Morgunblaðið - 26.01.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR 1986
B 5
j$á sem á tvö tæki, dálítið af óáteknum mynd-
böndum og aðgang að erlendum kvikmyndum
er með gullnámu í höndunum
SJÁ: AFÞREVING
100 þúsund
hafa komist
heilir í höfn
Skömmu eftir áramót kom frú
Vo Thi Han til Amesterdam
ásamt tveimur bömum sínum. Þau
komu frá Víetnam og var frúin 100
þúsundasti flóttamaðurinn sem fór
frá heimalandi sínu samkvæmt
„skipulagðri flutningaáætlun"
Sameinuðu þjóðanna.
Þessi áætlun hófst árið 1979.
Þá streymdu flóttamenn frá Víet-
nam yfir Suður-Kínahaf. Oft voru
þeir á hriplekum bátum og urðu
að auki fyrir barðinu á sjóræningj-
um sem hvarvetna vom á sveimi.
Árið 1979 er talið að 200 þúsund
manns hafi flúið með þessum hætti
frá heimalandi sínu.
‘ Eftir að Sameinuðu þjóðimar
reyndu að skakka þennan hættu-
iéga leik hefur bátafólkinu svokall-
BÁTAFÓLK — Hriplekir kláfar,
sökkhlaðnir — og sjóræningja-
hættan að auki.
aða farið fækkandi. Á síðasta ári
vom þeir innan við 20 þúsund sem
völdu hina áhættusömu flóttaleið
en 24 þúsundir fluttust búferlum
samkvæmt flutningaáætlun Sam-
einuðu þjóðanna.
I starfi Sameinuðu þjóðanna er
tekið mið af flóttamannasáttmál-
um. Því er haldið fram að sérhver
einstaklingur eigi rétt á að hverfa
úr landi til að komast hjá ofsóknum.
Um skeið var það opinbert leyndar-
mál að víetnamskir embættismenn
högnuðust á því að krefjast greiðslu
í gulli frá þeim sem höfðu í huggju
að flýja land með ólöglegum hætti.
Nú heyrast slíkar raddir vart
lengur. Stjómvöld í Víetnam
ákærðu nokkra „spillta" embættis-
menn fyrir að hafa reynt að hagnast
á flóttafólkinu. Þá hafa þau leyft
tvöfalt fleiri flóttamönnum en áður
að fara flugleiðis til Bankok sam-
kvæmt sérstakri heimild.
Þeir sem enn kjósa að flýja sjó-
leiðis frá Víetnam taka mikla
áhættu. Sameinuðu þjóðimar hafa
greitt thaílenskum sjóliðum fé fyrir
að hræða á brott sjóræningja sem
sitja fyrir bátafólkinu. En fólk vílar
ekki fyrir sér að leggja út á Suður-
Kínahaf þrátt fyrir lélegan farkost
og ótta við sjóræningja. í október
sl. vom 110 Víetnamskir flótta-
menn teknir um borð í skip frá
Vestur-Þýzkalandi. Þeir vom á bát
sem orðinn var eldsneytislaus úti á
miðju hafi. Flóttamennimir sáu 10
skip fara fram hjá en ekkert þeirra
kom þeim til aðstoðar.
- PETER HULM
Eru grösugri
dagar framundan
fyrir sköllótta?
Það gerðist fyrir nokkmm
ámm, að fólk, sem hafði tekið
inn nýtt ljrf við of háum blóðþrýst-
ingi, varð sér til mikillar skelfingar
kafloðið um allan skrokkinn. Ekki
fer neinum sögum af áhrifum lyfs-
ins, sem heitir minoxidil, á blóð-
þrýstinginn, en nú em bundnar
vonir við, að það geti gefíð sköllótt-
um hárið aftur.
Forsvarsmenn bandaríska lyíja-
fyrirtækisins Upjohns vonast til, að
leyfi fáist á þessu ári til að reyna
lyfið á sköllóttum mönnum og hefur
það þess vegna sótt um framleiðslu-
leyfí í Bandaríkjunum og ætlar að
sækja um það í sumar fyrir Bret-
land.
Hármeðalið á að heita Regaine
og er það áburður eða lögur, sem
inniheldur minoxidil. Þegar sjúkl-
ingamir fyrmefndu tóku lyfið var
það í töfluformi og olli því, að hár-
höfði, heldur alls staðar þar sem
hár var að fínna, svo lengi sem lyfíð
var tekið. Vora sjúklingamir því
fegnastir, að lófamir em lausir við
hársekki.
Af þessu leiddi það, að árið 1981
uppgötvaði húðfræðingurinn V.C.
Weiss, að mauk, sem gert var úr
minoxidil-töflunum, læknaði það,
sem kallast tímabundinn bletta-
skalli. Enginn veit hvemig lyfíð
verkar, það hefur engin áhrif á
hormónana en kann e.t.v. að auka
blóðstreymið til hársekkjanna.
LyQafræðingar Upjohns hafa nú
reynt lyfið á 4.000 sjálfboðaliðum
og segjast þeir ekki vera í neinum
vafa um mátt þess og einnig, að
það hafí engar óhollar aukaverkan-
ir.
