Morgunblaðið - 06.04.1986, Síða 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 6. APRÍL1986
Bladburöarfólk
óskast!
AUSTURBÆR ÚTHVERFI
Þingholtsstræti Birkihlíð.
Skákkeppni stofnana og fyr-
irtækja hefst 7. apríl nk.
SKÁKKEPPNI stofnana og
fyrirtækja fer fram í aprílmán-
uði. Teflt verður í félagsheimili
Taflfélags Reykjavikur á
Grensávegi 44—46. Keppt verð-
ur eins og undanfarið í tveimur
riðlum, A- og B-riðli. Til þátt-
töku í A-riðli eiga rétt þær 17
sveitir sem efstar voru í þeim
riðli 1985 ásamt fimm efstu
sveitunum úr B-riðii 1985. Njj-
ar sveitir byija í B-riðli.
Hver skáksveit skal skipuð 4
mönnum auk 1—4 til vara, þar
sem ætlaður styrkleiki ræður röð.
Fjöldi sveita frá hvetju fyrirtæki
eða hverri stofnun er ekki tak-
markaður, en séu þær fleiri en
ein er ætlast til þess, að keppend-
um sé raðað í sveitir eftir styrk-
leika, þannig að A-sveit skipi þeir,
sem ætla má að séu sterkastir.
I keppninni verða tefldar 7
umferðir eftir Monrad-kerfí. Hver
keppandi hefur 1 klst. fyrir hveija
skák. Keppnin hefst kl. 20.00
hvem keppnisdag. Fyrsta daginn
verður tefld ein umferð en síðari
dagana tvær á kvöldi.
I A-riðli hefst keppnin mánu-
daginn 7. apríl nk. og verður síðan
framhaldið 14., 21. og 28. aprfl.
Hraðskákmót fer fram 5. maí.
í B-riðli hefst keppnin miðviku-
daginn 9. aprfl og verður síðan
framhaldið 16., 23. og 30. aprfl.
Hraðskákmót fer fram 7. maí.
Umsjónarmaður keppninnar er
Ólafur H. Ólafsson, en skákstjórar
verða þeir Jóhannes Agústsson
og Georg Páll Skúlason.
Þátttöku í keppnina má til-
kynna í síma Taflfélagsins á
kvöldin kl. 20—22, en lokaskrán-
ing í A-riðli verður sunnudaginn
6. aprfl kl. 14—17 og í B-riðli
þriðjudaginn 8. apríl kl. 20—22.
Þátttökugjald er kr. 4.000 fyrir
hveija sveit.
(Fréttatilkynning)
Vísnasöngur
í Hafnarfirði
MÁNUDAGINN 7. apríl verður
haldið skemmtikvöld í Gaflinum,
Hafnarfirði og hefst kl. 20.30.
Þar munu skemmta finnski
vísnasöngvarinn Henrik Huldén,
sem er þekktur fyrir vísnasöng á
sænsku, ásamt þeim Bergþóru
Amadóttur og Aðalsteini Ásberg
Sigurðssyni, en þau em velþekkt
fyrir söng sinn, ljóðagerð og laga-
smíðar. Nú síðast átti Aðalsteinn
eitt af tíu lögum sem kepptu til
úrslita í Eurovision-keppninni hér.
Bergþóra er nýkomin úr söngferða-
lagi um Norðurlönd.
6 deildir innan Norræna félagsins
standa að skemmtuninni. N.f. í
Keflavík, Grindavík, Hafnarfirði,
Garðabæ, Kópavogi og Mosfells-
sveit.
(Fréttatilkynning).
Mjólkin gefiir
aólt tttlif
Með góðu útliti er yfirleitt átt við fallega
líkamsbyggingu, hæfilegt holdafar, fagurt
andlitsfall, heilbrigðar tennnur og góða húð.
Fæða hefur bein áhrif á útlit okkar og vellíðan.
Tengsl mataræðis og útlits eru svo margslungin
að næstum öll næringarefni fæðunnar, yfir 40
talsins, koma þar við sögu.
Öll viljum við líta vel út. En sýningarfólk byggir
atvinnu sína og afkomu á góðu útliti. Ragna
Sæmundsdóttir er ein okkar efnilegasta fyrirsæta.
Hún veit að mjólkurdrykkir hafa umtalsverð og
jákvæð áhrif á útlit okkar. Hún drekkur mjólk
daglega.
Úr mjólkinni fáum við kalk og magníum fyrir
tennur og bein og A-vitamín fyrir húðina. Einnig
mikið af B-vitaminum, sem gera húðinni gott og
ekki síður hári og nöglum. Síðast en ekki síst er
enginn sykur í venjulegum mjólkurdrykkjum, og
hver og einn getur ráðið fituinnihaldinu með þvi
að nota léttmjólk eða undanrennu.
Til að halda góðri heilsu og líta vel út þurfum við
fjölbreytt, gott fæði. I þeim efnum skipar
mjólkurmaturinn öndvegi.
MJÓLKURDAGSNEFND
jólk er nýmjólk, léttmjólk og undanrenna.
jm mjólk og tennur
Bftlr dr. Jón óttar Ragnarsson
Allt frá því tennumar byrja að myndast þurfa þær
kalk, fyrsttil uppbyggingar, síðar á ævinni til viðhalds.
Með daglegri mjólkumeyslu er líkamanum tryggður
lágmarks kalkskammtur, og þannig unnið gegn
hinum alvarlegu afleiðingum kalkskorts. Tennurnar
fá þannig á hverjum degi þau byggingarefni sem
þær þarfnast og verða sterkar og fallegar fram eftir
öllum aldri. Gleymum bara ekki að bursta þær
reglulega.