Morgunblaðið - 26.01.1986, Qupperneq 12
12 B
JtfORGiUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR26. JANÚAR1986
Mussolini lék á fiðlu,
þótt hann væri enginn
snillingur.
leifar Mussolinis voru lagðar til
hinztu hvíldar í fjölskyldugrafreit
löngu síðar, 1. september 1957.
Nafn Mussolinis var hálfgert
bannorð í fjóra áratugi eftir stríðið,
eða allt þar til dró að 100 ára
afmæli hans fyrir þremur árum.
Þá var sá þagnarmúr, sem hafði
umlukið nafti hans, rofínn. Margir
ítalir fengu aftur áhuga á Mussolini
og hann kom m.a. fram í gerð
vinsælla kvikmynda og sjónvarps-
þátta um hann, þeirra á meðal „Ég
og Mussolini", og útgáfu metsölu-
bóka um hann.
Kvikmynd var gerð eftir einni
þessara bóka, ævisögu Clöru Pet-
acci. Útgefendur kepptust um að
fá að gefa út dagbækur og endur-
minningar frá fasistatímanum.
Sjálfsævisaga Mussolinis var end-
urprentuð í fyrsta sinn síðan á
fasistatímanum. Skömmu fyrir ald-
arafmælið sýndi ítalska ríkissjón-
varpið myndaflokk í fimm þáttum
er nefndist „Allir menn Duces".
Lítið hafði verið gert úr minningu
Mussolinis í þorpinu þar sem hann
fæddist, Predappio, um 90 km
norðaustur af Flórenz, en þar var
mikið um dýrðir á aldarafmæli
hans. Nýfasistar efndu til sorgar-
hátíðar og fengu Vittorio, son
Mussolinis, til þess að koma frá
Argentínu, þar sem hann hefur
dvalizt í útlegð frá stríðslokum.
Annar sonur Mussolinis, Rom-
ano, hefur lengi verið í sviðsljósinu
(þriðji bróðirinn, Bruno, fórst í flug-
slysi 1941). Hann hefur lengi verið
einn kunnasti jazzpíanóleikari ítala,
og sagði af sér sem yfírmaður
heraflans. Hann hélt að hann yrði
áfram leiðtogi þjóðarinnar — Duce
— en konungurinn hafði undirbúið
stjómarbyltingu. Mussolini var
handtekinn þegar hann kom út úr
konungshöllinni og sendur í útlegð
til eyjunnar Ponza vestur af Napoli.
Þaðan var hann fluttur til ferða-
mannastaðarins Gran Sassano í
íjöllunum norðaustur af Róm, sem
hann kallaði „hæsta fangelsi í
heimi". Þýzkir fallhlífahermenn
undir stjóm Ottos Scorzeny ofursta
björguðu honum í svifflugum 8.
september og fluttu hann, niður-
brotinn á sál og líkama, til Munc-
hen. Hann átti sér þá einu ósk að
setjast í helgan stein á sveitasetri
sínu, en fór aftur til Norður-Ítalíu
að kröfu Hitlers og myndaði lepp-
stjóm í Salo við Gardavatn.
Þjóðverjar réðu lögum og lofum
og Mussolini hafði yflr litlum sem
engum her að ráða. Það eina sem
hann gat var að láta dæma flmm
hinna 19 fasistaleiðtoga, sem höfðu
greitt atkvæði gegn honum, og leiða
þá fyrir aftökusveit. Einn hinna
dæmdu var Ciano greifí. Edda
reyndi árangurslaust að fá föður
sinn til að þyrma lífí eiginmanns
síns. En Þjóðveijar hæddust að
Mussolini og hann vildi ekki sýna
linkind.
Þrátt fyrir allt naut Mussolini enn
vinsælda í lok stríðsins, _en hann
vissi að öllu var lokið. Á síðustu
stundu reyndi hann að semja við
skæruliða, en án árangurs. Þá frétti
hann að Þjóðveijar væm að hörfa
frá Mílanó og hrópaði „Tradito,
Tradito, ancora dai tedeschi!"
(„Þjóðveijar hafa aftur svikið
mig“). Hann ákvað að slást í för
með þýzkri vörubíla- og skriðdreka-
lest, sem ætlaði yfír Alpana til
Þýzkalands.
Skæruliðar stöðvuðu bflalestina
við umferðartálma á þröngum vegi
(hann hét réttu nafni Walter Audis-
io og var kosinn á þing fyrir komm-
únista eftir stríð).
Hann hafði orðið sér úti um
handtökutilskipun, ef vera kynni
að hann hefði upp á Mussolini, og
samkvæmt henni var honum í
sjálfsvald sett hvað hann gerði við
hann. Hann ók ásamt vini sínum
til býlisins og þeir komu að Mussol-
ini og Clöru í rúminu.
Mussolini var ekki með á nótun-
um: „Svo að þið eruð komnir til að
bjarga mér,“ sagði hann, „ég skal
gefa ykkur heimsveldi." Hann og
hjákona hans voru færð til nálægrar
gijótnámu. Mussolini var leiddur
upp að vegg. Þegar Clara sá að
skæruliðamir ætluðu að skjóta
hann stillti hún sér fyrir framan
hann. Þau voru bæði skotin til bana.
Líkin voru skilin eftir í námunni,
en tólf tímum síðar voru þau flutt
til Mflanó og skilin eftir á torginu
Piazzale Loreto. Líkin voru vanvirt
og voru því hengd upp þar sem
erfítt var að komast að þeim hjá
benzínstöð á torginu. Jarðneskar
við Como-vatn. Þjóðveijar gátu
hæglega brotizt í gegn, en vildu
komast hjá frekari vandræðum og
leyfðu skæruliðunum að leita í bfl-
unum. I einum þeirra fundu þeir
mann í þykkum, þýzkum frakka og
það reyndist vera Mussolini.
Nokkrir ítalskir ráðherrar fund-
ust einnig í bflalestinni og voru
færðir til næsta bæjar, þar sem
þeir vom skotnir. Mussolini var
falinn á afskekktu býli. Clara Pet-
acci, hjákona hans, sem hafði elt
hann, hafði upp á honum á býlinu
og var látin dúsa hjá honum.
Einn af leiðtogum skæruliða,
„Valerio ofursti", komst að því
daginn eftir að einn helzti leiðtogi
fasista væri falinn á þessum sta'
„Ég, Mussolini"
.. .ónákvæmni i myndaflokki.
FALLINN
RISI
r
L.
Veitingahú.sið SPRENGISAJTOUR
gerir kuxmagt>Um siðustu helgi
var hamborgaraútsala ~ núna er
TVEGGJA DlAGA
„KJUKLINGA
UTSALA
.BITINN VERÐUR A
45 KALL!!
VEITINGAHÚSIÐ
SFBENGISANDUR
Bústaðavegi 153 © 6 88 0-88
'l'ömas ATómasson
Ptrgwj'
í Kaupmannahöfn
\
FÆST
í BLAÐASÖLUNNI
ÁJÁRNBRAUTA-
STÖÐINNI,
KASTRUPFLUGVELLI
OG Á RÁÐHÚSTORGI