Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 14

Morgunblaðið - 21.02.1986, Page 14
m 'MORGUNBLADIÐ, FÓSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1086 Leggst félag Óháðra borgara þá niður? eftirÞórarin Jón Magnússon Ámi Gunnlaugsson hæstaréttar- lögmaður hefur verið ólatur að tjá sig í Morgunblaðinu um kosninguna um opnun áfengisútsölu í Hafnar- fírði og eins er mikið ritað um þau mál í blaði hans, Borgaranum, sem gefíð er út í Hafnarfírði. Sé ég mig knúinn til að gera athugasemdir við nokkuð af málflutningi Áma, þar sem ég tók virkan þátt í undir- skriftasöfnun þeirri sem leiddi til þess að nú er komið að kosningu um áfengisverslun. í fyrsta lagi er það alrangt hjá Áma, að þátttakan í undirskrifta- söfnuninni hafí valdið aðstandend- um hennar vonbrigðum. Liðlega tvö þúsund bæjarbúar rituðu nöfn sín undir áskorunina eða meira en þriðjungur þeirra sem þátt tóku í síðustu bæjarstjómarkosningum. Verður það að teljast mjög góð þátttaka. Til þess mikla §ölda náð- ist með því einu að láta undir- skriftalistana liggja frammi á fáein- um stöðum í Hafnarfírði um hríð. Ekki var gengið með listana í hús eða hinn minnsti áróður hafður í frammi þeirra vegna. Með undirskriftalistanum var skorað á bæjaryfírvöld, að láta fara fram könnun á vilja bæjarbúa í þessum efnum, en þess ekki kraf- ist. Og aldrei var því lýst yfír, að stefnt væri að því að ná nægilegum fjölda til að gera það bindandi fyrir bæjaryfírvöld að láta slíka könnun fara fram. Hins vegar leiddi hin mikla þátttaka til þess að bæjar- stjóm sá sér ekki annað fært, en að verða við áskomninni. Leg-gst félag Óháðra borgara þá niður? Það má vel vera, að Áma fínnist lítið til þess fjölda koma og þyki hann ekki marktækur, en fínnst honum þá ekki, að félag Óháðra borgara ætti að draga sig út úr afskiptum af sveitarstjómarmálum úr því þeir fengu ekki nema 1239 atkvæði í síðustu sveitarstjómar- kosningum. Getur það talist nægi- lega marktækur fjöldi til að vert sé að fara að vilja hans? Ámi og skoðanabræður hans hamra stöðugt á þeim rökum, að með opnun áfengisútsölu í Hafnar- fírði verði fjandinn laus, bæjarbúar missi stjóm á sér og fari á hvínandi fyllerí. Bæjarbúum er nú ekki betur treyst af óháðum. En þessar fullyrð- ingar em afar léttvægar, því Hafn- fírðingar eiga ekki langt að sækja áfengi í dag eða aðeins fáa kíló- metra til Reykjavíkur. Og þá vega- lengd láta þeir ekki aftra sér ef þeir á ánnað borð hafa hug á að versla við áfengisverslun. En það kostar samt óþarfa fé, tíma og fyrirhöfn og síðast en ekki síst verulegt tekjutap fyrir Hafnarfjörð, því fjölmargir þeirra sem verða að leggja leið sína til Reykjavíkur til áfengiskaupa á föstudegi, freistast til að gera í leiðinni helgarinnkaupin í nýlenduvömverslunum höfuð- borgarinnar í stað þess að láta hafnfírska kaupmenn njóta við- skiptanna. Eru íbúar Reykjaness mikið neyslugrennri? Og nú á fljótlega að opna áfeng- isútsölu í Hagkaupshúsinu við Kringlumýrarbraut. Hafnfírskri verslun stafar mikil ógn af því ævintýralandi verslunar- og við- skipta, sem er að rísa í Kringlunni. Ekki verður óttinn ástæðuminni ef svo fer, að þar verði sú áfengisút- Þórarinn Jón Magnússon „Samkvæmt tölum frá Þjóðhagsstofnun var velta smásöluverslunar í Reykjavík 1984 ríf- lega 120 þúsund krónur á íbúa á meðan hver íbúi á Reykjanesi virð- ist ekki hafa verslað fyrir nema tæpar 56 þúsund krónur...“ sala, sem bæjarbúar eiga styst í að sækja. Margar verslanir í Hafn- arfírði standa á það miklum brauð- fótum í dag, að við frekari sam- drætti mega þær ekki. Segir það ekki sína sögu, að samkvæmt tölum frá Þjóðhags- stofnun hafí velta smásöluverslunar í Reykjavík 1984 verið ríflega 120 þúsund krónur á íbúa á meðan hver íbúi á Reykjanesi virðist ekki hafa verslað nema fyrir tæpar 56 þúsund krónur? Það segir mér enginn, að þessi mikli mismunur stafí af því, að við Hafnfírðingar og aðrir á Reylq'anesi séum svona miklu neyslugrennri en höfuðborgarbúar. Rök andstæðinga áfengisversl- unar í Hafnarfírði hafa gjarnan verið þau, að slíkur verslunarrekst- ur muni auka áfengisneyslu ung- menna í bænum. Um það leyfí ég mér að efast stórlega. Kemur þar einkum tvennt til. í fyrsta lagi vit- um við, að sala áfengis til yngri en 20 ára er bönnuð og síðast af öllu er við því að búast, að þau ung- menni, sem vilja gera tilraun til áfengiskaupa, geri tilraun til þess í bæ eins og Hafnarfírði þar sem „allir þekkja alla“. Aukið framboð — minni neysla Þá er í öðru lagi rétt að vekja athygli á þeirri miklu hugarfars- breytingu gagnvart áfengi sem átt hefur sér stað á allra síðustu árum og þá ekki síst meðal ungs fólks. Nú er það svo, að það er einfaldlega ekki „í stælnum" að sýna sig draug- Meatprt ' konudegf :_; UlAm ó knni KÍei Bæjarins mesta blómaúrval. Blómum .„Sfiora víðavcröW • Konudagsskreytingar með be lAuqeR Hmvatm. • vandaðar skreytingar með ESTO ^ • Athugið að við opnum a konud g • Kaffiákönnunniallandaginn. Konudagsbtómin fær&u hjá okkur. 9CMW _ vií Sigtún: Símar 36770-686340 Gróóurhúsinu

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.