi í málinu, en honum væri engin launung á því að hann hefði mælt eindregið með Gunnlaugi, enda væri hann úrvalsmaður. Taldi Steingrimur það fljótfæmi hjá Davíð og Herði að segja af sér. Sjá „Hugsjónagrundvöllur fé- lagsins brostinn" á bls. 4—5. 8 tonn af fuglafóðri á harðfennið SMÁFUGLAR hafa farið um höfuðborgarsvæðið i stórum flokkum undanfama daga og haft árangur sem erfiði á frostdögum, þvi 8 tonn af fuglafóðri hafa farið út frá Fóðurblöndunni síðustu daga. Setja varð á sérstaka auka- vakt til þess að kurla maís í fuglafóðrið en fólk virðist taka vel við sér þegar harðnar í daln- um hjá smáfuglunum. Morgun- blaðið ræddi við fólk í húsi einu í Hólunum í Breiðholti, þar sem smáfuglunum er reglulega gef- ið, og sögðu húsráðendur að það væri sérkennilegt að vakna við fjörlegan fuglasöng á þessum árstíma. Viðskiptaráðherra: Lækkun olíuverðs dregst vegna óseldra bírgða „ÞAÐ hefur ekki verið tekin ákvörðun um hvenær lækkun olíuverðs kemur til fram- kvæmda, þar sem enn eru tals- verðar óseldar birgðir til í landinu á gamla verðinu," sagði Matthias Bjarnason, viðskipta- ráðherra, er hann var spurður um lækkað verð á bensfni og gasolíu í kjölfar lækkandi olíu- verðs á heimsmarkaði. Matthías sagði að þróunin að undanfömu hefði verið með þeim hætti, að verðlækkun væri fyrirsjá- anleg þótt enn lægi ekki fyrir hversu mikil hún yrði né hvenær hún kæmi til framkvæmda. Hann kvaðst ekki telja eðlilegt að halda olíuverði óbreyttu við þessar að- stæður og sagði að ætla mætti, að áhrifa þessarar verðþróunar tæki að gæta eftir um það bil 2 mánuði. Varðandi hugmyndir Sovét- manna um að draga úr olíufram- leiðslu, sagði Matthías að hann hefði ekki trú á að það hefði áhrif á olíuviðskipti okkar fslendinga við þá. „Við höfum samið við Sovétríkin um olíuviðskipti og ég hef enga ástæðu til að ætla annað en að þeir standi við sína viðskiptasamn- inga við okkur," sagði Matthías Bjamason.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.