Morgunblaðið - 06.04.1986, Side 26
Lýðháskólinn
Skeppsholmens folkhögskola
— Sjöfolkhögskolan —
Vetrarnámskeið 2. sept.-22. maí 1986-87
Fjórar deildir: grunndeild, vistfræðideild, norræn deild og sjáv-
ardeild.
Meðal valfrjálsra námsgreina: tungumál, félagsfræði, mann-
kynssaga, stæröfræöi, sálfræði, bókmenntir. Einnig getur þú
valið siglingarfræði, vélfræöi, seglasaum og fl.
Heimavist á staðnum.
Námsstyrkirfyrir norræna nemendur.
Sendu okkur nafn og heimilisfang sem fyrst, þá færðu meiri
upplýsingar um skólann. Þú getur skrifað á íslensku.
SKEPPSHOLMENS
FOLKHÖGSKOLA
Skeppsholmen
111 49 Stockholm
Sverige.
Guðrún Péturs-
dóttir — Kveðja
Fædd 25. maí 1951
Dáin 27. mars 1986
Það hafa margir spurt hvenær
einstaklingur verði fullorðinn. Er
það þegar hann hættir að líta fram
á veginn og lifir í minningunni eða
er það merki um það að verða
gamall?
Okkur sem stöndum á hálffer-
tugu finnst að við séum enn ung
og eigum lífið framundan. Þess
vegna eigum við erfitt með að sætta
okkur við, að höggvið sé í hóp gömlu
vinanna. Hugurinn leitar sífellt
fram og þess á milli skýtur upp
leiftrum úr bók minninganna.
Okkur skólafélögunum þóttu það
sár tíðindi, að höggvið hefði verið
í gamla hópinn. Lífíð hafði kennt
Til solu eða leigu
Alþýðuhús ísfírðinga,
Norðurvegi 1, ísafírði.
Húsið er á besta stað í
bænum og hentar undir
margvíslega starfsemi.
3.487 m 3 , gólfflötur 520
m2 á þremur hæðum.
Allar nánari upplýsing-
ar gefur Pétur Sigurðs-
son, simi 94-3190.
okkur að heilsan væri það farar-
nesti, sem nauðsyn væri að bera
mót hverjum degi. En enda þótt við
vissum að ekki gengu allir heilir
þá bárum við öll þá ósk hið innra
með okkur að aftur mætti birta.
En maðurinn með ljáinn sýndi enga
miskunn og skyndilega voru minn-
ingar um kæra og einlæga skóla-
systur efst í hugum okkar. Guðrún
Pétursdóttir var dáin.
Myndin, sem lifir í hugum okkar,
er um glaða stúlku, einlæga vin-
konu, sem sífellt gat með mildi og
hjartahlýju gert gott úr öllum hlut-
um. Enda þótt hún væri alla tíð
prúð og hógvær í framkomu, þá
var alltaf eitthvað að gerast í kring-
um hana. Hún sá allar spaugilegu
hliðar málanna og brosið, hláturinn
og leiftrandi augnaráð hreif alla
með sér.
Leyndarmálin sem hún sagði
okkur og trúnaðurinn sem hún
sýndi okkur var einstakur. Enda
stóð hún oft sem sálusorgari hóps-
ins. Hún vildi að allir væru sáttir
og gerði sitt í því að svo mætti
vera. í viðmóti hennar var alla tíð
eitthvað, sem við á unga aldri skild-
um ekki hvað var en lífið hefur síðan
kennt okkur að var einstök um-
hyggja og kærleikur í garð náung-
ans.
Minningamar sem við eigum um
Guðrúnu standa dýpra en títt er.
Eftir að stúdentsprófi var náð
skildu leiðir um sinn því hvert og
eitt fórum við að sinna áhugamál-
um. Guðrún starfaði þá sem flug-
freyja, vann á talsambandinu við
útlönd og í gestamóttöku Hótel
KEA. Leiðimar lágu sjaldnar saman
en áður. En í hvert sinn, sem fund-
AIWA AIWA AIWA AIWA ÁIWA
Kaa iooær nr.