Bera verður Regaine í hársvörð-
inn daglega og mun það þá örva
vöxt þess hárs, sem eftir er, og
vonandi einnig vekja af þymirósar-
svefninum þá hársekki, sem lögðust
til hvíldar strax á bams- og ungl-
ingsaldri. Eðlilegur hárvöxtur er
um hálfur þumlungur á mánuði og
þótt hann fjórfaldist mun líða mán-
uður áður en eftir því verður tekið.
Ef hætt er að taka lyfið, hættir
hárvöxturinn einnig.
Ef framleiðsluleyfið fæst mun
Regaine verða afgreitt eftir lyfseðli
en ennþá hafa þeir hjá Upjohn ekki
ákveðið hvað lyfíð á að kosta.
- CAROLINE RICHMOND
BJARGRÁЗ
Nýjar stíflur
eiga að forða
Feneyjum
Fyrir dymm standa miklar
framkvæmdir í því skjmi að
bjarga hinni fomfrægu borg Fe-
neyjum frá eyðileggingu. ítalska
rfkið og 31 bygginga- og orkufyrir-
tæki hafa í sameiningu gert áætlun
um að smíða þijá stíflugarða sem
eiga að stöðva eyðileggingu borgar-
innar af völdum ágangs frá Adría-
hafí.
Framkvæmdir þessar munu lík-
lega taka 10 ár og kostnaður verður
um 70 milljarðar króna. Hlutaðeig-
andi aðilar hafa undirritað sam-
starfssamning, og er þar með bund-
inn endir á langvarandi þrætur
meðal sérfræðinga og stjómmála-
manna, en flestir helztu stjóm-
málaflokkar á Italíu hafa látið sig
málið varða að einhveiju lejrti.
. Fyrirtækin hafa myndað sam-
steypu sem nefnist Nýjar Fenejjar.
Aðild að henni eiga mörg opinber
fyrirtæki og önnur sem em í einka-
eign og njóta alþjóðlegrar viður-
kenningar. Hinar fyrirhuguðu
framkvæmdir munu efla hag Fen-
eyja og skapa borginni bjarta fram-
tíð.
Saga hennar er orðin 1175 ára
löng. Gmndvöllur borgarinnar hef-
ur jítfnan verið ótraustur í orðsins
. fyllstu merkingu, því að hún er reist
sem reknir em ofan í
botnleðjuna á grynningum Feneyja-
lóns og lúta duttlungum flóðs og
fjöra. Umhverfíð er stöðugum
breytingum undirorpið og þar er
háð þrotlaus barátta milli manns
og náttúmafla. Af þessu hefur öll
saga Feneyja einkennzt og þar hafa
löngum verið gerðar miklar ráðstaf-
anir til að bjarga borginni og efla
hana.
Á síðustu 50 ámm hefur yfírborð
borgarlandsins lækkað um 15 sentí-
metra. Að vísu hefur nokkuð hægt
á þessari þróun því að nú er strang-
lega bannað að dæla upp gmnn-
vatni til notkunar í iðnaði. Eigi að
síður heldur jrfírborðið áfram að
síga af eðlilegum orsökum.
Af þessu leiðir að á flóði streymir
sjór um borgina þar sem hún liggur
lægst og gerizt það allt að 50 sinn-
um á ári. Þann 4. nóvember 1966
kvað svo rammt að, að stormalda
skall jrfir torg heilags Markúsar og
stóðu byggingar þar í allt að 1,2
metra djúpu vatni. Þá hófst herferð
um allan heim sem miðaði að því
að bjarga borginni frá eyðileggingu.
-THOMASLAND
Austurbær
Ingólfsstræti
Þingholtsstræti
Leifsgata
Vesturbær
Ægissíða 44-78
Úthverfi
Rafstöð við Elliðaár
Ártúnsholt
(iðnaðarhverfi)
Langholtsvegur 71-108
Skeiðarvogur
NAFN ÓSKAST
„Mánudagsmyndir alla vikuna“
Munid þid eftir mánudagsmyndunum, sem
Háskólabíó sýndi fyrir nokkrum árum við
miklar vinsældir?
Nú höfum við í Háskólabiói ákveðið að
taka upp þráðinn. Hver mynd verður sýnd
í viku til tíu daga kl. sjö og níu í Regn-
boganum alla daga vikunnar. Þess vegna
þykir okkur í Háskólabíói nauðsynlegt að
finna nýtt heiti á þessar sýningar eða
myndir, og viljum við leita eftir tillögum
um heppilegra nafn.
Verðlaun fyrir besta heitið er frímiði fyrir tvo
í eitt ár í Háskólabíó eða Regnbogann.
Reglurnar eru einfaldar: Sendu eina eða
fleiri tillögur, ásamt nafni, heimilisfangi
og símanúmeri fyrir ÍO. febrúar 1986. Ef
margar tillögur berast með sama verð-
launaheitinu verður dregið úr nöfnum
sendanda þess heitis.
Utanáskriftin er:
Háskólabíó v/Hagatorg
107 Reykjavík.
^flÍMg HÁSKÚLABÍÚ sa
Bladid sem þú vaknar vió!