Morgunblaðið - 21.02.1986, Síða 14
m
'MORGUNBLADIÐ, FÓSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1086
Leggst félag Óháðra
borgara þá niður?
eftirÞórarin Jón
Magnússon
Ámi Gunnlaugsson hæstaréttar-
lögmaður hefur verið ólatur að tjá
sig í Morgunblaðinu um kosninguna
um opnun áfengisútsölu í Hafnar-
fírði og eins er mikið ritað um þau
mál í blaði hans, Borgaranum, sem
gefíð er út í Hafnarfírði. Sé ég mig
knúinn til að gera athugasemdir við
nokkuð af málflutningi Áma, þar
sem ég tók virkan þátt í undir-
skriftasöfnun þeirri sem leiddi til
þess að nú er komið að kosningu
um áfengisverslun.
í fyrsta lagi er það alrangt hjá
Áma, að þátttakan í undirskrifta-
söfnuninni hafí valdið aðstandend-
um hennar vonbrigðum. Liðlega tvö
þúsund bæjarbúar rituðu nöfn sín
undir áskorunina eða meira en
þriðjungur þeirra sem þátt tóku í
síðustu bæjarstjómarkosningum.
Verður það að teljast mjög góð
þátttaka. Til þess mikla §ölda náð-
ist með því einu að láta undir-
skriftalistana liggja frammi á fáein-
um stöðum í Hafnarfírði um hríð.
Ekki var gengið með listana í hús
eða hinn minnsti áróður hafður í
frammi þeirra vegna.
Með undirskriftalistanum var
skorað á bæjaryfírvöld, að láta
fara fram könnun á vilja bæjarbúa
í þessum efnum, en þess ekki kraf-
ist. Og aldrei var því lýst yfír, að
stefnt væri að því að ná nægilegum
fjölda til að gera það bindandi fyrir
bæjaryfírvöld að láta slíka könnun
fara fram. Hins vegar leiddi hin
mikla þátttaka til þess að bæjar-
stjóm sá sér ekki annað fært, en
að verða við áskomninni.
Leg-gst félag Óháðra
borgara þá niður?
Það má vel vera, að Áma fínnist
lítið til þess fjölda koma og þyki
hann ekki marktækur, en fínnst
honum þá ekki, að félag Óháðra
borgara ætti að draga sig út úr
afskiptum af sveitarstjómarmálum
úr því þeir fengu ekki nema 1239
atkvæði í síðustu sveitarstjómar-
kosningum. Getur það talist nægi-
lega marktækur fjöldi til að vert
sé að fara að vilja hans?
Ámi og skoðanabræður hans
hamra stöðugt á þeim rökum, að
með opnun áfengisútsölu í Hafnar-
fírði verði fjandinn laus, bæjarbúar
missi stjóm á sér og fari á hvínandi
fyllerí. Bæjarbúum er nú ekki betur
treyst af óháðum. En þessar fullyrð-
ingar em afar léttvægar, því Hafn-
fírðingar eiga ekki langt að sækja
áfengi í dag eða aðeins fáa kíló-
metra til Reykjavíkur. Og þá vega-
lengd láta þeir ekki aftra sér ef
þeir á ánnað borð hafa hug á að
versla við áfengisverslun. En það
kostar samt óþarfa fé, tíma og
fyrirhöfn og síðast en ekki síst
verulegt tekjutap fyrir Hafnarfjörð,
því fjölmargir þeirra sem verða að
leggja leið sína til Reykjavíkur til
áfengiskaupa á föstudegi, freistast
til að gera í leiðinni helgarinnkaupin
í nýlenduvömverslunum höfuð-
borgarinnar í stað þess að láta
hafnfírska kaupmenn njóta við-
skiptanna.
Eru íbúar Reykjaness
mikið neyslugrennri?
Og nú á fljótlega að opna áfeng-
isútsölu í Hagkaupshúsinu við
Kringlumýrarbraut. Hafnfírskri
verslun stafar mikil ógn af því
ævintýralandi verslunar- og við-
skipta, sem er að rísa í Kringlunni.
Ekki verður óttinn ástæðuminni ef
svo fer, að þar verði sú áfengisút-
Þórarinn Jón Magnússon
„Samkvæmt tölum frá
Þjóðhagsstofnun var
velta smásöluverslunar
í Reykjavík 1984 ríf-
lega 120 þúsund krónur
á íbúa á meðan hver
íbúi á Reykjanesi virð-
ist ekki hafa verslað
fyrir nema tæpar 56
þúsund krónur...“
sala, sem bæjarbúar eiga styst í
að sækja. Margar verslanir í Hafn-
arfírði standa á það miklum brauð-
fótum í dag, að við frekari sam-
drætti mega þær ekki.
Segir það ekki sína sögu, að
samkvæmt tölum frá Þjóðhags-
stofnun hafí velta smásöluverslunar
í Reykjavík 1984 verið ríflega 120
þúsund krónur á íbúa á meðan hver
íbúi á Reykjanesi virðist ekki hafa
verslað nema fyrir tæpar 56 þúsund
krónur? Það segir mér enginn, að
þessi mikli mismunur stafí af því,
að við Hafnfírðingar og aðrir á
Reylq'anesi séum svona miklu
neyslugrennri en höfuðborgarbúar.
Rök andstæðinga áfengisversl-
unar í Hafnarfírði hafa gjarnan
verið þau, að slíkur verslunarrekst-
ur muni auka áfengisneyslu ung-
menna í bænum. Um það leyfí ég
mér að efast stórlega. Kemur þar
einkum tvennt til. í fyrsta lagi vit-
um við, að sala áfengis til yngri en
20 ára er bönnuð og síðast af öllu
er við því að búast, að þau ung-
menni, sem vilja gera tilraun til
áfengiskaupa, geri tilraun til þess
í bæ eins og Hafnarfírði þar sem
„allir þekkja alla“.
Aukið framboð —
minni neysla
Þá er í öðru lagi rétt að vekja
athygli á þeirri miklu hugarfars-
breytingu gagnvart áfengi sem átt
hefur sér stað á allra síðustu árum
og þá ekki síst meðal ungs fólks.
Nú er það svo, að það er einfaldlega
ekki „í stælnum" að sýna sig draug-
Meatprt
' konudegf
:_; UlAm ó knni KÍei
Bæjarins mesta blómaúrval.
Blómum
.„Sfiora víðavcröW
• Konudagsskreytingar með be lAuqeR Hmvatm.
• vandaðar skreytingar með ESTO ^
• Athugið að við opnum a konud g
• Kaffiákönnunniallandaginn.
Konudagsbtómin fær&u hjá okkur.
9CMW _
vií Sigtún: Símar 36770-686340
Gróóurhúsinu