Morgunblaðið - 21.02.1986, Qupperneq 22
22
MORGUNBLAÐIÐ, FOSTUDAGUR 21. FEBRÚAR1986
Ríkisstjórn Thatchers í Bretlandi:
Breytir útreikn-
ingi atvinnuleys-
is í 15. skiptið
Lundúnum, 20. febrúar. AP.
BRESKA ríkisstjórnin tilkynnti að hún myndi breyta útreikningi
sínum á atvinnuleysi í landinu, til þess að atvinnuleysistölur gæfu
réttari mynd af raunverulegu atvinnuleysi. Jafnframt muni tölur
um atvinnuleysi vera gefnar út tveimur vikum síðar en hingað til
hefur verið. Sjórnarandstæðingar ásaka ríkissljórnina um að reyna
að falsa tölur um atvinnuleysi til þess að reyna að fela hversu mikið
það er.
amar að þær væm til þess gerðar
meðal annars að ná til þess fólks
sem fær atvinnu stuttu eftir að það
hefur skráð sig atvinnulaust. Búist
er við að nýja reikniaðferðin lækki
atvinnuleysistölur um 0,2-0,3%.
John Prescott, talsmaður Verka-
mannaflokksins í atvinnumálum,
sagði hins vegar að tölur ríkisstjóm-
arinnar um atvinnuleysi gæfu svo
ranga mynd af því að það væri
ekki lengur mark á þeim takandi.
Óháður hópur fólks sem rannsak-
ar ástand atvinnuleysismála á Bret-
landi, segir að þetta sé fímmtánda
breyting ríkisstjómar Margaret
Thatcher á útreikningi atvinnuleys-
is.
Argentínskir þingmenn íBretlandi
FJORIR argentínskir þingmenn eru í óopinberri heimsókn í
Bretlandi til að ræða samskipti þjóðanna og hvernig megi bæta
þau, einkum með tilliti til Falklandseyjastríðsins, en þá var
stjómmálasamband þjóðanna rofið og hefur ekki verið tekið
upp síðan. Breska ríkisstjórnin neitaði að hitta þá að máli, nema
með þvi skilyrði að ekki yrði rætt um Falklandseyjamálið og
gátu þeir ekki fallist á það skilyrði. Myndin sýnir breskan íhalds-
þingmann taka á móti þingmönnunum.
3,4 milljónir manna vom atvinnu-
lausar í Bretlandi í janúarmánuði.
Samkvæmt gömlu reikniaðferðinni
jafngildir það að 14,1% af vinnuafl-
inu hafi gengið atvinnulaust sér-
hvem dag í janúarmánuði og sé
tekið mið af árstíma jafngildir þetta
13,2% atvinnuleysi.
Lord Young, atvinnumálaráð-
herra Bretlands, sagði um breyting-
Líberíumenn
snúa baki við
Duvalier
Monroviu, 20.febrúar. AP.
RÍKISSTJÓRN Líberíu tilkynnti
Kína:
Líflátn-
ir fyrir
nauðganir
Peking, 20. febrúar. AP.
TVEIR synir háttsettra kínver-
skra embættismanna, auk þriðja
mannsins, voru líflátnir í gær,
miðvikudag, þar sem þeir höfðu
verið fundnir sekir um nauðgan-
ir. Aftökurnar, sem fóru fram i
Shanghai, eiga að sýna, „að allir
eru jafnir fyrir lögunum" að
sögn málgagns kínverska komm-
únistaflokksins, Peoples Dayly.
Mennimir þrír, ásamt þremur
félögum þeirra sem hlutu fangelsis-
dóma, vom fundnir sekir um að
hafa nauðgað sex konum. Þrívegis
höfðu þeir gert tilraunir til nauðg-
ana og auk þessa sagði dómurinn
að 42 sinnum hefðu þeir gerst sekir
um að hafa tælt eða verið með óvið-
urkvæmt athæfí gagnvart konum.
Þetta mál er talið bera vott um
að leiðtogar Kommúnistaflokksins
hyggjast efna loforð sitt frá því í
síðasta mánuði um að afhjúpa og
hegna spilltum embættismönnum
og afkomendum þeirra, en óánægja
kínverskrar alþýðu hefur verið mikil
vegna misbeitingu valds og forrétt-
inda í samfélaginu.
Challengerslysið:
E1 d f 1 aug-ave rk fræ ð ingar
lögðust gegn geimskotinu
Kanaveralhöfða, 20. febrúar. AP.
ÞRÍR STARFSMENN bandarísku geimvísindastofnunarinnar
(NASA), sem tóku þá ákvörðun að skjóta Challenger á loft í
hinztu ferð geimfeijunnar, var ekki skýrt frá því að eldflauga-
verkfræðingar höfðu „varað sterklega við geimskoti", að því er
talsmaður rannsóknamefndarinnar, sem Reagan Bandaríkjafor-
seti skipaði eftir slysið, skýrði frá í dag. Hann sagði athugun
nefndannnar hafa leitt í Ijós „hrollvekjandi" staðreyndir um
skipulag stofnunarinnar og að hryllilegt væri að menn, sem
ákveða hvort geimskot skuli reynt eða ekki, fái ekki mikilvægar
upplýsingar frá undirmönnum sínum og aðstoðarmönnum.
