Morgunblaðið - 26.01.1986, Qupperneq 10
10 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 26. JANÚAR1986
MUSSOLINI
SJÓNVARPSÞÁTTUR um Mussolini á síðustu valdaárum
hans, sem myndbandaleigur hafa á boðstólum, vakti nokkurn
styrr þegar hann var fyrst sýndur á Ítalíu á síðasta ári, um
svipað leyti og 40 ár voru liðin síðan skæruliðar tóku hann
af lífi í lok síðari heimsstyrjaldarinnar. Flestir vildu gleyma
afmæli hins ítalska leiðtoga — II Duce — en myndaflokkurinn
vakti mikla athygli. Talið var að rúmlega 10 milljónir manna
hefðu horft á síðasta þáttinn af þremur. Kunnir
sagnfræðingar segja að mikillar ónákvæmni gæti í
myndaflokknum, sem kallast „Io e II Duce“ („Eg og Duce“)
og hefur verið sýndur víða um heim. Mussolini er lýst sem
hógværum, hávaðalausum og afar venjulegum manni,
„einræðisherra í inniskóm“, eins og ítalskur
sjónvarpsgagnrýnandi orðaði það.
I Einn þeirra sagnfræðinga, sem
létu í Ijós álit sitt á myndaflokknum,
próf. Gianfranco Bianchi, gerði lítið
úr honum og kallaði hann „ævin-
týrasögu". Prófessorinn lýsti
myndaflokknum á þann veg að
hann væri stórgallaður „teikni-
myndaflokkur".
Framleiðendur myndaflokksins,
sem var dýr í framleiðslu og gerður
í samvinnu við erlenda aðila, segja
að hann sé byggður á víðtækri
rannsókn, m.a. viðtölum við „ótal
sjónarvotta". Próf. Bianchi hélt því
hins vegar fram að myndaflokkur-
inn mundi „gefa áhorfendum um
allan heim rangar og villandi upp-
lýsmgar".
Ýmsir kunnir leikarar koma fram
í myndaflokknum, þeirra á meðal
Bob Hoskins, sem fer með hlutverk
Mussolinis, og Anthony Hopkins,
sem leikur Galeazzo Ciano greifa,
tengdason einræðisherrans og ut-
anríkisráðherra hans.
Að margra dómi er Hoskins
ekkert líkur Mussolini, en þegar
leitað var álits hanS á þeirri gagn-
rýni sagði hann: „Feginn er ég!“
Fasistaríki Mussolinis hrundi til
grunna í styrjöld, sem fáir landar
hans vildu. Núlifandi mönnum kann
að virðast hann hlægilegur og af-
káralegur. Menn virðast aðallega
muna eftir „óperustellingum" hans
og hryllilegum dauðdaga, en hann
var við völd í 23 ár og orð hans
voru lög.
Mussolini var jámsmiðssonur og
skírður Benito í höfuðið á mexík-
Á þessum árum var Mussolini
einfaldur, fátækur öfgamaður í
Mflanó. Hann var ritstjóri blaðsins
„La Lotta di Classe" (Stéttastríðið),
samdi smásögu andsnúna klerkum
og klerkavaldi, („Hjákonu kardinál-
ans“), og var fylgjandi sósíalískri
byltingu. „Sá sem á stál á brauð,"
var eftirlætis málsháttur hans.
Ungur að árum stundaði Mussol-
ini undirróðursstarfsemi í Sviss og
Austurríki og var rekinn frá báðum
löndunum. Seinna rak hann áróður
á móti stríði ítala gegn Tyrkjum út
af Tripoli og hafnaði í fangelsi.
Mussolini barðist gegn því að
ítalir hæfu þátttöku í fyrri heims-
styijöldinni. Eftir stríðið sagði hann
skilið við bolsévisma, þar sem leið-
togar hans hvöttu til alþjóðlegrar
samstöðu verkamanna gegn þjóð-
legum ríkisstjómum.
Hann sigaði stormsveitum svart-
stakka sinna (sem voru aðallega
fyrrverandi hermenn) á kommún-
ista og stuðningsmenn þeirra, sem
voru í óða önn að koma á laggimar
ráðstjómum í bæjum um alla Norð-
ur-ítalíu og boðuðu byltingu. Fas-
istar voru ekki síður ákveðnir í því
að kollvarpa ríki borgarastéttarinn-
ar og hótuðu í rúmt ár að sækja
til Rómar í nafni þjóðarinnar.
Viktor Emmanuel konungur III
taldi að Mussolini gæti bundið enda
;á byltingaröngþveiti og bað hann
að taka við stjóminni 1922. Árang-
urinn var hin fræga „herganga til
Rómar", en raunar fór Mussolini
þangað með jámbrautarlest. Síðan
kvaddi hann svartstakka sína á
Mussolini, Rachele kona hans og böm þeirra (talið frá vinstri) Anna Maria,
Romano, Vittorio, Edda (fyrir aftan Vittorio) og Bruno.
Ciano greifi:
tengdafaðirinn lét skjóta hann.
anska byltingarleiðtoganum Benito
Juarez. „Einn góðan veðurdag vek
ég furðu heimsins," sagði hann við
móður sína í bemsku og hann varð
staðráðinn í að marka djúp spor í
sögunni.
I byijun aldarinnar voru margir
ungir uppreisnarmenn haldnir svip-
uðum metnaði og töldu sig ofur-
menni í anda Nietzches. Mussolini
var einn þeirra fáu, sem gerðu
þennan draum að veruleika.
Fáir muna að Mussolini leit eitt
sinn á sig sem „Lenín Ítalíu".
Lenín svaraði hólinu með því að
kalla hann björtustu von bolsévism-
ans í röðum sósíalista Evrópu.
Cianoogfrú:
óumflýjanlegt?
FALLIN
RISI
Umdeildur myndaflokkur um