NÚ GETUR PÚ EIGNAST AIWA HLJÓM FRAMTÍÐARINNAR
að fagmaðurinn velur AIWA,
AIWA eru einfaldlega topp-tæki.
bjóðum við AIWA V-800 samstæðuna á
sérstöku tilboðsverði.
Verð áður kr. 69.000.- nú aðeins kr. 58.900.-
Okkar kjör, 25% út, eftirstöðvar á átta mánuðum.
Ármúla 38 og Garðabæ.
Símar 31133 og 651811
bAÐ
ER EKKI
AÐ
STÆÐULAUSU....
o,
um bar saman, þá fundum við öll
hennar umhyggju. Hún spurði
frétta af öllum vinunum og gerði
sér far um að fýlgjast með sem
best hún gat. Viðmótið var alla tíð
hið sama. Samt vissum við að hún
gekk ekki heil. Hún hafði sinn kross
að bera því heilsan var ekki söm
og áður. Við spurðum oft, af hveiju
Guðrún, en fengum engin svör.
Hún, sem alla tíð hafði verið ímynd
hins góða, fagra og fullkomna.
Nú þegar hún er gengin yfir
landamærin miklu, þá verður þakk-
lætið okkur efst í huga. Þakklæti
fyrir allar skemmtilegu samveru-
stundirnar. Það er okkar trú að nú
lifi hún fijáls og heil í ríki því sem
eilíft er. Þar mun hún njóta allra
sinna kærleiksverka.
Við biðjum góðan Guð að blessa
alla þá sem líf hennar var tengt
kærleiks- og vináttuböndum. for-
eldrum hennar, Sólveigu og Pétri
Sigurgeirssyni vottum við einlægar
samúðarkveðjur svo og systkinum
hennar Pétri, Kristínu, Sólveigu og
þeirra fjölskyldum.
Minningin um góða vinkonu mun
lifa. Enda þótt hér sé skrifað einum
penna, þá eru kveðjurnar margar
og minningamar enn fleiri. Þær
fylgja okkur á vit hins óþekkta.
Skólasystkini á Akureyri
Hið íslenska náttúru-
fræðifélag-:
Fyrirlestur
um Azoreyjar
TRAUSTI Jónsson, veðurfræð-
ingur, flytur fyrirlestur um
Azoreyjar á vegum Hins íslenska
náttúrufræðifélags mánudags-
kvöldið 7. apríl næstkomandi.
Fyrirlesturinn verður í stofu 201
í Áraagarði og hefst klukkan
20.30.
Flestallir munu hafa heyrt Azor-
eyja getið þótt fæstir þekki þær af
eigin raun, enda eru eyjamar mjög
afskekktar þar sem þær liggja úti
í reginhafi tæpa 2000 km frá strönd
Portúgals. Eins og ísland em þær
eldbrunnar og myndaðar við elds-
umbrot við mið-Atlantshafshrygg-
inn.
í fýrirlestrinum ætlar Trausti að
lýsa náttúmfari eyjanna, jarðfræði
þeirra og veðurfari í máli og mynd-
um, og öllum er heimill aðgangur.
(Fréttatilkynning.)
Milljón nýir
félagar á
síðasta ári
Peking. AP.
EIN MILLJÓN nýrra félaga bættist
í kínverska kommúnistaflokkinn á
sl. ári að því er segir í Æskulýðs-
fréttum í Peking á fimmtudag.
Þetta er dijúgt meira en 1984, þá
bættust 590 þúsund nýir félagar í
flokkinn samkvæmt opinbemm
tölum. Nú em samtals 42 milljónir
flokksbundnar. Mest gróska er
meðal ungs fólks, samkvæmt sömu
heimildum, og flykkist ungt fólk
nú til liðs við kommúnistaflokkinn
í langtum meiri mæli en áður.