í gærkvöldi að hún hefði synjað
beiðni franskra stjórnvalda um
að veita Jean-Claude Duvalier,
fyrrum Haitiforseta, pólitískt
hæli.
í yfírlýsingu stjómarinnar segir
að beiðni frönsku stjómarinnar hafí
verið rækilega skoðuð og að vand-
lega athuguðu máli hafí Frakk-
landsstjóm verið tilkynnt að því
miður gæti Líberíustjóm á þessu
stigi ekki veitt Duvalier hæli.
Yfírvöld í Líberíu höfðu gefíð í
skyn að þau gætu hugsanlega ljáð
máls á því að veita Duvalier hæli.
Mikil andstaða hefur verið við þá
ráðagerð heima fyrir. Duvalier
dvelst nú á hóteli í Talloires í aust-
urhluta Frakklands. Til Frakklands
kom hann 7. febrúar. Franska
stjómin synjaði í gær formlega
beiðni Duvaliers um hæli þar í landi
og ítrekaði að hún skyti aðeins yfír
hann skjólshúsi þar til tekizt hefði
að útvega honum hæli í öðru landi.
Hermt er að eigur Duvaliers nemi
einhvers staðar á bilinu 200 til 800
milljónum dollara. Frönsk blöð
skýra frá því að hann eigi lúxus-
íbúðir við Foch-breiðgötuna í Pan's,
þar sem fasteignir fást ekki fyrir
slikk, höll fyrir utan París og óðals-
setur syðst í Frakklandi. Hann er
einnig skráður fyrir fasteignum í
Sviss og Bandaríkjunum, en bæði
ríkin hafa neitað að taka við honum.
Sífellt fleiri kafbátar taka þátt
í leitinni að hjálparflauginni, sem
talið er, að kunni að hafa verið
meginorsök Challenger-slyssins
28. janúar sl., að sögn embættis-
manna. Tekizt hefur að afmarka
það svæði, sem brak úr flauginni
kom niður á.
Sjö manna kjamorkuknúinn
rannsóknarkafbátur bættist í
þennan flota í gær. „Við væntum
þess, að hann komi að góðu gagni
við að fínna hjálparflaugamar,
sérstaklega hina hægri," sagði
Jim Mizell, talsmaður Geimferða-
stofnunarinnar.
Báturinn getur unnið á allt að
720 metra dýpi. Um helgina til-
kynnti áhöfn annars rannsókn-
arkafbáts, að vera kynni, að hluti
hægri flaugarinnar væri fundinn.
Þær kenningar, sem nú em
uppi um orsök slyssins, hníga
helst að því, að leki á samskeytum
tveggja aðalhluta flaugarinnar
hafi valdið sprengingunni, sem
grandaði Challenger.
William P. Rogers, fyrmrn
utanríkisráðherra, formaður
rannsóknamefndarinnar, sem
Ronald Reagan forseti skipaði
eftir Challenger-slysið, kvað æski-
legt, að hjálparflaugin fyndist, en
vildi þó ekki útiloka aðrar skýring-
ar á slysinu, t.d. bilun í aðalelds-
neytisflauginni.
Einn nefndarmannanna, Ric-
hard P. Feynman, nóbelsverð-
launahafí í eðlisfræði, sagði í
viðtali við Washington Post á
mánudag, að skráningartölur um
hitastig á og yfír skotstað hefðu
verið svo óvenjulegar, að nefndin
hefði falið honum á skera- úr um,
hvort þar gæti verið um að ræða
„mælingarskekkjur".
Nefndin er að reyna að gera
sér grein fyrir, hvort lágt hitastig
geti hafa dregið úr eiginleikum
þéttihringja á samskeytum aðal-
flaugarhlutans og botnstykkisins.
/ r
AFRAM ISLAND
HAPPDRÆTTI HSÍ
Heildarverðmæti vinninga 7,4 milljónir
4WB&. 15 BÍLAR
40 FERÐAVINNINGAR
Dregið 10. janúar og
7. febrúar
SKATTFRJ/U.S1R VINNINGAR;
15 BÍLAR
5 SUZUKI FOX413 Hígh ficoi Kr. aw fxí,. jiw
10 FORD ESCORT LASER k,. ns þa/hvw
AFRAM ISLANO
'Xima>. 15 BÍLAR
fljr ch 2t FEBRUAR
40 FERÐAVINNINGAR
Kr. 30 þus. hvttf Sarmnnnuferðk -L*ndsýn '
d,ogr-» l: 10. JANOAP SSJ
HEllOARVERÐMÆTl
VINNINGAKR, 7,4MlCLJÓN
ÞESSl W/Ot G'LD/R í HVEHT S/NN SEM DHEG/Ð ER EFTW AD KANN ER GREIDDUR